Skessuhorn - 17.05.2006, Blaðsíða 13
gggSSUHQERl
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI2006
13
Foreldrafélag Laugargerðisskóla hlýtur
Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og
skóla - landssamtaka foreldra voru
afhent í 11. sinn í gær, 16. maí, við
athölii sem hófst kl. 16:00 í Þjóð-
menningarhúsi við Hverfisgötu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra afhenti verð-
launin. Auk Foreldraverðlatmanna
sjálfra voru veitt tvenn hvatningar-
verðlaun og ein dugnaðarforkaverð-
laun.
Hvatningarverðlaun voru tvenn
og komu önnur þeirra í hlut Heru
Sigurðardóttur og Bryndísar Gunn-
arsdótturr fyrir frábæra vinnu við
þróunarverkefnið „Allir í sama liði“ í
Vesturbæjarskóla í Reykjavík. Hin
hvatningarverðlatmin komu á Vest-
urland og var það Foreldrafélag
Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi
sem hlaut þau fyrir markvisst og öfl-
ugt foreldrasamstarf og samvirmu
heimila og skóla.
Dugnaðarforkur var valinn Ossur
Geirsson stjórnandi Skólahljóm-
sveitar Kópavogs fyrir óeigingjamt
og öflugt starf að tónlistarlegu upp-
eldi.
Foreldraverðlaunin hafa unnið sér
fastan sess í samfélaginu og vekja at-
hygli á þeim mörgu verkefnum sem
efla starf grunnskólanna og öflugt og
jákvætt samstarf heimila, skóla og
samfélagsins. Aðalmarkmiðið með
veitingu Foreldraverðlaunanna er að
vekja athygli á því gróskumikla starfi
sem urtnið er á fjölmörgum sviðum í
grunnskólum landsins. Við veitingu
verðlaunanna er sérstaklega litið til
verkefiia sem hafa eflt samstarf for-
eldra og skólastarfsmanna og komið
á uppbyggjandi hefðum í samstarfi
þessara aðila. Einnig er litdð til verk-
efha sem hafa eflt tengsl heimila,
skóla og æskulýðsstarfs í gegnum
forvamarstarf eða hafa stuðlað að
samræmdu átaki við lausn á vanda-
málum innan viðkomandi skólasam-
félags.
Fyrirmyndar
foreldrafélag
I greinargerð með tilnefningu
Foreldrafélags Laugargerðisskóla
segir m.a.:
„Foreldrafélag Laugargerðisskóla
er fyrirmyndarforeldrafélag sem
stuðlar að virku samstarfi skólans og
foreldra. Við teljum að foreldrafé-
lagið okkar eigi engan sinn líka.
Einkum viljum við undirstrika að
foreldrafélagið tekur ábyrgð á sam-
starfinu til jafns á við skólann. Skól-
imi þarf aldrei að vera í vafa um þátt-
töku foreldra þegar eitthvað stendur
til í skólanum. Foreldrafélagið hefur
mótað hefðir sem stuðla að því að
brúa bilið milli foreldra og allra
nemenda skólans og einnig milli for-
eldra og alls starfsfólks skólans. Starf
foreldrafélagsins er líka markvisst og
öflugt. Það tekur þátt í útgáfu mán-
aðarlegs fféttabréfs og skipuleggur í
samvinnu við skólann allar uppá-
komur sem nemendur taka þátt í,
eins og íþróttaæfingar einu sinni í
viku og svokallaða Langa Daga einu
sinni í mánuði. Foreldrarnir sjá um
Félagsmiðstöðina Eldingu og eru
duglegir að fylgja nemendum á ýms-
ar skemmtanir, s.s. Samfés böll og í
leikhús. Auk alls þessa eru foreldrar
duglegir að mæta á ýmsa viðburði í
skólastarfinu þrátt fyrir að sumir
komi langt að. Undanfarin ár hefur
stjórn foreldrafélagsins sest rúður að
hausti og skipulagt fjölbreytt starf
með nemendum. Allir foreldrar í
skólanum eru virkjaðir til þátttöku í
starfinu."
I umsögn dómnefhdar segir m.a.:
„Laugargerðisskóli er lítill sveita-
skóli með einungis 47 nemendur
sem margir hverjir koma langt að í
skólann. Virkni og þátttaka foreldra
í slíkum aðstæðum skiptir mjög
miklu máli, ekki bara fyrir nemend-
ur, heldur fyrir alla starfsemi skól-
ans. Hér er dæmi um starf þar sem
skóli, foreldrar og nemendur standa
þétt saman að því að byggja upp
skólastarf með því að virkja alla for-
eldra til þátttöku.“ MM
Atvinna Borgarnesi
Óskum eftir einstaklingi til þrifa í
skrifstofuhúsnæði okkar að
Sólbakka 17-19 Borgarnesi.
Tvo daga í viku.
Upplýsingar veittar í síma
437-1134-Ásgeir
ÞÚ EKURÁOKKAR VEGUM
BorgarVerk
Sími 437 1134 & 892 1525
Borgciríjarðarsveit
Auglýsing um deiliskipulag
í Borgarfjarðarsveit
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 er hér með auglýst deiliskipulag á lóðum
við Ásbrún Borgarfjarðarsveit Gert er ráð fýrir sex lóðum
fyrir íbúðarhús ásamt bílageymslum.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum liggur
frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Reykholti frá 12. maí
til 8. júní 2006 á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 22. júní 2006
I og skulu þær vera skriflegar.
I Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilgreinds frests
i teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingafulltrúi.
Fjölskylduhótíð Somfylkingorinnor
Sunnudoginn 21. moí
Frítt í sund
Skógarsprell í Garðalundi kl.14:00-'lð:00
Hoppukastalar og leiktæki
Andlitsmólun
Skótaleikir
Grill
Frítt í stræfó og ferðir milli Akratorgs og Gorðolundor
með viðkomu í íþróttomiðsföðinni
Kosningohótíð Somfyikingorinnor
miðvikudoginn 24. moí
BqII á Breiðinni Akranesi
Húsið opnar kl.21:45 og skemmtiotriði kl 22.00.
Meðal onnars hljómsveitin Burn off, Sfeinn Ármann Mognússon og morgt fl.
Að lokum mun hljómsveifin Amazon leiko fyrir donsi til 03.00
FRÍTT INN OO ALLIR VELKOMNIR
I Hljómsveitin Amazon
| Jón Björgvinsson: Trommur (Milljónamæringarnir o.fl.),
i Sigurþór Þorgilsson: Bassi (Soul Deluxe),
Einor Rúnorsson: Hjómborð/söngur (Sniglabondið o.fl.),
Þorgils Björgvinsson: Gírar/söngur (Sniglobondið o.fl.) og
Guðrún Árný Korlsdótrir: Söngur
Samfylkingin