Skessuhorn - 05.07.2006, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006
\ \ Varmalandsskóli í Borgarfirði \ \
Kennarar, kennarar!
Nú er að slá til!
Enn vantar okkur kennara til þess
að kenna á unglingastigi.
Um er að ræða kennslu í íslensku,
stærðfræði og dönsku.
Líttu inn á heimsíðu skólans, www.varmaland.is
Upplýsingar gefur Flemming Jessen,
sími 840 1520,
netfang fjessen@varmaland.is
Húsbyggjendur
Sumarhúsaeigendur
Bændur
- Alhliða þjónusta -
Grús - R.B.
Rotþrær
Lagnasandur
Drenmöl
Túnþökur
Mold
Húsdýraáburður
Dráttarvélar
Sturtuvagn
Smágröfur
22 tonna grafa
Kjarnaborun
Steinsögun
Hægt að fá allt efni
heimkeyrt eða
sækja á staðinn
Ibúðarhúsnæði
Sumarhús
Útihús
Húsaklæðningar
Gluggaskipti
Sólpallar
Breytingar
Viðhald
Sigvaldi Geir Þórðarson - húsasmíðameistarij
sími 433 8890 gsm 896 9990 - netfang: nupar@simnet.is
Sigurjón Birgisson
gsm 866 6138
Árni Geir Sigvaldason
gsm 862 2999
REYKHOLAHREPPUR
'S Reykhólahreppur óskar eftir
að ráða sveitarstjóra
Starfssvið sveitarstjóra:
- Hefur yfirumsjón með starfsemi sveitarfélagsins, annast
daglegan rekstur og sér um framkvæmd þeirra ákvarðana
sem sveitarstjóm tekur.
- Skipuleggur og undirbýr dagskrá funda hreppsnefndar
- Gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við og annast
samskipti við stofhanir, fyrirtæki og samtök
Hæfniskröfur:
- Reynsla af rekstri og stjómun
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og hæfni í mannlegum
samskiptum
- Áhugi á atvinnu- og markaðsmálum
- Frumkvæði til að takast á við uppbyggingu sveitarfélagsins
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Fæmi í bókhaldi og áætlanagerð
- Þekking á sveitarstjómarmálum er æskileg
Umsóknarfrestur er til 12. júlí 2006. Umsóknir ásamt
ferilskrá skal senda til skrifstofu Reykhólahrepps,
merktar “umsókn um starf sveitarstjóra” og b/t oddvita
Gústafs Jökuls Ólafssonar, sem jafnframt veitir
upplýsingar í símum 894 5883 og 434 7883.
Reykhólahreppur er sveitarfélag með um 250 íbúa. Sveitarfélagið er landfræðilega
víðfeðmt, nær frá botni Gilsfjarðar allt vestur að botni Kjálkafjarðar, einnig má
telja margar eyjar á Breiðafirði, þar á meðal Flatey. Reykhólahreppur er rómaður
fyrir mikla náttúrufegurð og firiðsæld. í sveitarfélaginu er öll ahnenn þjónusta,
s.s. kirkjur, leik- og gnmnskóh, sundlaugar, íþróttahús, útibú heilsugæslu,
• hjúkrunar- og dvalarheimili, hótel, gistiheimili, verslanir og banki. Frá Reykhólum
» til Reykjavíkur eru einungis 230 km og í haust verður öll leiðin á bundnu slitlagi.
Nokkur uppbygging á sér stað í sveitarfélaginu um þessar mundir og krefjandi
og spennandi verkefni framundan.
Helgigöngur undir jökli
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og
Ingjaldshólskirkja stóðu um Jóns-
messuna íyrir helgigöngum frá
fornu kirkjustöðunum í Þjóðgarð-
inum að núverandi kirkjustöðum
sem eru rétt við mörk hans. Um
fjörutíu manns tóku þátt í þessum
göngum sem tókust með ágætum.
A föstudagskvöld var gengið frá
Saxhóli að Ingjaldshóli. Við upphaf
ferðarinnar flutti séra Ragnheiður
Karítas Pétursdóttir sóknarprestur
á Hellissandi blessunarorð og
Hluti gimgubópsins tekur hérþdtt í belgistund ú Soxhóli fyrir brottfór.
Forustuliðið. F.v. Guðbj'órg Gunnarsdóttirþjóðgarðsvörður. dr.
Pétur Pétursson prófessor, Jónína Bjartmars umhverfisrdð-
herra, Stemundur Kristjdnsson leiðsögumaður og Sigrún Bald-
ursdóttir formaður sóknamefndar Ingjaldshólskirkju.
einnig stjórn-
aði hún helgi-
stund á Ingj-
aldshóli. A
laugardag var
svo gengið frá
Einarslóni að
forna kirkju-
staðnum á Laugarbrekku og þaðan
að Hellnakirkju. Helgisttmdir voru
fluttar á sama hátt og í fyrri ferð-
inni. Félagar úr Björgunarsveitdnni
Björgu á Hellissandi fylgdust með
göngufólkinu, því til halds og
traustst.
MM
Nær og íjær
- listsýning í heimahúsi á Akranesi
Eitt af verkum Margrétar O Leópoldsdóttur d sýningunni.
Glöggar systur í samstarfi við Púls
68 kynna samsýninguna „Nær og
fjær,“ sem opnuð verður að Bakka-
túni 20 á Alcranesi 7. júlí næstkom-
andi. Þetta er þriðja sýningin sem
þar fer fram á jafnmörgum árum en
hún hefur alltaf opnað á írskrum
dögum. Að
þessu sinni eru
um að ræða
samsýningu á
myndlist, leir-
list, ljósmynd-
um, skúlptúrum
og hönnun efrir
fimm listakonur
sem eru tengdar
sem vinkonur,
ffænkur, skóla-
systur og systur.
Þær búa á jafn-
mörgum stöðum, þ.e. á Akureyri,
ísafirði, Reykjavík, París og Akra-
nesi og nálgast viðfangsefni sín ým-
ist í mikilli nánd eða fjarlægð.
Listakonurnar eru þær Olöf Björk
Oddsdóttir, leirkerasmiður með
leirkönnur og nælur, Lára Stefáns-
dóttir, áhugaljósmyndari með ljós-
myndir úr náttúrunni, María Jóns-
dóttir, textílhönnuður með skúlpt-
úra úr gleri og steypu og systumar
Jóhanna Leópoldsdóttir fjöllista-
kona með vatnslitamyndir og Mar-
grét O. Leópoldsdóttir, hstakona
með silkiþrykkta hörlöbera.
Sýningin verður opin til 23. júlí
ffá klukkan 13-18, en fyrir þá sem
h'tt þekkja til er Bakkatún 20 staðsett
miðja vegu milli Bíóhallarinnar á
Akranesi og Slippsins. Allir eru
hjartanlega velkomnir og heitt verð-
ur á könnunni.
Skessuhorn óskar þessum fjöl-
hæfu og ffamtakssömu konum til
hamingju með sýninguna en ffekari
upplýsingar má fá á vefnum
www.leopold.is/gloggarsystur eða í
síma 695-6255. MM
Listahátíðin Berserkur
Ung firjáls orka
Dagana 24. - 28. júlí nk. verða
starfræktar listasmiðjur fyrir ung-
menni á aldrinum 16-25 ára á
Snæfellsnesi. í boði verða
skemmtilegar og fjölbreyttar
smiðjur ásamt annars konar uppá-
komum. Þær smiðjur sem í boði
verða eru: Art-Craft, tónlist-
arsmiðja, stuttmyndasmiðja, leik-
listarsmiðja/ götuleikhús, skart-
gripagerð og hljómsveitarsmiðja.
Gestum og gangandi verður boðið
upp á að fylgjast með þeirri starf-
semi sem fram fer í smiðjunum.
Lokapunktur listahátíðarinnar
verður laugardaginn 29. júlí. Þá
mun afrakstur starfsins verða til
sýnis á einn eða annan hátt.
Skráning í smiðjur Listahátíðar-
innar Berserkja hefst föstudaginn
7. júlí og stendur til 17. júlí. Hægt
verður að skrá sig í síma 891-7802
(Þóra Margrét). Skráningargjald
er 2000 krónur og einungis verður
hægt að skrá sig í eina smiðju.
MM
Næsti bændamarkaður
/
a
Nú styttist í næsta
Bændamarkað BV á
Hvanneyri en hann
verður laugardaginn 8.
júlí klukkan 13 til 17.
Síðasti markaður tókst
einkar vel en þar mátti
finna sauðaosta, geita-
osta, hákarl, harðfisk,
grænmeti, bakkelsi og
ýmislegt fleira góðgæti.
Flestir framleiðendur
sem tóku þátt í síðasta
markaði verða aftur en
einnig bætast við nýir.
Nánari upplýsingar
um markaðinn má finna
á síðunni: www.buvest.is
MM
Hér er Ríkharð Brynjólfsson d Hvanneyri að höndla með harðfisk djýrsta btendamarkaði sumarsins.
laugardaginn kemur