Skessuhorn - 04.10.2006, Side 15
á«kÉÍ$sim©í£R[
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006
15
Fiskbúð opnar innan
skamms á Akranesi
Hjánin Jóhannes og Herdís í dyrum v<entanlegrar
verslunar.
Að öllu óbreyttu mun
fiskbúð opna innan tíðar á
Akranesi. Það eru hjónin
Herdís Þórðardóttir og
Jóhannes Ólafsson sem
standa munu að verslun-
inni og verður hún til húsa
í húsnæði fyrirtækis
þeirra, Fiskverkun Jó-
hannesar Ólafssonar að
Ægisbraut 29 á Akranesi.
Þótt ótrúlegt sé þá mun
fiskbúð ekki hafa verið
starfrækt um árabil á Akranesi og
eftdr því sem næst verður komist er
engin fiskbúð starfandi á vestur-
hluta landsins frá Reykjavík til
Siglufjarðar.
I samtali við Skessuhorn segir
Herdís að nokkrar breytingar hafi
orðið á starfsemi fyrirtækisins að
undanförnu og meðal annars hefði
það dregið sig út úr útgerð. í kjöl-
far þess hafi ýmsir möguleikar ver-
ið ræddir í rekstri og niðurstaðan
orðið sú að taka hluta húsriæðis fyr-
irtækisins undir fiskbúð og vinna
iðnaðarmenn nú hörðum höndum
að innréttingu húsnæðisins. „Um
leið og það spurðist út að við
stefridum á opnun fiskbúðar höfum
við fengið afar jákvæð viðbrögð
sem sanna að það hefur lengi verið
beðið eftír þjónustu sem þessari
hér á Akranesi. Við ætlum að vanda
til verka og bjóða neytendum eins
fjölbreytt úrval fiskteg-
unda og fiskrétta og
mögulegt er. Nútíminn
með hraða sínum vill
meira unna rétti og við
munum mæta þeim kröf-
um ásamt því að sinna
þeim sem vilja gefa sér
meiri tíma við matreiðsl-
una“ segir Herdís.
Ekki er ákveðið hvenær
verslunin opnar en að
sögn Herdísar er stefnt að
því að það geti orðið í
kringum næstu mánaðamót. Fyrir-
tækið hefur um langt skeið sinnt
þörfum mötuneyta fyrirtækja og
stofiiana og mun gera það áfram.
HJ
Múrarar að stórfum í húsnœðinu.
A undanfómum vikum hefur hin nýja verslunarmiðstóð risið á miklum hraða. Það eru
nágrannar hennar, íbúar við Dalhraut og Esjuvelli sem hafa krafist hljóðmanar til að
minnka sem kostur er truflun af völdum umferðar við miðstöðina.
Samþykkt að koma upp
hljóðmön við Miðbæjarreit
Bæjarráð Akraneskaupstaðar
samþykkti á fundi þann 28. sept-
ember að fela sviðsstjóra tækni- og
umhverfissviðs að gera tillögu um
grjót- og jarðvegsmön við lóða-
mörk Miðbæjarreitar annars vegar
og Esjuvalla og Dalbrautar hins
vegar. Líkt og Skessuhorn greindi
ffá sendu íbúar í tveimur umrædd-
um götum undirskriftalista til bæj-
aryfirvalda í maí síðastliðnum, þar
sem hljóðmanarinnar var krafist.
Fundað var með lóðarhöfum um
málið strax í vor.
Þann 12. september ítrekuðu
íbúarnir kröfur sínar í bréfi til bæj-
arráðs. Þar að auki kröfðust þeir
þess að innkeyrsla frá Kalmans-
braut yrði færð eins mikið og hægt
væri í vesturátt á lóð í eigu bæjar-
ins. Bílastæði við húsið yrði fært til
þannig að innkeyrsla á það yrði
eingöngu meðfram verslunarhús-
næðinu. Einnig var þess krafist að
komið yrði í veg fyrir möguleika á
gegnumakstri milli Dalbrautar og
Kalmansbrautar.
Eins og fyrr var greint frá sam-
þykkti bæjarráð á fundi sínum, sem
haldinn var á Hótel KEA vegna að-
alfundar Samtaka sveitarfélaga, að
reisa mönina. Að auki samþykkti
bæjarráð að fela sviðsstjóranum að
kanna möguleika á því að vegur
liggi vestan bílastæða við norður
innkeyrslu á reitinn. Ekki er minnst
á kröfuna um að koma í veg fyrir
gegnumakstur. Ibúar hverfisins
hafa áhyggjur af því að verði hann
heimilaður muni umferð aukast til
muna og menn muni keyra í gegn-
um hverfið til að losna við umferð-
arljós.
Þorvaldur Vestmann, sviðsstjóri
tækni- og umhverfissvið, sagði í
samtali við Skessuhom að verið
væri að finna lausn sem mundi
stuðla að sæmilegum friði um mál-
ið. Hann sagði mönina þurfa að
vera nokkuð bratta og því hefðu
verið uppi hugmyndir um timbur-
hljóðmön. Ibúar hafa hins vegar
mótmælt þeirri hugmynd og krafist
þess að um jarðvegsmön verði að
ræða. Þorvaldur segir að menn hafi
rekist á athyglisverða hugmynd
austur á Egilsstöðum. „Þar em þeir
með torfhleðsluvegg sem búinn er
til úr þökurenningum. Hann getur
staðið bísna bratt og er fyrir vikið
nokkuð skemmtileg hugmynd."
-KÓP
Geisladiskur seldur til söfiiunar
fyrir Ama Ibsen
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar sl. fimmtudag var lagt ffarn
erindi um styrkbeiðni frá Kára
Árnasyni. Kári er tónlistarmaður
og hyggur á útgáfu geisladisks. All-
ur ágóði af sölu disksins rennur í
sjóð til handa Árna Ibsen, föður
Kára. Ámi fékk alvarlegt heilablóð-
fall fyrir rúmum tveimur ámm síð-
an.
Árni Ibsen er öllu áhugafólki um
menningu að góðu kunnur, ekki síst
Skagamönnum. Hann er Akurnes-
ingur og hefur komið að ýmsum
menningarviðburðum í bænum og
hefur einnig fjallað um Skagann í
útvarpsþáttum. Hann hefur verið
sjálfstætt starfandi leikritaskáld og
rithöfundur síðan 1995.
I umsókninni var óskað eftir
styrk upp á 200 þúsund krónur til
þess að verkeftiið gæti orðið að
vemleika. Bæjarráð samþykkti að
fela bæjarstjóra að afgreiða erindið,
en áður hafði menningar- og safna-
nefrid mælt með erindinu. Gísli S.
Einarsson bæjarstjóri sagði í sam-
tali við Skessuhorn að eftir ætti að
ganga ffá afgreiðslunni endanlega.
Líklega yrði verkefnið þó styrkt
þannig að ákveðinn fjöldi geisla-
diska yrði keyptur, sem næmi upp
undir 100 þús. krónum. KÓP
r
Einstakt umhverfi,
metnaðarfull matargerð
og bráðskemmtileg dagskrá.
Sveit-Ungarnir sjá um frábæra tónlistardagskrá og halda uppi brosmildri stemningu.
Jólafjöldasöngur undir stjórn Valda í Brekkukoti og Bjarna Guðmundsonar frá Hvanneyri.
Tónmilda ísland einstök og hrífandi sýning um íslenska tónlist og náttúru.
Tröllafossar upplýstir og heilsað upp á tröllskessuna í klettinum
Jólahlaðborð matseðill
Forréttir: • Hátíðarsíld • Jólasíldarsalat • Grafinn lax • Reyktur lax
• Hunangskryddleginn íax • Koníakslax í kryddostahjúpi • Laxamús með
kaviar • Heitreykt gæsabringa • Tvitaðreykt hrátt hangilqöt með suðrænum
ávöxtum • Heimalagað sveitapaté • Heimalagað sviðapaté • Rjúpusúpa
24. og 25. nóvember
l.,2.f 8. og 9. desember
Verð 4.900 kr.
I Aðalréttir: • Hátiðarhangikjöt • Sveitaskinka • Villikryddað jóíatamb
1 • Heilsteiktur fylltur katkúnn • Léttreykt sykursaltað grísalæri
í • Innbakaður lax með spínati og gráðosti • Heitt humar og laxasalat.
5 Meðlæti: • Brún villikryddsósa • Brún gráðostasósa • Hunangsdijonsósa
• Piparrótarsósa • Graflaxsósa • Köld sjávarréttarsósa • Pannerað
rótargrænmeti • Rauðkál • Rauðrófur • Grænar baunir • Maísbaunir
• Ferskt btandað saiat • Waldorfsalat • Kartöflu uppstúfur • Sykurbrúnaðar
kartöflur • Heimatöguð rabbabarasulta • Rifsberjahtaup • Laufabrauð
• Heimabakað rúgbrauð • Heimabakað kanelbrauð
Eftirréttir: • Eptasatat • Súkkulaðiterta hússins • Jólaís • Sörur • Pipaáökur
\______________________________________________________________________
Borðapantanir í síma: 433 5800
Nánarí upplýsingar www.steinsnar.is
FOSSATÚN
Tíminn og Vatnið
upplifðu muninn
Teppi gefa heimilinu hlýlegt yfirbragð.
Þau eru hljóðeinangrandi og mjúk.
Notalegt er að ganga berfættur á teppi og
börn elska að leika sér á teppalögðu gólfi.
Við seljum afar vönduð og endingargóð
teppi úr ull. Teppin okkar eru þægileg,
ofnæmisprófuð og á góðu verði.
Armúla 32 Sími 533 5060
www.stepp.is