Skessuhorn - 05.07.2006, Side 24
24
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2006
§HESSUH©g®
Svipmyndirfrá
Það er ekki hægt að segja að ný-
liðinn mánuður hafi verið sérlega
sólríkur. Flesta daga var einhver
úrkoma eða dumbungur í lofti.
Slíkt veður er ekki sérlega hentugt
til myndatöku. Engu að síður taka
blaðamenn Skessuhorns alla jafn-
an mikinn íjölda ljósmynda sem
ekki nýtast með fréttum vikunnar.
Hér á síðunni birtum við lítið brot
af þessum myndum.
Sjómannagarðurinn á Hellissandi skartaði sínufegursta í síðustu viku þegar kynnt voru
úrslit í hönnunarsamkeppni um þ/óðgarðsmiðstöð á Hellissandi.
Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra á gangi með móður sinni, móðursystur og ungri
stúlku úr fjölskyldunni í friðsældinni undirjökli.
Þessi myndarlegi brúsapallur er við bæinn Eiði í Grundarfirði. Snyrtilega gert og
búsœldarlegt heim að líta.
Við Akraneshöfh á sumarsólstöðum.
Brugðið á leik á Borgfirðingahátíð. Myndin erfrá Hvanneyri.
Laun sveitar-
stjómar breytast
DALIR: Byggðaráð Dala-
byggðar hefur lagt til að laun
sveitarstjórnar og nefnda á veg-
um sveitarfélagsins verði „upp-
færð“ til samræmis við samsvar-
andi sveitarfélög eins og komist
er að orði í bókun ráðsins.
-hj
Eyrbyggjar með
kynningarátak
GRUNDARFJ ÓRÐUR: Eyr-
byggjar, hollvinasamtök
Grundarfjarðar, hafa sent út
kynningareintök af bókinni
„Fólkið, fjöllin, fjörðurinn, safn
til sögu Eyrarsveitar,“ til fyrr-
um fermingarbarna í Set-
bergsprestakalli. Vonast er til
þess að sem flestir viðtakendur
sjái sér fært að greiða greiðslu-
seðil sem bókinni fylgir og
styrkja með því starf Eyrbyggja
og útgáfu bókarinnar.
~hí
Bærinn kaupir
gripahús
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt kaup á Garða-
grund 20 (Garðaland) fyrir 350
þúsund krónur. Um er að ræða
tæplega 100 fermetra gripahús
án lands ásamt afnotum af 20
þúsund fermetra spildu í eigu
kaupstaðarins. Húsið var byggt
árið 1960 og fasteignamat þess
er 776 þúsund krónur. -hj
/
Asthildur
komin úr námi
SSV: Ásthildur Sturludóttir, at-
vinnuráðgjafi, sem verið hefur í
leyfi undanfarið hálft annað ár
vegna framhaldsnáms erlendis,
er nú komin aftur til starfa hjá
Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi. Asthildur lauk í maí sl.
mastersnámi f opinberrri
stjórnsýslu MPA frá PACE
University í New York í Banda-
ríkjunum. -mm
Tölvukostnaður
felldur niður
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkti beiðni Guð-
jóns Guðmundsson fram-
kvæmdastjóra Dvalarheimilis-
ins Höfða um niðurfellingu á
kostnaði heimilisins vegna hug-
búnaðarhýsingar og launakerf-
isþjónustu frá og með síðustu
áramótum. Fyrr í þessum mán-
uði komu bæjarstjóri, forseti
bæjarstjórnar og formaður bæj-
arráðs í heimsókn á Höfða og
áttu viðræður við stjórnendur
heimilisins um samskipti þess
við bæjarfélagið. I framhaldi af
því var áðurnefnd beiðni send
bæjarráði. -hj
s
Utisalemi við
Langasand
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að koma upp
útisalerni við Jaðarsbakka þar
sem gengið er niður að sturtum
á Langasandi. Salernið verði
þar til 23. ágúst 2006. Áætlað er
að kostnaður vegna þessa verði
um 100 þúsund krónur og hon-
um verði vísað til endurskoðun-
ar fjárhagsáætlunar ársins.
-hj
liðnum mánuði
Ung stúlka á bændamarkaði á Hvanneyri á Borgfirðingahátíð. Betra að vera klœddur í
takt við veðrið.
Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra á góðri stundu með Kristni Jónassyni, bœjarstjóra
og Magnúsi Stefánssyni, félagsmálaráðherra.
Borgames séðfrá Borg á Mýrum.
Koddaslagur yfir höfninni á sjómannadegi á Skaganum.
Mávar af öllum gerðum sem ogýmsir aðrirfuglar hafa ekki átt sjö dagana sæla undan-
farið og hefur varp víða misfarist sókum feðuskorts. Þessi mynd var tekin í róðrifrá
Akranesi í liðnum mánuði og sýnir banhungraða máva rífa í sig æti sem íþá var hent af
Síldinni AK.