Skessuhorn - 04.10.2006, Síða 13
SgKSSHgMfæM
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 2006
13
Olla sýnirfyrstu verSlauna hryssuna Ashildi á Faxahorg árið 1971.
laust? Olla hlær við og segir: „Þeg-
ar ég var fjögurra ára, þá hnaut
með mig hross og það kom gat á
kinnina á mér, þetta var eina slys-
ið. Hafi ég verið hölt, skökk eða
með hendina í fatla þá hefur það
frekar verið eftir beljurnar en
hrossin. En það eru nú rúmlega
tvö ár síðan ég hef komið á hest-
bak, ég fékk einhver ónot í löpp-
ina. Kannski fer ég að ríða út aftur,
er orðin miklu brattari."
Þegar nær Ollu er gengið og
spurt nánar um heilsufar, kemur
eitt og annað í ljós:
„Frá því um fermingu hefur
bakið verið að trufla mig. Eg var
með hryggskekkju og þurfti í ein
fjögur ár sérstaka meðferð þess-
vegna. Þá hefur ofnæmi fyrir þurr-
heyi þjakað mig, ryk er mér of-
næmisvaldur og ull. Einhverntím-
an var ég sett í ofnæmsipróf og
reyndist hafa ofnæmi fyrir öðru
hverju þeirra efna sem prófuð
voru. Þetta hefur samt allt bjarg-
ast. Eftir að heyinu var rúllað hætti
ég að nota grímu og svo hef ég lyf
við asma og bólgum sem brjótast
stundum upp á yfirborðið ef ég
gæti mín ekki, en þá er ég alveg að
kafna.“
Enn á kafi
í félagsmálum
En hvað með félagsmálin, hefur
nokkur stund verið laus til að sinna
þeim?
,Já, já, ég held ég hafi komið að
flestum félögum sem hafa starfað
eða starfa núna, sérstaklega þeim
sem tengjast búskap eða skepnu-
haldi. Eg hef reyndar aldrei leikið
hjá ungmennafélaginu eða verið í
kvenfélaginu. Þessa stundina er ég
formaður veiðifélags um Flóku,
búin að vera það síðan 1988 og öll
veiðileyfi seljast eins og heitar
lummur. Það er langt síðan Flóka
hefur lent í bakslagi. Eg er núna í
stjórn félags hrossabænda. Egvar í
stjórn hestamannafélagsins Faxa í
ein níu ár og er þar heiðursfélagi,
mér þykir vænt um það.“
..og þræla eins
og hestur
„Fyrir alllöngu var hér við
tamningar yndisleg stúlka sem nú
er búsett í Bandaríkjunum. Hún
gaf mér einhverju sinni lítinn
platta með þessari áletrun: „Það er
erfitt að vera kona, maður verður
að hugsa eins og karlmaður, haga
sér sem dama, líta út eins og ung
stúlka - og þræla eins og hestur. “
Þetta finnst mér eiga ágætlega við
mig,“ segir Olla brosandi að lok-
um.
Viðmælandi og Olla í Nýjabæ
hafa setið við spjall í eldhúsinu í
Nýjabæ í drykklanga stund ásamt
kettinum Mozart. Þessi virðulegi
köttur sem heitir í höfuðið á tón-
skáldinu er kominn á þrítugsaldur
og situr á einum eldhússtólnum og
mótmælir hástöfum öðru hverju
að fá ekki fisk á diskinn sinn. Fjós-
hundurinn Miró sem er öldungur
af Schefferhundakyni fær að líta
inn. Stöðugt koma við gestir úr
nágrenninu, stoppa stutt, sinna
ýmsum erindum, þiggja kaffitár og
kveðja og við þennan eril bætist
síminn sem gjammar af og til. Það
er erilsamt hjá Ollu í Nýjabæ, þótt
komin sé á áttræðisaldurinn. Eng-
in lognmolla þegar hún er annars
vegar. OG
GTTækniehf.
Grundartanga - 301 Akranesí
Rafvirkjar - Vélvirkjar
Vegna aukinna umsvifa óskar GT Tækni ehf. - Grundartanga eftir
að ráða vana rafvirkja og vélvirkja.
Starfssvið/Helstu verkefni
• Almenn rafvirkja- og vélvirkjavinna
• Ýmis verkefni tengd verksmiðjuviöhaldi
Hæfniskrðfur
• Starfsreynsla sem rafvirki / vélvirki í verksmiðjuumhverfi æskileg
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál.
| Nánari upplýsingar veitir
| Gylfi R. Guðmundsson vegna vélvirkja í síma 432 0295 / 860 6195 og
| Sævar Ríkarðsson vegna rafvirkja í síma 432 0297 / 860 6197
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til GT Tækni ehf.
fyrir 6. október merktar:
GT Tækni ehf - Grundartanga - 301 Akranes
Endurmenntunardeild
Landbúnaðarháskóla
íslands
Járningar og
hófhirðing
Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari
17.-18. október- Mið fossar
Mikið um að vera á opnu húsi SMV
Vika símenntunar var í liðinni
viku. Af því tilefni bauð starfsfólk
Símenntunarmiðstöðinni á Vestur-
landi fólki að kíkja við í heimsókn á
nýrri skrifstofu miðstöðvarinnar á
Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, skoða
húsnæðið og kynna sér starfsemi
Símenntunarmiðstöðvarinnar. Af
þessu tilefni kom Finnbjörn Her-
mannsson, formaður Samiðnar í
heimsókn og fjallaði hann um
mermtun í atvinnulífinu. Guðjón
Brjánsson, formaður stjórnar
Símenntunarmiðstöðvarinnir opn-
aði nýja og endurbætta heimasíðu
SMV sem er sem fyrr á slóðinni
www.simenntim.is
Boðið var upp á kræsingar ffá
Kaffi Paradís í Munaðarnesi, en
Asta Stefánsdóttir eigandi staðarins
er m.a. með námskeið á vegum
Starfsmenn Símennntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi.
SMV á haustönn sem nefnist „Létt-
ir réttir í matargerð." Einnig mætti
Ragnheiður af Skaganum með
sýnishorn af íslenska jólasveininum,
en hún verður með námskeið á
Akranesi á aðventunni í framleiðslu
jólasveina. Margrét heilsunuddari
mætti einnig á svæðið með „ferða-
nuddbekkinn“ sinn og gafst gestum
tækifæri á að fá slökunarnudd. MM
----- --_— ——--- ; : ^
Tilboðsdagar í
föstudag, laugardag og sunnudag
Nestið Esjubraut
ís í brauðformi
fvrir
Með hverri pylsu
fylgir í dós
(venjuleg eða light)
60% afsláttur á sælgætishar
BB
Konur og búvélar
Grétar Einarsson bútæknifræðingur
24.-25. október - Hvanneyri
Skráningar á www.lbhi.is
eða í síma 433 5000
V
J
fiairi söguf Jj/ sugrzinifi
Út er kominn annar hljómdiskur
Bjartmars Hannessonar ó
Norðurreykjum Fleiri sögur úr
sveitinni.
Diskurínn fæst ó eftirtöldum stöðum:
Borgorsport Borgornesi,
Baulan Stafholtstungum,
Vegbitinn Reykholtsdal,
Hdrskerínn Akranesi,
Norðurreykjum Hólsasveit.
Einnig má panta diskinn í síma 435-1219
og verður hann þá póstsendur um hæl.