Skessuhorn


Skessuhorn - 26.07.2006, Page 9

Skessuhorn - 26.07.2006, Page 9
ggESSUHOBH MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006 9 Nördamir taka hér land á Langasandi eftir kappróéur. Líklega eru þeir enn mun betri í siglingum enfótbolta, þurfa þó ekki aí vera sérlega góðir með árarnar! Ljósm. MM Nördamir á ferð á Skaganum Efnilegir fótboltamenn í Knatt- spyrnufélaginu „Nörd“ heimsóttu Akranes í síðustu viku í blíðskap- arveðri en heimsóknin er liður í undirbúningi þáttaraðar sem sýnd verður á sjónvarpsstöðinni Sýn í haust. Nördarnir tóku léttar líkamsæf- ingar við höfnina og kepptu m.a. sín á milli í kappróðri. Þaðan var haldið á Safnasvæðið þar sem þeir gæddu sér á hinni landsþekktu Is- landssúpu sem borin var fram í sjálfum kútter Sigurfara. Heim- sókninni lauk með fótboltaleik Nördanna við 3. flokk karla í IA og sýndu Nördarnir góð tilþrif og áttu fína spretti þótt leikurinn hafi verið langt frá því að vera jafn. Þónokkrir áhorfendur gerðu sér sérstaklega ferð á völlinn til að sannfærast um að þarna væru efni- legir knattspyrnumenn á ferð. Anna Katrín Guðmundsdóttir, starfsmaður Saga Film sem fram- leiðir þættina fyrir Sýn, sagði að strákarnir væru allir yndislegir og næðu vel saman. Hinsvegar færi minna fyrir kunnáttu þeirra á knattspyrnu. Til dæmis um það vissu yfir 90% þeirra ekki hvað rangstaða væri þegar æfingar þeirra hófust með liðinu í sumar og yfir helmingur þeirra vissi ekki hver Logi Olafsson væri. Hann var hinsvegar ráðinn þjálfari liðsins þannig að þeir vita það nú. Hafði Logi það á orði við blaðamann Skessuhorns að þeir væru fremur „kerlingalegir“ greyin þegar fót- bolti væri annars vegar, en ágætis drengir samt. Þátturinn um Nördana fer í loftið þann 31. ágúst nk. Verður það m.a. hlutverk Nördanna að mæta sigurvegurum Islandsmóts- ins í fótbolta, líklega FH-ingum í skemmtilegum leik. Sumaropnun: Af óviðráðanlegurm orsökum breytist opnunartíminn sem hér segir: Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 17:00 Þá daga er tilboð: 2 fyrir 1 á smjörsteiktri gæða Klausturs Bleikju. Einnig er hægt að velja af matseðli. Upplýsingar og pantanir: 861 3976 og 433 8956 - skessubrunnur@simnet.is Ufan auglýsts opnunartíma er alltaf hægt að panta fyrir hópa. Verið velkomin Helquaata - 310 Bon Droumahös 34.900.000 Fallegt 153,5 fm. einbýlishús ásamt bílskúr á einstökum útsýnis- stað við „Bjössaróló" rétt við íþróttavöllinn I Borgarnesi. Húsið er á tveimur hæðum samtals 122,2 fm. og bílskúrinn er 31,3 fm. Draumahús shf. * Hjafti Páimason hdl. og Sigurður J. SigurðssoH, löggiltir Íasíöighasaiar tv'oíkln 4 • 108 Böykjavík símí: S39 1800 “ fax: 530 1801 www.draumahus.is * draumahus@drayrriahus.is Vegafram- kvæmdir við Klifhraun Mats Wibe Lund ljósmyndari bregður sér oft í þyrluflug á góð- viðrisdögum eins og verið hafa undanfarna viku. A ferð sinni um Snæfellsnes í liðinni viku tók hann þessa mynd af nýja veginum við Klifhraun á Snæfellsnesi. Stapafell til hægri og Amarstapi til vinstri. Autt og yfirgefið hús við Kljáfoss Þetta gamla hús sem stendur á bökkum Hvítár við Kljáfoss í Borgarfirði má muna sinn fífil fegurri. Það þjónaði fyrir margt löngu hlutverki vistar- vera starfsmanna við sláturhús sem þar var rekið. Um miðja síðustu öld hýsti það einnig hliðverði á veg- um Sauðfjárveiki- varna og enn síð- ar var það nýtt sem veiðihús fyrir Reykjadalsá, en eftir að veiðifélagið byggði eigið hús hefur það staðið ónotað og engum til gagns og enn síður ánægju. Sláturhúsið var rifið fýrir mörgum árum en starfs- mannahúsið skilið eftir. Nú er spurning hvort húsið hafi hreinlega gleymst eða því bíði einhver önnur örlög en færast hægt og bítandi í enn daprara ásigkomulag þarna við þjóðveginn. Samkvæmt upplýsing- um Skessuhorns er húsið í eigu Kaupfélags Borgfirðinga. MM Ferðakort 1:250 000 Nýtt göngu- og reiðleiða- kort af Suðvesturiandi. Vegaatlas 1:200000 Ný og glæsileg kortabók í afar hand- hægu broti. Vegaatlasinn er 82 bls. og inniheldur m.a. nýjustu upp- lýsingar um vegi landsins, gagnleg þemakort og ítar- lega nafnaskrá. Þessi bók er ómissandi í bílinn. Ný útgáfa 2006 Sérkort Suðvesturland 1:75 000 Þrjú vönduð landshlutakort með mikilvægum upplýsingum fyrir ferðamenn. Kortin fást einnig þrjú saman í öskju ásamt nafnaskrá. LANDMÆLINGAR ÍSLANDS ...vísa þér veginn Gott ferðakort er lykill að vel heppnaðri ferð. Gerðu kröfur um vandað og nákvæmt ferðakort með nýjustu upplýsingum. WWW.lmi.IS

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.