Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26.JÚLÍ2006 ^áCMUIIUkil Stuttmyndin Eyja tekin upp að Garðsenda Hús áfaraldsfæti Húsið sem hér séstflutt er ekki óvant ferðalögum. I liðinni viku var það flutt frá Haukagili í Hvítársíðu og að garðyrkjubýlinu Reiti í Reykholtsdal þar sem eigandi þess, Bryndís Brynjólfsdóttir hefur fúndið þvt nýjan stað. Aður en hús þettafór að Haukagili stóð það til margra ára að Fróðastöðmn í sömu sveit. MM/ Ljósm. BHS Sængurgjöf samfélagsins í Grundarfirði Síðastliðinn mánudag færði Grundarfjarðarbær, með liðsinni Heilsugæslustöðvar Grundarfjarðar, öllum Grundfirðingum sem fæddir eru á þessu ári sængurgjöf ffá sveit- ungum sínum. Gjöfin innihélt m.a. fatnað, handklæði, beisli, fræðslu- bækur og pollagalla sem nauðsyn- legur er öllum grundfirksum böm- um. Börnum og foreldrum bama sem fædd em á árinu var boðið í Samkomuhúsið til þess að taka við gjöfinni. í framhaldinu verða ný- fæddir Grundfirðingar heimsóttir og þeim færð sængurgjöf. Atta börn em fædd á árinu, 5 strákar og 3 stelpur og era þar af tvennir tvíbur- ar. A myndina vantar einn h'tinn dreng sem fæddist í síðustu viku og er ekki kominn heim. Foreldrar hans era Skarphéðinn Guðmunds- son og Þórdís Guðmundsdóttir. A meðfylgjandi mynd era foreldrar og börn ásamt Hildi Ijósmóður, Björgu bæjarstjóra og Sigríði forseta bæjar- stjómar. MM/afvef Grundarf.bæjar. Grundfirðingurinn Dögg Mós- esdóttir útskrifaðist úr spænska kvikmyndaskólanum Centre d’estudis cinematografics de Cata- lunya í Barcelona vorið 2005 sem kvikmyndaleikstjóri. Var hún ein af sex nemendum úr hennar árgangi sem var veitt sérstök kennaraverð- laun fyrir góðan árangur í námi. Verðlaunin fólust í styrk til gerðar stuttmyndar með frjálsu þema. Skólinn er þannig framleiðandi. Gerð myndarinnar er einnig styrkt af Menningarsjóði Vesturlands sem úthlutaði styrkjum í fyrsta sinn nú í vor. ungrar stúlku sem upplifir öfl hafs- ins er hún sér á eftir föður sínum og bróður farast. Sagan er byggð á sönnum atburði frá því um 1920, þegar nokkrir menn réru til sjós og meðal þeirra var langafi Daggar. Konur og börn stóðu í fjöruborð- inu og biðu þess að báturinn kæmi að landi þegar vind sló í seglin, fleyinu hvolfdi og öll áhöfnin fórst. Hvorki fólkið sem beið í fjömnni né mennirnir sem um borð í bátn- um voru kunnu til sunds sem ekki var óalgengt á þessum tíma. Þarna stóðu konur og börn í fjörunni og horfðu á eftir eiginmönnum, feðr- Dögg Mósesdóttir leikstjóri stuttmyndarinnar Eyju. í samtali við Skessuhorn sagðist Dögg engar hugmyndir hafa um hvar hún vildi mynda þegar hún fékk þessi verðlaun í hendurnar, en ákvað þó að að gera sína mynd heima á íslandi. Stuttmyndin verð- ur tekin upp á Garðsenda sem er eyðibýli við Grundarfjörð, heima- sveit Daggar. Stuttmyndin mun bera nafnið „Eyja“ og segir frá lífi um og bræðram í hafið án þess að geta nokkuð að gert. Leitað til frændgarðsins „Þessi hugmynd blossaði allt í einu upp í huga mér, ég lék mér sjálf á Garðsenda sem lítil stúlka. Amma og afi bjuggu þarna og pabbi er þar uppalinn svo staður- inn er mér tengdur og á sér stóran sess í mörgum minn- ingum mínum. Svo langaði mig að koma því á filmu hvernig samlíf fólks við hafið og ís- lenska náttúra hef- ur verið á þessum tíma, áhrif sjóslyss- ins á ungu stúlkuna sem horfði á eftir mönnunum í sjó- inn. Hvernig til- finning það hefur verið að búa við þessi öfl, með hafið og fjallaumgjörð allt í kringum sig,“ sagði Dögg í samtali við Skessu- horn. Leikarar í stuttmyndinni verða meðal annars Ilmur Kristjánsdóttir og Eyja verður leikin af systurdótt- ur Daggar; Þóreyju sem ber gælu- nafnið Eyja og er hún ellefu ára gömul. „Hún hefur áður leikið í stuttmynd hjá mér og hún er hreint frábær," sagði Dögg um að- alleikara myndarinnar. Þá munu fleiri frændsystkini hennar leika í myndinni og fólk allsstaðar af á Snæfellsnesi en flestir þeirra em þó úr Grundarfirði. Dögg hefur einnig fengið til liðs við sig sautján skólafélaga sína úr hinum ýmsu deildum skólans. Hópurinn sem verður henni til halds og trausts við tökurnar er fjölþjóðlegur. Þar má finna fólk af spænskum upp- rana, Chilebúa, Mexicana, Costa Ricobúa og Portúgala. Hópurinn mun dvelja í Grundarfirði í tvær til þrjá vikur við undirbúning og tök- Garðsendi er eyðibýli við Grundarjjörð en þar verður stuttmyndin tekin upp. Þar lék leikstjórinn Dögg Mós- esdóttir sér á yngri árum og er mikið tengd við staðinn. Ur á myndinni. Tökur á Eyju munu hefjast laugardaginn 29. júlí og ráðgert er að þeim ljúki 5. ágúst. Undirbúa handrit í fullri lengd Síðan Dögg útskrifaðist frá kvik- myndaháskólanum hefur hún verið þar við vinnu í kvikmyndahátíðar- deild skólans. „Eg hef verið að senda stuttmyndir fyrir deildina á kvikmyndahátíðir og svo hef ég einnig farið á nokkrar slíkar en svo er ég að fara að vinna á fram- leiðsluskrifstofu skólans," sagði Dögg um helstu verkefni sín und- anfarið ár. í samtali við Dögg mátti greina að þarna er á ferðinni dug- mikil kona sem ekki situr auðum höndum. Þessa dagana er hún einnig að skrifa handrit ásamt vin- konu sinni Soffíu Bæringsdóttur að kvikmynd í fullri lengd sem ger- ast á í Grundarfirði. Aðspurð um gang þeirrar myndar sagði hún að þær ætluðu að gefa sér ár í að skrifa handritið svo færu kannski ein tvö ár í undirbúning og jafnvel innan þriggja ára yrði byrjað að kvik- mynda á fullu. SO Faxaflóasund í þrettánda sinn Hið árlega áheitastmd Sundfélags Akraness, Faxaflóasundið var synt síðastliðinn laugardag. Sundgarp- amir fóra með dráttarbátnum Leyni frá Akranesi árla dags og þaðan var haldið til Reykjavíkur þar sem hóp- urinn stakk sér tdl sunds áleiðis heim á Skagann. Fyrsti sundmaður lagði af stað út úr Reykjavfkurhöfn rétt fyrir klukkan hálf tíu og vora simd- mermimir komnir á Langasand fyr- ir klukkan þrjú um daginn. Vora það fjórtán unglingar sem tóku þátt í áheitasundinu á aldrinum 14-18 ára. Segja má að það sé stórt afrek í hvert sinn sem sundið fer ffarn því sundfólkið er að leggja mikið á sig og syndir sömu leið og Akraborgin sigldi hér forðum, alls um 17 kíló- metra leið. Að sögn Heiðbjartar Kristjánsdóttur, formanns Sundfé- lags Akraness tókst sundið mjög vel og var hópurinn einstaklega hepp- inn með veður að þessu sinni. Aheitaféð sem safnaðist verður not- að eins og undanfarin ár til þess að fjármagna ferð sundfélagsins í æf- ingabúðir erlendis sem alltaf er farin annað hvert ár. Þann 12. ágúst næst- komandi mtm sundtímabilið hefjast en þá fer hópur til æfinga í Calella sem er rétt utan við Barcelona og er þetta í annað sinn sem haldið er í æf- ingabúðir þar. Heiðbjört vill koma á ffamfæri þakklæti til allra styrktaraðila sunds- ins. Vill hún þá sérstaklega koma þakkarkveðjum til Faxaflóahafha og Björgunarfélags Akraness ffá Sund- félaginu, sem í gegnum árin hafa gert þeim kleift að synda yfir flóann en bæði dráttarbáturinn Leynir og bátur ffá Björgunarfélaginu fylgdu sundmönnunum alla leiðina frá Reykjavíkurhöfn til Akraness. SO/ Ljósm. Heiðbjört Kritstjánsd. Sundgarpamir komnir um borð í Leyni eftir að hafa dýpt sér t Reykjavíkurhöfn ogferð- in yftrflóann rétt íþann mund að hefast. Hópurinn að lenda á Langasandi. Bátur Björgunarfélagsins fylgdi sundfólkinu hvert sundtak yfirflóann. Hluti sundfólksins skolar afsér seltuna í sturtunni á Langasandi efiir Faxaflóasundið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.