Skessuhorn - 09.08.2006, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
SHgSSUHöBKi
Unglingalandsmótið á Laugum tókst firábærlega
Vesdendingar voru fjölrnargir á
Unglingalandsmóti UMFI sem fram
fór að Laugum í Þingeyjarsveit um
síðustu helgi. Vestlensku ung-
mennasamböndin, HSH, UMSB,
UDN, USK og ÍA héldu með sitt
fólk á svæðið og voru um 150 vest-
lensk ungmenni skráð til keppni.
Ásamt krökkunum héldu norður far-
ar- og greinastjórar sambandanna
ásamt foreldrum og fjölskyldum.
Talið er að hátt í tíu þúsund
manns hafi verið saman komnir að
Laugum þegar mestur fólksfjöldi var
á svæðinu en mótið stóð ffá föstu-
degi til sunnudags. Rósa Marinós-
dóttir fararstjóri UMSB var mjög
ánægð með framkvæmd mótsins,
sagði hún aðstöðuna á mótssvæðinu
hafa verið til fyrirmyndar og alhr
keppnisvellir hafi verið í göngufæri
innan svæðisins. Rósa sagðist vera
einna ánægðust með að ekki sást vín
á nokkrum manni á mótinu enda
Unglingalandsmótið vímuefnalaus
hátíð. Rósa hefur farið á nokkur mót
og þá hefúr hún oftast séð til fólks
við drykkju en nú hafi slíkt ekki sést,
sem henni þykir ffábært.
Heilu fjölskyldurnar fylgdu kepp-
endum að Laugum, afar og ömmur
mættu á svæðið og einnig komu
gestir til mótsins þótt svo þeir ættu
enga keppendur á völlunum. Veðrið
lék við keppendur og gesti og var
A fóstudeginum var m.a. keppt ífótbolta. Sjá má glitta í ijaldborgina í baksýn. Ljósm.MM
Veórió var gott mestalla helgina. Undir lokin dró þó ský
jýrir sólu og órlitla úrkomu gerði á nóttunni. Ljósm.GS
það að sögn Rósu hið besta
útivistarveður en þó hafi
rignt aðeins á nóttunni sér-
staklega í mótslok.
Garðar Svansson og
Alda Pálsdóttir voru farar-
stórar tæplega 50 kepp-
enda frá HSH, en lið
þeirra var í mótslok verð-
launað með fyrirmyndar-
bikamum, sérstökum hátt-
vísisbikar fyrir háttvísi,
góða umgengni og prúð-
mannlega ffamkomu. Garðar tekur
undir með Rósu og segir að mótið
hafi verið í alla staði vel undirbúið
og framkvæmd þess verið til sóma.
Vel hafi farið um keppendur, fylgd-
arfólk þeirra og fjölskyldur og veðr-
ið hafi vissulega hjálpað ttil.
Þar sem úrslit úr einstökum
keppnisgreinum lágu ekki fyrir áður
en Skessuhorn fór í prentun, verður
greint frá þeim í næsta tölublaði. Við
látum þó nokkrar myndar fylgja
með.
SO
Lið UMSB stillir sér hér upp við mótssetninguna.
Ljósm. GS
UMSB ©
Lið HSH með fyrirmyndarbikarinn.
Ljósm: HBH
Hér sést í ugga hákarlsins vió Langasand.
Beinhákarl við
Langasand
Faxaflóahafiiir óska
viðræðna vegna útblást
urs firá Jámblendinu
Um kvöldmatarleytið á mánu-
dag sást beinhákarl á. sundi rétt
fyrir utan Langasand á Akranesi
en hópur þeirra var einnig á ferð
við Reykjanesskagann sama dag.
Beinhákarlar em alveg meinlausir
en geta orðið allt að 8 metrar á
lengd. Þeir ferðast yfirleitt í hóp-
um en hákarl sá sem sást við Akra-
nes var einn á ferð. Vakti þessi sjón
að vonum mikla athygli fólks sem
leið átti um Langasand og ná-
grenni.
KÓÓ
Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur
falið hafharstjóra að ræða við full-
trúa Islenska járnblendifélagsins hf.
um útblástur frá verksmiðju félags-
ins á Grundartanga. Eins og ffam
hefur komið hafa tíðar bilanir verið
í reykhreinsibúnaði verksmiðjunn-
ar.
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna sf. segir það hafa verið
mönnum sýnilegt um of langan
tíma að ekki væri allt með felldu í
reyklosun ffá verksmiðju Islenska
járnblendifélagsins og því hafi
stjórn hafinarinnar þótt nauðsyn-
legt að kanna málið með formleg-
um hætti. Hann segir það skipta
máli fyrir ásýnd hafnarinnar að öll
umhverfismál hennar séu í lagi.
Mikil sjónmengun sem fylgir
reykntim sem skaði ímyndina, jafn-
vel þó að innihald reyksins kunni
að vera meinlaust. Augljóst sé að
ekki sé fýsilegt að auka flutning á
fiski og korni um höfnina á meðan
þetta ástand vari.
I viðtali við Ingimtmd Birni ffam-
kvæmdastjóra Islenska jámblendifé-
lagsins í Skessuhomi fyrir skömmu
kom ffam að nú væri unnið að end-
urbótum á reykhreinsibúnaði verk-
smiðjunnar fyrir um 40 milljónir
króna og að þeim ffamkvæmdum
loknum muni öryggi í mengunar-
vömum komast í samt lag.
HJ
Síðasti
bænda-
markaðurinn
Búnaðarsamtök Vesturlands
hafa staðið fyrir Bændamarkaði
BV í sumar. Búið er að halda tvo
markaði og er óhætt að segja að
viðtökurnar hafi verið góðar.
Nú er komið að síðasta Bænda-
markaði sumarsins en hann
verður haldinn á Hvanneyri
laugardaginn 12. ágúst nk. milli
kl 13 og 17.
Á Bændamarkaði BV er boðið
upp á ýmis matvæli til sölu og
má þar nefna sauða- og geita-
osta, geitakjöt, hákarl, harðfisk,
silung, grænmeti, íslenskar jurt-
ir, hvannamarmelaði, brjóstsyk-
ur, bakkelsi og margt annað
góðgæti.
MM
PISTILL GISLA
Mótmœlandastojninn
Mótmælendur eru sam-
kvæmt mínum rannsóknum út-
breiddasti andastofninn hér á
landi í dag og sá eini sem hefur
verið í örum vexti. Það er
reyndar einkennilegt í ljósi þess
að vaxtarskilyrði stofnsins eru
heldur erfið og útbreiðslusvæði
heldur hrjóstrug. Þótt mót-
mælendur séu farfuglar þá velja
þeir sér ekki alltaf bestu bú-
svæðin. Það er því ekki tekið út
með sitjandi sældinni að vera
mótmælandi. Það kallar á
ferðalög milh mótmælasvæða,
langvarandi útilegur, umfangs-
mikla skiltagerð, náið samneyti
við vinnuvélar, hlekkjanir og
eitt og annað sem mig skortir
þekkingu til að tíunda frekar.
Á móti kemur hinsvegar það
einstaka öryggi sem mótmæl-
endur búa við þar sem þeir eru
undir stöðugu efdrliti lögreglu.
Eg er sjálfur áhugamaður um
mótmæli þótt ég tilheyri
kannski ekki mótmælenda-
stofninum. Eg er allavega
meira fyrir mótmæh en með-
mæli og læt aldrei ff á mér tæki-
færi til að mótmæla hástöfum.
Á móti kemur þó að ég er
fremur latur maður og verkfæl-
inn og því hentar lífstíll hins
hefðbimdna mótmælanda mér
ekki sérlega vel. Það eru því
sérstök forréttindi fyrir mig að
geta setið vikulega á afturend-
antun í þar til gerðu húsgagni
og mótmælt hverju sem mér
sýnist í mínum vikulega pistli.
Kostimir eru meðal annars þeir
að ég þarf ekki að hlekkja mig
við tölvuna, nema þá í óeigin-
legri merkingu. Eg þarf heldur
ekki að ganga mjög á skógana
til að framleiða skilti með til-
heyrandi slagorðum. Eg kemst
líka hjá því að þramma tugi
kílómetra eða fljúga landshom-
anna á milli tdl að leyta uppi
verðug málefni.
Eg er þar með ekki að gera
htið úr þeim sem leggjast út á
virkjunarsvæðum í nafhi nátt-
úrunnar. Það er ömgglega ekki
verri afþreying en margt ann-
að. Égerreyndar þeirrarnátt-
úm að bera virðingu fyrir nátt-
úrnnni en mér finnst fint að
geta gert það heima hjá mér.
Eg vil hka að það komi ffam að
ég tel það hollt að mótmæla.
Þar skiptir málefnið ekki öllu
því það er verknaðurinn sjálfur
sem skiptir hvað mestu. Mót-
mæli em nefhilega heilsubæt-
andi þar sem þau losa um upp-
safnaða spennu og létta á
gremjunni í einhvem tíma.
Þar sem ég er þegar búinn að
spandera mest öllu rm'nu plássi
í eitthvert kjaftasnakk, og ekki
aftur snúið með það, þá ætla ég
ekki að tíunda skoðanir mínar á
skoðunum mótmælenda við
Kárahnjúka. Það getur vel ver-
ið að afstaða þeirra sé með af-
brigðum heimskuleg. Það af-
sakar hinsvegar ekki fram-
göngu og framkomu lögreglu.
Áðgerðir af því tagi sem átt
hafa sér stað upp á Káranhjúk-
um síðustu daga eiga ekki að
vera lögreglumönnum útrás
fyrir innbirgða reiði og hroka.
Ef lögreglumenn þurfa að létta
á sér hvað það varðar þá eiga
þeir að sjálfögðu betur heima í
hópi mótmælenda.
Gísli Einarsson á móti.