Skessuhorn - 29.03.2006, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006
SS2SSUHÖBK1
Styttist í konu-
kvöld ÍA
Konukvöld ÍA fer fram í
sal Fjölbrautaskóla Vestur-
lands föstudaginn 7. apríl
nk. Þar mun Björgvin Franz
Gíslason sjá um stjórn
samkvæmisins og verður
með uppistand. Glæsilegur
og spennandi matseðill
verður í boði og má þar
nefna fína fiskrétti svo sem
humar og skelfisk að hætti
Egils og dádýrasteik og
nautalundir að hætti húss-
ins. Tískusýning verður frá
versluninni Ozone og Litlu
búðinni og fleira verður til
skemmtunar. Þema
kvöldsins verður blúndur og litur
ársins verður appelsínugult.
Kvennanefnd ÍA stendur fyrir
þessari skemmtun og þar sem
ekki er meistaraflokkur kvenna
eða annar flokkur starfandi um
þessar mundir mun ágóði af
kvöldinu renna óskertur til 3. og
4. flokks kvenna. Þær stúlkur
munu fara í æfingabúðir til
Lökken í Danmörku í júní næst-
komandi. Hörku fótboltastelpur
sem eiga framtíðina fyrir sér ef allt
fer sem horfir. MM
Vetrarleikar
UMSB í skák
Þátttakendur á Vetrarleikum UMSB í skák.
Vetrarleikar UMSB í skák fóru
fram síðastliðinn sunnudag.
Keppt var í opnum flokki og í
flokki 10 ára og yngri. Jóhann Óli
Eiðsson varð efstur á mótinu og
vann allar sínar skákir, í öðru sæti
varð Tinna Kristín Finnbogadóttir
og Finnur Ingólfsson í því þriðja.
Hulda Rún Finnbogadóttir náði
bestum árangri í yngri flokki,
Tómas Andri Jörgenson var í
öðru sæti og Eyrún Margrét Eiðs-
dóttir þriðja sæti. Að móti loknu
tefldi Helgi Ólafsson klukku-
fjöltefli við þátttakendur og vann
allar skákirnar.
Skákæfingar á vegum UMSB
eru á föstudögum í Grunnskóla
Borgarness og eru allir velkomnir
á þær. GS
Ragna og
Flemming hnífjöfn
Einmenningsmót Bridsfélags
Borgarfjarðar fór fram í Logalandi
sl. mánudag með þátttöku 32
spilara úr öllu héraðinu. Að þessu
sinni stóð mótið einungis í eitt
kvöld og var keppt í tveimur riðl-
um með ýmist ógefnum eða for-
sorteruðum spilum sem forsvars-
menn félagsins sáu um röðun á.
Mótið var æsispennandi og réð-
ust úrslit ekki fyrr en í lokaslög-
um. Svo jafnt var á toppnum að
draga þurfti um hvort Ragna Sig-
urðardóttir eða Flemming Jessen
fengu þann heiður að geyma ein-
menningsbikarinn næsta árið.
Úrslit:
1. Ragna Sigurðardóttir, 36 stig
2. Flemming Jessen, 36 stig
3. Eyjólfur Sigurjónsson, 35 stig
4. Guðrún Sigurðardóttir, 35 stig
5. Lárus Pétursson, 24 stig.
MM
Sambandsþing UMSB
Ný stjórn UMSB. Frá vinstri er Bragi Rúna Axelsson, Guðríður Ebba Pálsdóttir,
Jóhanna Erla Jónsdóttir, Torfi Jóhannesson og Guðmundur Sigurðsson sem
reyndar er í varastjórn. Á myndina vantar Sigmar Gunnarsson.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hélt sitt 84. sambandsþing
í hátíðarsalnum Hriflu á Bifröst
miðvikudaginn 22. mars sl. Tæp-
lega 50 þingfulltrúar mættu til leiks
frá nær öllum aðildarfélögum sam-
bandsins. Þingforseti var Þórir Þáll
Guðjónsson og þingritarar Þór-
hildur Þorsteinsdóttir og Regína
Sigurgeirsdóttir. Gestir þingsins
voru: Björn B. Jónsson formaður
UMFÍ, Helga Guðjónsdóttir vara-
formaður UMFÍ, Sigríður Jóns-
dóttir varaforseti Isí, Sæmundur
Runólfsson framkvæmdastjóri
UMFÍ og Jón Kristján Sigurðsson
ritstjóri Skinfaxa. Þá mætti Sigurð-
ur Guðmundsson fyrir hönd ung-
mennaráðs UMFl og kynnti starf-
semi þess. Hann kynnti meðal
annars Norræna ungmennaviku
sem haldin verður á Varmalandi
9.-16. júlí í sumar og hvatti ung-
menni úr Borgarfirði til að taka þátt
í henni.
Lögð var fram ítarleg skýrsla um
starf UMSB og aðildarfélaganna
og kemur þar fram að ungmenna-
hreyfingin í Borgarfirði er mjög virk
um þessar mundir. Virkt íþrótta-
starf fer fram í flestum íþrótta-
greinum, auk margs konar leik- og
menningarstarfs.
í máli sambandsstjóra kom
meðal annars fram að rekstur
sambandsins skilaði hagnaði á ár-
inu 2005. Gert hefur verið átak í að
einfalda stjórnsýslu og ákvarðana-
töku innan UMSB og áhersla lögð
á að efla starf aðildarfélaganna. Þá
vinnur stjórn áfram að gerð um-
sóknar um Unglingalandsmót
UMFÍ árið 2008 og UMSB mun
taka að sér að sjá um Borgfirð-
ingahátíð 2006.
Viðurkenningar fyrir íslands-
meistaratitil í fyrsta skipti hlutu
Gunnar Ingi Friðriksson fyrir
víðvangshlaup og Jovana
Pavlovich fyrir badminon. Þá var
Torfa Jóhannessyni veitt starfs-
merki UMFÍ.
Helstu samþykktir á ársþinginu
voru breytingar á lögum UMSB
þannig að fulltrúum á sambands-
þingi mun fækka um ríflega þriðj-
ung. Þá voru samþykktar reglu-
gerðir fyrir öll sundmót UMSB.
Sú breytinga varð á stjórn sam-
bandsins að Jóhanna Erla Jóns-
dóttir var kosin sambandsstjóri.
Torfi Jóhannesson fráfarandi sam-
bandsstjóri sem gaf ekki kost á
sér til endurkjörs en var kosinn
varasambandsstjóri í stað Júlíusar
Jónssonar. Bragi Rúnar Axelsson
var kosinn gjaldkeri en Guðmund-
ur Sigurðsson fráfarandi gjaldkeri,
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs var kosinn varagjaldkeri. Fyr-
ir í stjórn UMSB voru Guðríður
Ebba Pálsdóttir og Sigmar Gunn-
arsson. GS
Lacoste mótaröðinni í golfi
lýkur um næstu helgi
Veturinn hefur verið mjög hag-
stæður kylfingum á Akranesi og
hefur verið hægt að leika golf
meira og minna í allan vetur. Und-
anfarnar vikur hefur Lacoste golf-
mótaröðin farið fram á laugardög-
um á Garðavelli. Góð mæting
hefur verið á mótin enda góð æf-
ing fyrir kylfinga áður en sumarið
gengur í garð. Næstkomandi
laugardag, 1. apríl verður svo
lokamótið í mótaröðinni og fer þá
fram verðlaunaafhending í boði
Verslunarinnar Bjargs á Akranesi
sem er bakhjarl mótsins. Það er
ekki útséð með úrslit þar sem
kylfinar eru mjög jafnir í efstu
sætunum fyrir síðasta mót. Röð
fimm efstu er þessi:
1. Einar Hannesson, 97 högg
2. Guðjón V. Guðjónsson, 105 högg
3. Karl Svanhólm Þórðars., 106 högg
4. -5. Ólafur Grétar Ólafss., 108 högg
4.-5. Jóel Þorsteinsson, 108 högg
Nánari upplýsingar á vef Golf-
klúbbsins Leynis, www.golf.is/gl
MM
Glímukrakkar úr
Dölum gera það gott
Helgina 19. til 20. mars fór fram
Grunnskóla- og meistaramót
Glímusambandsins í Reykjahlíð.
Fólk frá Glímufélagi Dalamanna
hélt af stað norður heiðar ásamt
þjálfara sínum Jóhanni Pálmasyni
á laugardagsmorguninn til þess
að taka þátt í mótinu og stóðu
þau sig öll með sóma eins og við
mátti búast. En úrslitin urðu þess:
5. bekkur pilta:
Magnús Bjarki Böðvarsson varð
Grunnskólasmeistari og ienti hann
einnig í 3. sæti á Meistaramótinu í
hópi 11-12 ára.
7. bekkur piita:
ívar Atli Brynjarsson lenti í 2. sæti á
Grunnskólamótinu og 9. sæti á Meist-
aramótinu í hópi 13-14 ára.
Hermann Jóhann Bjarnason ienti í 3.
sæti á Grunnskólamótinu og 8. sæti á
Meistaramótinu í hópi 13-14 ára.
7. bekkur stúikna:
Sunna Ýr Einarsdóttir lenti í 3 sæti á
Grunnskólamótinu
Elín Margrét Böðvarsdóttir lenti í 4.
sæti á Grunnskóiamótinu og 6. sæti á
Meistaramótinu í hópi 13-14 ára.
Fjóla Björk Heiðarsdóttir lenti í 5. sæti
á Grunnskólamótinu og 4.-5. sæti á
Meistaramótinu í hópi 13-14 ára.
8. bekkur pilta:
Arnar Freyr Þorgrímsson lenti í 5. sæti
á Grunnskólamótinu og 5. sæti á
Meistaramótinu í hópi 13-14 ára.
Laugardaginn 1. apríl fer fram
Íslandsglíma á Akureyri, en hún
hefur verið haldin frá árinu 1906
og á þar af leiðandi 100 ára af-
mæli á þessu ári. Hefst keppnin
klukkan 14. Keppt verður um
Grettisbeltið og Freyjumenið en
handahafi Freyjumensins í dag er
Sólveig Rós Jóhannsdóttir frá
GFD. SJE
J0HANNA ER ANÆGÐ
HUN ÆTLAR AÐ
RAMMA SKEYTIN INN
SENDU SKEYTI Á P0STUR.IS EÐA í SÍMA 1446