Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Side 4

Skessuhorn - 31.10.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006 Fimm um skrif- stofustjórastöðu GRUNDARFJÖRÐUR: Fimm umsóknir bárust um stöðu skrifstofustjóra Grundar- fjarðarbæjar en núverandi skrif- stofustjóri Björn Steinar Pálma- son sagði stöðunni lausri á dög- unum. Umsækjendur eru Björn Kristjánsson Reykjavík, Gunnar Pétur Garðarsson Isafirði, Helga Hjálmrós Bjarnadóttir Grundarfirði, Indriði Indriða- son Stokkseyri og Þórir Hákon- arson Siglufirði. -hj Bjami umsjónarmaður BORGARNES: Byggðaráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að ráða Bjarna Guðjónsson í Borgarnesi í stöðu umsjónar- manns fasteigna sveitarfélagsins í Borgamesi. Umsækjendur um stöðuna auk Bjama vora Trausti Jóhannsson, Gísli Jóhannsson og Magnús Agnarsson, allir bú- settir í Borgarbyggð. -hj Sumarlokun leikskólans stytt STYKKISHÓLMUR: Bæjar- stjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt með sex samhljóða at- kvæðum að sumarleyfi leikskól- ans í Stykkishólmi verði fjórar vikur samfleytt á næsta ári. I ár var leikskólanum lokað í fimm vikur ffá 7. júh' til 14. ágúst. -hj Leitar tilboða í tryggingar BORGARBYGGÐ: Byggðaráð Borgarbyggðar hefur falið skrif- stofustjóra sveitarfélagsins að bjóða út allar tryggingar sveitar- félagsins og hefur þegar sagt upp öllum samningum sem í gildi vora hjá þeim fjórum sveit- arfélögum sem mynduðu hina nýju Borgarbyggð í vor. Þrjú þeirra, Borgarfjarðarsveit, Hvít- ársíðuhreppur og Kolbeins- staðahreppur voru með trygg- ingar sínar hjá VIS og Borgar- byggð hin eldri var með trygg- ingar hjá Sjóvá. Bæði þessi tryggingarfélög hafa lýst áhuga á áframhaldandi samstarfi og voru tilbúin til þess að ræða við sveitarfélagið um breytingar á samningi. I mirmisblaði sem lagt var fyrir byggðaráð kemur fram að iðgjöld trygginga á ári séu í dag rúmar níu milljónir króna og allir núverandi samn- ingar verða lausir um næstu ára- mót. -hj Hvalveiðum fagnað HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða á fundi í vikunni í síðustu viku ályktun þar sem fagnað er því að hval- veiðar skuli vera hafhar á ný. Hvalstöðin í Hvalfirði er sem kunnugt er innan Hvalfjarðar- sveitar. -hj AUir vilja að Hvalfj arðarsveit eigi skóla Á síðasta fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar var lögð fram hugmynd að auglýsingu þar sem kallað yrði eftir hugmyndum að mögleikum í nýtingu núverandi skólamannvirkja sveitarfélagsins að Leirá, verði skólanum fundinn ann- ar staður í sveitarfélaginu, en ítreka skal að ákvörðun um slíkt liggur ekki fyrir. Málið kom ekki til um- ræðu og var ffestað til næsta fundar sveitarstjómar. I samtali við Einar Thorlacius sveitarstjóra kom fram að í hugmyndinni fælist að athuga alla möguleika. Þegar sveitarfélög sameinast eiga þau rétt á fjárfram- lögum til uppbyggingar skóla- mannvirkja. Skólabyggingar á Leirá eru orðnar fjörutíu ára gaml- ar og hluti þeirra byggður sem heimavist. Húsnæðið er því óhent- ugt til núverandi starfsemi en hefur verið lagað að nútímanum með því að breyta herbergjum í kennslu- stofur og annað slíkt. „Það er áhugi á að kanna nýting- armöguleika fasteigna sveitarfélags- ins á Leirá, ef skóhnn yrði fhittur eða ný skólabygging reist,“ hélt Ein- ar áffam. „Málið er hins vegar alls ekki einfalt. Að Leirá eru einnig aðr- ar byggingar eins og leikfimishús og h'til innisundlaug. Allir vilja að Hval- fjarðarsveit eigi skóla, það er bara spuming hvar hann verður staðsett- ur,“ sagði Einar að lokum. BGK Vilja íjölga lögregluþjómun Lögreglufélag Vesturlands fer fram á að lögregluþjónum við sýslumannsembættið í Borgarnesi verði fjölgað um tvo að lágmarki. Lögregluþjónar í Borgarnesi eru tilbúnir að taka á sig kjaraskerðingu til að svo megi verða. Lögreglufélag Vesturlands hefur ályktað á þá leið að lögregluþjónum í Borgarnesi verði fjölgað úr 8 í 10 vegna þess að verkefni hafi aukist til muna á undanfömum árum, um- ferð um umdæmið hafi aukist og íbúum fjölgað. Þá liggur fyrir að fjöldi verkefna á lögreglumann er í mörgum tilfellum mun meiri á lög- regluþjón í Borgarnesi en í sam- bærilegum embættum á lands- byggðinni. m.a. við um umferðar- óhöpp, fíkniefnamál og ölvun- arakstur. MM Nýir rekstraraðilar að Hótel Hellissandi var hótelið rekið undir merkjum Hótel Edda. Jón Arnar kemur ffá Vestfjörðum uppruna- lega, en Katja frá Þýskalandi. I samtali við Skessuhorn sagði Jón Arnar að þau leigðu húsnæðið og yrðu með almenna hótelstarfsemi. Þann 15. október tóku Jón Arnar „Við höfum komið nálægt svona Gestsson og Katja Gniesmer við rekstri áður því við rákum hótelið í rekstri Hótels Hellissands. I sumar Reykjanesi við ísafjarðardjúp. Þetta er smærra í sniðum en við eigum að venjast þaðan en okkur líst mjög vel á allt hér. Fólkið er gott, umhverfið ffábært og húsið nýtt. Hins vegar er þetta ekki annasamasti tíminn í ferðaþjónustunni. Við verðum með jólahlaðborð fýrir jólin og síðan eftir áramótin verða það þorrablót- in. Núna telur fasta starfsfólkið að- eins okkur tvö en höfum eina stelpu sem kemur inn á álagspunktum. Hvað framtíðin ber síðan í skauti sér verður bara að koma í ljós.“ BGK Brjálað að gera í dekkjunum „Það er alveg brjálað að gera. Við bjuggumst reyndar alveg eins við að tömin kæmi fyrr en venjulega vegna hálkunnar sem örlað hefur á undan- farna daga,“ sögðu strákarnir á dekkjaverkstæðinu Hjólbarðavið- gerðin, sem Skessuhorn heimsótti í tilefni þess að í dag, miðvikudag, mega bíleigendur fara að nota nagladekk. ,AIenn eru ekki að taka eins mikið af harðkornadekkjum og var, en sala á nagladekkjum hefur aukist affur, sem kannski gefur falskt öryggi. Svo eru að koma sterkt inn ný gerð sem eru óneglanleg vetrar- dekk,“ sögðu drengirnir og ruku svo í burtu enda fjöldi bíla sem beið þess að fá undir sig nýja barða. BGK Grétar Guðnason í Hjálbarðaviðgerðmm gafsér alls ekki tíma til að líta tipp, enda bjálað að gera í kjölfar jýrstu hálkunnar. Skorrdælingar vilja hafa slökkvilið Hreppsnefnd Skorradalshrepps hefur sent sveitarstjórn Borgar- byggðar bréf og óskað viðræðna um framtíð slökkviliðs Borgar- fjarðardala. Skorradalshreppur, Borgarfjarðarsveit og Hvítársíðu- hreppur áttu aðild að að þessu slökkviliði. Nú eru Borgarfjarðar- sveit og Hvítársíðuhreppur sam- einuð Borgarbyggð þannig að grundvöllur fýrir rekstri slökkvi- liðs Borgarfjarðardala er talinn brostinn. „Við vissum að það ætti að leggja þetta slökkvilið niður og sameina það slökkviliði Borgar- byggðar," segir Davíð Pétursson oddviti Skorradalshrepps í samtali við Skessuhorn. „Því ákváðum við að senda bréf og óska eftir viðræð- um um málið. Það er vilji hrepps- nefndar Skorradalshrepps að vera beinir aðilar að slökkviliði og geta þannig haft áhrif á það hvar slökkviliðsbíll verður staðsettur. I dalnum er mikið af sumarhúsum, eins og fólk veit, og nauðsynlegt að hafa bíl sem er ekki lengra en í tíu kílómetra radíus frá sveitarfé- laginu,“ sagði Davíð. BGK Tvö tilboð bárust í snjómokstur GRUNDARFJÖRÐUR: Al- menna umhverfisþjónustan ehf. í Grundarfirði bauð lægst í snjómokstur í Grundarfirði en bæjarfélagið bauð mokst- urinn út á dögunum. Tilboðs- upphæð miðast við samanlagt tímakaup allra tækja er vinna við verkið og var tilboð fýrir- tækisins að upphæð 13.658 krónur. Einnig barst tilboð frá Kjartani Elíassyni í Grundarfirði að upphæð 14.462 krónur. -hj Endumýtingar- verslun BORGARFJÖRÐUR: Um- hverfisfulltrúa Borgarbyggðar hefur verið falið að kanna jarðveginn fýrir verslun lýrir notaðan fatnað og húsgögn í sveitarfélaginu. Björg Gunn- arsdóttir, umhverfisfulltrúi sagði í samtali við Skessuhorn að ljóst væri að verslun af þessu tagi gæti orðið til þess að efla umhverfisvitund íbú- anna og ýta undir endurnýt- ingu. „Gámaþjónustan í Borgarnesi tekur í dag við fatnaði og kemur honum til Rauða krossins, svo þar er leið til að losna sig við notuð föt. En það er spennandi verkefni að skoða hvort versl- un af þessum toga geti gengið hér,“ sagði Björg. -bgk Tveir hvalir HVALFJÖRÐUR: Skipverj- ar á Hval 9 tókst í gær að veiða tvær langreyðar og síð- degis í gær þegar blaðið var í vinnslu til prentunar var skip- ið á leiðinni til lands með hvalina á síðunni. Um tvo tarfa var að ræða og voru þeir veiddir á svipuðum slóðum og þeir fimm hvalir sem þegar hafa veiðst, eða djúpt út af Snæfellsnesi. Búist var við að Hvalur 9 komi til Hvalfjarðar um níuleytið í morgun. -hj Kvenna- athvarfið fær styrk BORGARBYGGÐ: Byggða- ráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að styrkja Kvenna- athvarfið um 50 þúsund krón- ur til starfsemi ársins 2007. Kvennaathvarfið er rekið af frjálsum félagasamtökum; Samtökum um kvennaathvarf. Fjármuna til rekstursins er aflað með félagsgjöldum og einnig styrkjum, meðal ann- ars frá sveitarfélögum. -hj www.skessuhorn.is Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500 Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.