Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 04.10.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 2006 Róttækar tillögur Samfylkingarinnar um afnám innflutningstolla af landbúnaðarvörum myndu hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenskan landbúnað: Formaður Bændasamtakanna óttast jafiivel hrun í landbúnaði og úrvinnslugreinum hans Eins og fram hefur komið í fféttum undanfarnar vikur hefur þingflokkur Samfylkingarinnar lagt fram róttækar tillögur um lækkun matarverðs á Islandi sem lið í stefnumótun flokksins til næstu ára. Meðal tillagnanna er að innflutningstollar af matvælum verða felldir niður, virðisauka- skattur af matvælum lækkaður og þannig áætlað að ná mætti niður matarreikningi heimilanna um 200 þúsund krónur á ári, sem þýðir um fjórðungs lækkun, samkvæmt út- reikningum Samfylkingarinnar. Is- lenskur landbúnaður, sem og land- búnaður í öðrum löndum, býr við tollavernd. Henni má að hluta líkja við kjarasamninga og vernd launa- manna á íslenskum vinnumarkaði. Forystumenn bænda telja að nái þessar tillögur Samfylkingarinnar fram að ganga þýddi það hrun ís- lensks landbúnaðar og úrvinnslu- greina hans. Meðal annars telur Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna að einungis stærstu úrvinnslustöðvarnar í land- búnaði myndu halda áfram ein- hverri starfsemi sem þýðir m.a. að öll úrvinnsla landbúnaðar í Norð- vesturkjördæmi gæti lagst af. Vörugjöld felld niður Samfylkingin hefur boðað að flokkurinn vilji lækka matvælaverð á Islandi og kynnti fyrir skemmstu tillögur sem miða að því að lækka matarreikning heimilanna um 200 þúsund krónur á ári. „Samfylking- in hefur einn flokka barist fyrir lækkun matvælaverðs á tmdanförn- um árum en ríkisstjórnarflokkarnir hafa staðið gegn slíkum tillögum á Alþingi," sagði m.a. í tilkynningu flokksins þann 23. september sl. Samfylkingin hefur boðað að nú í upphafi þings muni flokkurinn leggja fram þingsályktunartillögu um lækkun matarverðs þar sem lagðar verða til stórfelldar breyt- ingar. Samkvæmt þeim verða vöru- gjöld af matvælum felld niður og einnig innflumingstollar af mat- vælum í áföngum á þá leið að 1. júlí nk. verði helmingur þeirra af- numinn og ári síðar verði allir toll- ar endanlega úr sögunni. Þá verði virðisaukaskattur á matvæli lækk- aður um helming og breytt fýrir- komulag tekið upp á stuðningi við bændur þannig að teknar verði upp tímabundnar beinar greiðslur og umhverfisstyrkir. Þetta nýja fyrir- komulag verði útfært í samvinnu við bændur. „Samfylkingin mun á komandi þingi leggja fram frum- varp þar sem afnuminn er réttur landbúnaðarráðuneytis til að hafna breytingum á tollskrám, sem varða breytingar á innflutningsvernd bú- vara og þá leggur flokkurinn áherslu á að landbúnaðarfram- leiðsla falli undir samkeppnislög. Þá vill Samfylkingin að við fjár- lagagerð verði tryggt að allur stuðningur við landbúnað sé opinn og gagnsær. Matarverð á Islandi er með því hæsta í heiminum og er um 50% hærra en hjá nágranna- þjóðunum. Hátt verð á matvælum á Islandi er hins vegar heimatilbú- inn vandi sem vel er hægt að bregðast við. Tillögur Samfylking- arinnar um fjórðungs lækkun á matvælakostnaði heimilanna munu því leiða til mikilla lífskjarabóta fyrir almenning í landinu," segir í tilkynningu flokksins á heimasíðu hans ffá 23. september sl. Stuðningskerfi landbúnaðarins úrelt Jóhann Arsælsson, fyrsti þing- maður Samfylkingarinnar í Norð- vesturkjördæmi, segir enga aðra leið en lækkun tolla og aðflutn- ingsgjalda færa sem hafi bein áhrif á verðmyndun og samkeppni á markaði matvara. Hann segir lækkun virðisaukaskatts að vísu hafa áhrif til lækkunar og hann eigi Jóhann Arsœlsson, alþingismaður. að lækka. Sú lækkun komi hins vegar öll úr ríkissjóði. „Kaupmenn geta ef sú leið er ein farin haldið áfram að nota innflutningsvernd- ina til að halda uppi verði á vörum sem í neyslu koma í stað landbún- aðarvara. Það þarf hins vegar að hafa samráð við bændur um aðlög- un að þessum breytingum. En þær eru óhjákvæmilegar. Stuðnings- kerfi landbúnaðarins er úrelt og verður að taka mið af jafnræði milli búgreina og stuðningi við land- búnað í öðrum löndum," sagði Jóhann í samtali við Skessuhorn. Aðspurður hvort Samfylkingin væri að ganga lengra í afnámi tollaverndar á landbúnaðarvörur en nágrannaþjóðir okkar gera, seg- ir Jóhann: „Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem ég hef eru einungis Norðmenn og Svisslendingar eitt- hvað nálægt okkur í stuðningi við landbúnað með þessum hætti. I Evrópusambandinu er stuðningur- inn allt öðru vísi en ytri tollmúrar bandalagsins bætast í ratm ofan á heildarstuðning við landbúnaðinn þar. Samt er heildarstuðningur hér verulega hærri en þar.“ Jóhann segir hagsmuni almenn- ings auðvitað vera mjög mikla af því að búa við lágt matvælaverð. Það sjáist best á því að menn keyri langar leiðir til innkaupa í lágvöru- verslunum. Hann telur að verði til- lögur Samfylkingarinnar að veru- leika muni framboð á íslenskum vörum ekki minnka. „Það verður örugglega áfram effirspurn eftir þeim ágætu vörum sem hér eru Haraldur Benediktsson, formaður Bcendasamtaka Islands framleiddar og þær á að markaðs- setja á grundvelli gæða. Ég tel að við endurskoðun stuðningskerfis við landbúnaðinn eigi að horfa tdl jafhræðis milli framleiðslugreina. Nú er þessum stuðningi mest beint að mjólkurframleiðslu og sauðfjár- rækt. Umbreyting á kerfinu til stuðnings við fjölbreyttan land- búnað er löngu tímabær og bænd- ur hafa of lengi látið hagsmuni framleiðenda í sauðfjárrækt og mjólkurframleiðslu ráða allt of miklu.“ Jóhann segir kerfisbreytingu til almennari stuðnings við atvinnulíf í sveitum vera nauðsynlega. „I slík- um breytingum felast tækifæri sem ekki nýtast í því gamla staðnaða kerfi sem nú ríkir í landinu. Bændaforystan verður að horfast í augu við að ef þeir fara sífellt með offorsi í garð þeirra sem vilja stuðla að breytingum til hags fyrir neytendur skaða þeir þann velvilja sem íslenskir neytendur hafa í garð atvinnugreinarinnar,“ segir Jóhann að lokum. Efasemdarraddir innan flokksins Þingmenn Samfylkingarinnar eru þó ekki á einu máli um hversu langt tillögur flokksins eigi að ganga. Björgvin G Sigurðsson, al- þingismaður SF í Suðurkjördæmi sagðist t.d. í samtali við Sunn- lenska fféttablaðið sl. fimmtudag ekki vera allskostar ánægður með framkomnar tillögur flokksins varðandi lækktm matarverðs. „Eg tek undir að leita verði leiða til að ná matarverði niður eins og með lækkun á virðisaukaskatti og breyt- ingum á innflutningshöftum og tollavernd. Þær breytingar sem snúa að landbúnaðarkerfinu í nú- verandi mynd þarf hinsvegar að gera í samráði við bændur og fólk- ið í sveitunum, á forsendum þeirra, ekki síður en fólksins í landinu. Því legg ég mikla áherslu á ríkulegan aðlögunartíma að slíkum breyting- um og á móti komi stuðningur sem taki á þeim skerðingum sem lækk- un verndarinnar hefur á sumar greinar landbúnaðarins,“ sagði Björgvin í samtali við Sunnlenska fréttablaðið. Hrun í úrvinnslu kjöts og mjólkur Forystumenn Bændasamtaka Is- lands hafa þegar fundað með þing- flokki Samfylkingarinnar út af framkomnum tillögum. Þeir hafa af því verulegar áhyggjur hvað til- lögur flokksins gætu leitt til. Telja þeir að ef þær komi til fram- kvæmda séu úrvinnslustöðvar bæði í kjöti og mjólkurvinnslu í veru- legri hættu, einkum þær smærri. Þá telja þeir fullvfst að veltusam- dráttur í úrvinnslu landbúnaðar- vara muni koma harðast niður á smærri afurðastöðvum úti á landi. Haraldur Benediktsson, formað- ur Bændasamtaka Islands óttast m.a. að öll úrvinnslustörf í Norð- vesturkjördæmi séu f hættu. „Sam- kvæmt Hagfræðistofnun Háskóla Islands, yrðu afleiðingar niðurfell- ingar tolla m.a. þær.fýrir mjólkur- iðnaðinn að um 60% veltusam- drátt verður að ræða. Með hliðsjón af stöðu kjötafurðastöðva er líklegt að ekki verði um minni samdrátt að ræða á því sviði. Þetta þýðir í stuttu máli að hætta er á að flest öll úrvinnslustörf í landbúnaði í Norðvesturkjördæmi leggist af. Stærstu afurðastöðvarnar eru í öðrum kjördæmum. Þá má telja líklegt að öll svína,- kjúklinga- og nautakjötsframleiðsla sé í hættu nái þessar tillögur ffam að ganga,“ sagði Haraldur í samtali við Skessuhorn. Túlkar tíllögumar sem aðför að stéttinni Haraldur nefnir að sér vitanlega sé engin þjóð að velta því fyrir sér að fella niður alla tolla á búvörum eða kasta frá sér landbúnaði með öðrum hætti. „Því túlka ég tillög- ur Samfylkingarinnar sem aðför að íslenskum landbúnaði og sama hvort aðlögunarár að breytingum á tollavernd verði tvö eða fjögur, skiptir ekki öllu máli því það ligg- ur fyrir að okkar landbúnaður mun ekki lifa þessar breytingar sem ekki eru í samhengi við breytingar í ná- grannalöndum. Þar býr landbún- aður t.d. enn við útflutningsbætur, sem við lögðum af hér fyrir mörg- um árum. Eg fullyrði að það sé ekki hagur íslensks almennings að landbúnaður hér á landi leggist af. Oljós loforð'um nýjan stuðning við bændur sem verður útfærður í samstarfi við þá er ekki annað en skrum,“ segir Haraldur og bætir við: „Hvergi koma fram neinir út- reikningar á hvað verja þarf háum fjárhæðum í því skyni. Eru það 5 eða 10 milljarðar? En eitt er alveg ljóst að það verður ekki launafólk í Búðardal, Borgarnesi eða öðrum þeim stöðuiii á landinu sem missir vinnuna, sem fær slíkar greiðslur." „Vilja þeir fóma ígildi 15-16 álvera?“ Forystumenn bænda hafa, eins og áður hefúr komið ffam, þegar fund- að með Samfylkingarfólki: „A fundi sem við sátum með þingflokki Sam- fylkingarinnar í vikunni sem leið reyndum við að lýsa og skýra stöðu landbúnaðar. Vissulega er margt í okkar rekstarumhverfi sem við vild- um að væri betur komið. Um það held ég að meirihluti þingflokksins geti verið okkur sammála. Um ann- að erum við ósammála, en aðalatrið- ið er að þingmenn skilji um hvað þeir eru að fjalla áður en stokkið er af stað. Þessvegna höfum við lagt nokkuð upp úr því að þingmenn, forystumenn verkalýðshreyfmgar- innar og aðrir sem vilja hag lands- byggðar hér á landi sem mestan, geri sér grein íyrir umfangi íslensks land- búnaðar og hverju menn væru að fóma næðu slíkar tillögur ffam að ganga. Ef við eigum að teikna þetta upp í einhverjum myndum getum við sagt að íslenskir bændur og úr- vinnsluiðnaður landbúnaðar jafn- gildi í störfum talið 15-16 Norður- álsverksmiðjum án afleiddra starfa sem þeim iðnaði fylgir. Þetta byggj- um við á gögnum ffá Hagstofu Is- lands, Norðuráfi og fleirum. Vilja menn fóma slíku? Eg held varla,“ sagði Haraldtn Benediktsson, for- maður BI að lokum. MM Dalakindþessi veit vœntanlega minnst um það sem rcett er manna á milli um hvemig íslenskum landbúnaði verður tryggð Vcenleg framtíð, enda eru menn hreint ekki á einu máli um það.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.