Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2006, Síða 4

Skessuhorn - 26.07.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. JULI2006 ukCMvnuij Skemmtiferða- skip í höfn GRUND ARFJ ÖRÐUR: Á fimmtudagsmorgun síðasta lagðist skemmtiferðaskipið Columbus að bryggju í Grund- arfirði. Með skipinu eru 350 farþegar og 170 manna áhöfn. Þjóðverjar voru flestir meðal farþeganna og við komuna til Grundarfjarðar biðu þeirra rút- ur sem keyrðu með þá út fyrir Snæfellsjökul. Veðrið var ekki amalegt í Grundarfirði. Ekki sást ský á himni og hitinn var Reyndu að stela eldsneyti BORGARNES: Aðfaranótt síðastliðins laugardags voru einhverjir á ferð í Borgarnesi sem ekki sáu sér fært að nálgast eldsneyti með heiðarlegum hætti. Átt var við bíla við Hekluumboðið við Sólbakka og reynt var að ná bensíni af bílun- um og þær skemmdir sem unn- ar voru á bílunum voru á bens- ínlokum sem höfðu verið spennt upp. Að sögn Ágústs Skarphéðinssonar bílasala voru það einungis bílar frá umboð- inu sem átt var við en vildi hann koma því á ffamfæri að á nýleg- um bflum væri orðið ekki hægt að ná af þeim bensíni í gengum dæluop á tönkunum. -so Bætt við byggingarlandi BORGARBYGGÐ: Nú liggur fyrir tillaga að deiliskipulagi íbúðabyggðar í Bjargslandi í Borgarnesi. I tillögunni er gert ráð fyrir fimm lóðum undir íjölbýlishús, 16 lóðum undir parhús og 33 lóðum fyrir ein- býlishús. Fyrirhuguð byggð verður norðan við þá íbúðar- byggð sem fyrir er í Bjargs- landi. Deifiskipulagið verður til sýnis í ráðhúsi Börgarbyggðar ffá 20. júlí dl 18. ágúst og geta áhugasamir kynnt sér fyrirhug- aða byggð þar. Frestur til at- hugasemda vegna skipulagsins rennur út 1. september og ber að skila þeim skriflega til skif- stofu Borgarbyggðar. -kóp Neftid um einkafram- kvæmdir SAMGÖNGUMÁL: Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að leggja fram tillögur um við hvaða að- stæður einkaframkvæmd í sam- göngum getur talist vænlegur kostur. Nefndinni er falið að skila tillögum eigi síðar en 1. september þannig að hafa megi álit hennar til hliðsjónar við af- greiðslu samgönguáætlunar 2007 til 2018. -mm Listahátíðin Berserkur stendur nú yfir Listahátíðin Berserkur undir slagorðinu „ung, frjáls orka“ hófst á Snæfellsnesi sl. mánudag og mun hún standa fram á föstudag. Næsta laugardag verður svo afrakstur Berserks sýndur á ýmsan hátt og uppskeruhátíð verður hjá þátttak- endum. Eftirfarandi smiðjur eru starf- ræktar á Berserk 2006 í Grundar- firði og Stykkishólmi: Ait Craff og götuleikhús, stuttmyndagerð, ljós- myndasmiðja, hljómsveita- og tón- listarsmiðja og skartgripagerð en hluti af afrakstri þeirrar smiðju verð- ur til sölu á laugardaginn. Þá munu þau er sækja hljómsveita- og tónlist- arsmiðjuna taka upp frumsamið efhi sem gefið verður út á disk og halda tónleika á fimmtudagskvöld og einnig verður haldið Berserkjarokk á þaki Sögumiðstöðvarinnar í Grund- arfirði á laugardaginn á bæjarhátíð- inni Á góðri stund. I ljósmyndasmiðju verður kermsla á myndavélar og haldið ljósmynda- maraþon þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Stuttrnyndagerð verðtur kynnt fyrir þeim hópi er þá smiðju sækja, stuttmynd gerð og fylgst með upptökum á stuttmynd. I Art Craft og götuleikhúsi er í boði þátttaka í áhættuatriðum, leikmyndahönnun, smltugangi, eldspúun og mun götu- leikhúsið vera á ferðinni á Góðri stund í Grundarfirði um helgina. Smiðjurnar eru ætlaðar ung- mennum á aldrinum 16-25 ára og eru götur, torg og aðrir bæjarhlutar hvergi óhultir fyrir sköpunargleði og krafti ungra listamarma í Stykkis- hólmi og Grundarfirði þessa dag- ana. Að sögn Þóru Margrétar Birg- isdóttur umsjónarmanns Berserks 2006 er þátttaka meðal ungmenna mjög góð, á bilinu 35 til 40 manns eru skráð til leiks á Berserk. SO -----------------------7-------- Niinnumar í Hólminum í Ut og suður í sjötíu ár hafa systur frá St. Fransiskusreglunni sett svip sinn á mannlífið í Stykkishólmi. Með þrautseygju og fórnfysi byggðu þær upp heilbrigðisþjónustuna í Hólminum í samvinnu við heima- menn. Þá ráku þær um áratuga skeið barnaheimili í bænum og prentsmiðju svo eitthvað sé nefnt. I næsta þætti Ut og suður í RUV heimsækir Gísli Einarsson, St. Fransiskussystur og fræðist um söguna og klausturlífið. Þótt það feli í sér ýmsar fórnir að ganga í klaustur eru systurnar í Hólminum afar sáttar við sitt hlut- skipti og lífsglaðar í meira lagi. Þær systir Antonia, systir Petra og systir Elísa hafa frá mörgu skemmti- legu að segja í þættinum sem sýndur er í Ríkis- sjónvarpinu sunnu- daginn 30. júlí kl 19.35. MM Systir Petra kemurfram í þættinum auk systur Antoníu og systur Elt'su. Skiptar skoðanir á staðsetningu menntaskóla á lóð húsið staðsett innar á lóðinni en ekki alveg við Borgarbrautdna eins og hugmyndir arkitekta gera ráð fyrir. Var það skoðtm fólks að með þessu móti væri verið að loka fyrir stóran hluta lóðarinnar en það rými er hugsað með hliðsjón af mögu- leika á stækkun skólans til sjávar sem og útivistarsvæðis. Það var einnig hugmynd arkitekta að húsið yrði í nánu samspili við náttúruna og um- hverfið með því að staðsetja það við klettavegginn við Borgarbrautina. Þá höfðu aðrir áhyggjur af bfla- stæðavanda þar sem flestir unglingar í dag ferðist á bflum en hugmynd arkitekta er að hægt verði að samnýta bílastæði Samkaupa þar sem álagstími skólans og Hymu- torgs væri ekki sá sami. Eins og áður sagði er hönnun hússins ekki lokið en reiknað er með að byggingar- nefhdarteikningar verði tilbúnar í ágúst. ____________________KÓÓ Gilinu hefiir verið tekið mjög vel Veitingahúsið Gihð opnaði að kvöldi föstudagsins 30. júní sl. Eftir mikla vinnu margra manna hófst það sem áætlað var, að opna staðinn á Færeyskum dögum sem haldnir voru í Olafsvík þá helgi. Að sögn Ama Aðalsteinssonar eiganda staðarins hefur gengið alveg ágætlega hjá þeim þessar vikur sem opið hefúr verið. Heimamenn hafa veitt staðnum góðar viðtökur, em farnir að koma þangað í hádeg- inu að fá sér súpu og brauð og svo er fólk einnig að ramba inn í kaffi og kökur seinnipartinn og á kvöld- in. Mikið af erlendum ferðamönnum hefur einnig komið á staðinn og segist Árni vera að vonum glað- ur með þær viðtökur sem staðurinn hefur fengið. Mikið á enn eftir að gera fyrir húsið en þrátt fyrir það er sú aðstaða sem tilbúin er mjög fin og timbur- lyktin semr vissan brag á anda hússins. SO Arni Aðalsteinsson eigandi veitingahússins Gilsins í Olafsvík er ánægð- ur með þær góðu viðtökur sem staðurinn hefur fengið. Útlitsteikning afhúsinu á umdeildum stað við Borgarbraut. Kynning á stöðu byggingar skóla- húss Menntaskóla Borgarfjarðar fór ffam á hluthafafundi einkahlutafé- lagsins sem haldinn var fyrir skömmu en það er arkitektastofan Kurt og Pí sem hefur vunsjón með hönnun og þarfagreiningu hússins. Skólinn mun standa við Borgarbraut 54, sunnanmegin á núverandi tjald- stæði Borgamess. Samkvæmt teikn- ingum stofunnar verður húsið um 1.900 fermetra, á tveimur hæðtun með fjölnota sal sem mun rúma allt að 350 manns í sæti. Hugmyndir arkitekta ganga út ffá að húsið verði steypt en klætt með kopar að hluta til. Hönnun hússins er ekki að fullu lokið og því hggur kostnaðaráætlun ekki fyrir en ffam kom á hluthafa- fundinum að gera megi ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 250 þúsund krónur á hvem fermeter. Má því ætla að kostnaðurinn geti orðið um 500 milljónir króna við byggingu hússins. Mikil umræða var á fundinum um hugsanlega staðsetningu hússins og einnig vora skiptar skoðanir á nýt- ingu lóðarinnar. Fram kom að margir hluthafar hefðu kosið að sjá Hreinsunarátak og slagorð AKRANES: Umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar hefur uppi hugmyndir um að efna til sam- keppni meðal skólafólks á Akra- nesi um slagorð fyrir bættu um- hverfi og betri umgengni. Þessi hugmynd kom fram á fúndi nefndarinnar þegar rætt var um hreinsun, almenna tiltekt og frágang opinna svæða í bænum. Einnig var á fundinum rætt um ástand einstakra svæða og sér- staklega var staða mála í og við Ægisbraut rædd. -hj Auglýsa stöðu forstöðumanns SNÆFELLSNES: Staða for- stöðumanns Félags- og skóla- þjónustu Snæfellinga hefur ver- ið auglýst laus til umsóknar. I starfinu felst yfirumsjón með félagsþjónustu og barnavernd auk þjónustu við grunn- og leikskóla. Það em sveitarfélög- in Gmndarfjarðarbær, Helga- fellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmur sem standa sam- an að Félags- og skólaþjónust- unni en í þeim sveitarfélögum búa tæplega 4000 manns. For- stöðumanns bíður stórt hlut- verk við rekstur og áffamhald- andi uppbyggingu félags- og skólaþjónustu á Snæfellsnesi. I auglýsingu segir m.a. um starf- ið að leitað sé eftir starfsmanni með háskólamenntun af upp- eldis- eða félagssviði auk þess sem reynsla af sambærilegum störfum sé æskileg. -mm Stöðugildum fjölgað á leikskólanum DALABYGGÐ: Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt beiðni leikskólastjóra leikskólans Vinabæjar um að fjölga stöðu- gildum við skólann úm eitt ff á og með 14. ágúst. Fjallað var um málið á fúndi byggðaráðs á dög- tmum og var sveitarstjóra fahð að fara yfir máhð. Á fundi sveitar- stjómar í síðustu viku lagði hann svo ffam áætlun um launakostn- að og áætlaða þörf og í ljós kom að við fjölgun stöðugilda myndi biðhsti við leikskólann tæmast. Samþykkti sveitarstjórn því beiðnina með öllum greiddum atkvæðum. -hj / Innbrot í Asinn STYKKISHÓLMUR: Aðfar- arnótt mánudags var framið innbrot í söluturninn Ásinn í Stykkishólmi. Þjófarnir spenntu upp hurð og unnu á henni skemmdir en stálu síðan töluverðu magni af varningi. Þar á meðal öllum DVD mynd- unum af leigu söluturnsins, nokkrum DVD- og mynd- bandstækjum ásamt sælgæti og gosdrykkjum. -mm WWW.SKESSUHORN.IS Bjamarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhom kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er tíl 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 21 32 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is Umbrot: Cuðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.