Skessuhorn - 04.10.2006, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006
^ttUsunuKi:
Til minnis
Viö minnum fólk á að nú er fé-
lagsstarf vetrarins víðast hvar
að fara í fullan gang. Þeir sem
ætla sér að taka þátt í nám-
skeiðum, íþrótta- eða klúbba-
starfi ættu að fara að hugsa sér
til hreyfings.
Vectyrhorfwr
Á fimmtudag verður austan og
síðar norðaustan 5-13 m/s. Hiti
3 til 10 stig, hlýjast SV-lands. Á
föstudag verður norðaustan-
átt, víða 8-13 m/s. Dálítil rign-
ing N- og A-lands, en léttskýj-
að suðvestantil. Heldur kóln-
andi. Á laugardag verður aust-
anátt með rigningu og sums-
staðar slyddu S-lands, annars
þurrt að mestu en stöku él við
norðausturströndina. Hiti 1 til
8 stig. Á sunnudag og mánu-
dag er búist við austlægri átt
og rigningu eða slyddu með
köflum, einkum S- og A-lands.
Hiti 0 til 8 stig. Það er komið
haust!
SpMrniruj vihMnnar
f síðustu viku var spurt á
skessuhorn.is hvort menn
teldu að Vaxtarsamningur
Vesturlands yrði landshlutan-
um til góða. Af 478 svörum
sem bárust telja 37,9% að svo
verði, 29,2% telja að svo verði
ekki og 32,9% vita ekki hvort
Vaxtarsamningurinn verði
landshlutanum til góða eða
ekki.
„Ertu ánœgð/ur með
ráðningu Guðjóns
Þórðarsonar til ÍA?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlencjiwjwr
viKiAnnar
Vestlendingar vikunnar eru að
þessu sinni þeir sem eru í
„heitasta" starfinu nú um
mundir, í svíðingu í Dölum.
Sýnt í Landnámssetri
í Borgarnesi
Flmnttudagur s. oklðher kl. 20 - Uppsell
FAstudagur S. oktAber kl. 20 - Uppsett
Laugardagur 7. október kl. 20 • Uppselt
Sunnurtagur 8. oktúber kl. 20 - Uppselt
nmmtuda gur 12. oktúber kl. 20 - Laus sæti
Föstudagtir n.október kl. 20 - ttppselt
Laugartiagur 14. október kl. 20 • Uppselt
Sunmutagur 15. október kl. 20 - Uppselt
Fknmtudagur 19. oktdtwr kl. 20 • Laus sætl
FSstudagur 20. október kL 20 - Uppselt
Slaðfesta þarf miða með greiðslu
víku fyrtr sýnirtgardag
LEIKHÚ5TILBOÐ
Tvirettaður kvóldverður og leíkhusmiöi kr. 4300 - 4800.- MIDAPANTANIR 1 SlMA 417 1600
Langhæstar tekjur á Vesturlandi
eru í Skorradal
Aædaðar tekjur sveitarfélaga á
hvern íbúa á Vesturlandi eru lang-
hæstar í Skorradalshreppi. Þetta
kemur ffam í fféttatilkynningu ffá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. I
Skorradal nema þessar tekjur
722.697 krónur á hvern íbúa og eru
það næsthæstu áætluðu hámarks-
tekjur á landinu, aðeins í Grímsnes-
og Grafhingshreppi eru þær áætl-
aðar hærri, sem nemur fjörutíu
þúsund krónum á hvern íbúa.
Lægstar tekjur á hvem íbúa á
Vesturlandi em í Kolbeinsstaða-
hreppi, eða 198.813 krónur og em
það næstlægstar áætlaðar tekjur á
landinu, aðeins Bólstaðahlíðar-
hreppur er lægri sem nemur um
5.000 krónur á hvem íbúa. í Skil-
mannahreppi eru áætlaðar há-
markstekjur á hvem íbúa tæplega
500.000 krónur, ríflega 450.000
krónur í Hvalfjarðarsveit og ríflega
300.000 krónur á Akranesi og
Innri-Akraneshreppi. Þær nema
rúmlega 290.000 krónur í Borgar-
byggð og ríflega 280.000 krónur í
Stykkishólmi og Snæfellsbæ.
Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðu-
hreppur, Kolbeinsstaðahreppur,
Grundafjarðarbær, Helgafellssveit,
Stykkishólmsbær, Snæfellsbær,
Saurbæjarhrepptu- og Dalabyggð fá
öll úthlutað tekjujöfnunarffamlög-
um ffá Jöfnunarsjóði. Önnur sveit-
arfélög í fjórðungnum fá enga út-
hlutun vegna þess hve tekjur em
áætlaðar háar á hvem íbúa.
-KÓP
Fisldstofa fær húsnæði í Stylddshólmi
Fiskistofa er komin með húsnæði
fyrir starfsemi sína í Stykldshólmi,
en hún verður staðsett í Sæmundar-
pakkhúsinu á Hafhargötu. I fyrra
var ákveðið að færa effirlitsstarfsemi
Fiskistofu að mestu út á lands-
byggðina. Utibú var opnað í Vest-
mannaeyjum í vor og í dag er opn-
að útibú á Höfh í Homafirði. Næsta
ár mtmu fimm starfsmenn starfa í
hvom útibúi um sig. I apríl á næsta
ári opnar útibúið í Stykkishólmi.
Fyrsta kastið verða þrír starfsmenn
þar, auk útibússtjóra, en þrír til við-
bótar verða ráðnir árið 2008. Þá
munu starfsmenn vera sjö og þar af
einn til tveir með aðstöðu á Vest-
fjörðum, en einn eftirlitsmaður
Fiskistofu er nú þegar með aðstöðu
á Isafirði. Arið 2008 verður opnað
útibú í Grindavík og árið efrir verð-
ur starfsmönnum á Akureyri fjölg-
að. Þá verða starfsmenn veiðieftílits
orðnir 39 talsins. EftirHtið ffá Akra-
nesi í Hafnarfjörð fellur undir Fiski-
stofu í Reykjavík.
Gerður Bárðardóttir, deildarstjóri
ijármála- og rekstrarsviðs Fiskistofu,
sagði í samtali við Skessuhom að
flutningur veiðiefrirhtsins út á land
gengi samkvæmt áætlun. Auglýst
yrði eftir starfsfólki fljótlega upp úr
áramótum. Fiskiefrirlitsmenn em
flestir búnir að ljúka a.m.k. öðm
stigi í Stýrimannaskólanum, þó ekki
sé gerð krafa um það. Þar að auki er
horft til reynslu þeirra af greininni.
Utibússtjóri hefur reksturinn á
hendi sér og reynsla og menntun á
því sviði er því æskileg.
Gerður segir að ekki sé komin
reynsla á það hvernig flumingurinn
út á land hafi tekist. „Við eigum eft-
ir að koma þessu öllu saman og
samkeyra öll útibúin til að sjá
hvemig þetta gengur. Þetta ferli er í
gangi og gengur vel efrir þeim leið-
um sem vom markaðar í upphafi."
Starfssvæði útibúsins í Stykkishólmi
verður Snæfellsnes og Vestfirðir.
-KÓP
Skiifað undir samning um kaup
á nýrri slökkvibifreið
Fulltrúar Borgarbyggðar og
Ólafs Gíslasonar og Co -Eldvarn-
armiðstöðvarinnar skrifuðu í gær
undir samning um kaup Borgar-
byggðar á nýrri slökkvibifreið. Bif-
reiðin er á Renault undirvagni en
að öðm leyti smíðuð í Póllandi.
Akveðið var að ganga til samninga
við fýrirtækið að loknu útboði.
Bifreiðin er fjórhjóladrifin, með
450 hestafla vél og áhafnarhúsi
fýrir sjö manns. Nokkur tæki af
þessari gerð hafa verið seld hingað
til lands undanfarið.
Að sögn Bjarna Þorsteinssonar
slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð er
biffeiðin afar vel búin tækjum og
má þar nefna að hún verður með
4000 lítra vatnstank og 200 lítra
froðutank, 2000 W fjarstýrðu
ljósamastri, 4,5 kW rafstöð, úða-
byssu með froðustút á þaki og af-
kastar hún um 3.200 lítrum á mín-
útu, stiga, sogbörkum, reykköfun-
A meðfylgjandi mynd má sjá þá Pál S Brynjarsson bæjarstjóra Borgarbyggðar, Bjama
Þorsteinsson og Benedikt Einar Gunnarsson framkvœmdastjóra að undirskrift lokinni.
arstólum, miðstöðvum í yfirbygg-
ingu og áhafnarhúsi ásamt sér
miðstöð fýrir barka til að leiða að
slysstað.
Bjarni segir að með tilkomu bif-
reiðarinnar muni tækjakostur
slökkviliðsins að vonum taka stór-
stígum framförum og auðvelda
slökkviliðsmönnum mjög störf sín.
Kaupverð er um 17 milljónir
króna og má vænta þess að hún
verði tekin í gagnið í byrjun júní á
næsta ári.
HJ
Telur bæj armálasamþykkt hafa verið
brotna við uppsögn bankaviðsldpta
Bæjarfulltrúi Samfýlkingarinnar í
bæjarstjóm Akraness segir bæjar-
málasamþykkt hafa verið brotna
þegar bæjarráð synjaði um frestun á
afgreiðslu tillögu um uppsögn á við-
skiptum við Landsbanka Islands.
Hann segir engin gögn hafa legið
fýrir um málið og bæjarfulltrúar hafi
því í raun ekki vitað hvað þeir vom
að samþykkja. Bæjarstjórn staðfesti í
liðinni viku ákvörðun bæjarráðs.
A fundi bæjarstjórnar Akraness á
þriðjudag var staðfest sú ákvörðun
bæjarráðs að segja upp áratugalöng-
um viðskiptum við Landsbanka Is-
lands. A fundinum lagði Sveinn
Kristinsson bæjarfulltrúi Samfýlk-
ingarinnar það tíl að málinu yrði vís-
að til frekari umræðu í bæjarráði. Sú
tillaga var felld með fimm atkvæðum
gegn fjómm. I kjölfarið staðfesti
bæjarstjóm ákvörðun bæjarráðs með
sjö samhljóða atkvæðum en tveir
bæjarfulltrúar Samfýlkingarinnar
sátu hjá.
Sveinn segir í samtah við Skessu-
horn að þegar málið kom til um-
ræðu í bæjarráði hafi engin gögn
verið um það send með fundarboði.
A fundi bæjarráðs hafi heldur engin
gögn verið lögð fýrir um hvaða við-
skiptum væri í raun verið að segja
upp. Hann hafði því óskað frestunar
málsins sem bæjarráði hafi borið að
samþykkja samkvæmt bæjarmála-
samþykkt. A það hafi hins vegar ekki
verið fallist. Hann hafi því óskað eft-
ir minnisblaði frá bæjarritara vegna
málsins þannig að einhverjar upp-
lýsingar gætu legið fýrir þegar bæj-
arstjórn tæki endanlega afstöðu.
Þrátt fýrir að það minnisblað hafi
legið fýrir á mánudag hafi bæjar-
stjóri ekki sent það til bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar hafi því í raun sam-
þykkt uppsögn á því sem þeir höfðu
enga hugmynd um hvað væri. Slík
vinnubrögð geti ekki hðist í nútíma-
þjóðfélagi. Meirihluti bæjarstjómar
hafi einungis vísað tíl meirihluta-
samkomulags en við nákvæman lest-
ur þess finnist ekki stafur um slíkt.
Aðspurður hvort hann hafi því í
ratm verið andsnúinn uppsögn við-
skipta við Landsbanka Islands segir
Sveinn svo ekki vera því ekki hafi
nein gögn legið fýrir til þess að
mynda sér skoðun á málinu. „Við
höfum átt viðskipti við bankann um
margra áratuga skeið og því skil ég
ekki hvers vegna það lá svona
óskaplega á að segja upp þessum
viðskiptum án þess að menn vissu í
raun hverju væri verið að segja
upp“.
HJ
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu við
vinnslu viðtals við Aðalstein
Valdimarsson á Reykhólum í síð-
asta tölublaði að sagt var að Fjóla
Borgfjörð hefði verið amma
hans. Hið rétta er að hún var
móðir hans. Þá var hann sagður
hafa gegnt stöðu formanns
Landssambands vörubílstjóra.
Hið rétta er að hann var varafor-
maður Vörubílstjórafélags Dala-
sýslu og gegndi formennsku í því
það ár sem sagt var ffá. Er hér al-
gjörlega við blaðamann að sakast
og er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum. -kóp
Tvö tilboð í
pósthús
STYKKISHÓLMUR: Eins og
fram kom í Skessuhorni fýrir
nokkru stendur til að Islands-
póstur láti byggja nokkur ný
pósthús á Vesturlandi, m.a. á
Akranesi, í Borgarnesi og
Stykkishólmi. Sl. mánudag
voru opnuð tilboð í byggingu
nýs pósthúss í Stykkishólmi og
bárust tvö tilboð f verkið.
Stykkishólmspósturinn greinir
frá því að kostnaðaráætlun
hljóði upp á 85,6 milljónir
króna og reyndist lægra tilboð-
ið vera frá Sumarbústöðum ehf.
kr. 84,2 milljónir króna eða
98,4% af kostnaðaráætiun en
hærra tilboðið ffá Skipavík hf.
kr. 85,3 milljónir eða 99,6% af
kostnaðaráætlun. Eftir er að yf-
irfara tilboðin áður en ákvörð-
un verður tekin um hverjum
verður falin bygging hússins.
Um verður að ræða 315 fer-
metra hús ásamt öllum frágangi
innan og utan dyra. Húsið mun
þjóna sem aðalpóststöð fýrir
svæðið og pósti ekið þaðan á
aðra staði á Snæfellsnesi. Verk-
inu á að vera lokið í júní 2007.
-mm
Deiliskipulag
mennta-
skólalóðar
BORGARBYGGÐ: Sveitar-
stjóm Borgarbyggðar hefur sam-
þykkt samhljóða tillögu um
deiliskipulag lóðar sem ætluð er
fýrir byggingu nýstofnaðs
Menntaskóla Borgarfjarðar. Fyr-
irhugað er að húsið rísi á gamla
íþróttavellinum við Borgarbraut
í Borgamesi. Auglýst var efrir at-
hugasemdum um tillöguna og
bámst nokkrar. Efrir að hafa
kynnt sér tíllögumar ákvað sveit-
arstjóm að samþykkja tillögima
að því breyttu að bílastæðum á
lóðinni fjölgar úr 50 í 70. -hj
Mikiðum
hraðakstur
BORGARNES: Lögreglan í
Borgarnesi þturfri að hafa afskipti
af 42 ökumönnum vegna
hraðaksturs í síðustu viku. Sá sem
hraðast fór var tekinn á 150 km.
hraða á Vesturlandsvegi við
Hafnarskóg í kolniðamyrkri.
Einn ökumaður var stöðvaður
sem reyndist hafa misst ökuskír-
teini sitt. Þá var ökumaður stöðv-
aður á Hafnarmelum og reyndist
bifreið hans óskráð, ótryggð og á
röngum skráningamúmemm. A
honum fundust fimm til sex
grömm af kannabisefnum. I
Borgamesi var einn handtekinn
með hassblandað tóbak á sér.
-kóp