Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 2006 Sofnaði undir stýri HVALFJARÐARGÖNG: Ungur ökumaður gaf sig á laugardag fram við lögreglu og sagðist hafa verið valdur að um- ferðaróhappi í Hvalíjarðar- göngum nóttina áður. Að sögn lögreglu sofnaði hann undir stýri og missti stjórn á bílnum. Engin slys urðu á fólki og ekki er vitað til skemmda á bílnum né á klæðningu í göngunum. Maðurinn kvaðst hafa brugðið svo við óhappið að hann ók rak- leiðis heim, enda bíllinn ökufær og kvaðst hann ekki hafa þorað að tilkynna óhappið. Hann sá svo að sér með morgninum og gaf sig ífarn við lögreglu. Þá var ökumaður stöðvaður af lög- reglu snemma á laugardag vegna einkennilegs aksturlags. Sá er grunaður um akstur undir áhrifum kannabisefna. -mm Ekið á kindur DALIR: A aðfararnótt sunnu- dags sl. varð ökumaður fyrir því óláni að aka á kind sem var á ferð með tvö lömb eftir akvegi í Dölunum. Kindin og annað lambið drápust við áreksturinn, en hitt lambið þurfti að aflífa. Jóhannes B. Björgvinsson, aðal- varðstjóri, sagði í samtali við Skessuhom að þessi ökumaður hefði þegar í stað látið vita af óhappinu. Hins vegar væri það allt of algengt að menn ækju af vettvangi án þess að tilkynna um óhöpp sem þessi. Aðrir veg- farendur kæmu þá að dýmnum og létu vita. Af þessu háttarlagi getur stafað stórhætta. -kóp Nóg komið með lágmarksfjölda VESTURLAND: A aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi fyrr í mánuðinum var samþykkt ályktun þar sem sam- einingu sveitarfélaga á Vestur- landi var sérsaklega fagnað. SSV telur að sameiningar leiði til öflugri sveitarfélaga á Vest- urlandi sem séu eftirsótt til bú- setu og geta tekið við fleiri verkefnum fyrir íbúa sína. Um leið og aðalfundurinn fagnar þeim áföngum sem náðst hafa leggur hann til að ekki verði um frekari tillögugerð af hálfu Sambands íslenskra sveitarfé- laga eða ríkisins að ræða hvað varðar lágmarksíbúafjölda eða sameiningu sveitarfélaga. -kóp Ný gámastöð formlega opnuð GRUNDARFJÖRÐUR: Nýja gámastöðin við Artún í Gmnd- arfirði verður formlega tekin í notkun á morgun, fimmmdag- inn 5. október. íbúum Gmnd- arfjarðar er boðið að koma á þeim tíma og skoða gámastöð- ina og aðstöðuna þar og þiggja veitingar milli kl. 17 og 18. A nýju gámastöðinni er góð að- staða til þess að skila flokkuð- um úrgangi í gáma. Þeir em merktir hverri úrgangstegund svo auðvelt er að flokka rétt. ,Allir íbúar era hvattir til þess að koma á fimmtudaginn og kynnast þessari nýju aðstöðu af eigin raun,“ segir í fréttatilkyn- inngu frá Grundarfjarðarbæ. -mm Stækkun Norðuráls í 220 þúsund tonn lokið Á mánudag sl. var formlega tekin í notkun stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga og er gert ráð fyrir að framleiðslugetan í verksmiðjunni verði komin í 220 þúsund tonn fyrir næstu áramót. Þegar verksmiðjan tók til starfa var afkastagetan 90 þús- und tonn og nú er unnið við ffekari stækkun þannig að framleiðslugetan verði 260 þústmd tonn og sam- kvæmt starfsleyfi getur framleiðslu- getan orðið 300 þústmd torrn. Fyrstu kerin í þessum áfanga stækkunarinnar, sem telur 260 ker, vom tekin í notkun þann 15. febrú- ar og hafa starfsmenn fyrirtækisins unnið hörðum höndum undanfama mánuði að gangsemingu kerjanna. Heildarfjárfesting við þessa stækkun er um 35 milljarðar króna og áætlað er að útflutningsverðmæti verk- smiðjunnar verði um 30 milljarðar á ári. Orkuþörfin vegna stækkunar- innar er um 220 MW. Starfsmenn fyrirtækisins í dag em 350-360 og að næstu stækkun lokinni verða þeir Borðaklippingin afstaðin og stækkunin þar meðformlega vigð. Mannvirki Norðuráls með Hvalfjörð í bakgrunni. Til vinstri sést mótafyrir njjum mannvirkjum fyrir næsta áfanga, í 260 þúsund tonna framleiðslugetu verksmiðjunnar. um 400 talsins. „Við höfum verið mjög ánægð með stækkun Norður- áls, sem hefur staðist bæði tíma- og kostnaðaráætlun fyrirtæksins," sagði Logan W Krager forstjóri Century Aluminum við þetta tækifæri. Við athöfnina á mánudaginn fluttu ávörp auk Kragers þeir Craig Davis stjórnarformaður, Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs hjá Norðuráli, Jón Sigurðsson iðn- aðarráðherra og Gísli S. Einarsson bæjarstjóri og fyrrum starfsmaður fyrirtækisms. Að loknum ávörpum var klippt á borða og stækkunin formlega tekin í notkun. Ekki færri en fimm menn; bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra og þrír fulltrúar fyrirtækisins framkvæmdu þá athöfn og uppskára dynjandi lófatak viðstaddra en fjölmenni var saman komið á Grundartanga til að fagna þessum áfanga. HJ/ljósm. MM og Norðurál. Stjórarmenn og starfsmenn Century Aluminium ásamtjóni Sigurðssyni iðnaðar- og við- skiptaráðberra. Inni í nýja kerskálanum. Mildl slysahelgi í um- ferðimii á Snæfellsnesi Sextán ára stútur á stolnum bíl Þrjár bílveltur urðu með skömmu millibili um helgina á Snæfellsnesi. Lögreglan var kölluð út vegna bílveltu á sunnarverðri Fróðárheiði um klukkan 20:00 á laugardagskvöldið. Bíll, með tvo menn innanborðs, hafði oltið fjór- ar veltur. Minniháttar meiðsl urðu á ökumanni og farþega. Klukkan 3:46 aðfararnótt sunnudags var lögreglan aftur kölluð út vegna bílveltu á Fróðarheiði, en bíll hafði endastungist við sæluhús á heiðinni. Engin meiðsl urðu á fólki, en ökumaður er granaður um að hafa verið undir áhrifum vímuefna. Ekki voru liðnar fimm mínútur frá þessu útkalli þegar lögreglunni barst tilkynning um aðra bílveltu, að þessu sinni við Hellnafell, rétt utan við rúlluhlið- ið við Grundarfjörð. Lögreglu- menn vora á leið í útkallið á Fróð- árheiði þegar þeim barst tilkynn- ingin. Okumaður, sem grunaður er um ölvunarakstur, varð fýrir innvortis meiðslum en er á góðum batavegi en hann var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur. Á sunnudaginn lenti sex ára telpa á reiðhjóli í samstuði við bíl í Olafsvík. Hún meiddist ekki alvar- lega, var bólgin á vör og andliti, en hjólið eyðilagðist. Okumaðurinn er ekki fundinn ennþá og er talið líklegt að hann hafi ekki áttað sig á árekstrinum, en hann var á pallbíl. Á sunnudagskvöldið var maður tekinn grunaður um ölvun við akstur. -KÓP Lögreglan á Akranesi hafði í lið- inni viku afskipti af 14 ökumönnum vegna þess að ljósabúnaði á bifreið- um þeirra var áfátt. Algengast var að perur væru sprungnar og var skorað á ökumenn að koma ljósunum í lag hið snarasta. Ekki var kært vegna þessara brota nema búnaði væri verulega ábótavant enda vissu öku- menn, a.m.k. í sumum tilfelltmum, einfaldlega ekki af því að perar höfðu gefið sig. Enn sjást glannalegar tölur við hraðamælingar lögreglu. Þrír voru kærðir í vikunni fyrir að aka biffeið- um sínum með meira en 120 km/klst hraða þar sem hámarks- hraði er 90 og einn var kærður eftir að hafa mælst á 97 km hraða þar sem hámarkshraði er 50. Alls voru 13 kærðir vegna hraðabrota. Þrir ökumenn voru nú um helg- ina handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Einn þeirra var aðeins 16 ára gamall og eðli máls samkvæmt ökuréttindalaus. Hafði sá ekið stoln- um bíl sem brotist hafði verið inn í með því að brjóta rúðu. Tilkynning- ar bárust lögreglu um að tveir menn væru að brjótast inn í biffeið og síð- ar að henni hafi verið ekið af stað. Þegar lögregla kom á vettvang tók ökumaðurinn til fótanna en var hlaupinn uppi af lögreglu. Hinn maðurinn var hinsvegar horfinn en fannst síðar. Okumaðurinn viður- kenndi að hafa ekið biffeiðinni, ölv- aður og réttindalaus en vildi ekld kannast við að hafa brotist inn í hana. Félagi hans sem einnig var yf- irheyrður kannaðist heldur ekki við að hafa brotdst inn í biffeiðina. Frek- ari rannsókn málsins stendur yfir. KÓP Komskurði lokið í Kolbeinsstaðarhreppi Víða á Vesturlandi er komþresk- ingu nú lokið eða hún við það að klárast. Uppskeran er víða nokkuð góð þrátt fyrir kulda í vor. Kom- ræktarfélag Kolbeinsstaðahrepps lauk þreskingu í hreppnum þann 23 september sl. og þar vora menn bara nokkuð ánægðir með uppsker- una. Nokkur munur er á uppskeru eftir því hvort sáð var í mel eða mýrlendi, en mýrlendið gaf minna af sér núna og er það er líklegast vegna kuldana í vor og úrkomu- magns. Félagsmenn sáðu í rétt tæp- lega 100 hektara í vor og var upp- skeran rúmlega 300 tonn af byggi sem búfé Kolhreppinga mun gæða sér á í vetur. ÞSK Gestur bóndi á Kaldárbakka að þreskja kom. Asbjöm í Haukatungu ogjón Ben í Laugargerði við komvalsinn. Einn afö'krum Komrœktarfélags Kolbeinsstaðahrepps. Þessi er á Kaldárbakka og er bara ansi stór, eða nokkum veginn eins og augað eygir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.