Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 11
 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006 11 Björgunarsveitin Brák í hálendis- ferð á vegum Landsbjargar „Þetta var alveg meiriháttar ferð,“ segir Asgeir Sæmundsson, formaður björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi um þátttöku sveitarinnar í verkefninu „Björg- unarsveitdr á hálendinu" sem Slysa- varnafélagið Landsbjörg stendur fyrir nú í sumar. „Við aðstoðuðum fjölda ferðamanna sem voru í vill- um eða öðrum vandræðum,“ segir Asgeir. „Til dæmis var nokkuð um dekkjaviðgerðir hjá okkur þar sem ferðamenn á hálendinu eiga það til að sprengja fleiri dekk en þeir eru með til vara og einnig aðstoðuðum við eiganda tjaldvagns sem hafði gleymt að loka honum og ruddi vegirrn suður Kjalveg með vagnin- tun. Þýsk kona naut einnig aðstoð- ar björgunarsveitarmanna þegar hún féll með andlitið í hraimgrýti á Hveravöllum en þyrla Landhelgis- gæsltmnar sótti hana og fór með á sjúkrahús." Verkefnið felst í því að Slysa- vamafélagið Landsbjörg staðsetur fjórar björgunarsveitir uppi á há- lendinu ffá 30. júní til 18. ágúst í sumar. Hálendinu er skipt gróflega upp í fjögur svæði; Kjalveg og ná- grenni, Sprengisandsleið, Fjalla- Hluti afBrákverjum sem voru allan tímann á hálendinu, frá vinstri: Elli, Hulda, Magga ogjón. baksleiðir og svæðið norðan Vatna- jökuls og er ein björgunarsveit staðsett á hverju þeirra. Brák var á svæðinu við Kjalveg. Björgunar- sveitin Brák lagði til mannskap og búnað í eina viku og hafði í nógu að snúast við að aðstoða ferðamenn, íslenska jafht sem erlenda. Þegar mest var vom sjö manns á hálend- inu á vegum Brákar, bæði í björg- Bækistöfrvar hópsins voru á Hveravöllum. Sem beturfer gafst einnig tækifæri til að njóta veðurblíðunnar. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga Forstöðumaður Staða forstöðumanns Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga er laus til umsóknar. í starfinu felst yfirumsjón með félagsþjónustu og barnavernd auk þjónustu við grunn- og leikskóla. Forstöðumanns bíður spennandi starf og stórt hlutverk við rekstur og áframhaldandi uppbyggingu félags- og skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Leitað er að starfsmanni með háskólamenntun sem nýtist í starfi auk þess sem reynsla af sambærilegum störfum er æskileg. Hæfni i mannlegum samskiptum er lykilatriði. Að Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga standa sveitarfélögin Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, SnæfeLLsbær og Stykkishólmur. Á svæðinu búa tæplega 4000 manns. Á SnæfelLsnesi er kraftmikið og fjölbreytt mannlíf, fögur náttúra og greiðar samgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu, einnig blómlegt skóLastarf, m.a. fjölbrautaskóLi. Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðumaður í sima 4307800. Umsóknir skulu berast Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ í síðasta lagi 3. ágúst n.k. unarsveitarbíl sem mannaður var tveimur reyndum björgunarsveitar- mönnum og einum yngri og ó- reyndari, sem og tveimur einkabíl- um. Markmið verkefnisins er fjór- þætt, þ.e. að fækka slysum, vera með viðbragðseiningar á hálend- inu, veita ferðamönnum aðstoð og upplýsingar auk þess sem sveitirnar vinna við að merkja vöð og aðrar hættur í samvinnu við Vegagerðina. Gert er ráð fyrir að þátttaka hafi ekki kostnað í för með sér fyrir björgunarsveitimar sem mannaðar era sjálfboðaliðum og verður olía á bílana greidd með styrkjum frá Flugleiðum, Alcan og Pokasjóði. Asgeir segir að mikil ánægja hafi ríkt meðal ferðamanna með fram- takið og vonar að áffamhald verði á næsta sumar. „Við verðum til í að taka þátt aftur þá, reyndar var svo gaman að við vorum öll til í að vera aðra viku þegar okkar tími var lið- inn,“ segir Asgeir að lokum. MM Hækkun skóla- gjalda á Bifröst Magnús Ami Magnússon, aðstoSarrektor á Bifröst. Skólagjöld við Viðskiptaháskól- ann á Bifröst hafa hækkað um 12%. Verðbólga og endurskipu- lagning sem felur í sér aukin gæði kennslunnar eru sagðar ástæður hækkunarinnar. Onnin í grunn- námi kostar eftir hækkunina rúm- ar 236.000 krónur en þar að auki hefur húsaleiga á skólasvæðinu hækkað um nokkur prósentustig. Skólagjaldahækkunin ein og sér gerir það að verkum að nám sem tekur sex annir er nú um 150.000 krónum dýrara en áður. Aðspurður segir Magnús Arni Magnússon aðstoðarrektor að hluti hækkunarinnar sé tengdur vísitölu og sé það árleg hækkun sem engum ætti að koma á óvart. Umfram það sé um u.þ.b. 15 þús- und króna hækkun á önn að ræða. Magnús segir þá hækkun koma í kjölfarið á þróunarvinnu sem farið hafi ffam á vormánuðum í fullu samráði við nemendur. Ætlunin sé að auka gæði námsins og gera það einstaklingsmiðaðra og bjóða upp á meiri þjónustu. „Við hugsum okkur að horfa meira á nemand- ann sem einstakling en sem hluta af samstæðum hópi,“ segir Magn- ús. „Við höfum tekið upp hugsun sem hefur lengi tíðkast í listnámi, þ.e. að horfa á einstaklinginn og mismunandi þroskaþarfir hans í gegnum námið. Þetta verður auk- ið strax næsta vetur og bætt við svokölluðu „tutorals“ kerfi sem hefur verið hér við lýði, en í því er hver nemandi með leiðbeinanda sem fylgir honum í gegnum nám- ið. I stað tveggja funda á önn verða teknir upp vikulegir fundir nem- enda og leiðbeinanda. Þá er ætlun- in að koma upp kaffistöðvum víða um skólann þar sem menn geta spjallað og skipst á hugmyndum yfir kaffibolla og nálgast ritföng. Þetta ásamt ýmsum smærri ráð- stöfunum skýrir m.a. þessa hækk- un.“ Magnús segir að þetta sé fyrsta skrefið í ferli sem miðar að því að gera skólann betri og auka þjón- ustu við nemendur. Aðspurður segir hann alls ekki útiloka að um frekari hækkun á skólagjöldum verði að ræða á næstu árum, en tekur fram að slíkar ákvarðanir verði teknar í fullu samráði við nemendur. Þess má geta að Skóla- félag Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur sent ffá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir ánægju með það að nemendur fái að taka þátt í ráð- stöfun þess fjármagns sem verður til vegna hækkunar gjalda. KOP www.skessuhorn.is Munaðarnesi Framandi réttir í bland við þá gömlu og góðu, ásamt eðallcarfi iafavara á goSu verði Opnunartímar í sumar: Mánudaga - fimmtudaga og laugardaga: 12:00-20:00 föstudaga og sunnudaga: 14:00-20:00 BAR Paradís Barinn er opinn frá kl: 18:00 föstudags-, laugardags og sunnudagskvöld. Næstkomandi laugardagskvöld 29.júlí. mætir trúbadorinn Heimir Jóbannsson enn og aftur með gítarinn og munnhörpuna frá klukkan 22:00-01:00. Paradísar kvöldverður á laugardagskvöld! 3 rétta matseðill á góðu verði Borðapantanir í síma 525-8441. Opið alla verslunarmannahelgina. Tilboð í mat og drykk, lifandi tónlist og eitthvað fyrir börnin. (nánar auglýst síðar) Lystisemdir ehf, veisluþjónusta Aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið og hvers konar veislur. Tökum á móti allt að 100 manns í mat og drykk. Kaffi Paradís - Lystisemdir ehf. - Munaðarnesi. Sími: 525-8441

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.