Skessuhorn - 17.05.2006, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006
aKiissunuu
Kaupir jarðir af
ríkissjóði
SNFÆELLSBÆR: Sveitarfé-
lagið Snæfellsbær hefur fest
kaup á landi Hraunhafnar og
Bjarnarfoss í Staðarsveit af rík-
issjóði og jafnframt hefur verið
ákveðið að framselja jarðirnar
til núverandi ábúenda. Hraun-
hafnarlandið er 20,4 hektarar
að stærð og Bjamarfoss er 7,5
hektarar að stærð. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri Snæfells-
bæjar segir frumkvæðið að
þessu máli hafi komið frá ábú-
endum. Kaupverð Hraunhafnar
er rúmar 1,2 milljónir króna og
verð Bjamarfoss er 450 þúsund
krónur. -hj
Hross á vegum
BORGARPJÖRÐUR: Nokk-
uð hefur verið um lausagöngu
hrossa á vegum í Borgarfirði að
undanförnu. Mikil hætta getur
skapast þegar hross sleppa út á
vegina og hvetur lögreglan
bændur og aðra hestaeigendur
til að vera vel vakandi yfir því
að girðingar séu vel hrossheld-
ar. Lögreglan reynir að bregð-
ast skjótt við þegar tilkynnt er
um lausagöngu hrossa á þjóð-
veginum og kemur þeim með
öllum tiltækum ráðum af veg-
um og inn í næstu girðingar.
Samhliða því er reynt að hafa
uppi á eigendum hrossanna. -so
17. júní í hönd-
um markaðs-
deildar
AKRANES: Tómstunda- og
forvarnanefnd Akraness hefur
lagt til að framvegis verði und-
irbúningur hátíðarhalda 17.
júní framvegis án íhlutunar
nefndarinnar heldur verði hann
í höndum markaðsdeildar
Akraneskaupstaðar. Nefndin
hefur komið að undirbúningi
hátíðarhaldanna undanfarin ár
og þessa dagana stendur undir-
búningur þessa árs sem hæst.
-hj
Vilja auglýsa
eftir bæjarstjóra
SNÆFELLSBÆR: Bæjar-
málasamtök Snæfellsbæjar
hyggjast auglýsa lausa stöðu
bæjarstjóra Snæfellsbæjar nái
listinn meirihluta í kosningun-
um í vor. Eins og fram hefur
komið í fréttum Skessuhorns
komu fram tvö ffamboð í bæj-
arfélaginu. Annars vegar listi
Sjálfstæðisflokksins, sem nú
hefur hreinan meirihluta í bæj-
arfélaginu og hins vegar listi
Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæj-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn býður
Kjristinn Jónasson núverandi
bæjarstjóra sem bæjarstjóraefhi
listans. Drífa Skúladóttir fram-
bjóðandi Bæjarmálasamtakanna
segir listann ekki bjóða fram
bæjarstjóraefhi þar sem staða
bæjarstjóra verði auglýst laus til
umsóknar nái listinn hreinum
meirihluta.
-hj
Samþykkir reglur um lækkun
fasteignaskatts
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt tillögur gjaldskrárnefndar
sveitarfélagsins um reglur um og
niðurfellingu fasteignaskatts tekju-
lágra elli- og örorkulífeyrisþega. I
tillögunum segir að lækkun eða
niðurfelling skuli vera tekjutengd
og að hún nái eingöngu til tekju-
lágra elli- og örorkulífeyrisþega. Þá
segir að stofn til útreiknings tekju-
skatts, útsvarps og fjármagnstekju-
skatts séu sá tekjugrunnur sem
miða skal við.
Þá segir að reglumar skuli kynnt-
ar elli- og örorkulífeyrisþegum sem
falla undir eða eigi möguleika á að
falla undir reglurnar. Reiknað er
með að sækja þurfi um lækkun og
niðurfellingu jafhffamt því sem af-
ritd af skattframtali sé skilað. Lækk-
un og niðurfelling samkvæmt regl-
unum kemur til framkvæmda í
mars eða apríl og nær eingöngu til
fasteignaskatts. HJ
Hjálmar í Dalina
Þorsteinn Eyþórsson frá Kiwan-
ishreyfingunni kom nýlega í
Grunnskólann í Búðardal ásamt
,Jóa löggu“ og Asgerði skólahjúkr-
unarfræðingi til að heimsækja sex
ára böm skólans og gefa þeim reið-
hjólahjálma. Sýndi Asgerður þeim
með eggi, sem í fyrstu var með lít-
inn eggja-hjálm, og svo hjálmlaust,
hvað getur gerst við högg. Jói sýndi
börnunum með hjálm sem drengur
hafði verið með á höfðinu er hann
féll af hjóli sínu í sl. viku og var
hjálmurinn mikið skemmdur en
drengurinn slapp með viðbeins-
brot. Börnin vom að sjálfsögðu
mjög ánægð með þessa heimsókn
Anœgðirfyrstu bekkingar ásamt gestunum.
og þökkuðu vel fyrir sig. Þennan
sama dag kom félagi í Rauðakrossi
íslands og gaf börnum í fjórða bekk
hjálma. HH
L-listi félagshyggjufólks i Stykk-
ishólmi hefur tilkynnt að Jóhannes
Finnur Halldórsson hagffæðingur
verði bæjarstjóraefni listans við
bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Eins og ffam hefur komið í ff éttum
Skessuhorns em tveir listar í ffam-
boði við kosningarnar í Stykkis-
hólmi. Annarsvegar listi Sjálfstæð-
isflokksins sem farið hefur með
meirihluta í bæjarstjórn um langt
skeið. Erla Friðriksdóttir bæjar-
stjóri er í fjórða sæti þess lista og
bæjarstjóraefni hans.
Jóhannes Finnur var kynntur
sem bæjarstjóraefni á fundi sem L-
listinn hélt á laugardaginn. Hann er
hagfræðingur að mermt og starfar
nú sem skrifstofustjóri á fjárreiðu-
sviði Háskóla Islands. Hann er
fæddur og uppalinn í Grundarfirði.
Jóhannes Finnur er
bæjarstjóraefhi L-listans
gjufólks í Stvkk-
Jóhannes Finnur bœjarstjóraefni L-listans ásamt bamabami sínu Amíru Þöll.
Að loknu námi við Háskóla íslands
var hann bæjarritari á Akranesi á
ámnum 1980-1985. Hann starfaði
sem viðskiptaffæðingur hjá Islenska
járnblendifélaginu 1985-1988 og
bæjarritari í Stykkishólmi frá 1988-
1992. Síðustu ár hefur hann eins og
áður sagði starfað hjá Háskóla Is-
lands.
HJ
Landnemar útskrifaðir
Við hátíðlega athöfn, þann 11.
maí síðasdiðinn í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga var útskrifaður fyrsti
nemandahópurinn í svokölluðum
Landnemaskóla. Símenntunarmið-
stöð Vesturlands stóð fyrir náminu
sem ætlað var fullorðnum einstak-
lingum á vinnumarkaði sem ekki
eiga íslensku að móðurmáli. Námið
byggist á fjóram námsþáttum en
það em íslenska, samfélagsfræði,
tölvur og sjálfstyrking og samskipti.
SO/Ljósm: grundarfjordur.is Útskriftarhópur úr Landnemaskólanwm
Dregið úr viðbúnaði vegna fiiglanensu
Samkvæmt tillögu Landbúnaðar-
stofhunar hefur Guðni Agústsson
landbúnaðarráðherra ákveðið að
dregið verði úr viðbúnaði sem fyrir-
byggja átti að fuglaflensusmit bærist
tdl landsins. Ekkd er lengur gerð
krafa um að allir alifuglar séu hýstir.
Landbúnaðarstofnun mun þó
halda áffam sýnatökum og grein-
ingum til að fylgjast með mögulegri
útbreiðslu fuglaflensu. Ef ástæða
þykir til kunna þær vamaraðgerðir,
sem nú hefur verið aflétt, að verða
endurvaktar með skömmum fyrir-
vara, segir í tilkynningu frá Land-
búnaðarstofnun. I tilkynningunni
er einnig áréttað að ef finnist tveir
eða fleiri fuglar dauðir á sama stað,
skuli tilkynna það tafalaust til hér-
aðsdýralæknis eða Landbúnaðar-
stofnunar. SO
• •
Olvunarakstur
BORGARFJÖRÐUR: Tveir
ökumenn voru teknir fyrir
meinta ölvun við akstur í Borg-
arfirði í vikunni af lögreglunni í
Borgamesi. Annar var stöðvað-
ur fyrir of hraðan akstur og lát-
inn blása í ffámhaldi af því, en
hinn var innansveitarmaður
sem var tekinn fyrir meinta ölv-
un við akstur í Reykholtsdaln-
um. Náðist hann áður en að
hann olli tjóni. Þá stöðvaði lög-
reglan tvo ökumenn á dögun-
um sem höfðu verið sviptir
ökuleyfum. Annar kvaðst rétt
hafa verið að skreppa á milli
húsa í Borgarnesi, en hinn var
stöðvaður fýrir of hraðan akst-
ur. -so
A peysum
Unglinga-
neftidar KÍA
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að vera styrkt-
araðili á peysum sem Unglinga-
nefnd knattspyrnufélags IA ætl-
ar nú í vor að gefa öllum iðk-
endum hjá félaginu. Akranes-
kaupstaður greiðir 125 þúsund
krónur fyrir auglýsinguna sem
verður á peysunum annaðhvort
að framanverðu eða aftanverðu
og verður jafnffamt eini aðilinn
á viðkomandi hlið. -so
Umferðaróhöpp
BORGARFJÖRÐUR: Fimm
umferðaróhöpp urðu í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi í lið-
inni viku þar af tvö þar sem
meiðsl urðu á fólki. Vanfær
kona meiddist í útafkeyrslu í
Norðurárdal á þriðjudag í lið-
inni viku. Konan var farþegi í
bíl sem lenti útaf og var hún
flutt í skyndi á sjúkrahús. Bíll-
inn fór útaf á beinum vegi og
hentist yfir skurð og móa áður
en hann stöðvaðist. Talið er lík-
legast að ökumaðurinn hafi
sofnað undir stýri. Þá valt bíll á
Snæfellsnesvegi við Álftá um
síðustu helgi. Tveir vora í bíln-
um og voru þeir fluttir tdl lækn-
isskoðunar en meiðsl þeirra
munu hafa verið minniháttar.
-so
Bæjarráð
styrkir FIMA
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að verða við
beiðni Fimleikafélags Akraness
um styrk vegna áhaldakaupa að
upphæð 2 millj. króna. Fim-
leikafélagið hefur fengið tilboð í
fiber-braut og mun styrkurinn
duga fyrir henni. Fimleikafélag-
ið fékk einnig tilboð í hest og
kostar hann 400 þúsund krónur
en KB banki hefur samþykkt að
kaupa hann fyrir félagið. I styrk-
beiðninni er tekið ffam að tæki
fimleikafélagsins séu komin til
ára sinna og uppfylli ekki lengrn
kröfur í keppni. Sem áður sagði
samþykkti bæjarráð styrkbeiðni
þessa en fjárveitingunni er vísað
til endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar 2006.
-so
Bjamarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is
Rítstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is