Skessuhorn - 05.07.2006, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 5. JXJLÍ 2006
oBissunuiL:’
12
Eg myndi hildaust gera þetta aftur
-rætt við tólf ára stúlku sem bjargaði haferni við Grundarfjörð í síðustu viku
Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir,
tólf ára Grundfirðingur varð fyrir
ævintýralegri reynslu að kvöldi
þriðjudags í síðustu viku, er hún óð
út í Kirkjufellslónið sem er skammt
fyrir innan bæinn og bjargaði
haferni sem hafði hrapað þar niður.
Blaðamaður Skessuhorns leit við í
heimsókn til Sigurbjargar Söndru
til að heyra þessa ótrúlegu sögu og
kynnast þessari hugrökku stúlku.
Sigurbjörg, sem er mikil hesta-
kona, var ein á ferð umrætt kvöld
en hún fer reglulega á útreiðar á
þessum stað. „Eg sá öminn bara
hrapa í vatnið og ég horfði á hann
synda hálfgert bringusund í áttina
að landi. Þegar hann virtist ekki
ætla að hafa það, óð ég bara út í,
batt reiðvestið utan um hann og
dró hann í land,“ sagði Sigurbjörg
frekar hógvær yfir þessari djörfu
ákvörðun sinni og hefðu eflaust
margir hikað í sambærilegum að-
stæðum. „Fuglinn var mjög hrædd-
ur og reyndi að losa sig en ég hélt
fast í annan vænginn og hélt með
hinni hendinni í vestið sem var vaf-
ið utan um hann,“ sagði Sigurbjörg.
I öllum átökunum náði örninn að
læsa klónum í læri hennar og ríg-
hélt hann takinu í um fimm sek-
Valgeir Magnússon, verkstjóri í
áhaldahúsi Grundarfjarðar kom
henni fyrstur til aðstoðar.
Hélt að hún
hefði slasað sig
Um þetta leyti var móðir hennar,
Sædís Guðmundsdóttir orðin óró-
leg þar sem Sigurbjörg var ókomin
úr túrnum og ákvað því að keyra af
stað í leit að dóttur sinni. „Hjartað
í mér stöðvaðist nánast þegar ég sá
hestinn hennar bundinn, hjálminn
á jörðinn og mann í símanum sem
húkti yfir einhverju sem ég sá ekki
alveg hvað var. Eg hélt að eitthvað
hefði komið fyrir hana, hún dottið
af baki eða lent í slysi en mér var
heldur betur brugðið þegar ég sá
hvað var í gangi,“ sagði Sædís fegin
að ekki hafði farið illa. Þegar á leið
kom dóttir Valgeirs með hundabúr
og tókst þeim í sameiningu að setja
haförnin í búrið. Fuglinn var enn
mjög skelkaður og gargaði hástöf-
um sem endaði með því að hestur
Sigurbjargar varð órólegur, sleit
tauminn og skemmdi hnakkinn, af
hræðslu við fuglinn. Farið var með
fúglinn inn í áhaldahús bæjarins þar
sem teknar voru myndir af þessu
Hér er Sigurbjörg ásamt jjólskyldu sinni ad heimili þeirra í Grundarfirði. Frá vinstri:
Sadís GuSmundsdóttir, Sigurkjörg, Olafur Marinósson, sljúpfaSir Sigurbjargar og Hel-
ena Ólafsdóttir 6 ára systir Sigurbjargar sem er líka mikill dýravinur.
úndur. „Ég var ekki að ná því að
þetta væri að gerast, ég reyndi að
vera róleg en ég var pínulítið
hrædd. Þá sá ég fólk við Kirkjufells-
fossinn, svo ég öskraði bara á hjálp
eins hátt og ég gat en það heyrði
enginn í mér,“ sagði Sigurbjörg
sem beið á annan klukkutíma þar til
tignarlega dýri og þaðan óku Sigur-
björg og Valgeir ásamt félaga hans,
með fuglinn til aðhlynningar á
Náttúrufræðistofnun í Reykjavík.
„Ég vildi koma honum í öruggar
hendur og þess vegna varð ég bara
að fara með til Reyjavíkur,“ sagði
Sigurbjörg sem afhenti Kristni
Sigurbj'órg og hestwr hennar Blakkur að leik og er ekki annaö að sjá að hesturinn hafi
jafnað sig eftir þennan dramatíska atburð.
Sigurbjörg um kvöldið við búrið sem eminum var komiðfyrir í.
Skarphéðinssyni fuglinn þegar
þangað var komið. Að sögn Sigur-
bjargar var Kristinn ekki viss um að
það hefði verið hún sem handsam-
aði dýrið en varð mjög hissa þegar
hann komst að því að sú var raunin
og ekki að ástæðulausu því eins og
fyrr segir er Sigurbjörg eimmgis
tólf ára gömul.
Haföminn fékk
nafnið Siguröm
„Ég var ekki komin heim fyrr en
klukkan fjögur um nóttina og orðin
pínulítið þreytt en það var alveg
þess virði. Ominn fór svo í Hús-
dýragarðinn um morguninn og
þaðan hringdu starfsmenn í mig og
báðu mig um að finna nafii á hann.
flugi. Af þessum sökum er gert ráð
fyrir að haförninn þurfti að vera í
Húsdýragarðinum í tvö ár í endur-
hæfingu þar sem stélfjaðrir endur-
nýja sig ekki árlega. Starfsmenn
Húsdýragarðsins telja þó allar líkur
á því að hann geti bjargað sér í nátt-
úmnni að lokinni endurhæfingu.
Eg er dýrasjúk
Sigurbjörg Sandra er sannkallað-
ur dýravinur og ætlar sér að verða
tamningamaður þegar hún er orðin
stór. Fyrr í júmmánuði var hún á
útreiðum þegar kona kemur að
henni og spyr hvað geri eigi við
vængbrotinn máv. „Ég sagði henni
bara að ég skyldi taka hann og fór
með hann í kofa hjá ömmu og afa í
Hér má greinilega sjá áverka á lœri Sigwrbjargar enda engin smá átök sem áttu sér stað
milli hennar og fuglsins.
Ég sagðist ætla að hugsa það og
hringja aftur og tíu mínútum seinna
hringdi ég og sagði þeim að hann
skyldi heita Sigurörn," sagði hún
og benti blaðamanni á að nafnið
væri sett saman úr nöfnum þeirra
beggja.
Sigurbjörg fór á fimmtudaginn
síðastliðinn í heimsókn til Sigur-
arnars í Húsdýragarðinn þar sem
hún fékk að fara inn í búrið hans og
gefa honum. Líðan hans er nú góð.
Þar sem einungis finnast um hund-
rað hafernir við landið vildi Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðurinn að
latma Sigurbjörgu björgun arnarins
með því að gefa henni og fjölskyldu
hennar árskort í garðinn og hyggst
Sigurbjörg nýta sér það sérstaklega
vel tdl að fylgjast með fiðraða vini
sínum og líðan hans.
Sigurörn er sex ára gamall karl-
fugl úr syðsta arnarhreiðri landsins
við Faxaflóa. Hann var þakinn grúti
og á hann vantaði stélfjaðrimar, en
án þeirra getur hann ekki stýrt sér á
Hálsabóli. Ég gaf honum svínakjöt
og orma en það dugði ekki mikið
því daginn eftir þurfti að taka hann
af lífi því hann var svo illa særður.
Ég elska dýr og hika ekki við að
hjálpa þeim,“ sagði þessi mikli
dýravinur og þarf enginn að draga
þau orð í efa eftír þessa minnis-
stæðu reynslu hennar. Aðspurð tun
hve mörg dýr hún hefur átt yfir æv-
ina svarar hún: „Uff, þau era mjög
mörg, ég veit það ekki nákvæmlega
en ég hef átt ketti, hunda, kanínur,
páfagauka, hesta og bara alls konar
dýr,“ sagði Sigurbjörg sem nú hefur
einnig eignast haförn. „Ég myndi
hiklaust gera þetta aftur, þetta var
mjög skemmtíleg reynsla og vin-
konu minni fannst þetta rosalega
flott hjá mér,“ sagði bjargvætturinn
að lokum. Þessi djarfa unga kona
mun án efa halda sínu hetjulega
starfi áfram og eitt er víst að börn
hennar fá vafalaust æði mergjaðar
reynslusögur fyrir svefhinn í ffam-
tíðinni. , ,
KOO