Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 17.05.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 ..Milin... Bútasaumsskipulagið í Borgarnesi Ekki er til nein heildar- sýn eða fram- tíðarstefna í skipulagsmál- um Borgar- ness. Verið er að bútasauma skyndi-skipu- lag að þörfum manna sem eru sveitastjórninni þóknanlegir. Fyrir nokkru var tjaldstæði bæjarins endurgert og milljónum króna eytt til verksins, völlurinn þökulagður, lagt rafmagn og reist voru ný salernishús „tví- buraturnarnir“ þetta undur verk- fræðinnar. Það brá því mörgum þegar þeir lásu í Morgunblaðinu sl. haust að búið væri að úthluta tjald- stæði bæjarins undir menntaskóla, var mynd af húsinu og sagt hvenær kennsla hæfist. Ekki hafði verið haft fyrir því að auglýsa breytingu á deiliskipulagi, þetta hafði bara ver- ið ákveðið si svona. Tjaldstæðið er fyrirtæki rétt eins og Golfvöllurinn, íþróttavöllurinn og kirkjugarðurinn. Það er hart ef að við þurfum að óttast að ein- hverjum ffekjuhundum sé úthlutað þessum svæðum hugnist þeim að byggja á þeim. Lokun tjaldstæðis- ins núna er algjör hneisa fyrir ferðamennsku í Borgamesi. Bent hefur verið á að Brákarey er hent- ugur staður fyrir þennan skóla, þar er byggingaland og ágætt ónotað hús ffá árinu 1967, samtals rúmir 2600 m2 á 3 hæðum sem er fullgott hús fyrir menntaskóla á tilrauna- stigi. Heppnist þessi menntaskóli, þá er tjaldstæðið allt of lítið tmdir hann, svæðið dygði rétt fyrir bíla- stæði skólans og misheppnist til- raunin þá er gott að hafa nýtt það sem til er. Heldur ekki ríkistjórnin fundi sína í gömlu tugthúsi? Á sama tíma og sveitastjórnin vill leggja niður tjaldstæðið í ferða- mannabænum Borgarnesi, þá eyða þeir milljónum króna í Landnáms- setrið. Er það ekki hlutverk bank- anna? Þessum peningum hefði betur verið eytt í ónýtar götur og gangstéttir bæjarins. Sveitastjómin er í báðum þessum tilfellum að snobba fyrir einhverju sem þeim þykir fi'nt. Engir menn eða málefni era svo merkileg að réttlæta megi svona vinnubrögð. Þorleifur Geirsson. Breytum góðum bæ t einn besta valkost á Islandi M a r g i r spyrja sig að því þessa dag- ana hvað þeir eigi nú að kjósa í komandi sveitarstjórn- arkosningum. Sumir halda sig fast við sinn keip og styðja „sinn flokk.“ Æ fleiri era þó þannig þenkjandi að þeir era tilbúrúr að leggja þeim flokki lið, sem þeir treysta best fyrir þeim mál- efnum er standa íbúum bæjarins næst. Eg efast ekki um að alhr ffam- bjóðendur æth að gera sitt besta. En það verður að velja á milli þeirra - um það snýst málið. Enginn veit hvað morgundagur- inn ber í skauti sér. Að því hef ég komist með órækum hætti. Eg var búinn að taka til minn „ffiðarstól“ og átti bara eftir að tylla mér á hann. Ætlaði að greiða mitt atkvæði þann 27. maí nk. eins og hver annar kjós- andi. Hugmyndir um mig sem bæjar- stjóraefni Sjálfstæðisflokksins áttu sér afar skamman aðdraganda eins og rækilega hefur verið kynnt. Eg hika ekki við að segja að á mínum ferli sem stjómmálamaður er þetta stærsta og mikilvægasta tækifæri sem mér hefur boðist. Að eiga möguleika á að móta stefnumörkun til ffamtíðar og hrinda í ffamkvæmd áformum öflugasta stjómmálaafls á Akranesi er boð sem mér var ekki stætt á að hafna. Enda var svar mitt já þegar boðið barst. Hvað er framundan? Stefnumál Sjálfstæðisflokksins á Akranesi hafa verið kynnt. Eg er stoltur af því að hafa lagt mitt af mörkum í þeirri vinnu sem þar ligg- ur að baki. Stefhuskráin grandvall- ast á raunhæfum kostum sem unnt er að koma í ffamkvæmd með ráð- deild og raunsæi. Það er varhugavert að hrinda úr vör með óffamkvæm- anlegar sjónhverfingar sem vega- nesti. Bærinn okkar hefur þanist út. Þó margar byggingarnar séu hinar glæsilegustu þá finnst mér að mönn- um hafi brugðist bogalistin við skipulagninguna. Víða er bygging- um þjappað saman, rétt eins og landrými sé á þrotum. I sumum til- vikum er um að ræða óafturkræf mistök. A hinn bóginn er ástæða til að fagna öflugri byggingastarfsemi sem mun halda áffam í ljósi þess að áform era uppi um mikla uppbygg- ingu á atvinnusvæði íbúa Akraness. Oflug fyrirtæki og góð þjónusta við íbúana í takt við þarfir í nútímasam- félagi. Þetta er grundvöllur þess að fólk sækist eftir því að búa á Akra- nesi og byggja upp ffamtíð fjöl- skyldu sinnar í fyrsta flokks bæ. Meirihluta með ábyrgð Ég geri mér skýra grein fyrir því að aldrei verður það svo að hægt sé að gera öllum til hæfis. Fái ég tæki- færi til þess mun ég leggja mig ffam um að gæta þess að jafnt gangi yfir íbúa Akraness hvað varðar starfsemi og stjórn bæjarins. Það er á valdi meirihluta kjósenda á Akranesi hvort svo verður. Ég veit að margir sem ekki hafa sett X við D áður munu gera það þann 27. maí. Ég mun gera það. Því óska ég eftir stuðningi allra sem vilja veita mér og sjálfstæðismönnum á Akranesi um- boð til að leiða málefhi bæjarins næstu fjögur ár. Þannig breytum við góðum bæ í einn besta valkost á Is- landi. Gísli S. Einarsson Höf. er óflokksbundið bœjarstjóra- efhi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi við sveitarstjómar- kosningamar 21. maí nk. l/tíHAhe>^atid Hann skapaði mey afmestu list - mönnum til að svala Gunnlaugur Pétur Sigurbjörnsson sem um tíma var póstur á Akranesi átti ein- hvemtíman að vor- lagi leið fram hjá lögreglustöðinni meðan hún stóð við Kirkjubrautina og sá fi'fil sem hafði lætt sér upp með húsveggnum. Varð þetta til þess að hann gekk inn og sagði við vakthafandi varðstjóra: Undir vegg á varðstofunni vaxið hefur fífill hljóður En frómast sagt þá finnst þar inni fíflamergð en enginn gróður. Vafalaust gæti þessi vísa átt við bæði víðar og oftar en á Akranesi í þá daga enda telja margir almennir borgarar sig hafa vit á við tvo eða þrjá lögregluþjóna þó þeir telji sig svosem engin sérstök gáfnaljós. Fyrir ekki svo löngu heyrðist talað um lögregluþjóna með gervigreind sem væru í framleiðslu er- lendis. Einn ágætur vinur minn taldi þetta ekkert nýmæli, þetta hefði lengi verið til í Borgamesi. Hvað um það, hvort sem menn hafa nú þjónað lögunum eða verið í and- stöðu við þau verður gröfin okkar víst álíka stór á endanum og þetta vissi Bjarni ffá Gröf fullvel: Ýmsir gera allt til meins, aðrir guði þjóna. En moldin verður alveg eins úr öðlingi og róna. Svo er bara effir að vita hvað sprettur upp af undirburðinum og hverjum það verður til næringar. Ekki man ég betur en það hafi ver- ið Halla Eyjólfsdóttir sem orti: Áburður sem úti fraus aftur berst að munni. Efnabreyting endalaus er í náttúrunni. Samkvæmt sköpunarsögunni er Eva smíð- uð úr rifi Adams og er ekki undarlegt þó þessi rifjasteik hafi notið mikilla vinsælda all- ar götur síðan. Bjarni frá Gröf hafði þetta að segja um þetta handaverk skaparans: Hann skapaði mey af mestu list mönnum til að svala. Þá lánaðist Guði líka fyrst að láta verkin tala. Samt er það nú svo að þó mörgum þyki þetta sköpunarverk Drottins nokkuð málgef- ið þá sækir karlkynið stöðugt f samband við þessar lífverar og gildir þá einu hver er staða okkar eða stétt í þjóðfélaginu. I orðastað stærðffæðikennara nokkurs var kveðið: Eg vil gerast einn plús við annan samleggjara. Setja púnkt við pródúktið og prófa margfaldara. Einhvernvegin er það svo með flesta að æskustöðvarnar eiga alltaf sinn sérstaka sess ásamt þeim minningum sem tengjast æsk- unni. Bjarni ffá Gröf lýsti þessu snilldarlega á eftirfarandi hátt: Ég hef alltaf innan í mér ofurlítinn dreng, undarlega tókst mér vel að geym'ann. Hann togar stundum tetrið litla í tilfinninga streng. - Ég tók hann með mér þegar ég fór að heiman. Átthagafélög hafa lengi átt vinsældum að fagna og mörg unnið stórvirki á hinum ýmsu sviðum. Ég hef grun en svosem enga vissu um að það hafi verið Böðvar Guðlaugsson sem orti eftirfarandi átthagafélagssöng en mér þætti vænt um ef einhver gæti annað hvort leiðrétt það eða staðfest: Blessað þokubcelið mitt byggðin yst á norðurhjara! 0 hve reytingsengið þitt átti margan fúlan pytt. Sólarljósið silfurlitt signi þig um eilífð bara. Blessað þokubœlið mitt byggðin yst á norðurhjara. Hýrust byggð sem herrann gaf hér á jörðu fólki sínu. (Kollótt fjöll í fisklaust haf fara mœttu í bólakaf.) Bragðið finn ég ennþá af útmánaðatrosi þínu. Hýrust byggð sem herrann gaf hér á jörðu fólki sínu. Nýja tímans tceknibrölt trauðla raskar friði þínum. Meiddur klár og merin hölt mundu fœlast vélaskrölt, hve þín angan súr og sölt situr enn í nösum mínum. Nýja tímans tceknibrölt trauðla raskar friði þínum. Um aðrar sveitir ekki rann áarsprœna huggulegri. Og hvaða byggð á búandmann búralegri en hreppstjórann? Þvílík gcefa að þekkja hann, það var enginn halanegri. Um aðrar sveitir ekki rann áarsprœna huggulegrí. Man ég kúakynið best og kyssilegar heimasœtur. Skottulækni og pokaprest sem páskamessum sló á frest. Man ég blessuð börnin flest blá um nef og vot f fœtur. Man ég kúakynið best og kyssilegar heimasætur. Blessist hver þinn búandinn betur sækti fjandinn hina er fjallageiminn flýðu sinn -frati lýstu á búskapinn, stungu af með styrkinn sinn - styrkinn út á hlandforina. Blessist hver þinn búandinn betur sækti fjandinn hina. I næstsíðasta þætti birti ég tvær vísur eftir Eðvald Halldórsson á Stöpum á Vatnsnesi. Fyrir einstaka snilld mína tókst mér að klúðra annarri vísunni með innsláttarvillu og birti þær því nú aftur réttar (vonandi): Degi lýkur, glitrar grund, gulli flíkar sœrinn. Tregi víkur, styttir stund stökuríkur blærinn. Lúinn sest við liðinn dag, Ijós í vestri skína. Sé nú best við sólarlag suma bresti mína. Við skulum svo ljúka þessum þætti með einu snilldarverkinu úr smiðju Rósberg Snæ- dal. Djásn ég finn og fögur söfn, forn er kynni sanna. Flýtur inn á friðarhöfn floti minninganna, Með þökkfyrir lesturinn, Dagbjartur Dagljartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1361 og 849 2115 dd@simnet.is Traust fjármálastjórn skapar ný tækifæri! Stórefla hafnarsvæðið á Akranesi! 1. sæti 2. sœti 3. sæti 4. sæti Guðmundur Páll Magnús Guðmundsson, Guðni Tryggvason, Dagný Jónsdóttir, Jónsson, bæjarstjóri framkvæmdastjóri verslunarmaður viðskiptafræðingur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.