Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2006, Side 16

Skessuhorn - 04.10.2006, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2006 Tónlistarfélag Borgaríjarðar hefur afinælisárið með sveiflu Meðfylgandi mynd er afKrisýönu Stefánsdóttur og Sigurði Flosasyni, listamönnum sem fram koma áfyrstu tónleikunum á starfsárinu, þann 12. okt. á Hamri. Sá sem er lenst til vinstri er Aðalsteinn Asberg en mikið af tónlistinni er samið við ijóð hans Frekara starf á afmælisári Tónlistarfélag Borgarfjarðar hef- ur nú sitt fertugasta starfsár með djasstónleikum sem haldnir verða á Hótel Hamri fimmtudagskvöldið 12. október næstkomandi og hefjast klukkan 20.30. Það eru söngkonan Kristjana Stefánsdóttir og kvartett Sigurðar Flosasonar sem þar koma fram. Auk Kristjönu og Sigurðar, sem leikur á saxófón, eru í hljóm- sveitinni þeir Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Valdimar K. Sigur- jónsson kontrabassaleikari og Pétur Östlund trommuleikari. Þessi hópur tónlistarmanna sendi nýverið ffá sér tvöfaldan geisladisk sem ber titilinn „Hvar er tunglið?“ og hefur að geyma 24 frumsamin lög Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Asbergs Sigurðssonar. Mun það vera fyrsti tvöfaldi geisla- diskurinn hérlendis með nýrri djasstónlist og þar með stærsta framlag til sunginnar íslenskrar djasstónlistar frá upphafi. I gagn- rýni í Morgunblaðinu talaði Vern- harður Linnet m.a. um „...söng- perlur, stórvirki og frjóa og skap- andi tónhugsun.“ Kvartett Sigurðar Flosasonar hefur gert víðreist og m.a. farið til Japans og Kanada á undanförnum mánuðum, en geisladiskur hans Leiðin heim, sem kom út á síðasta ári hlaut Islensku tónlistarverð- launin 2005 í flokki djasstónlistar. Kristjana Stefánsdóttir hefur einnig sungið víða og geisladiskurinn Eg um þig sem hún sendi ffá sér sl. haust hlaut á dögunum frábæra dóma í tímaritinu All About Jazz. Tvennir tónleikar til viðbótar eru fyrirhugaðir fyrir jól. A hinum fyrri, sem haldnir verða í Reyk- holtskirkju fimmtudaginn 16. nóv- ember, munu þeir Jónas Ingimund- arson píanóleikari og Kristinn Sig- mundsson söngvari gleðja eyru hlustenda. Seinni tónleikarnir eru svo hinir hefðbundnu aðventutón- leikar Tónlistarfélagsins sem um árabil hafa verið haldnir í samvinnu við Borgarfjarðarprófastsdæmi og Reykholtskirkju á laugardegi fyrir fyrsta sunnudag í aðventu en í ár ber tónleikadaginn upp á 2. desem- ber. Kammerkór Vesturlands og einsöngvarar munu þar ásamt hljóðfæraleikurum flytja metnaðar- fulla hátíðardagskrá. Dagskrá seinni hluta starfsársins liggur ekki endanlega fyrir en þó er rétt að geta þess að í tilefhi 40 ára afmælis félagsins hefur verið ákveð- ið að halda veglega afmælistónleika sumardaginn fyrsta. Þar koma fram listamenn sem eiga rætur að rekja til Borgarfjarðar og frumflytja m.a. nýtt tónverk eftir ungt íslenskt tón- skáld. Félagsgjaldi er stillt í hóf; það er 4500 krónur og hefur ekki hækkað frá síðasta ári. Fyrir þessa upphæð fá félagar aðgang fyrir tvo að öllum tónleikum starfsársins. Tónleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar eru þó öllum opnir og er almennt miðaverð 1500 krónur en náms- menn og eldri borgarar eiga þess kost að fá miða á 1000 krónur. Ókeypis er fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd fullorðinna. Tónlistarfélag Borgarfjarðar stendur í mikilli þakkarskuld við fé- laga sína og aðra velunnara fyrir tryggð og stuðning sl. 40 ár. Það er von stjómar félagsins að sem flestir geti sótt tónleikana á afmælisári. Núverandi stjórn Tónhstarfélags Borgarfjarðar skipa Anna Guð- mundsdóttir Borg, Jónína Eiríks- dóttir Kleppjárnsreykjum, Margrét Guðjónsdóttir Hvassafelli, Stein- unn Arnadóttir Borgarnesi og Steinunn Ingólfsdóttir Hvanneyri. ('fréttatilkynning) Kvennakór Garoabæjar syngur í Reykholti Laugardaginn 7. október næst- komandi heimsækir Kvennakór Garðabæjar hinn sögufræga stað Reykholt í Borgarfirði og heldur tónleika í Reykholtskirkju kl. 17.00. Efnisskrá tónleikanna verður afar fjölbreytt með íslenskum og er- lendum verkum ffá öllum tímum. Ahersla verður þó lögð á íslensk þjóðlög og sönglög m.a. eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigur- björnsson, Mist Þorkelsdóttur, Tryggva M. Baldvinsson og Hildig- unni Rúnarsdóttur. Stjórnandi er Ingibjörg Guðjónsdóttir en píanó- leikari er Helga Laufey Finnboga- dóttir. Tónleikarnir em liður í nor- rænni ráðstefnu sem fram fer í Reykholti þessa daga en tónleikarn- ir em að sjálfsögðu öllum opnir. Aðgangseyrir er 1000 kr. Kvennakór Garðabæjar var stofnaður í september árið 2000. Stjórnandi og jafnframt stofnandi er Garðbæingurinn Ingibjörg Guð- jónsdóttir, sópransöngkona. Kórfé- lagar em nú um 40 talsins. Kórinn er orðinn einn af menningarstólp- um Garðabæjar en frá stofnun hef- ur hann auðgað menningarlíf Garðabæjar og nágrennis. Nánar má fræðast um kórinn á heimasíðu hans www.kvennakor.is. Kvennakór Garðabæjar hlakkar mikið til dags- ins og vonast eftir að sem flestir mæti á tónleikana og njóti kór- söngsins í einni hljómfegursm kirkju landsins. ('fréttatilkynning) Á komandi vori verður gengið til al- þingiskosn- inga. Þrátt fyr- ir að núver- andi ríkis- stjórnarflokkar hafi staðið sig vel í að skapa hér aðstæður fyrir áður óþekkta velmegun, þá mun árangur í fortíð ekki vera nægilegt farteski í þeirri hörðu kosningabaráttu sem framundan er. Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn samfellt ffá árinu 1991 og flokkurinn á mikið verk fyrir höndum ef honum á að takast að tryggja sér áframhaldandi umboð til forystu frá þjóðinni. Flokkurinn hefur gengið í gegnum farsæla end- umýun í forystunni. Því til viðbót- ar þarf Sjálfstæðisflokkurinn að ganga í gegnum ákveðna hug- myndafræðilega endurnýjun. Ekki svo að skilja að hann þurfi að hverfa Að svara kalli tímans frá stefúu sinni í neinum mála- flokki, áherslan á frelsi einstak- lingsins tdl orðs og athafna er ávallt farsælust. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að beita sér á fleiri sviðum, þannig að góður árangur náist þar eins og í þeim málaflokkum sem flokkurinn hefur beitt sér hvað mest að. Sjálfstæðisflokkurinn á að krefjast þeirra ráðherraembætta sem hafa verið í höndum vinstri manna of lengi, verði hann í áfram í ríkisstjóm. Ég hef verið þeirrar skoðunar að ungt fólk í Sjálfstæðisflokknum sé vel til þess fallið að taka næstu skref, takast á við næstu verkefúi og koma ffam með þær lausnir sem nýir tímar kalla á. Það er mér sem fyrrverandi formanni ungra sjálf- stæðismanna á Akranesi því á- nægjulegt að núverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, Borgar Þór Einarsson, skyldi lýsa því yfir um helgina að hann gæfi kost á sér á lista Sjálfstæðisflokkins í Norðvesturkjördæmi. Fáum treysti ég betur til þeirra verkefúa sem ffamundan em. Sem betur fer ætlar ungt fólk og fólk sem ekki hefur áður haft opin- ber afskipti af stjórnmálum að láta til sín taka í Sjálfstæðisflokknum í fleiri kjördæmum. I vor munu ganga að kjörborðinu þúsundir ungmerma sem ekki vom komin í grannskóla þegar Sjálfstæðisflokk- urinn tók við forystu landsmála. At- kvæði þeirra koma til með að skipta miklu máli. Þetta unga fólk mun ekki spyrja um árangur í fortíð, það mun spyrja um næstu verkefni og lausnir við þeim. Það er von mín að sjálfstæðismenn í Norðvesturkjör- dæmi sem og annars staðar beri gæfu til þess að svara kalli tímans. Asgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, fyrrverandi formaður Þórs, félags ungra sjálfstæðismanna á Akranesi. „Lesiðfyrir börnin “ hefst á Bókasafninu á Akranesi miðvikudaginn 4. október klukkan 17. Hér er Hafdís með fríðum hópi bama í Sögustund. Sögustundir í breyttri mynd Sögustundir fyrir börn hafa ver- ið við haldnar á Bókasafni Akra- ness í nærri tuttugu ár, eða síðan í október árið 1987. Þá byrjaði Hafdís Daníelsdóttir bókavörður að vera með sérstakar sögustundir yfir vetrarmánuðina, fyrir börn á aldrinum 3ja til 6 ára. I mörg ár vora stundirnar tvær á miðviku- dögum í hverri viku, fyrir og eftir hádegi. „Þegar ég fór fyrst að kynna mér sögustundir á bóka- söfnum í Reykjavík var þátttaka barna frekar dræm þar og á einu safninu sem ég fór á mætti ekkert barn. Því þorði ég nú ekki að vona að þetta myndi ganga eins vel og raun varð hér hjá okkur.í fjölda ára vom það að jafnaði 17 til 20 börn sem komu hingað til mín í sögust- undir en undanfarin ár hefur þeim fækkað og nú er svo komið að breytinga er þörf,“ sagði Hafdís í samtali við Skessuhorn. Síðastliðinn vetur voru 3 til 4 börn sem komu að jafnaði. „I vet- ur ætlum við að brydda upp á ný- ung í safninu, en þá hefst hjá okk- ur stund sem við köllum „Lesið fyrir börnin.“ Þá ætla ég að setjast í gamla góða sögustólinn minn, á miðvikudögum klukkan 17 og lesa upp úr einhverri nýlegri barnabók og öllum er velkomið að koma og hlusta, sama á hvaða aldri hlust- endur em. Nú ef einhverjir fleiri hafa áhuga á að lesa fyrir börnin, eins og skáld sem hafa gefið út barnabækur eða eitthvað slíkt, þá er velkomið að koma og lesa eða deila með börnunum uppáhalds sögtmni sinni,“ sagði Hafdís um nýju sögustundina á safninu. Hafdísi dreymir um að ungir foreldrar komi í auknum mæli með börn sín á bókasafnið og leyfi þeim að skoða bækur og að fjöl- skyldan njóti þess saman sem safn- ið hefur upp á að bjóða. „Börn eru stór hluti af við- skiptavinum okkar og höfum við ávallt lagt alúð við að sinna þess- um hópi. Það er von okkar bóka- varða að þau og forráðamenn þeirra kunni að meta þessa ný- breytni og komi og hlusti á góða sögu,“ sagði Hafdís að lokum. Þess má geta að þó sögustund- um fyrir 3ja til 6 ára börn sé lokið, þá er bókasafnið í góðu samstarfi við leikskólana og koma leikskóla- börn á þessum aldri reglulega í heimsóknir í safnið. Með þessum heimsóknum kynnist barnið bóka- safninu í sinni heimabyggð og grundvöllur lagður að notkun barnsins á bókasöfúum. SO Kreíjast sama þjónustustigs símafyrir- tækjanna um allt land Þess er nú minnst með ýmsum hætti að Islendingar hafa notið tal- símaþjónustu í eitt hundrað ár. Síminn var frá upphafi í sameigin- legri eigu þjóðarinnar og rekin sem almannaþjónustufyrirtæki í þágu allra landsmanna þar til hann var einkavæddur. I tíð núverandi ríkis- stjórnar var fyrirtækið einkavætt og selt fyrir á sjötta tug milljarða króna. Þingmenn Vinstri hreyfingar- innar græns framboðs hafa af því áhyggjur að einungis á þéttbýlustu svæðum landsins sé samkeppnin að virka neytendum til hagsbótar, en hinar dreifðari byggðir sitji eftir. Segja þeir að nú gæti þeirrar tilhn- eygingar símafyrirtækja að einblína á þjónustu við þéttbýlustu svæði landsins, en hinar dreifðari byggðir látnar gjalda þess að vera ekki hag- kvæmar stærðir samkvæmt mark- aðslögmálum þar sem viðmiðin em arðsemiskrafa og gróðahyggja. „Þingmenn Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs vöruðu sterklega við því að sú einkavædda einokun eða í besta falli fákeppni sem búin yrði til með einkavæðing- unni myndi koma niður á neytend- um. Það hefur nú komið á daginn. Gjald fyrir t.d. gsm þjónustu hefur stórhækkað ffá því sem var fyrir einkavæðingu Símans eða um 40% frá 2002 meðan sambærileg þjón- usta lækkar í nágrannalöndum okk- ar. Þingflokkur Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs krefst þess að litrið sé á allt landið sem eina heild í þjónustustigi og gjaldtöku í fjarskiptum. Fyrirtækjum í fjar- skiptum með markaðsráðandi stöðu verði gert skylt að bjóða við- skiptavinum sínum sama þjónustu- stig á sömu verðum um allt land. I svo stóm og dreifbýlu landi verður aldrei hægt að skapa það sam- keppnisumhverfi í fjarskiptum að markaðsöflin ein tryggi að allir sitji við sama borð. Stjórnvöld verða því að gera þær ráðstafanir sem nauð- synlegar em til þess að tryggja jafú- rétti landsmanna að þessu leyti,“ segir í niðurlagi tilkynningar þing- flokks VG. MM

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.