Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Síða 2

Skessuhorn - 05.07.2006, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. JULI 2006 ssessuhöbk Frá slysstað sl. mánudag. Vélhjólaslys áKirkju- braut Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi og þaðan fljótlega á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss eftir vélhjólaslys á móts við Is- landspóst við Kirkjubraut á Akranesi efdr hádegi sl. mánu- dag. Að sögn lögreglu virðist sem vélhjóhnu hafi verið ekið á tölu- vert miklum hraða áleiðis niður Kirkjubraut og mældust bremsu- för hjólsins 17 metrar. Maðurinn gekkst undir aðgerð á sjúkrahúsi í Reykjavík. Eftir aðgerðina var honum haldið sofandi í öndunar- vél á gjörgæsludeild en hann mun ekki hafa verið í h'fshættu. Okumaðurinn var með hjálm og hanska en ekki í hlífðarfatnaði að sögn lögreglu og mun hjólið hafa runnið áffam og ekki numið staðar fyrr en um 100 metrum ffá slysstað. Tildrög slyssins eru ekki að fullu rannsökuð en lögreglan á Akranesi mun halda rannsókn sinni áffam. MM Til minnis Skessuhorn minnir á bæjar- og héraðshátíðir um næstu helgi. Það verður Leifshátíð í Dölum og írskir dagar á Akranesi. Sjá nánar fréttir hér í blaðinu. Vecfyrhorfivr Það verður breytileg átt með skúraleiðingum á fimmtudag en fremur hlýju veðri. Norðlæg átt um helgina, vætusamt víða um land en bjart oa milt veður suðvestan til. Spivrniruj viKtfnnar í síðustu viku var spurt á Skessuhorn.is: Hver sinnir mest heimilisstörfum hjá þér? Tæp 56% svarenda segja að konan sinni þeim mest, tæp 17% segja að allir sinni heimilsstörf- unum, tæplega 15% þeirra er svöruðu segja að karlinn sinni þeim mest, tæp 8% svarenda segjast búa ein og sjá því um störfin sjálf en rúm 3% svar- enda segja að ekkert heimilis- fólks sjái um heimilisstörfin, þjónustan sé aðkeypt. Rétt ríf- lega 1% svarenda segja börnin sinna heimilisstörfunum mest. í næstu viku spyrjum við: „Notar þú alltaf bílbelti?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendinjtyr vikiAnnctr Skessuhorn útnefnir að þessu sinni tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni Vest- lendinga vikunnar. Þeir hafa nú tekið við þjálfun m.fl. ÍA. Nokkur verk í uppnámi vegna frestunar fratnkvæmda Nokkur verk í vegamálum á Vesturlandi eru í óvissu vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að slá á þenslu í hag- kerfinu. Magnús V. Jóhannsson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar í Borgarnesi segist í raun ekki vita meira um málið sem stendur en það sem fram hafi komið í fjöl- miðlum. I Framkvæmdafréttum Vega- gerðarinnar sem út komu í síðustu viku var birt yfirlit yfir verk sem voru að komast á útboðsstig. Þar eru nefnd nokkur verk á Vestur- landi. Má þar nefna framkvæmdir í Borgarnesi við vistgötu við Hring- veginn, Utnesvegur, Skorradals- vegur, Snæfellsnesvegur um Hít- ará, Uxahryggjavegur um Tröll- háls og Ferjubakkavegur um Gufuá. Þá voru á samningaborði samningar um yfirlagnir á Hring- veginum um Leirársveit, fram- kvæmdir við Snæfellsnesveg um Gríshólsá og við Melasveitarveg um Súlunes. Þetta eru einungis þær fram- kvæmdir sem nefndar eru í fram- kvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Að auki eru nokkrar framkvæmdir í Vegaáætlun áranna 2005-2008 sem samþykkt var af Alþingi á sfn- um tíma. Af stórum framkvæmdum sem tengjast Vesturlandi og trúlega verða nú settar á ís eru fram- kvæmdir í Gufudalssveit og vegur um Arnkötludal. Jón Bjarnason þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi sendi sl. fimmtudag Sturlu Böðvarssyni 1. þingmanni kjördæmisins bréf þar sem hann óskar eftir því að kallað- ur verði saman, svo fljótt sem verða má, fúndur þingmanna kjör- dæmisins ásamt stj órnendum Vegagerðarinnar „til að fjalla um framkvæmd samgönguáætlunar, stöðu einstakra framkvæmda og ráðstöfun fjár til vegaframkvæmda í Norðvesturkjördæmi í ár og á næsta ári,“ segir orðrétt í bréfi Jóns. „Þessi ósk er borin fram m.a. í ljósi yfirlýsingar ríkisstjórnarinn- ar og vegamálastjóra um stöðvun á frekari útboðum í vegagerð og yf- irvofandi niðurskurði á fram- kvæmdum í kjördæminu,“ segir einnig í bréfinu. HJ Oskað eftir skýrslu um rými í leikskólum Borgarbyggðar Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur vísað til byggðaráðs tillögu Sveinbjarnar Eyjólfssonar oddvita Framsóknarflokks og minnihluta í sveitarstjórn, þar sem hann leggur til að sveitarstjóra verði falið að taka saman skýrslu um rými á leik- skólum í sveitarfélaginu. I tillög- unni segir að „þá komi jafnframt fram í skýrslunni fjöldi barna í hverjum árgangi og hvort ekki verði hægt að veita þeim öllum leikskólavist miðað við þær reglur sem um þá vist munu gilda,“ eins og segir orðrétt í tillögunni. Þá er þess óskað að í skýrslunni verði miðað við fjölda barna sem náð hafa aldri í lok hvers skólaárs. Einnig óskar Sveinbjörn þess í tillögu sinni að í skýrslunni verði „gerð grein fyrir hvernig háttað verði framkvæmd þriðja töluliðar um fræðslumál í málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Borgarlista 2006-2010“. í þeim tölulið sem Sveinbjörn vísar til segir að tryggð verði dagvistun fyrir börn frá 9 mánaða aldri með því að auka nið- urgreiðslur til dagforeldra. HJ Stækkun dvalarheimilisins Jaðars í biðstöðu Bæjarstjórn Snæfellsbæjar bíður eftir framkvæmdaleyfi frá heil- brigðisráðuneytinu til að heljast handa við nýja hjúkrunarálmu sem byggja á við dvalarheimilið Jaðar í Olafsvík. Beiðni bæjaryfirvalda hef- ur nú þegar verið afgreidd af fjár- laganefnd Alþingis og umbeðnir fjármunir til ffamkvæmdanna af- hentir frá fjármálaráðuneytinu. Því vantar formlegt framkvæmdaleyfi heilbrigðsiráðuneytisins til að hægt sé að hefja framkvæmdir. Með tilkomu nýrrar hjúkrunar- álmu verður pláss fyrir um tólf manns í hjúkrunarrýmum auk þess sem öll aðstaða starfsmanna til að- hlynninga batnar, en hún þykir verulega takmörkuð eins og hún er í dag. Þá geta um þrettán manns búið á dvalarheimilinu, allir í eins manns herbergjum með baðher- bergi og annarri nútímaaðstöðu. KÓÓ Vilja kanna hugsanlega yfirtöku málefiia aldraðra Bæjarráð Akraness hefur frestað til næsta fundar afgreiðslu á tillögu minnihlutans í bæjarráði um skipun starfshóps til að meta kosti og galla þess að yfirtaka málefhi eldri borg- ara. I tillögunni er lagt til að skip- aður verði þriggja manna starfs- hópur til að meta kostd og galla þess að Akraneskaupstaður taki yfir mál- efhi eldri borgara af ríkinu. I því sambandi verði skoðaðir faglegir og fjárhagslegir þættir og aflað upplýs- inga um reynsluna ffá Akureyn og Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem málefhi eldri borgara hafa verið á hendi sveitafélaganna til reynslu. Þá verði einnig aflað nauðsynlegra upplýsinga hjá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti sem fer með málaflokkinn fyrir hönd ríkisins. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að starfshópurinn skili niður- stöðum sínum til bæjarráðs fyrir 1. október 2006. HJ Amar og Bjarki takaviðUðiÍA Amar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa verið ráðnir þjálfarar úrvals- deildarliðs IA í knattspymu og tóku þeir við starfinu sl. fösmdag af Olafi Þórðarsyni. I yfirlýsingu ffá félaginu sagði að stjóm rekstrarfélagsins og Olafur Þórðarson hafi komist að samkomulagi þess efiús að Ólafur hættd þjálfún liðsins. Eiríkur Guðmundsson formaður rekstrarfélags meistaraflokks IA seg- ir að rætt hafi verið við nokkra aðila um að taka að sér þjálfun hðsins en niðurstaðan hafi orðið sú að þeir Amar og Bjarki tækju verkefhið að sér. Aðrir sem rætt var við vora þeir Alexander Högnason, Guðjón Þórðarson og Pétur Pétursson. I samningi Olafs og IA var ekkert uppsagnarákvæði og því þurfti sam- komulag beggja aðila að koma til svo þjálfaraskiptdn gætu farið fram. Ei- ríkur segir Olaf mikinn heiðurs- mann og því verði kostnaður við þjálfaraskiptin ekki mikil fyrir félag- ið. I Skessuhorni í næsm viku verður ítarlegt viðtal við þá Amar og Bjarka sem þegar hafa stýrt liðinu tdl sigurs í einum leik bikarkeppninnar. Næstd leikur liðsins í Landsbankadeildinni er á föstudag klukkan 18 og verður vafalaust mikið um dýrðir þar sem leikurinn er felldur inn í dagskrá Irskra daga. HJ Staða sveitar- stjóra eftirsótt HVALFJARÐARSVEIT: Um þöm'u umsóknir höfðu borist um stöðu sveitarstjóra í hinu nýja sveitarfélagi Hvalfjarðarsveit þegar umsóknarfrestur um stöð- una rann út í fyrradag. Hugsan- legt er að fleiri umsóknir eigi eff- ir að berast í póstd. Hallfreður Vilhjálmsson oddviti segir afar á- nægjulegt að finna fyrir þessum mikla áhuga á starfinu. Hann segir nöfn umsækjenda verða kynnt um leið og ljóst verður endanlega hversu margar um- sóknir berast. -hj Umferðin var mikil BORGARFJÖRÐUR: Mjög mikdl umferð var í umdæmi lög- reglunnar í Borgamesi um síð- ustu helgi og margt um manninn í öllum sumarhúsahverfum. Fjöldi fólks lagði leið sína í gegn- um héraðið og vora flestir á leið á hátíðir t.d. tdl Olafsvíkur og Skagafjarðar. Þrátt fyrir mikinn umferðarþunga gekk umferðin nokkuð greiðlega fyrir sig. Alls voru 53 teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í vikunni. Atta ökumenn vora sektaðir fyrir að vera ekki með ökuskírteini meðferðis. -so Rúður brotnar í Olís AKRANES: Aðfararnótt laug- ardags voru rúður brotnar í verslun Olís við Suðurgötu á Akranesi með því að kasta grjóti inn í húsið. Gerðist þetta einhverntíman á milli klukkan 23:30 á föstudagskvöldi til klukkan 09:00 að morgni laug- ardags. Hafi einhver upplýsing- ar um málið er hann beðinn um að hafa samband við lögregluna áAkranesi. -so Rán og dóp ÓLAFSVÍK: Tvær líkamsárás- ir hafa verið kærðar til lögregl- unnar í Olafsvík eftir helgina auk þess sem ákveðinn aðiíi hefur verið kærðar fyrir rán á tveimur farsímum. Rændi mað1- urinn farsímum af tveimur ein- staklingum með því að berja þá og hóta þeim frekara ofbeldi létu þeir ekki farsímana áf hendi. Þá komu upp fimm fíkniefnamál á Olafsvík und helgina, þar af eitt sem tengdist sölu og dreifingu. Mikil ölvun var í Olafsvík um helgina en þar fór fram hátíðin Færeyskir dag- ar sem ungt fólk hópaðist til, eins og fram kemur á öðrum stað í Skessuhorni. -mnt Starfi dýra- eftirlitsmanns komið á fót AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur fahð bæjarstjóra að gera tdl- lögu að erindisbréfi fyrir starf dýraeftirlitsmanns hjá Akranes- kaupstað. Þetta ákvað ráðið í kjölfar ábendinga sem Margrét Jónsdóttir sendi ráðinu vegna lausagöngu katta í bæjarfélaginu. Eins og lesendur blaðsins muna ritaði Margrét grein í Skessu- horn um máhð í síðustu viku sem hún kallaði „Rottur nútímans, kettirnir". -hj

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.