Skessuhorn - 09.08.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
SSiSSUIIÖÍ&KI
Til minnis
Skessuhom minnir á síðasta
bændamarkað BV sem haldinn
verður á hlaðinu á Hvanneyri á
laugardaginn.
VeJtirhorfnr
Næstu daga er spáð hægri
breytilegri átt. Fram að helgi er
víðast hvar spáð skýjuðu veð-
urfari og stöku skúrum og um
helgina verður víða væta. Eftir
helgi er útlit fyrir stífa norðan-
átt og kólnandi veður.
SpiArniwj viK^nnar
í síðustu viku var spurt á
Skessuhorn.is: „Á að hækka
viðurlög við hraðakstursbrot-
um?" 73% svarenda svöruðu
því að tvímælalaust ætti að
hækka viðurlögin, 14% svör-
uðu því að alls ekki ætti að
hækka þau, rúmlega 5%
sögðu að sennilega ætti að
hækka viðurlögin, önnur rúm-
lega 5% svarenda sögðu að
sennilega ætti ekki að hækka
þau og að lokum svöruðu tæp-
lega 3% því til að þeir vissu
það ekki.
í næstu viku spyrjum við:
„Hafa umhverfis-
mál á þínum
slóðum lagast í
sumar?"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
Vestlendin^r
viKtynnetr
Að þessu sinni útnefnir Skessu-
horn slökkviliðsmenn á Akra-
nesi Vestlendinga vikunnar fyr-
ir sín störf í brunahrinunni sem
gengið hefur yfir Akranes í
sumar.
Sýnt í Landnámssetri
í Borgarnesi
Laugard. 19. iigúst U. 20 Uppsott
Sunnud. 20. igást U. 15 Örfá satí laus
Sunnud. 20. ágúst U. 20 ÖrH ssttl laus
Fðstud. 25. ágúst U. 20 ðrii satl laus
Laugard. 26. ágúst U. 15 Uppsett
Laugard. 26. ágúst U. 20 Uppsatt
Laugard. 2. september U. 20
Stxmud. 3. september U. 15
Sunnud. 3. september U. 20
Staðfesta þarf miða með greiðsiu
viku fyrir sýningardag
LEIKHÚSTILBOÐ Yvircttaóur kvoldveróur og leikhusmidi kr. 4300 ■ 4800. rviíOAPANTANIR í SlMA 457 1600 w\ tAM ’MA.MG* ttiK|
Glannaakstur ungra
ökumanna í Borgamesi
Undanfarið hefur nokkuð borið
á því að ungir ökumenn sæki í
framkvæmdasvæðið í gamla bæjar-
hlutanum í Borgarnesi og þenji
bíla sína þar. Mikill hávaði og læti
hafa fylgt þessu og oftar en ekki
eru nokkur umferðarlög brotin á
hverju kvöldi. Lögreglan í Borgar-
byggð hefur haft í nógu að snúast
með að eltast við ökuþórana ungu
og hefur orðið nokkuð ágengt.
Theodór Þórðarson yfirlög-
regluþjónn sagði í samtali við
Skessuhorn að árgangarnir sem fá
bílpróf séu nokkuð misjafnir og nú
hafi óvenju mikið farið fyrir
nokkrum nýjum ökumönnum.
Lögreglan hafi hert eftirlit með
ákveðnum ökumönnum og hafi þá
á skrá hjá sér. Þá hefur lögreglan
rætt við foreldra ungra ökumanna
sem ítrekað eru staddir að glanna-
akstri. Theodór segir að slíkur
akstur geti valdið hættu og tjóni á
bifreiðunum auk þess sem öku-
menn sem teknir eru safna sér
punktum. „Þeir ættu að muna það
að þeir eru með ökuskírteini til
reynslu. Það er síðan sýslumanns
að ákveða hvort þeir fái skírteini til
frambúðar að tveimur árum liðn-
um. Sé til stór skrá um brot öku-
manna og þeir hafa safnað sér
mörgum punktum hefur það áhrif
á þá ákvörðun,“ segir Theodór.
Hann segir allt of algengt að
lögreglan þurfi að taka að sér upp-
eldishlutverk. Sumir virðist fá að
valsa áfram tiltölulega óáreittir af
foreldrum og skólakerfinu þar til
þeir lenda á þeim vegg sem lög-
reglan er. „Þá erum við stundum
klagaðir fyrir mömmu og pabba.
Sumir þúrfa svo að reka sig
nokkrum sinnum á áður en þeir
trúa því að þeir þurfi á einhvern
hátt að breyta hegðun sinni,“ sagði
Theodór að lokum. -KÓP
Eigendum sumarhúsa boðnar
lóðir á uppsprengdu verði
Nokkrir eigendur sumarbústaða í
landi Dagverðarness í Skorradal
eru afar ósáttir með bréf sem nýir
eigendur jarðarinnar hafa sent
þeim þar sem þeim er boðið landið
undir bústöðum þeirra til kaups á
„uppsprengdu verði,“ eins og einn
eigandinn orðaði það í liðinni viku
í samtali við blaðamann Skessu-
horns. Hafa sumir þessara aðila nú
kannað möguleika á því að flytja
sumarhús sín af svæðinu þegar 20
ára leigusamningur þeirra rennur
út á næstu árum, vegna þess sem
þeir kalla afarkosti nýrra landeig-
enda. Vilja þeir ekki una því háa
verði sem þeim eru boðnar lóðirn-
ar til sölu á nú, en það gafhgildir
því að hektari lands undir húsunum
sé seldur á allt að 15 milljónir
króna.
Jörðin Dagverðarnes hefur í
tvígang undanfarin fjögur ár skipt
um eigendur og eru það nýir eig-
endur, Dagverðarnes ehf. sem
skrifa sumarhúsaeigendunum á
jörðinni umrætt bréf. Þar er þeim
boðið landið til kaups á verði sem
ekki hefur sést áður, eða 925 krón-
ur á hvern fermetra. Á lóðum sem
standa við vatnið bætast svo 600
krónur við fermetraverðið og verð
á venjulegri lóð er því komið upp í
3,8 milljónir króna.
í Morgunblaðinu sl. fimmtudag
er íjallað ítarlega um málið og rætt
við bæði fulltrúa sumarhúsaeigenda
og Arngrím Hermannsson, tals-
mann Dagverðarness ehf. sem
hafnar því alfarið að lóðirnar séu
seldar langt yfir markaðsverði.
Hann segir enga afarkosti setta,
sumarhúsaeigendum sé gert kleift
að kaupa lóðirnar en engu hafi ver-
ið hótað og engin ákvörðun tekin
um að endurnýja ekki leigusamn-
inga. Hann segir málið unnið í
samvinnu við stjórn Félags sumar-
húsaeigenda í Dagverðarnesi.
MM
Akraneskaupstaður vill
yfirtaka málefiii aldraðra
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar í liðinni viku var samþykkt
að fela bæjarstjóra að rita ríkisvald-
inu bréf um möguleika á því að
bærinn yfirtaki málefni aldraðra.
Bæjarfélagið hefur áður lýst yfir
vilja sínum á því að yfirtaka mála-
flokkinn að undangengnum samn-
ingum þar að lútandi og nauðsyn-
legum lagabreytingum. Á hausti
komanda verður ráðstefna Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga haldin
á Akureyri og er viðbúið að málefni
aldraðra og verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga í þeim efnum verði
rædd þar.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir í samtali við Skessuhorn að
það sé ríkur vilji hjá fulltrúum allra
flokka til að taka vel á málefnum
aldraðra. Hann segir að undanfarið
hafi verið tilraunaverkefni í gangi á
Akureyri og Hornafirði um rekstur
sveitarfélaga á málaflokknum og
þau hafi gengið mjög vel. Það sé því
eðlilegt að stíga skrefið til fulls að
öllum skilyrðum uppfylltum. Full-
trúar ríkisvaldsins hafi undanfarið
lýst yfir vilja sínum til samninga í
þessum efiium og því sé ekki nema
eðlilegt að rita þeim bréf til að
kanna hvar landið liggur.
Aðspurður segir Gísli að ferlið
geti tekið langan tíma og allir verði
að vera sáttir við niðurstöðu samn-
inga. I því sambandi minnir hann á
hve færsla grunnskólans yfir til
sveitarfélaganna tók langan tíma.
Gísli segir það skemmtilega tilvilj-
un að ráðstefna Sambands íslenskra
sveitarfélaga verði á Akureyri í
haust. „Eg var fyrir nokkrum árum
fulltrúi ríkisvaldsins á ráðstefnu
Sambandsins á Akureyri og þá var
Gísli S. Einarsson, bœjarstjóri Akraness.
stórt skref stdgið í færslu grunnskól-
anna til sveitarfélaganna. Það væri
því sögulegt ef aftur yrði stigið
stórt skref í færslu verkefna frá ríki
til sveitarfélaga á ráðstefhu Sam-
bandsins á xAkureyri.“
-KÓP
Bætur til skel- og
innl) arðarækjubáta lældka ekki
A dögunum gaf Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra út
þrjár reglugerðir er lúta að fisk-
veiðum á fiskveiðiárinu
2006/2007. Ein þeirra fjallar um
sérstaka úthlutun til báta sem orð-
ið hafa fyrir skerðingum á veiði-
heimildum í hörpudiski og inn-
fjarðarækju. Þar kemur fram að
bætur til þessara báta verða
óbreyttar í þorskígildum reiknað á
næsta fiskveiðiári, að öðru leyti en
því að rækju- og skelbátar í Arnar-
firði fá nú bætur vegna verulegs
samdráttar í rækjuveiðum á síðasta
ári. Þetta er í samræmi við þær
reglur sem gilt hafa þar um. Af
þessu leiðir að bætur til einstakra
skel- og innfjarðarækjubáta lækka
ekki á næsta fiskveiðiári, frá því
sem þær eru nú, en að óbreyttu
hefði orðið lækkun á bótum til
þessara skipa.
MM
Einar K Guófinnsson, ýávarútvegsráðherra.
Ekkert írí á
Hominu
SKESSUHORN: Útgáfa
Skessuhorns tekur ekki sumarfrí
þetta árið og mun blaðið koma út
alla miðvikudaga ffarn til jóla.
Margir lesendur vefs og blaðs
hafa undanfarið spurt okkur
starfsmenn Skessuhoms hvenær
við fæmm eiginlega í ffí! Að sjálf-
sögðu fara starfsmenn í sín sum-
arfrí en við emm orðin svo vel
mönnuð á ritstjóm blaðsins að
það kemur ekki að sök þó einn
eða tveir skjótist í frí í einu. Þetta
tilkynnist hér með lesendum
okkar vonandi til ómældrar
ánægju. -mm
Farið í
umhverfisbætur
GRUNDARTANGI: Stjórn
Faxaflóahafna sf. hefur ákveðið
að tillögu hafnarstjóra að fjár-
munum sem ætlaðir vom til áð
skapa aðstöðu fyrir lóðsbát við
Grundartangahöfn á þessu ári
verði varið til frágangs á yfir-
borði við höfnina. Bíða því
framkvæmdir vegna lóðsbáts til
næsta árs. Gísli Gíslason hafh-
arstjóri segir að umhverfisbæt-
urnar felist meðal annars í lagn-
ingu slitlags og verður verkið
unnið á næstu vikum. Á sama
tíma verður einnig unnið að
lagningu slitlags á hluta hafnar-
svæðis í Borgarnesi. -hj
Umferðaróhöpp
BORGARFJÖRÐUR: Alls
urðu níu umferðaróhöpp í um-
dæmi lögreglunnar í Borgamesi í
síðustu viku. Þar af urðu meiðsl á
fólki í þremur tilvikum. Fjórtán
ára piltur ók óskráðu og
ótryggðu bifhjóli aftan á kyrr-
stæðan fólksbíl í Skorradal. Pilt-
urinn var fluttur á sjúkrahús í
Reykjavík til skoðtmar. Var hann
með hjálm en talið að um inn-
vortis meiðsl hafi verið að ræða.
Fólk á fólksbíl lenti útaf veginum
á Holtavörðuheiði, rétt ofan við
Biskupsbeygjuna síðastliðinn
föstudag. Fólkið var flutt á
heiðslugæslustöðina í Borgamesi
til skoðunar en bíllinn var fluttur
á brott með kranabíl. Þá fór
fólksbíll út af við Geitabergsvatn
á föstudeginum og valt. Tvennt
var í bílnum og var fólkið flutt á
sjúkrahúsið á Akranesi til skoð-
unar. Bíllinn reyndist mikið
skemmdur.
-so
Samkeppni um
byggðamerki
BORGARBYGGÐ: Byggðaráð
Borgarbyggðar hinnar nýju, sem
varð til í vor við sameiningu
Borgarbyggðar hinnar fornu,
Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðu-
hrepps og Kolbeinsstaðahrepps,
hefur ákveðið að ffarn fari opin
samkeppni um byggðamerki hins
nýja sveitarfélags. -hj
13 ára ogyngri
firítt í sund
AKRANES: Akraneskaupstaður
hefur samþykkt að ffá og með 1.
ágúst sl. verði frítt í sund fyrir öll
böm yngri en 13 ára á Akranesi.
Samþykkt þessi er í samræmi við
málefhasamning meirihluta bæj-
arstjómar og var samþykkt á bæj-
arráðs fundi sl. fimmtudag.
-so