Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 23
SBESSIÍHÖBSI
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
23
Snæfell bar sigurorð af Þór
Liö Snæfells er í fjórða sæti úr-
valsdeildarinnar í körfuknattleik að
loknum fjórum umferðum eftir sig-
ur á liði Þórs í Þorlákshöfn í Stykk-
ishólmi á mánudagskvöldið. Leik-
menn Snæfells byrjuðu leikinn af
miklum krafti og áttu gestirnir fá
svör þannig að í lok fyrsta leikhluta
var staðan 29:17. Forskotið hélst í
öðrum leikhluta og þeim þriðja
þrátt fyrir að flestir leikmenn Snæ-
fells hefðu fengið tækifæri til þess
að spila í leiknum. Þegar leið á síð-
asta fjórðung leiksins söxuðu
gestirnir á forskotið og þegar tvær
mínútur voru eftir af leiknum var
aðeins tveggja stiga munur á lið-
unum. Þótt ótrúlegt megi virðast
skoruðu liðin ekki þessar tvær
mínútur sem eftir lifðu en á síðustu
sekúndu leiksins skoruðu leik-
menn Snæfells tvö stig.
Af heimamönnum skoraði Ing-
valdur Hafsteinsson mest eða 20
stig, Justin Shouse skoraði 17,
Sigurður Á Þorvaldsson 14 og Jón
Ó. Jónsson 10. HJ
Skallagrímur lagði Hamar/Selfoss
Flestir leikirnir í fjórðu umferð
úrvalsdeildar karla voru spilaðir á
sunnudagskvöld og atti Skalla-
grímur þá kappi við Hamar/Sel-
foss í Borgarnesi og sigraði 85-
69. Leikurinn var sveiflukenndur
og fyrri hlutinn slakur hjá Skall-
grímsmönnum. Boltinn vildi illa
hitta körfuna og varnarleikurinn
ekki sem skyldi. Það var líkt og
Skallagrímsmenn væru stressaðir
og næðu ekki að nýta hin opnu
færi. í seinni hálfleik bitu menn í
skjaldarrendur, vörnin hóf störf og
yfirbragð yfir leiknum varð allt
annað.
Hafþór Gunnarsson var lykil-
maður liðsins í leiknum en einnig
stóðu vel vaktina þeir Sveinn
Blöndal og Pálmi Sævarsson.
HJ
Fjölmennt landsþing LH í Borgarnesi
Eitt fjölmennasta þing sem
haldið hefur verið í Borgarnesi fór
fram sl. föstudag og laugardag
þegar landsþing Landssambands
hestamannafélaga var haldið á
Hótel Borgarnesi. Um 160 fulltrú-
ar hestamannafélaga sátu þingið.
Það voru félagar í hestamannafé-
Ta hlýtur
styrk frá
UEFA
ÍA hefur veriö úthlutað tæplega 1,6
milljónum króna í styrk frá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu sem hef-
ur ákveðið, líkt og áður, að láta
hluta af tekjum Meistaradeildar
UEFA árið 2005 - 2006 renna til fé-
laga í öllum aðildarlöndum sínum.
Greiðslan til íslensku félaganna
skal renna óskipt til eflingar knatt-
spyrnu barna og unglinga, frá
yngstu iðkendum til og með 2. ald-
ursflokks. Verkefnin sem KSÍ legg-
ur áherslu að félagsliðin í landinu
beiti sér fyrir er fjölgun menntaðra
þjálfara hjá félögunum auk nám-
skeiða og knattspyrnuskólum. Öll
félög sem áttu lið í efstu deild árið
2004 fengu sama styrk. KH
laginu Skugga sem voru gestgjaf-
ar á þinginu, sem þótti takast vel.
Þar var m.a. kjörinn nýr formað-
ur LH í stað Jóns Alberts Sigur-
björnssonar sem gegnt hefur for-
mennsku um margra ára skeið.
Hinn nýkjörni formaður er Harald-
ur Þórarinsson bóndi í Laugar-
dælum og fyrrverandi varafor-
maður LH. Haraldur hefur unnið
að félagsmálum hestamanna um
árabil og verið í stjórn LH og for-
maður Sleipnis um tíma.
Jón A Sigurbjörnsson, fráfarandi for-
maður LH flytur skýrslu formanns sl.
föstudag.
MM
Meðal gesta á þingsetningunni voru þeir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra, Ágúst Sigurðsson rektor Lbhí og Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka íslands.
Helgi Dan gefur þúsund merki
til stuðnings unglingastarfi ÍA
Gamla merkið sem nú hefur verið sett á 1000
barmmerki sem seld verða til stuðnings unglinga-
starfi ÍA.
Vegna 60 ára afmælis íþrótta-
bandalags Akraness á þessu ári
lét Helgi Daníelsson, fyrrum
markvörður, rannsóknarlögreglu-
maður og ætíð Skagavinur, nýver-
ið útbúa barmmerki með fyrra ÍA
merkinu, sem var merki félagsins
á árunum 1946-1950, en árið
1951 var núverandi merki tekið í
notkun. Merkið gefur hann til
stuðnings unglingastarfi ÍA.
„Á árunum frá 1946-1950 var
knattspyrnubúningur ÍA hvít treyja
og bláar buxur. Gamla merkið
mun ekki hafa verið notað á
knattspyrnubúninga, vegna þess
að á þessum árum átti
ÍA aldrei keppnistreyjur,
heldur lék með í hvítum
skyrtum (spariskyrtun-
um sínum) og var ekki
ekki hægt að nota
merkið á þær, þar sem
það átti að vera á
brjóstinu miðju. Hins-
vegar var það notað á
búningum í ýmsum öðr-
um greinum, m.a. hjá
fimleikamönnum, frjálsf-
þróttafólki og fleirum. Merkið sést
síðan á auglýsingum allt til ársins
1954,“ segir Helgi í viðtali við
Skessuhorn. Hann segist vel
muna eftir gamla merkinu m.a.
sem unglingur í fimleikaflokki
Stefáns Bjarnasonar þar sem
gamla merkið hafi verið á búning-
unum. „Ég vildi ekki láta þetta
merki gleymast alveg og fékk því
auglýsingateiknara til að teikna
það og lét gera 1000 barmmerki
og afhenti Sturlaugi Sturlaugssyni
formanni lA það á vígsludegi nýju
Akraneshallarinnar vegna 60 ára
afmælis ÍA á þessu ári. Þá fylgdi
merkinu kort með merki ÍA og
nokkrum orðum um merkið. Kort-
in eiga að fylgja merkinu og eru
þau tölusett og verða dregin út 10
númer og eru vinningar 10 Ijós-
myndir frá Akranesi eftir Friðþjóf
Helgason Ijósmyndara og bæjar-
Helgi Daníelsson þegar hann hafði fært formanni ÍA nýja merkið að gjöf á
vígsludegi Akraneshallarinnar sem er í baksýn.
Skallagrímsmönnum tókst að
næla í sín fyrstu stig í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik þegar þeir
báru sigurorð af liði KR á útivelli
sl. fimmtudag. Skallagrímsmenn
voru mun grimmari í upphafi og
komust yfir 8:1. Þessi munur á
milli liðanna hélst út fyrsta leik-
hluta og var staðan að honum
loknum 13:20. í öðrum leikhluta
héldu Skallagrímsmenn sínum
hlut og í hálfleik var staðan 35:44.
í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn
og um tíma var jafnt á flestum töl-
um. Undir lok leiksins náðu Skall-
arnir að siga framúr og höfðu sig-
ur að lokum 81:88.
Stigahæstir í liði Skallagríms
voru Jovan Zdravevski með 24
stig, Darryl Flake með 23 stig og
Dimitar Karadzovski með 16 stig.
Snæfell lagði Hauka
Lið Snæfells úr Stykkishólmi
lagði Hauka í þriðju umferða úr-
valsdeildarinnar í körfuknattleik á
Ásvöllum í Hafnarfirði og fór leik-
urinn einnig fram á fimmtudag. í
fyrri hluta leiksins skiptust liðin á
forystunni og í hálfleik leiddi Snæ-
fell með einu stig 28:29. í þriða
leikhluta náðu Snæfellingar að
síga framúr þó ekki væri forystan
mikil. í fjórða leikhluta náðu liðs-
menn Snæfells góðum spretti og
þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka höfðu þeir náð 14 stiga
forskoti 44:58. Þá vöknuðu Hauk-
ar og þegar tæpar 4 sekúndur
voru eftir höfðu þeir boltann og
voru þremur stigum undir. Þeim
tókst hins vegar ekki að jafna og
Snæfellingar fóru með sigur af
hólmi.
Stigahæstir liðsmanna Snæ-
fells voru Sigurður Þorvaldsson
og Justin Shouse með 16 stig
hvor. Að loknum þremur umferð-
um úrvalsdeildarinnar er Snæfell í
fjórða sæti deildarinnar með fjög-
ur stig. HJ
Birgitta Rán vann tvöfalt
Hið árlega Atlamót
Badmintonfélags
Akraness var haldið í
[þróttahúsinu við
Vesturgötu laugar-
daginn 28. október.
Atlamótið er haldið til
minningar um Atla
Þór Helgason sem
lést af slysförum árið
1980. Mótið er mjög
sterkt mót þar sem
flestir af bestu spilur-
um landsins keppa. Þar var leikið
í M.fl. A.fl. og B.fl og voru kepp-
endur um 50 talsins, þar af 16 frá
lA. Birgitta Rán Ásgeirsdóttir (A
og Atli Jóhannesson TBR unnu
bæði tvöfalt í meistaraflokki sem
er mikið afrek hjá þessum ungu
spilurum. MM
Sigruðu liðakeppni
í badminton
Þessir hressu
badmintonkrakkar
frá Akranesi gerðu
sér lítið fyrir og
unnu liðakeppni á
badmintonmóti
sem fram fór í
Hafnarfirði sl. laug-
ardag. Þau heita
Jóhannes Þorkels-
son, Þórður Páll
Fjalarsson, Alex-
andra Stefánsdótt-
ir, Marvin Þrastar-
son, Steinn Þor-
kelsson og Konráð
Sigurðsson. MM
Vesturlandsliðin
unnu bæði
í þriðju umferð
listamann á Akranesi. Ég hef ósk-
að eftir því að ágóði af sölu merkj-
anna verði látinn renna til ung-
lingastarfs innan ÍA,“ segir Helgi.
Búningar ólíkir
Reykjavíkurliðunum
Um tilurð þess að ÍA tók upp
nýtt félagsmerki segir Helgi: „Þeg-
ar Ríkharður Jónsson tók við þjálf-
un ÍA árið 1951 var keyptur nýr
búningur fyrir ÍA, gul treyja og
svartar buxur og þá kom nýtt ÍA
merki einnig, það sama og við
þekkjum í dag. Um tilurð gul/-
svarta búningsins er það að segja,
að á árunum um og eftir 1950 var
lítið vöruúrval og knattspyrnutreyj-
ur vart fáanlegar í verslunum. Guð-
mundur Sveinbjörnsson, þáver-
andi formaður ÍA hafði samband
við Karl Guðmundsson knatt-
spyrnumann og íþróttakennara og
eitt sin þjálfara ÍA fyrir 1950, en
hann var þá við nám í íþróttahá-
skólanum í Köln og bað hann að
útvega nýja búninga fyrir ÍA. Bú-
ingurinn átti ekki að vera eins og
þeir búningar sem til voru og var
þá aðallega hugsað til Reykjavík-
urfélaganna í þeim efnum. Karl
keypti búninga, eins og um var
beðið og valdi gulan og svartan
búning, sem síðan hefur verið
búningur ÍA. Skagamenn klædd-
ust þessum búningi fyrst vorið
1951 og þá var komið nýtt merki
og urðu Islandsmeistarar, fyrstir
liða utan Reykjavíkur, sem kunnugt
er,“ segir Helgi að lokum.
MM
í
Hr