Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Page 1

Skessuhorn - 04.10.2006, Page 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 40. tbl. 9. árg. 4. október 2006 - Kr. 400 í lausasölu Síðastliðinn mánudag var formlega tekin í notkun stiekkun álvers Norðuráls á Gnmdartanga og er gert ráðfyrir að framleiðslugeta verksmiðjunnar verði komin í 220 þúsund tonnfyrir nœstu áramót. A myndinni eru stjómendurfyrirtœkisins ásamtjóni Sigurðssyni, iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem allir klipptu á borða og vígðu stækkunina formlega. A myndina vantar Gtsla S Einarssm, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar sem einnig mundaði skærin við þetta tækifieri. Sjá nánar bls. 8. Ljósm. MM Kannaður möguleild á stofiiun félags til kvótakaupa Ljósm. MM Meðal efnis: • Kjarnorkukonan Olla í Nýjabæ....bls. 12-13 • Stækkun Norðuráls....bls. 8 • Guðjón Þórðarson snýr aftur........bls. 23 • Ferðasaga frá Malawí.......bls. 7 • Ellefu berjast í prófkjöri....bls. 6 • Tónlistarfélag í sveiflu......bls. 16 • Fiskbúð opnar á Skaganum.....bls. 15 • Bændur óttast tillögur Samfylkingarinnar .............bls. 10 • Dæla án starfsleyfis.bls. 24 • Réttir á ýmsum stöðum.......bls. 22 v y Banaslys í Dölum Maður á níræðisaldri lést eftir að hann féll af hesti sínum sl. laugardag. Hann var við smala- mennsku ásamt syni sínum og er talinn hafa látist samstundis af völdum höfuðáverka sem hann fékk við fallið. Talið er að hest- urinn hafi hnotið um þúfu eða stein með fyrrgreindum afleið- ingum. Sonur mannsins reyndi lífgunartilraunir en án árangurs. Sfysið sást ffá nálægum bæ og var þegar í stað hringt á aðstoð. Maðurinn hét Eyjólfur Jóns- son og var hann bóndi á Sáms- stöðum í Laxárdal. Hann var fæddur árið 1924. Hann lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin böm. -KÓP ATLANTSOLIA Dísel *Faxabraut 9. Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa að imdanförnu hvatt til umræðu tun stofnun félags til kaupa á aflaheim- ildum. Frekari þungi komst í um- ræðuna eftir að þrír smábátar vom seldir ffá Akranesi á dögunum. Bæj- arstjórinn á Akranesi segir þróunina skelfilega og spoma þurfi við henni með öllum tiltækum ráðum. A undanfömnum vikum hafa samkvæmt heimildum Skessuhorns þrír smábátar verið seldir ffá Akra- nesi með tæplega 260 þorskígildistonna kvóta. Um er að ræða Sigrúnu AK-71, Bresa AK-101 og Valdimar AK-15. I lögum um stjórn fiskveiða er sveitarfélögum tryggður forkaupsréttur við sölu skipa ffá viðkomandi sveitarfélagi en við sölu áðurnefndra báta voru hlutafélög sem eiga bátana seld og þegar þannig er í pottinn búið hefur sveitarfélag ekki forkaupsrétt. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á Akranesi segir það skelfilega þrótrn að bátum sem gerðir em út ff á Akra- nesi fækki og dapurlegt að sveitarfé- Frá nýju smábátahöjhinni á Akranesi. lagið geti ekki komið að sölu afla- heimilda nema að takmörkuðu leyti. Hann segir ekki við eigendur þeirra báta sem nú hafa horfið úr skipastól bæjarbúa að sakast. Þeir hafi barist lengi í sinni útgerð og kosið að breyta til og gert það eins og lög heimila. Gísli, sem er fyrrverandi formaður félags smábátaeigenda á Akranesi, segir bæjaryfirvöld hafa rætt þróun mála í útgerð að undan- fömu og hvatt til þess að útgerðir í bænum hugleiði stofnun félags um kaup á aflaheimildum og sú hug- mynd sé nú til skoðunar hjá nokkram aðilum. Hann segir það vilja núverandi meirihluta að styðja slíkt félag með ráðum og dáð þrátt fyrir að engin formleg ákvörðun hafi verið teldn rnn hugsanlega aðkomu kaupstaðarins að því máh. HJ NV-kjördæmi veikasta vígi Samfylkingar- innar Samfylkingin mælist með 18% fylgi í Norðvesmrkjör- dæmi. Kemur þetta fram þjóð- arpúlsi Capacent, sem áður hét IMG-Gallup, fyrir októbermán- uð. Þar má finna tölur yfir fylgi flokkanna á landsvísu, sem og eftir landshlumm. Kemur þar ffam að Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Norðvesmr- kjördæmi með 34%, Vinstri- hreyfingin - grænt ffamboð mæhst með 23%, Samfylkingin 18% eins og áður sagði, Fram- sóknarflokkurinn 16% og Frjálslyndi flokkurinn 9%. Þetta er minnsta fylgi Samfylkingar- innar á landsvísu, en mest fylgi hefur flokkurinn í Suðurkjör- dæmi 31%. Þá er þetta hæsta fylgi sem Vmstri grænir hafa ásamt Norð- austurkjördæmi og Reykjavíkur- kjördæmi norður. Framsóknar- flokkurinn mælist aðeins hærri í Norðausmrkjördæmi þar sem hann fær 20% og Frjálslyndi flokkurinn er með mest fylgi í Norðvesmrkjördæmi ef marka má könnunina. Mjög litlar breytingar era á fylgi stjómmálaflokka á lands- vísu. Samfylkingin hefur bætt við sig tæplega tveimur pró- senmstigum ffá síðasta mánuði og er fylgi hennar nú 27%, en fylgi Vinstri grænna hefur að sama skapi lækkað um tvö pró- senmstig og mælast þeir nú í 25%. Fylgi annarra flokka er nær óbreytt frá síðasta mánuði. Smðningur við ríkisstjómina er nú 52%. Liðlega fimmtungur svarenda tók ekki afstöðu eða neitaði að gefa hana upp og tæp- lega 5% sögðust myndu slrila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færa fram í dag. Vakin er athygli á því að úrtakið í könnuninni var 2584 og náði til landsins alls. Svarhlutfall var 61%. Spurt var 31. ágúst til 28. september. KÓP II III III III

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.