Skessuhorn - 04.10.2006, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006
Hausar sviðnir í Dölunum
Þegar húmar að hausti rennur upp tími slátursins og
sviðakjammanna. Um þessar mundir er verið að svíða
hausa í Sláturhúsinu í Búðardal af miklum móð. Engin
slátrum fer nú ffam í húsinu, eins og fram hefur komið, en
Kaupfélag Skagfirðinga hefur húsakynni sláturhússins á
leigu og rekur þar stórtæka svíðingu á hausum. Eftir að
svíðingu lýkur verður farið að saga niður frosið kjöt. Gunn-
ólfur Lárusson, sveitarstjóri í Dalabyggð, sagði í samtali við
Skessuhom að það vantaði fólk í vinnu, bæði við að svíða
og saga niður. „Svo virðist sem Islendingar kæri sig ekki um
að vinna við þetta. Hjá okkur eru átta Pólverjar í virmu og
þrír úr Dölunum,“ segir Gunnólfur og hvetur alla þá sem
vantar atvinnu til að snúa sér til sláturhússins.
-KOP/ Ijósm. Bjöm A Einarsson.
Ráðningarsamningar skólastarfs-
fólks verði ótímabundnir
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur
fahð skólastjóra Kleppjámsreykja-
skóla og Andakflsskóla, í samráði við
fræðslustjóra sveitarfélagsins, að
gera tillögu að breyttu ráðningaríyr-
irkomulagi starfsfólks við skólann.
Þetta var ákveðið í kjölfar óskar sem
barst frá Stéttarfélagi Vesturlands. I
bréfi sem Sveinn Hálfdánarson, for-
maður félagsins ritaði skólastjóran-
um er óskað eftir því að gerðir verði
ótímabundnir ráðningarsamningar
við starfsfólkið frá og með nýbyrj-
uðu skólaári. I samningunum verði
kveðið á um starfstíma hvers árs og
þar með launatímabil hvers árs.
Starfstíminn verði skólaárið og
hvoragur aðih eigi nokkurt tdlkall til
hins aðilans annan tíma almanaks-
ársins, nema um annað semjist milli
aðila.
I bréfi formannsins kemur ffarn
að félagið lítd svo á að fyrirkomulag
þetta hafi í ratm tíðkast í skólanum
um árabil. Starfsfólk hafi tafið sér
það skylt að mæta við upphaf skóla-
árs og skólastjóri talið það sjálfgefið
að fólk mætti til sinna starfa að
hausti. Einnig hafi starfsfólkið áunn-
ið sér öll þau réttindi sem ótíma-
bundin ráðning gefur. Því telji félag-
ið sjálfsagt að óska nú efrir að ffarn-
vegis verði ótímabundnir samningar
gerðir við starfsfólk sem miðist við
upphaf ráðningarsambands viðkom-
andi starfsmanns. HJ
SSVviUaðríkiðsjái
um tónlistamám á
firamhaldsskólastigi
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi (SSV) samþykktu á aðalfundi
sínum fyrir skemmstu ályktun um
að eðlilegt væri að ríkið stæði
straum af tónlistarnámi á fram-
haldsskólastigi. Þá var lögð áhersla
á að endurskoða samning ríkis og
sveitarfélaga vegna tónlistarnáms á
framhaldsskólastigi í því skyni.
Fundurinn samþykkti einnig álykt-
un þar sem stofnun Menntaskóla
Borgarfjarðar var fagnað og því
spáð að hún hefði mikil áhrif á
byggðaþróun og mundi efla
menntun í Borgarfirði og nágrenni
enn ffekar.
Þá var ffábæram viðtökum sem
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur
fengið fagnað og lögð áhersla á
áframhaldandi öflugan stuðning
við Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Hvatt var til að sérstök á-
hersla yrði lögð á eflingu iðnnáms
við FVA og skoraði aðalfundurinn
á stjórnvöld að koma með myndar-
legtun hætti að þeirri uppbyggingu
við skólann.
Þá benti aðalfundurinn á mikil-
vægi öflugra símenntunarmið-
stöðva og taldi Símenntunarmið-
stöð Vesturlands löngu hafa sannað
gildi sitt. Fundurinn áréttaði mikil-
vægi þess að ríkið styðji myndar-
lega við þennan lið fullorðins-
ffæðslu og sí- og endurmenntunar.
Einnig var fagnað menningar-
samningi milh ríkis og sveitarfélaga
á Vesturlandi. Samningurinn sýni
glögglega að mikið og blómlegt
menningarlíf sé á Vesturlandi og
megi nú þegar sjá jákvæð áhrif hans
á svæðinu. -KÓP
Fyrir stuttu héldu stöllumar ísfold Grétarsdóttir og Sigríður Asta Olgeirsdóttir,
ásamt Hönnu Agústu Olgeirsdóttur tombólu í Hymutorgi íBorgamesi. Tombólan
var til styrktar krabbameinssjúkum bömum og söfnuðust kr. 5.150. Hugmyndina
átti Isfold ogfékk vinkonu stna Sigríði Astu með sér og Hanna Agústa aðstoðaði
þær við sóluna. MM
Menning, spenning - fyrir hvem?
Menningarráð Vesturlands og Háskólinn á Bifröst
boða til ráðstefnu um menningu á Vesturlandi
A Vesturlandi hefur menning
blómstrað allt ffá landnámi og eiga
fáir landshlutar jafn sterka menn-
ingararfleifð. I dag stunda mynd-
listarmenn og handverksfólk vinnu
sína í héraði, starfræktir eru
kröffugir tónlistarskólar, söngstarf
og ritlist blómstrar og svo mætti
lengi telja. En til hvers er menning
eiginlega og hvaða hlutverki gegnir
hún í samfélagi eins og á Vestur-
landi? Hvers virði er menning og er
virkilega hægt að hagnast af henni?
Þetta era nokkrar af þeim spurn-
ingum sem fjallað verður um á ráð-
steftiu um menningu á Vesturlandi
sem haldin verður á Bifföst af til-
stilli Menningarráðs Vesturlands
og Háskólans á Bifröst laugardag-
inn 14. október nk.
Á málþinginu mun Njörður Sig-
urjónsson, doktorsnemi við City
University í London og lektor við
Háskólann á Bifföst halda fyrirlest-
ur og stýra umræðum undir nafh-
inu: Menning, spenning - fyrir
hvem? Kjartan Ragnarsson mun
fjalla um stofiiun og rekstur Land-
námssetursins. Bárður Orn Gunn-
arsson, markaðsstjóri VIS mun
fjalla um af hverju fyrirtæki eigi að
styrkja menningu og Elísabet Har-
aldsdóttir mun kyrma Menningar-
ráð Vesturlands.
Tónlist, myndlist og listhandverk
verður stór hluti ráðstefnunnar og
verða styrkþegar Menningarráðs
áberandi. Nemendur úr Grunda-
skóla á Akranesi flytja tónlist en þau
hlutu styrk fyrir verkefriið Ungur
gamall. Þá mun Elísa Vilbergsdótt-
ir, sópransöngkona flytja nokkur
lög við undirleik Jónínu Ernu Arn-
ardóttur úr Borgarnesi sem einnig
hlaut styrk úr sjóðnum. Þess má
geta að Elísa kemur sérstaklega frá
Þýskalandi vegna þessa viðburðar.
Kjartan Ragnarsson sem kynnir
Landnámssetrið í Borgarnesi og
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
hlutu hæsta styrk Menningarráðs
vegna Landnámssetursins. Mynd-
lista- og listhandverksmenn munu
halda sýningu samhliða ráðstefn-
unni: Páll Guðmundsson frá Húsa-
felli, Lára Gunnarsdóttir úr Stykk-
ishólmi, Snjólaug Guðmundsdóttir
ffá Brúarlandi, Dýrfinna Torfadótt-
ir frá Akranesi, Ingibjörg Ágústs-
dóttir ffá Stykkishólmi og Sigríður
Erla Gunnarsdóttir sem kynnir
verkefni unnin úr Búðardalsleir.
Málþingið hefst kl.10 og stendur
til 16. Það er opið öllu áhugafólki
um menningu. Ráðstefhugjald er
2.500 kr. og innifalið er hádegis-
matur og kaffi. Skráning fer fram á
heimasíðu Biffastar www.bifrost.is,
á netfanginu bifrost@bifrost.is eða í
síma 433 3000.
Nánari upplýsingar veitir Elísa-
bet Haraldsdóttir, menningarfull-
trúi Vesturlands í síma 8925290 eða
á menning@vesturland.is
MM
Hótel HeUissandur opið í vetur
Hótel Hellissandur á Hell-
issandi verður opið í vetur. Þar
með bætist eitt gott hótel við á
Vesturlandi sem býður upp á
þjónustu allt árið. Jón Arnar
Gestsson hefur tekið að sér rekst-
urinn á komandi vetri og stefnir
hann að því að hefja starfsemi á
hótelinu um miðjan október, en
til þess tíma er hægt að hafa sam-
band við hann í síma 899-7171.
Hótelið mun í vetur bjóða upp á
alla almenna hótelþjónustu.
MM
Hótel Hellissandur.
Samkomulag í
deilu VLFA og
fiskvinnslufyrirtækis
Deilu Verkalýðsfélags Akraness
(VLFA) og fiskvinnslufyrirtækis á
Akranesi er nú lokið með þeirri
niðurstöðu að fyrirtækið hyggst
ekki láta taxtaviðauka sem VLFA
og Samtök atvinnulífsins sömdu
um hafa áhrif á bónusgreiðslur. I
því samkomulagi gert ráð fýrir
fastri krónutöluhækkun á laun
þeirra sem fá greidd laun sam-
kvæmt taxta kjarasamninga. I því
felst að þeir sem eru yfirborgaðir
hjá vinnuveitanda sínum áttu ekki
rétt á viðbótargreiðslunni. Fyrir-
tækið taldi sig því hafa heimild til
að lækka fastan bónus, sem hluti af
starfsmönnum hefur haft um
áraraðir, til jafhs við þá hækkun
sem um var samið.
VLFA mótmælti þessari gjörð og
líkt og Skessuhorn greindi ffá var
fyrirhugað að fara með málið fyrir
Félagsdóm í ágúst. Nú hefur fyrir-
tækið fallist á að greiða starfs-
mönnum eftír umræddum taxtavið-
auka með sama hætti og Verkalýðs-
félag Akraness lagði til við fyrir-
tækið í byrjun. -KÓP
Síðustu laxamir
komnir á land
Nú er laxveiði að ljúka á þeim
svæðum sem enn eru opin fyrir
stangaveiði, en síðustu ánum var
lokað 30. september. Lokatölur
eru víðast hvar komnar í hús. Sum-
arið í heild er að skila um 15 þús-
und færri löxum en í fyrra, en geta
verður þess að þá var metveiðiár.
Undantekning er þó í tilviki
Rangánna þar sem veiði verður
stunduð í október. Þrettán lax-
veiðiár á landinu náðu þúsund laxa
markinu að þessu sinni. Þetta era
niðurstöður samkvæmt vef Lands-
sambands Veiðifélaga á;
www.angling.is. I lok vertíðar í
fyrra höfðu til samanburðar að
minnsta kosti sautján laxveiðiár
náð þessu marki.
Hítará á Mýrum endaði í 554
löxum og gaf aðalsvæðið 414 laxa.
Haffjarðará gaf 1049 laxa og
Straumfjarðará endaði í 502 löx-
um. I Núpá togaðist upp eitthvað
af laxi og einnig á Vatnasvæði
Lýsu.
Þegar allt hefur verið talið í
Norðurá er áin í 2285 löxum.
Þverá endaði í 2176 löxum, Flóka-
dalsá í 438 löxum, Grímsá og
Tunguá í 1118 löxum, Reykjadalsá
í 124, Andakflsá í yfir 250 löxum,
Gljúfurá í 187 löxum, Laxá í Leir-
ársveit í 700 löxum og Laxá í Kjós
1023 löxum.
I Dölunum er staðan sú að
Hvolsá og Staðarhólsá gáfu 170-
180 laxa, Krossá 187 laxa, Fáskrúð
178 laxa, Laxá í Dölum 1100 laxa
og Miðá 230 laxa. GB