Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 7
^nuaunu^. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER 2006 7 Neyðarkail frá björgunarsveitum Um næsm helgi, dagana 3.-5. nóvember munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fara af stað með fjáröflun um allt land. Meðlimir sveitanna munu selja lítinn „neyðarkall." Hver neyðarkall kostar 1000 kr. Hagn- aður af söiunni mun renna til sveit- anna og Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og verður hann notaður til að efla og styrkja þjálfun björgun- arsveitarmanna landsins. „I gegnum tíðina hefur almenn- ingur haft mikinn skilning á störf- um björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mann- skap, búnað, tækni og þekkingu. En þrátt fyrir að meðlimir björgunar- sveitanna séu allir sem einn sjálf- boðaliðar er rekstur þeirra dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir bún- að og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti; sölu flug- elda, dósasöfnun, gæsluverkefhum, jólatréssölu og ýmsu öðru. Og nú bætist neyðarkallinn við. Við von- um að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórn- fusu starfi þeirra þúsunda björgun- arsveitarmanna sem eru til taks all- an ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda,“ segir m.a. í tilkynningu frá Lands- björgu. MM Vantar fólk til vrnnu í Búðardal Sögun á lambakjöti á að hefjast í slámrhúsinu í Búðardal þegar nær dregur jólum. Ekki hef- ur gengið vel að ráða fólk í þau störf, að sögn forstöðumanns kjötaf- urðastöðvar KS, sem leigir húsnæði slátur- hússins. Svíðingu á hausum sem verið hefur í húsinu er nú að ljúka. Einungis fékkst einn heimamaður í þau störf, svo átta Pólverjar hafa séð um svíðinguna í haust. Farið er að síga á seinni hluta slámrtíðar og verður því farið í að verka og saga hausana, þegar henni verður lok- ið. Reiknað er með að þeirri vinnu ljúki 3. desember. Búið er að keyra miklu af kjöti til Búðardals sem bíður þar sögunar. Einnig hefur verið rætt um að hægt væri að koma af stað annars konar vinnslu í húsinu, svo sem sviða- sultu- og súrmatsgerð og jafnvel einhverju fleiru. Þetta fer þó allt eftir því hvort fólk fæst til starfans. Að sögn Agústar Andréssonar, for- stöðumanns Kjötafurðastöðvar hjá Kaupfélagi Skagfirðinga er aðal vandinn sá að það vantar fólk til vinnu, því atvinnuástand í Dölum virðist gott. BGK Sýningardagar: 1. sýning: Laugardagur 2. sýning: Þriðjudagur 3. sýning: Föstudagur 4. sýning: Laugardagur 5. sýning: Sunnudagur 4. nóvember 7. nóvember 10. nóvember 11. nóvember 12. nóvember kl. 21.00 kl. 21.00 kl. 21.00 kl. 21.00 kl. 21.00 Tekið er á móti pöntunum eftir kl. 19:30 í símum: 437 0018 (Sólrún) og 437 0031 (Haraldur) Leikdeild Umf. íslendings sýnir í Félagsheimilinu Brún, Bæjarsveit Maður í mislitum sokkurr eftir Arnmund Backman Hótel Barbró Um er að ræða gistihús (870,8 fm) + tæki og innréttingar sem eru í húsnæðinu. I húsnæðinu var rekin veitingasala + hótelrekstur. Á jarðhæð eru 3 salir, húsvarðarherbergi, þvottahús, eldhús og geymslur, síðan eru herbergi á 2. hæð og í risi (12 herbergi). Eignin er staðsett í miðbæ Akraness og er staðsetningin mjög hentug fyrir þennan rekstur. Eina gistihúsið á Akranesi. Ekki í rekstri í dag. Laust til afhendingar strax. Höfðasel 1 Höfðasel 3 Um er að ræða vélaverkstæði byggt 1997 (540 fm) og byggt við 2004 (622,1 fm) samtals 1.162,1 fm. Sem skiptast í vélsmiðju, vélasal, pressuhús og sementssíló á jarðhæð og skriftstofu, geymslur og kaffistofu á millilofti (90 fm). Nýbygging ekki að fullu kláruð, miklir möguleikar með að skipta húsnæðinu niður í minni bil. Var rekstur á einingum til húsbygginga í eldra húsnæðinu (tæki enn til staðar). Góður hlaupaköttur. Góðar innkeyrsludyr. Mjög góður frágangur á öllu. Húsnæði sem hentar fyrir ýmsan atvinnurekstur. Stór leigulóð (5.000 fm). Forsteyptar einingar. Geislahiti. MÖGULEIKI AÐ SELJA HÚSIÐ f SMÆRRI EININGUM, T,D. í RÚMLEGA 100 FM BILUM ÁS í Leirár- og Melahrepp 0PIÐ HÚS Á AKRANESI SUNNUD. 5. NÓV. FRÁ KL. 14-17 Vesturgata 152 Víðigerði 1 Sími 431 4045 Fax 431 4245 Daníel Rúnar Elíasson - löggiltur fasteignasali - Kennitala 660276-0689 ....... ........ Einbýlishús, kjallari, hæð og ris (190 fm).Um er að ræða sérlega fallega eign í rólegri hliðargötu á Akranesi. Byggt var við húsið 1994. Mikið endurnýjað. Fallegur og gróinn garður. Bygginarleyfi fyrir bílskúr. Leikskóli, grunnskóli og fjölbrautaskóli í göngufæri. Draumafjölskylduhús með 5 svefnherbergjum. SKOÐIÐ ÞESSA FALLEGU EIGN OPIÐ FRÁ 14-17 Einbýlishús á 3 pöllum (samtals 166 fm). Þetta er eign sem hefur þá sérstöðu að vera sem nýtt hús eftir víðamiklar breytingar, í grónu og skemmtilegu hverfi þar sem stutt er í bæði grunnskóla og fjölbrautaskóla. Þessi eign er sérlega skemmtileg og vel þess virði að skoða hana. OPIÐ FRÁ 14-17 2 stálgrindarhús (212,5 fm + 205 fm). Fyrra húsið er byggt 1997 (212,5 fm). Einangrað loft enn óklætt. 2 innkeyrsludyr. Steypt plan fyrir framan. Nýrra húsið er byggt 2001 (205 fm). Óeinangrað, stórar innkeyrsludyr, tæki vegna sandblásturs. [ húsnæðunum hefur verið rekstur með sandblástur, stór lóð 5.060 fm. Staðsett rétt fyrir utan Akranes í iðnaðarhverfi. Á lóðinni eru gámar sem nýtast sem skrifstofa, kaffistofa og salerni. LAUST STRAX - VERÐTILBOÐ ! eða útivistaraðila. VERÐ: Jörðin ÁS í Leirár- og Melahreppi milli Akraness og Borganess. Ás er staðsett stutt frá sjó í Melasveit. Jörðin er rúmir 110 ha og þar af ca. 40 hektarar í ræktun (26,2 samkvæmt fasteignamati). Einbýlishús er á tveimur hæðum (139,6 fm), byggt 1938. Önnur hús: fjárhús, hesthús, hlaða og geymslur. Selst án bússtofns, framleiðslukvóta og véla. Ca. 50 mín frá Reykjavík tilvalið fyrir hestafólk 150.000.000 WWW.HAK0T.IS

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.