Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Side 4

Skessuhorn - 05.07.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. JULI 2006 uaUSVnuiJ Forsendur starfsleyfis Laugafisks eklá í samræmi við raunveruleikann Heilbrigðiseftdrlit Vesturlands tel- ur ljóst að ekki sé hægt að koma í veg fyrir lyktarmengun frá fisk- þurrkunarfyrirtækinu Laugafiski á Akranesi og óskar eftir viðræðum við bæjarráð Akraness sem fyrst þannig að hægt verði að byggja á sjónarmiðum bæjarráðs við endur- skoðun eða breytingu á starfsleyfi til fyrirtækisins. Eftirlitið segir for- sendur sem lagðar voru til grund- vallar útgáfu starfsleyfis á sínum tíma ekki í samræmi við raunveru- leikann. Forsaga málsins er sú að um nokkurra ára skeið hefur fyrirtækið Laugafiskur rekið fiskþurrkun á Akranesi. Fiskþurrkun fylgir ólykt sem seint verður talin eftirsóknar- verð í návígi. Hafa nágrannar fyrir- tækisins á Akranesi lengi kvartað undan ólyktinni og hafa málefni þess oft komið til kasta bæjaryfirvalda og heilbrigðisnefndar Vesturlands. Ibú- ar við Vesturgötu óskuðu í vetur eft- ir því að starfsleyfi fyrirtækisins vrði afturkallað en það rennur út í apríl 2007. Undanfarið hefur undir stjórn Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins unrúð að rannsóknum vegna lyktar- mengunar fyrirtækja í heitlofts- þurrkun eins og Laugafisks. Vonir stóðu til þess að með rannsóknunum mættd koma í veg fyrir mengunina. I maí voru kynntar niðurstöður rann- sóknanna og í framhaldi af því vildi Helgi Helgason framkvæmdastjóri Heilbrigðisefidrlits Vesturlands ekki slá því föstu hvort fyrirtækið fengi endurnýjað starfsleyfi. Inga Jóna Friðgeirsdóttir framkvæmdastjóri Laugafisks sagðist á þeim tíma bjart- sýn á að starfsleyfið yrði ffamlengt. A fundi heilbrigðisnefndar Vest- urlands fyrir skömmu voru niður- stöður rannsóknanna ræddar og í framhaldinu samþykkti nefndin bókun þar sem meðal annars segir orðrétt: „Þrátt fyrir viðamikla vinnu RF og fyrirtækjanna þykir ljóst að ekki eru til staðar lausnir sem koma í veg fyrir lyktarmengun fyrirtækj- arma í og við sitt næsta nágrenni, og einnig þykir ljóst að þær upplýsing- ar sem forráðamenn fyrirtækisins lögðu fyrir HEV og voru forsendur starfsleyfis fyrirtækisins hafa ekki reynst í samræmi við raunveruleik- ann og lyktarmengun meiri en for- sendur starfsleyfis gera ráð fyrir.“ Oskar nefndin því eftdr tunsögn bæj- arráðs áður en afstaða verður tekin til endurnýjunar starfsleyfisins. Einnig var óskað eftir upplýsingum ff á fyrirtækinu um næstu aðgerðir til lausnar á þeim vandamálum sem glímt hefur verið við. Bæjarráð Akraness samþykkti að boða fulltrúa heilbrigðisnefhdar til fundar. Hjf Dæmdur fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi údendinga Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt verktaka á Akranesi til greiðslu 315 þúsund króna sektar auk 229 þúsvmd króna málskostn- aðar fyrir brot á lögum um atvinnu- réttindi útlendinga. Lögreglunni á Akranesi barst í nóvember árið 2005 ábending um að verktakinn hefði hugsanlega í vinnu útlend- inga, án tilskilinna atvinnuleyfa. Rannsókn leiddi í ljós að tveir Lit- háar voru við störf hjá verktakanum sem og að þeir störfuðu án atvinnu- leyfis. Verktakinn hafði sótt um leyfi fyrir þá en fengið synjtm. Hér- aðsdómi þótti sannað að verktakinn hafði brotdð gegn lögum um at- vinnuréttindi útlendinga. HJ Verslunarhúsnæði rís við Þjóðbraut Þessa dagana er verið að reisa stálgrind að húsi við Þjóðbraut sem hýsa á bílasölu og verslun. Það eru Bílver ehf. og Bernhard ehf. sem eiga húsið í sameiningu. Að sögn Reynis Sigurbjörnssonar í Bílver verður húsið um 1.000 fermetrar að stærð og verður þar bílasala auk bílaþjónustu. Einnig verður í hús- inu um 400 fermetra verslunarhús- næði en því hefur ekki verið ráð- stafað. Reynir segir stefht að því að taka húsið í notkun fyrir veturinn. HúsiS sem Bílver og Bemhard reisa í sameiningu á homi BjóShrautar og Innnesvegar. Bílver hefur verið til húsa á Akurs- verður réttingaverkstæði þar til braut en það hús hefur verið selt og húsa. HJ Lionsmenn gefa hjartastuðtæki Lionsmenn í Borgamesi afhenda hér Theodór Þórðarsyni yfirlögregluþjóni og Stefáni Skarphéðinssyni sýslumanni tvö ný hjartastuðtæki að gjóf FráMND félaginu SNÆFELLSNES: MND félag- ið reynir eftdr mættd að halda mánaðarlega stuðningsfundi sem víðast. Einu sinni til tvisvar á ári er félagið með fundi á lands- byggðinni. Þann 8. júlí næstkom- andi mun félagið halda fund í Fellaskjóli í Grundarfirði. Mæt- ing er klukkan 14:00 og eru allir velkomnir. MND verður kynnt í stuttu máli en reynt fyrst og frernst að njóta samverunnar. Sjá nánar upplýsingar um MND fé- lagið á slóðinni: www.mnd.is -mm Hraðakstur á Faxabrautinm AKRANES: Verkefhi lögregl- unnar á Akranesi voru fjölmörg í síðustu viku. Af þeim tengdust 48 umferðinni með einum eða öðr- um hættd. Fjórtán ökumenn voru kærðir eftir að ökuhraði þeirra hafði mælst yfir mörkum leyfi- legs hraða og í þeim hópi voru tveir sem reyndust hafa ekið á 127 km/klst hraða á Faxabraut- inni á Akranesi þar sem hámarks- hraði er 50 km/klst. Geta báðir ökumennirnir reiknað með að verða sviptir ökuleyfi. -so Gunnólfur ráð- inn sveitarstjóri DALABYGGÐ: Sveitarstjórn Dalabyggðar, nýs sameinaðs sveitarfélags Saurbæjarhrepps og Dalabyggðar, samþykkti á fyrsta fundi sínum að ráða Gunnólf Lárusson oddvita N-lista sveitar- stjóra til tveggja ára. A fundinum var Guðjón Torfi Sigurðsson kjörinn oddviti og Helga H. Agústsdóttir var kjörin varaodd- vitd. Þá voru þau Helga H., Þórð- ur Ingólfsson og Þorgrímur Guðbjartsson kjörin í byggðaráð. Sjá má viðtal við Gunnólf á síðu 10 í Skessuhorni í dag. -hj Breyting á eignarhaldi í HB Granda REYKJAVÍK: Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hafa fært allan sinn eignarhlut í HB Granda h£, tæp- lega 100 milljónir króna að nafh- virði, yfir í SJl ehf. sem er 100% dótturfélag Sjóvá og hefur þann eina tdlgang að fjárfesta og ávaxta eignir tryggingarfélagsins. Þessi hlutur er um 5,85% af heildar- hlutafé HB Granda hf. -hj Nýtt starf umsjónarmanns eigna DALIR: Byggðaráð Dalabyggð- ar hefur samþykkt að auglýsa eft- ir starfsmanni sem sjá mun um eignir sveitarfélagsins og starf- semi áhaldahúss. Núverandi Dalabyggð varð til á dögunum við sameiningu Dalabyggðar hinnar fornu og Saurbæjar- hrepps. -hj Lögreglunni í Borgamesi var í liðinni viku færð tvö ný hjartastuð- tæki að gjöf ffá Lionsklúbbi Borgar- ness. Tæki þessi, sem kosta tæplega 300 þúsund krónur, era af gerðinni Samaritan og eru einkar handhæg og meðfærileg í notkun. Geta þau hæglega bjargað mannslífum þegar einstaklingur lendir í hjartastoppi og þarfnast endurlífgunar. Tækin verða til taks í báðum lög- reglubílum embættisins. Að sögn Stefáns Skarphéðinssonar sýslu- manns Mýra- og Borgarfjarðarsýslu koma þau að góðum notum einkan- lega þar sem héraðið er landfræði- lega stórt og því getur það tekið langan tíma fyrir sjúkrabíl og lækni að komast á staðinn í tilfellum þar sem einstaklingur lendir í hjarta- stoppi. Theodór Þórðarson yfirlög- regluþjónn tekur undir þessi orð sýslumanns og segir að oft séu lög- reglubílar staddir nálægt stöðum þar sem fólk safnast saman og getd dýr- mætur tfrni því sparast með því að lögregla getd veitt fyrstu hjálp af þessu tagi. „A stöðum eins og Húsa- felli, í Norðurárdal og raunar víða við þjóðvegi í héraðinu eru lög- reglubtlar off á ferðinni sérstaklega ef mannfjöldi er saman kominn á þessum stöðum eða umferð er mik- il. Því geta mjög hæglega komið upp aðstæður þar sem handhæg tæki sem þessi geta skipt sköpum við endur- lífgun meðan beðið er eftir að sjúkralið mæti á staðinn," segir Theodór. Lionsklúbbur Borgarness hefur smtt við ýmis þörf verkefhi í hérað- inu á hðnum árum og til að mynda styrkti klúbburinn nýlega kaup og þjálfun á fíkniefnahundi sem nú er notaður við lögregluembættið í Borgamesi. Hundur sá hefur marg- sinnis sannað ágæti sitt. MM Lágflug yfir amarvarpi REYKHÓLAHREPPUR: íbú- ar í Reykhólahreppi kvörtuðu sl. miðvikudagsmorgun yfir því að herþotum var flogið í lágflugi yfir Gufudalssveitina og víðar. Á þessu svæði eru hreiðurstaðir hafarna og komst talsverð styggð að fuglunum. Af þessu tilefni hefur vamarmálaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins verið send skrifleg fyrirspum ffá sveitarfé- laginu og er vonast til þess að svör fáist fljótlega. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íbúar á þessu svæði hafa kvartað undan lágflugi herþotna. -mm Margir laxar í veiðarfærin MIÐIN: Mikið af laxi slæðist með sem meðafli í veiðarfæri íslenskra fiskiskipa. Umfang og magn þess afla var nýlega kann- að að frumkvæði Landssam- bands veiðifélaga sem fékk IMG Gallup til að senda sjó- mönnum spurningar þar að lút- andi. Niðurstaðan var sú að umfang veiða á laxi í sjó sem meðafli er mun meira en búist hafði verið við, eða 3200 til 7000 laxar á vertíð. Til að átta sig á umfangi þessara veiða samsvara þær allt að tvöfaldri heildarveiði úr Þverá í Borgar- firði þegar best gengur í einni fengsælustu laxveiðiá landsins. -mm Aðstaða bætt við Kalmansvík AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur ákveðið að verja 1,5 millj- ónum króna til endurbóta á tjald- svæðinu við Kalmansvík. I sam- þykkt ráðsins segir að þar sem fyrirsjáanlegt sé að nýtt tjald- svæði við Skógahverfi verði ekki tilbúið fyrr en eftdr 2-3 ár verði allt að helmingur fjárheimilda nýja tjaldsvæðisins flutmr til verkefna við svæðið við Kalm- ansvík. Fjármununum verður varið til viðhalds á húsi á svæð- inu, uppsetningu skjólgirðingar við húsið og einnig verður bætt aðstaða til lostmar á úrgangi úr húsbílum og vögnum auk þess sem komið verður fyrir raftengi- búnaði. -hj Styrkir upplýs- ingamiðstöð AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt beiðni Upplýs- inga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands um 100 þúsund króna styrk svo hægt sé að auka þjónustu miðstöðvarinnar. I bréfi til ráðsins segir að UKV hafi undanfarin ár sinnt þýð- ingarmiklu hlutverki í kynning- arstarfi á menningu og mannlífi á Vesturlandi. A fyrsm ámnum hafi hins vegar orðið mikið tap á starfseminni og eigið fé henn- ar sé nú neikvætt um 2 milljón- ir króna þrátt fyrir að hagnaður hafi verið af starfseminni und- anfarin ár. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulff.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi; Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Árthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.