Skessuhorn


Skessuhorn - 09.08.2006, Page 11

Skessuhorn - 09.08.2006, Page 11
§SESSIíH©BI MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 11 Þessi mynd er tekin af tjaldsvœðinu á Amarstapa um helgina og sýnir hve lítiö líf var á flestum tjaldsvœðmn á Snœfellsnesi. Lítið líf á Snæfellsnesi um verslunarmannahelgina Blaðamaður Skessuhorns brá sér vestur á Snæfellsnes um helgina og kom það honum á óvart hve fátt var um manninn á svæðinu um mestu ferðamannahelgi ársins. Tjaldsvæði voru víðast hvar tóm og bæir hálf draugalegir þegar keyrt var þar í gegn. Þar var einna helst að finna erlenda fermenn, ýmist á Yaris bíla- leigubílum, húsbílum eða reiðhjól- um, sem allir höfðu mikinn áhuga á stórbrotinni náttúru Snæfellsness. Vakti það furðu blaðamanns að ekki hafi fleiri Islendingar hugsað eins og hann og ákveðið að ferðast lítillega um landið, skoða náttúruna og ffæðast um sögu Islands. Snæ- fellsnes hefur upp á margt að bjóða og er eitt af þeim svæðum á landinu sem nauðsynlegt er að skoða. Hins- vegar lítur út fyrir að Islendingar séu almennt meira hrifiiir af því að stunda útihátíðir vfðsvegar um landið en að nýta helgina til rólegrar náttúruskoðunar. Þegar heimamaður var spurður út í þetta voru svörin á þá leið að á Snæfellsnesi er alltaf fremur rólegt um þessa helgi. „Hér er enginn nema einn og einn erlendur ferða- maður en engir íslenskir," sagði einn Grundfirðingurinn sem blaða- maður kannaðist við þegar litdð var inn á Essostöðina til að kaupa gas. Grundfirðingurinn benti þó rétti- lega á að Islendingar láti sjá sig á þessum héraðshátíðum á Snæfells- nesi, eins og Færeyskum dögum í Olafsvík, Á góðri stundu í Grund- arfirði og Dönskum dögum í Stykkishólmi. Að hans sögn voru Snæfellingar ekkert betri en aðrir í þessum efnum og næsta víst að margir hverjir hafa keyrt norður á Akureyri, suður í Galtalæk eða far- ið út í Eyjar með börn og buru til að vera innan um íjölmenni í gleð- skap. Sannar þetta kenningu blaða- manns um hátíðarfíkn Islendinga. KÓÓ Verslunannamiahelgin erilsöm hjá lögreglunni á Akranesi Verslunarmannahelgin var eril- söm hjá lögreglunni á Akranesi en slíkt er mjög óvenjulegt því venjan hefur verið sú að fáir eru þar á ferli þessa miklu ferðahelgi. Á forsíðu er sagt frá eldsvoðanum við Síldar- verksmiðjuna. Um helgina þurfti lögreglan sjö sinnum að hafa af- skipti af fólki vegna ölvunar og meðal annars þurfti að vista sama manninn tvisvar í fangageymslu með um sólarhrings millibili vegna ölvunar. Um fjörutíu mál komu upp sem tengdust umferðinni tun helgina á Akranesi. Þrír ökumenn voru tekn- ir grunaðir um ölvun við akstur. Einn þeirra hafði ekið á handrið við Suðurgötu og síðan ekið af vettvangi. Skömmu síðar var akstur bifreiðar stöðvaður skammt þar frá. Á hana vantaði höggvara enda hafði hann fallið af bifreiðinni við áreksturinn á Suðurgötu. Ökumað- ur bifreiðarirmar kvaðst ekki vera ölvaður en sagðist þó hafa drukkið tvo bjóra. Sé það satt hafa þeir ver- ið af óvenjulegum styrkleika því öndunarpróf ökumannsins sýndi að áfengismagn í blóði væri 1,70 0/00 en það má ekki vera meira en 0,5 0/00. Þá voru 13 ökumenn stöðvaðir vegna hraðaksturs og einnig var 16 ökumönnum gert að færa bifreiðar sínar til skoðunar. HJ Sumarfiðrildi Þetta fallega fiðrildi sem er um 6 cm að stœrðfannst nýlega í hílskúr við Hamravík í Borgarnesi. Nokkur slík hafa se'st og virðist sem stórum og litskrúðugum fiðrildum sé aðjjölga mikið hér á landi. Ljósm: Guðhjörg Ingólfsdóttir. Akraneskaupstaður GÁMA Opnunartími Gámu verður lengdur á virkum mánudögum til kl. 20.00 í staðinn fyrir kl. 18.30 og verður tilhögun þessi í gildi út ágústmánuð. Starfskraftur óskast í efnalaug Vantar að ráða starfskraft í fullt starf í efnalaugina Múlakot í Borgarnesi. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Sigrún á staðnum. Einnig má senaa umsókmr á netfangið: kross@vesturland.is Umsóknarfrestur er til 11. ágúst nk. lUlQKI Efnalaugin Múlakot ehf. Borgarbraut 55 310 Borgarnesi Sími 4371930 Sérsniðnar öndunarvöðlur fyrir: böm, unglinga og konur fltÓ VEIÐIVÖRUR Fluguveiðiskóli Arkó og Pálma Gunnarssonar. kynntu þér málið á www.arko.is Verð frá 18.900 kr. Vöðluskór stærð 34-46. Verð frá 29.900 kr. Verð frá 7.900 kr. Einnig Nielsen flugustöng með hjóli og línu frá 15.690 kr. Neoprene vöðlur með áföstu stígvéli skóstærð 36 til 46 frá 12.900 kr. Þinn lífstíll, okkar metnaður kíktu við hjá okkur. Arkó Veiðihöllin Krókhálsi 5 g. Sími 587 5800 www.arko.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.