Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Page 7

Skessuhorn - 04.10.2006, Page 7
gSESSiíliöBKl MIÐYIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006 7 Fréttapunktar frá Malawi Böm á bamaheimili. Fyrir nokkru raddi Skessuhom við ungan hjúkrunarfraðingfrá Akranesi, Fríðu Björk Skúladóttur, sem þá var í þann mund að stíga upp íflugvél ásamt tveimur stallsystrum sínum, áleiðis í ferðalag og til starfa í Malawi. Fríða og félagar hafa nú sent Skessuhomi fyrsta hluta ferðasögu þeirra, eins og rætt var um á sínum tíma. Þær eru nú komnar til starfa og hafa þegar kynnst mannlífinu íþessu fátæka Afríkuríki. Eftir tveggja sólarhringa ferðalag komum við að lokum til Lilongwe, höfuðborgar Malawi. Til að halda kostnaði við ferðina sem lægstum flugum við efrir talsverðum króka- leiðum og tókum alls fimm flugvélar á ferð okkar. Við lentum því þreytt- ar en fullar eftírvæntingar hér í Malawi 13. september sl. Við höfum síðan fengið ágætis aðlögunartíma héma til að kynnast landi og þjóð og aðlagast nýrri menningu. Hér er ýmislegt öðravísi en við eigum að venjast. Vlð búum í þorpi sem heitir Madisi og er í Dowa héraði norður af höfuðborginni. Dowa er fátækasta héraðið í Malawi og sá hluti þess sem við búum í er einn sá fátækasti. Við búum í einbýlishúsi með þrem- ur svefnherbergjum og höfum raf- magn en hins vegar erum við ekki með rennandi vam. Við þurfum að fá vam úr brunni hér stutt frá og það er síðan geymt í síldartunnu á eld- húsgólfinu hjá okkur. Þetta gerir það að verkum að við þurfum að sjóða vam til allra nota t.d. uppvasks, þvotta, baðs o.fl. Þar sem við eram ekki með vatn erum við að sjálf- sögðu ekki með hefbundið klósett, heldur erum við með kamar fyrir aftan hús, sem er einfaldlega djúp hola. „Sturtan“ okkar er einnig í kofa og er í raun aðeins bali með soðnu vatni sem við ausum yfir okk- ur úr. Hér verður einnig off raf- magnslaust, símasamband er stopult og engar nettengingar. Næst okkur búa flestir í leirkofum með stráþaki, fæstir hafa rafrnagn og engir renn- andi vam. íbúarnir virðast vera sátt- ir við sitt þó okkur finnist þá skorta margt. Við höfum nú hafið störf á heilsu- gæslu sem rekin er af lúthersku kirkjunni og á henni starfar aðeins einn hjúkrunarffæðingur. I Malawi er mikill skortur á fagfólki og hefur ekki fengist læknir eða fleiri hjúkr- unarffæðingar til starfa á heilsugæsl- una eins og er. Okkar starf er því að aðstoða hjúkranarfræðinginn og af- greiða lyfin. Ut ffá heilsugæslunni er einnig rekin Mobile Clinic sem er nokkurs konar heilsugæsla á hjólum og sinnir fátækum og munaðarlaus- um bömum um allt land. Við kom- um einnig til með að fara í þess kon- ar ferðir sem eru tvær til þrjár vikur í senn. Við tökum einnig þátt í verk- efhi sem kallast „Home Based Care“ sem er smðningur við fólk í þorptm- um hérna í kring. Þorpin sem verk- efhið styður era 170 talsins og það felst í því að hjálpa fólki að tryggja afkomu sína. Ibúamir hafa val um að taka þátt í verkefnunum og tekur um það bil helmingur þeirra þátt. í byrj- un fær þorpið gefins t.d. 7 geitur sem þeir eru ábyrgir fyrir og þegar geitumar hafa náð ákveðntun fjölda er þeim skipt á milli þátttakendanna og þeir sjá þá um sína hjörð. Sami háttur er hafður á með ræktun svína, fugla, býflugna og fiska. Einnig fá þeir gefins ffæ til að rækta grænmeti og tré. Grafnir hafa verið brunnar sem eru lokaðir svo húsdýr komist ekki í neysluvam. Einnig er verið að leggja vamsdælur til að vökva akrana ril að tryggja uppskeru allt árið. Þorpin fá að velja hvað af þessum verkefhum þau vilja taka þátt í og eru þau komin mislangt á veg með verkefhin. Home Based Care rekur einnig dagheimili fyrir munaðarlaus böm sem misst hafa foreldra sína úr eyðni. Dagheimilin eru opin tvo daga í viku þar sem börnin koma á morgnana og fylgja ákveðinni dag- skrá sem felst í fræðslu og stuðningi hvort við annað. Þar sem að næring- arástand bamanna er slæmt fá þau næringarríkan maísgraut að borða, sem bætt hefur ástand þeirra. Dag- heimilin styðja einnig við eldri böm sem fara í skóla með því að aðstoða við kaup á skólabúningum og rit- föngum. Við höfum heimsótt nokk- ur þessara dagheimila þar sem böm- Dæmigert hús í einu þorpanna í Malaví. in hafa sungið og dansað fyrir okkur í rifhtun og skítugum fötum. Þau virðast hamingjusöm þrátt fyrir stöðu sína. Bamaheimilin eru rekin í moldarkofum og skortir nánast allt nema glöð böm. Þar em engir stól- ar, borð eða leikföng. Börnin koma meira að segja með sína eigin diska að heiman til að borða grautinn í há- deginu. Þegar við höfum heimsótt þorpin hafa íbúamir allsstaðar tekið vel á móti okkur. Þeir hópast í kringum okkur; syngja, dansa og gefa okkur Coke og Fanta í gleri til að sýna þakklæti sitt. Það er þessu fólki mik- il hvatning að fá hvítt fólk í heim- sókn til að sýna þeim afrakstur erfið- isins og hvemig stuðningurinn hefur nýst þeim. Okkur líst vel á þau verk- efni sem við höftun séð og hlökkum til að takast á við þau. Með kíerri kveðju, Fríða Björk Skúladóttir Asta Rut Ingimundardóttir Bjamheiður Böðvarsdóttir Glöð höm. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERA í GULLVILD GULLVILD Glitnis skarar fram úr annarri vildarþjónustu. Vaxtakjör GULLVILDAR eru í öllum tilfellum hagstæðari en vaxtakjör hinna bankanna og munar allt að 2 prósentu- stigum samkvæmt samanburði á vaxtatöflu bankanna.* SAMANBURÐUR A VILDARÞJONUSTU BANKANNA Þjónusta Yfirdráttar- Innláns- vextir vextir Glitnir - GULLVILD 20,25% 9,00% KB Banki - Gullkjör 22,25% 8,00% Landsbankinn - Varðan 22,20% 8,30% SPM-Gull 21,70% 7,25% ' Vaxtakjör miðast við einstakling rneð 200.000 kr. innstæðu eða ytirdrátt þann 3. október 2006 FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKARVERKEFNI ^VINNINGUR GULLVILDAR ' HN0TSKURN: . Enn hagstæðari vaxtakjör poo fríar debetkortafærslur a ’ GreiðsluÞiónustaGlitnís-ÓkevP . Netbanki Glitnis - ÓkevP'S .GuUdebetkort-^átturafárgialdi , Gulikreditkor - J P;ddum vöxtum . 6% * um ^s,an) skuidabrefa (a ekki

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.