Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 17
J>£MunuKt:
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006
17
Þjóðlegur sveitamarkaður
allar helgar við Laxá
Handverk, heimalagaiíur ís, bakkelsi og margtfleira er í boði allar helgar viS Laxá.
Ljósm. Stefán Helgi Valsson.
í sumar hefur sveitamarkaður ver-
ið starffæktur um hverja helgi í
gamla sláturhúsi SS við Laxá í Leir-
ársveit. Þar sannar dreifbýlisfólk enn
einu sinni hvað í því býr og laðar
ffam góðgæti, hannyrðir og ýmis-
legt fleira eins og sveitafólki einu er
lagið. Aðgengi að sveitamarkaðinum
og sýnileiki er eins og best verður á
kosið þar sem gamla sláturhúsið er
einungis nokkra metra ffá þjóðveg-
inum við Laxá.
A sveitamarkaðinum eru fyrst og
fremst seldar heimaunnar vörur.
Þangað kemur venjulegt sveitafólk
úr nágrenningu með afurðir heim-
ila sinna, flestallt húsfreyjur úr ná-
grannasveitum með bakkelsi, sult-
ur, saftir, landnámshænuegg, kæfu,
brodd og fleira góðmeti sem erfitt
og jafnvel ómögulegt er að finna í
verslunum. Mikið er af handverks-
og listafólki sem framleiðir vörur
sínar heima og selur einungis á
mörkuðum af þessu tagi, þar sem
oftast er aðeins um eitt stykki af
hverri tegund að ræða.
Það er Jóhanna Harðardóttir í
Hlésey sem er í forsvari fyrir sveita-
markaðinn. Hún segir stemmning-
una vera létta og persónulega á
markaðinum um hverja helgi, fólk
sem þekkist selur þar sínar eigin
vörur sem það þekkir og getur sagt
frá vinnslunni og jafnvel sögu þeirra.
„Hér væri að æra óstöðugan að lýsa
því sem hægt er að kaupa á markað-
inum, en eitthvað skal nefht þótt
vöruvalið sé misjafnt á milli mark-
aðsdaga: Glæsileg drykkjarhorn úr
nautshorni og fleiri vörur í stíl vík-
inganna. Fiskur, bæði nýr og hertur.
Hvalkjöt, sjófugl, andar- og land-
námshænuegg. Heimagerð brauð
og sætabrauð, m.a. alíslenskt. Gler-
hstaverk, töskur, belti og buddur úr
leðri. Skartgripir, m.a. úr silffi, leðri
og íslenskum steinum. Rósavettling-
ar, hosur, prjónadúkar og merkt
handklæði og diskaþurrkur. Tréhill-
ur, nálhús og bananahengi. Og síð-
ast en ekki síst; lopapeysur, jafht á
menn sem dýr,“ segir Jóhanna.
Kaffihús er rekið á sveitamarkað-
inum, meira að segja af lærðum
kokki sem einnig er bóndi. Það er
mjög sérstakt, umhverfið heimilis-
legt þótt um sé að ræða sal í gömlu
sláturhúsi og veitingarnar þjóðlegar,
bæði alíslenskar pönnukökur, klein-
ur, heitar vöfflur og hnallþórur með
þeyttum rjóma. „Hægt er að kaupa
heimagerðan rjómaís ffá Eyjafirði. I
ísinn er notaður rjómi beint úr kún-
um, egg úr landnámshænum, sykur
og ekta bragðefni. Engin ókennileg
„E-efhi“ sem enginn skilur hvað er.
Isinn er svo sannarlega algerlega
einstakur og sannkallað Hnoss,“
segir Jóhanna að lokum.
Sveitamarkaðurinn í gamla slátur-
húsinu við Laxá í Leirársveit er op-
inn alla sunnudaga milli kl 13 og 18.
MM
Þurfum að læra af
því sem miður fór
Gunnar Sigurðsson.
Gunnar Sigurðsson for-
seti bæjarstjórnar Akraness
og starfandi bæjarstjóri
segir nauðsynlegt að þeir
sem stóðu að hátíðinni
írskum dögum fari vand-
lega yfir framkvæmd há-
tíðarinnar og læri af því
sem miður fór. Eins og
fram hefur komið í frétt-
um tókst skipulögð dag-
skrá daganna vel en fram-
ganga 200-300 unglinga
setti hins vegar slæman
svip á hátíðina. Einnig
vakti athygli hversu seint
hreinsunarstarf hófst á
tjaldsvæðinu í Kalmansvík.
Gunnar segir hátíðina
að sínu áliti hafa tekist
mjög vel og ánægjulegt
hafi verið að sjá hversu
margir sóttu bæinn heim þessa
daga. „Hátíðin hefur sannað sig og
því full ástæða til þess að halda
þessu starfi áfram. Nokkrar á-
hyggjur voru af því hversu margir
myndu sækja okkur heim þar sem
Skagamótið var ekki á sama tíma.
Þær áhyggjur reyndust ástæðu-
lausar,“ segir Gunnar en bætir við
að nokkrir hnökrar hafi komið í
ljós við skipulag starfa við tjald-
svæðin. „Það eru allir sammála um
að betur hefði mátt standa að þrif-
um og úr því þarf að bæta.“
Aðspurður um hvort nauðsyn-
legt sé að hækka aldurstakmark á
tjaldsvæði bæjarins til þess að
sporna við unglingadrykkju segir
Gunnar sjálfsagt að skoða alla
möguleika í því efni. „Fyrst og
fremst þarf hugarfar foreldra að
breytast. Það voru dæmi um að
unglingar kæmu á tjaldsvæðið í
fylgd með foreldrum sem síðan
skyldu unglingana eftir. Það er
erfitt þegar foreldrar ýta undir
ástandið með þessum hætti. Þetta
hugarfar þarf að breytast.“
Skipuleggjendur Irskra daga
munu á næstunni skila bæjaryfir-
völdum skýrslu um framkvæmd
hátíðarinnar og segir Gunnar að
þegar hún liggi fyrir verði málið
rætt frekar.
HJ
Hestur í óskilum
í Hvalfíarðarsveit
í Melkoti Hvaifjarðarsveit er dökkjarpur
þriggja vetra graðhestur, á hestinum er hvorki
eyrnamörk né örmerki.
Hestsins varjyrst vart s.L vor.
Nánarí upplýsingar gefur Einar Pétur í
síma 8942595 eða oddviti í 8647628.
Akraneskaupstaður
Ágætu Akurnesingar!
Umhverfisnefnd Akraness
er að undirbúa veitingu
umhverfisviðurkenninga.
Við leitum til ykkar eftir
ábendingum um garða / lóðir
einbýlishúsa, fjölbýlishúsa,
fyrirtækja og stofnana.
j Ábendingar þurfa að berast fyrir
2. ágúst á netfaneið:
rannveigbj@hotmail.com
eða í síma 847-9377, Rannveig
TIL AFHENDINGAR STRAX
Rockwood íbúð á hjólum.
Árgerð ‘93 V8 Sjátfskiptur. Einn með öllu,
ekinn 100.000 km, lengd 8,5 metrar.
Kr. 3.300.000,-
Blucamp Sky 20, Ford 125 hestöfl TDCI,
lengd 6,3m, svefnpláss fyrir 4, loftkæling,
rafm. rúður, tveir airbag, geislaspilari m/fjarstýringu.
Verð 4,6 skráður
Urval nýrra húsbíla tilbúnir
til skráningar á lager á
Egilsstöðum. Erum einnig
með úrval notaðra bíla.
Hjólhýsi ný og notuð af öilum
gerðum og verðum.
Erum með umboð fyrir I
Við bjóðum flug til Egilsstaða fyrir tvo við kaup á hverjum bíl!
Bilexport á Islandi ehf. WWW.bllexport.ClK
Upplýsingar veitir Bóas í síma 0049 175 2711 783 eða Eðvald í 896-6456