Skessuhorn


Skessuhorn - 05.07.2006, Qupperneq 15

Skessuhorn - 05.07.2006, Qupperneq 15
3SES8IÍHWMBK1 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006 15 Er verðlækkun á fasteignamarkaði framundan? Ýmis teikn eru á lofti um að verð á fasteignum fari á næstu vikum lækkandi á fasteignamarkaði á Akranesi. Ræður þar breytingar á lánamarkaði og fyrirsjáanlegt mik- ið framboð af fasteignum. Nú þeg- ar hefur hægt á markaðnum því sölur það sem af er ársins eru færri en á sama tíma í fyrra. A undanförnum vikum hafa töluverðar breytingar átt sér stað á lánamarkaði í fasteignalánum. Bankar hafa þrengt nokkuð lána- hlutfall og á dögunum var tilkynnt um um lækkun lánshlutfalls Ibúðarlána- sjóðs úr 90 í 80% og lækk- un hámarks- láns úr 18 í 17 milljónir. I kjölfarið hafa greiningar- deildir bank- anna spáð lækkun fast- eignaverðs. Mikil gróska hefur verið á fasteignamark- aðnum á Akra- nesi á undan- förnum árum og fasteignaverð hefur hækkað. Sem dæmi má nefna að á tímabilinu janúar-maí 2005 kostaði fermetrinn í sérbýli 98 þúsund krónur og 103 þúsund krónur í fjölbýli. A sama tíma á þessu ári var fermetraverðið hins vegar komið í 13 5 þúsund krónur í sérbýli og 136 þúsund krónur í fjölbýli. I öllum tilvikum er um meðaltalsverð að ræða. Réttar eignir fara fljótt Athygli vekur hinsvegar að salan hefur ekki aukist, heldur þvert á móti minnkað. Þannig staðfesti Fasteignamat ríkisins 121 sölu- samning vegna sölu á Akranesi á tímabilinu janúar-maí árið 2005. A sama tíma í ár hefur Fasteignamat- ið hins vegar aðeins staðfest 37 samninga. Þetta er athyglisvert í ljósi verðþróunar, en sé miðað við þessi tvö tímabil hefur verðið hækkað mikið. Því vaknar óneitan- lega sú spurning hvort boginn hafi verið spenntur of hátt, hvort verð- ið er ekki fjarri því sem kaupendur eru tilbúnir að greiða. Daníel Rúnar Elíasson á fasteignasölunni Hákoti: „Vissulega hefur verið nokkur lægð á markaðnum en ég tel ekki að það tengist verðinu heldur ytri aðstæðum, verðbólg- unni og vaxtabreytingum. Fólk er enda ekki að bjóða minna í íbúðir þegar það kemur inn. Eg held að fólk sé að sitja þetta af sér og veit að bankarnir hafa ráðlagt fólki það. Réttar eignir fara fljótt, stundum á einum degi. Nú held ég að það komi jafnvægi á markaðinn og verðbreytingar verði eðlilegar héðan í frá, en alls engar stórlækk- anir.“ Daníel er ósáttur við ákvörðun ríkisstjórnarinnar og tel- ur að það hafi verið mistök að lækka lánshlutfallið. „Það er sök sér að lækka hámarkslánin niður í 17 milljónir, en lækkun á lánshlut- falli niður í 80% kemur verst nið- ur á efnaminna fólki sem þarf sár- ast á lánunum að halda.“ Óeðlilegar væntíngar til fjölgunar? Mikið hefur verið rætt undan- farið um búsetuþróun á Akranesi, ekki síst eftir að Hvalfjarðargöng- in komu til sögunnar. Með þeim vonuðust menn til að íbúum myndi fjölga á svæðinu og Akranes yrði jafnvel hluti af markaði höf- uðborgarsvæð- isins. Sam- kvæmt tölum Hagstofu Is- lands voru íbú- ar á Akranesi 5.655 þann 1 desember 2004 en ári síðar voru þeir orðnir 5.782 að tölu. Þetta er fjölgun um 127 íbúa eða rétt rúmlega 2%. Miðað við þann fjölda íbúða sem eru í byggingu er ljóst að nokkur bjartsýni ríkir um fjölg- un Skagamanna. Samkvæmt upp- lýsingum tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar eru 327 íbúðir í byggingu nú um stundir í 178 húsum, þar af hófust framkvæmdir við 90 íbúðir á þessu ári. Ef reikn- að er með að þrír séu í hverri fjöl- skyldu, sem er nokkuð undir stærð vísitölufjölskyldunnar, er ljóst að verið er að reisa íbúðir fyrir rúm- lega 1.000 manns eða tæplega átt- falda fjölgun íbúa í fyrra. Sú stað- reynd vekur að sjálfsögðu spurn- ingar um hvemig ganga muni að selja eldri eignir til viðbótar þess- um nýju. KÓP Ljóð Ljóðabókin „Ljóð unga fólksins 2006 - ljóðasamkeppni bama og unglinga" er komin út. Utgefandi bókarinnar er Þöll, samstarfshópur um barnamenningu á bókasöfhum. Ljóðin í bókinni era verðlaunaljóð- in og um 60 valin ljóð úr ljóðasam- keppninni Ljóð tmga fólksins sem staðið hefur yfir í almenningsbóka- söfhum að undanförnu. Þessi ljóða- samkeppni er samstarfsverkefiú al- menningsbókasafha á landinu og höfðu söfh á Vesturlandi umsjón með ffamkvæmd kepppninnar í ár. Þetta er í fimmta sinn sem keppnin er haldin og að þessu sinni vom þátttökusöfnin 21 að tölu, víðsveg- ar um landið. Þátttakendum var skipt í tvo ald- urshópa, 9-12 ára og 13-16 ára og vom veitt þrenn verðlaun í hvomm flokki. Anægjulegt er að sjá allan þann fjölda ljóða sem barst og sýn- ir hann að áhugi unga fólksins okk- ar á skapandi skrifum er mikill. Oll börnin sem eiga ljóð í bókinni og myndskreytingu á kápu fá eintak gefins.ll börn á Akranesi eiga ljóð í bókinni og mættu sex þeirra og fengu hana afhenta á Bókasafni Akraness nýlega. Ljóð barnanna frá Akranesi er hægt að lesa í heim pottunum í sundlauginni á Jaðars- bökkum. Bókin er til sölu á Bóka- safni Akraness. MM fólksins 2006 DUNDUR ÚTSALA! Hefst fimmtudag 6.júlí ki.10:00 og opið er til kl. 21:00. 20-70% afsláttur Æfúðin KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599 ífðtt slemmnín$ oiioi hei$ino! « Opnum kl. 13:00 alla virka daga. Gott kaffi og meðlæti - HM á breiðtjaldi Ath: Verðum með sölutjaid á bryggjurmi á Lopapeysuballinu. Sími: 431 5030 Akraneskaupstaður Lausar stöður við Brekkubæjarskóla á Akranesi Staða aðstoðarskólastjóra frá 1. ágúst 2005 Leitað er að umsækjendum sem hafa: ✓ Kennaramenntun oj? kennslureynslu ✓ Reynslu af skólastjornun ✓ Goða skipulagshæfileika ✓ Lipurð f mannlegum samskiptum ✓ Metnað í starfi og áhuga á skólaþróun ✓ Aflað sér menntunar á sviði stjórnunar Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám, störf og frumkvæði á sviði skólamála. Kennarastaða laus til umsóknar: Umsjónarkennarastaða á unglingastigi, kennslugreinar enska og íslenska. Nánari upplýsingar veita: j Skólastjóri Auður Hrólfsdóttir netfang audur@brak.is, gsm. 895 6155 | og aðstoðarskólastjóri Arnbjörg Stefánsdóttir, netfang arnbjorg@brak.is, I gsm. 863 4379. Sími skólans er433 1300. \ Umsóknarfrestur er til 7. júlí 2006. Umsóknir sendist í Brekkubæjarskóla, Vesturgötu 120, 300 Akranes. Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ L____________________________I____________________________J Café/Möfh Skólabraut 14 Akranesi FlUgger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild BUREKSTRARDEILD BORGARNESl Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.