Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Síða 10

Skessuhorn - 05.07.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. JULI2006 ^kiiSautíöEEÍ Hér er vaxtarbroddur í nýju og fersku fólki sem lítur á hlutina með opnum huga Þurfum að virkia ónotuð tækifæri Gunnólfur Lárusson er nýtekinn við starfi sveitarstjóra í Dalabyggð. Hann er ekki ókunnur máleíhum á þeim vettvangi í Dölum því hann starfaði lengi sem aðstoðarmaður sveitarstjóra. Hann er hins vegar uppalinn í Vestmannaeyjum en flutrtd sig um set vestur í Dali með fjöl- skyldu sína fyrir níu árum síðan. Gunnólfur segir það hafa verið auð- velda ákvörðun að taka aðstoðar- mannsstarfið á sínum tíma. Hann hafi séð það auglýst og þótt það spennandi tilhugsun að breyta til. „Okkur langaði að prufa eitthvað nýtt og þótti staðurinn spennandi. Það er lítdð mál að flytja hingað með fjölskylduna. Hér er gott að vera, góðir skólar og spennandi staður fyrir bömin.“ Vantar fólk til starfa Síðastliðin ár hefur ungu fólki fjölgað í Dalabyggð og þrátt fyrir að fólksfækkun hafi verið í sveitar- félaginu í heild sinni hefur mikil uppbygging verið í Búðardal, hús hafa risið og fleiri eru í byggingu. „Hér hafa risið 3 parhús og 1 ein- býlishús að undanförnu og nú eru 2 parhús í byggingu. Þar að auki eru biðlistar eftir leiguhúsnæði,“ en sveitarfélagið á átta íbúðir sem það leigir út í Búðardal, fjögur einbýlis- hús að Laugum og eitt í Saurbæ. „Það vantar mannskap hingað," segir Gunnólfur: „Undanfarið hef- ur okkur gengið illa að manna störf í Mjólkurstöðinni og höfum við þurft að leita út fyrir landssteinana efrir vinnuafli. Þaðan kemur að vísu prýðisgott fólk og góður starfs- kraftur. Einnig vantar iðnaðarmenn til að hægt sé að fara í þær fram- kvæmdir sem þarf. Hingað hafa flutst rafvirkjar undanfarin ár en í raun vantar alla aðra iðnaðar- menn,“ segir sveitarstjórinn. Skilvirkari stjómsýsla Sveitarfélagið Dalabyggð varð til við sameiningu nokkurra hreppa og Búðardals árið 1996. Við síðustu al- þingiskosningar var enn frekari sam- eining lögð tdl, þ.e. sameining Dala- byggðar, Reykhólahrepps og Saur- bæjarhrepps. Var sú sameining sam- þykkt í Dalabyggð og Saurbæjar- hreppi en hinsvegar felld í Reyk- hólasveit. Fyrmefridu sveitarfélögin tvö héldu sameiningunni til streitu svo úr varð eitt sveitafélag. Gunnólf- ur segir að sameiningin sé það eina rétta fyrir samfélagið í heild. Vissu- lega megi segja að kostir séu meiri fyrir smærri sveitarfélögin en þau stærri, en allir græði þó á þessu. Stjómsýslan færist á færri hendur og verði um leið skilvirkari. Samhentur hópur Vð síðusm sveitarstjómarkosn- ingar vom þrír listar í ffamboði til sveitarstjórnar í Dalabyggð. Gunn- ólfur fór fyrir N-lista sem kom fyrst- ur fram og settí það fljótlega á odd- inn að nú yrði hægt að kjósa beint um sveitarstjóra. Listinn náði þrem- ur mönnum í kosningunum. Tveir aðrir hstar, H-listi með Þórð Ing- ólfsson í fararbroddi og V-listi Vmstri hreyfingarinnar - græns framboðs með Þorgrím E. Guð- björnsson sem efsta mann komu tveimur mönnum í sveitarstjórn hvor listí. N-listi og H-hsti náðu saman um meirihluta og er ætlunin að endurskoða samstarfið eftir tvö ár. „Það var nú kannski helsta deilu- efriið hvernig ætti að skipa sveitar- stjórann. Við höfðum lagt áherslu á að sveitarstjóri yrði kosinn beinni kosningu en aðrir vildu auglýsa og ráða í stöðuna þannig. Þetta varð helsta ágreiningsefriið við myndun meirihlutans því við náðum mjög vel saman um málefrii. Raunar má segja að öll sveitarstjórnin sé samhent, bæði meiri- og minnihluti. Það er líka mín skoðun að í svona litlum samfélögum eigi ekki að vera hstapóhtík. Það er að sjálfsögðu alltaf pólitdk í gangi en þar sem er úr litlu að moða verða allir að standa saman. Allir hafa gefið það út að svo verði þannig að ég er bjart- sýnn á framtíðina. Hér er góður samhugur og enginn ágreiningur um málefrii," segir Gunnólf- ur. Eitt af þeim verkefri- um sem ráðist verður í er bygging nýs leikskóla, en hún var á stefriuskrá allra framboðanna. Núver- andi húsnæði er óviðun- andi og verður að bæta úr því. Hald- ið verður áffam ffamkvæmdum við Leifssafn, en þar eru áætlaðar jarð- vegsffamkvæmdir fyrir um 33 millj- ónir króna. Þá á eftir að vinna að innviðum hússins en áætlanir um opnun safrisins á þessu ári munu trú- lega ekki ganga eftir. Gunnólfur seg- ir að það sé ákveðinn galli hvað fólk í litlum sveitarfélögum er bundið af ákvörðunum sem teknar eru langt í burtu. Til dæmis þurfi ekki nema eitt símtal úr Reykjavík varðandi Mjólkurstöðina eða Slámrhúsið og tilvera 30-40 manns gjörbreytist. Þannig sé það í hinum hraða heimi sem við búm við. „Það er því nauð- synlegt að standa vörð um það sem við höfum um leið og reyna svo að bæta við það.“ Hvammsíj örður sem risastórt stöðuvatn Ferðaþjónusta er eitt af því sem sveitarstjómin horfir til þegar hugað er að framtíðarmöguleikum á svæð- inu. I því skyni er ætlunin að ráða menningar- og ferðafulltrúa og byggja atvinnuveginn upp. Að vísu séu menn þar ffáleitt einir um hit- una, í raun séu flestir að róa á sömu mið og telji að framtíðin felist í ferðaþjónustu. Dalabyggð hafi margt umfram önnur svæði í þeirri baráttu, hún sé stutt frá helstu þétt- býliskjömum og svæðið sé ríkt af sögu. Það ættu því að vera hæg heimatökin við að efla atvinnugrein- ina, en til þess þurfi ákveðna hugar- farsbreytingu. „Sveitarfélagið verður að líta á ferðaþjónustufyrirtæki eins og hver önnur atvinnufyrirtæki sem skapa fólki atvinnu og veitir tekjum inn í sveitarfélagið. Það verða því að gilda sömu reglur varðandi stuðning við atvinnugreinina. Þetta em bara venjuleg fyrirtæki sem fólk verður að standa á bak við.“ Gunnólfur sér mikla möguleika varðandi markaðs- setningu svæðisins og er ekki ör- grannt um að þar komi uppruni hans í Vestmannaeyjum eitthvað við sögu. „Eg er þannig gerður að hvert sem ég kem fer ég fyrst að huga að sjón- um og möguleikum í kringum hann. Hvammsfjörðurinn er einstakur, hann er lygn og algerlega laus við sker. I raun er hann eins og risastórt stöðuvatn. Þess vegna tel ég að sækja mætti á þann markað sem þjónusta við siglingafólk er. Ovíða á landinu er betri aðstaða til þess og í raun þurfa menn að sigla beinustu leið upp í fjöru til að lenda í vandræðum, svæðið er það ömggt.“ Hlakka til starfsins Gunnólfur lítur framtíðina björt- um augum. Gangi þau markmið sem sveitarstjóm hefur sett sér eftir, sé bjart framundan. „Hér er fólk ánægt, sveitarstjóm samhent og vill vinna af heilum hug fyrir íbúa Dala- byggðar. Hér er vaxtarbroddur í nýju og fersku fólki sem lítur á hlut- ina með ferskan huga. Fólkið hér á skrifstofunni er stórgott og jákvætt þannig að ég hlakka til að takast á við þau verkefrii sem ffamtíðin ber í skauti sér,“ sagði Gunnólfur Láms- son að lokum. KÓP Gunnólfur á skrifstofu sinni í Dalabyggð reiðubúinn til að takast á við verkefnin framundan. Barrw< vei+ing' Baulan í hjarta Borgarf jaröar censt var að koma úr Norðurá í Borgarfirði. Þar hefur eins árs laxinn verið mjög afgerandi í sumar og smár. Veiðimenn hafa verið að fá fiska þetta í kringum pundið þá minnstu. Meistarakokkurinn Jói Fel var t.d. við veiðar í Norðurá fyrir slcömmu og veiddi hann nokkra laxa og var einn af þeim sem hann fékk einungis 800 grömm. Ekki fara sögur af því hvort hann ætli að elda lax- inn í þáttum sínum. E.t.v. gæti hann það ef gestimir era ekki margir! Einn afþeim stærri úr Hítará. Einar Sigurðsson með 10 punda hæng úr ánni. Ljósm: Þorsteinn Olafs. gangur í Hítará og mikiU fiskur Hítará á Mýmm fer ágætlega af stað í ár. Þegar holl lauk veiðum í ánni á hádegi þann 30. júní höfðu veiðst 29 laxar og næsta holl bætti við 8 löxum. Veiðistaðir em hinsvegar fáir eða að minnsta kosti þeir staðir sem hafa gefið lax það sem af er veiðitímanum. Veiði- staðir eins og Langidráttur em að detta inn þessa dagana. Það er hinsvegar dagaspursmál hvenær laxinn fer meira upp á efra svæði ár- innar. Stærsti laxinn enn sem komið er er 5,8 kíló. Þá hafa veiðst nokkrir 4,5-5 kílóa laxar auk þess sem veiðimenn hafa misst nokkra í þessum stærðarflokki eftir mislangar glímur. Skessuhorn heyrði í Theódóri S. Halldórs- syni sem var að koma úr ánni. Hann bar sig vel og sagði þau hjónin hafa veitt þrjá laxa, sá stærsti vóg 4,3 kíló. Sagði hann veiðina reyndar ekki vera aðalatriðið, það hefði verið alveg frábært að vera með góðum hópi við ána og njóta góðra veitinga í veiðihúsinu Lundi. „Við vomm að koma úr fjölskylduferð í Hítará. Þetta var frábær veiði- ferð,“ sagði Bjarni Júlíusson formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en hann var að koma úr veiði í Hítará sl. sunnudag. „Við vorum þarna fjórir ættliðir í laxveiði, allt ffá 78 ára gömlum föður mínum, Júlíusi Gestssyni rafvirkja- meistara frá Grundarfirði sem náði tveimur löxum, niður í Olaf Bjama fjögurra ára gaml- an dótturson minn. Við feng- um átta laxa og misstum annað eins. Laxinn er aðeins farinn að dreifa sér betur um ána núna,“ sagði Bjami ennfremur. Hjónin Theódór S. Halldórsson og Ólöf Helga Pálmadóttir með einn vænan úr Hítará. Ljósm: Þorsteinn Olafs. Veiddu kola í Miðá í Dölum „Veiðin gengur rólega í Miðá ennþá, bæði í laxinum og bleikjunni, en fiskurinn gæti alveg komið á næstu flóðum,“sagði Lúðvík Gizur- arson leigutaki Miðár í Dölum, síðastliðið föstudagskvöld þegar Skessuhorn spurðist ffétta. „Veiðimenn sem vora að veiða neðar- lega í ánni veiddu kola, svipaðan og var að veiðast í Olftisá, en lítið af öðmm fiski. Harm tók maðkinn hjá þeim,“ bætti Lúðvík við. Fyrstu laxarnir em komnir á land í Laxá í Dölum og veiði er að byrja í Flekkudalsá og Hvolsá / Staðarhólsá. Veiðimenn sem vom að koma úr Andakílsá í Borgarfirði veiddu 7 laxa en áður vom komnir aðrir 7 laxar á land. „Þetta var ágætt, við sáum ekki marga laxa en fengum þessa sjö og það var fint,“ sagði veiðimaður í Andakílsá, hress með fenginn. Jói Fel veiddi 800 gramma lax í Norðurá „Þetta er eitthvað skrítið; það er stórir hlut- ir að gerast í hafinu, það fer ekki á milli mála, það vantar ákveðnar fæðutegundir fyrir fisk- inn eins og sandsílin," sagði veiðimaður sem Veiðihom Skessuhoms er i boði: VHÐIKOSTIÐ Vjrnet ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR www.limtrevirnet.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.