Skessuhorn - 31.10.2006, Side 15
^tttsaunu.-
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
15
Rokkið lifir á Skaganum
Sigtryggur Baldursson „Bogomil Font“ er hér með
sýnikennslufyrir nemendur í síðustu viku. Fleira
tánlistarfólk er vœntanlegt í skólana í dag.
Þessa dagana er mikið um
að vera í grunnskólunum á
Akranesi því nú stendur yfir
tónlistarverkefni sem hlotið
hefur naftiið Ungir-Gamlir.
Verkefni þessu er ætlað að
stuðla að auknum metnaði og
áhuga á sviði tónlistar og
gengur út á það að ungir tón-
listarmenn fá tækifæri til að
vinna með atvinnutónlistar-
mönnum og læra af reynslu
þeirra. Endar verkefnið síðan
með tvennum stórum tón-
leikum, eða eins konar upp-
skeruhátíð, í Bíóhöllinn á Akranesi
þriðjudaginn 7. nóvember nk.
Flosi Einarsson, tónfistarmaður
og kennari í Grundaskóla stjómar
verkefiiinu. I viðtali við Skessuhom
segir hann ýmislegt verða á dagskrá
þessa vikuna til undirbúnings verk-
efhinu. ,Andrea Gylfadóttir verður
með söngsmiðju þar sem hún leið-
beinir þátttakendum í söng en jafh-
ffamt í lagasmíðum og textagerð.
Hún mun jafhffamt hjálpa þeim
einsöngvurum og sönghópum, sem
ffam munu koma á tónleikunum, að
fi'npússa atriði sín. Þá verður Sig-
tryggur Baldursson, hinn heims-
þekkti trommari Sykurmolanna
með meim með trommunámskeið
þar sem hann leiðbeinir áhugasöm-
um nemendum um trommutækni,
stillingar á trommum o.fl. auk þess
sem hann setur saman slagverks-
hljómsveit sem fram kemur á áður-
nefndum tónleikum. Einnig er Sig-
tryggur tilbúinn til að spila með
unglingahljómsveitunum ef vantar
trommara. Kristján Ólafur Grétars-
son leiðbeinir varðandi rafgítarleik
og Hallgrímur Ólafsson verður með
námskeið fyrir kassagítarleikara og
trúbadora og Tony Kinberg, sænsk-
ur gítarleikari og kennari verður
hljómsveitum innan handar við að
þaulæfa lög sín,“ segir Flosi.
Einnig munu gamlir nemendur
skólanna koma við sögu á tónleik-
trnum því sigurvegarar úr Hátóns-
barkakeppni grunnskólanna á Akra-
nesi síðari ár munu taka lagið á tón-
leikunum. A tónleikunum verðtn
síðan hljómsveit sem er skipuð áð-
urnefhdu fólki ásamt Eiríki Guð-
mundssyni trommuleikara, Sigur-
þóri Þorgilssyni bassaleikara og mér
á hljómborð," segir Flosi. Hann
segir að hljómsveitin þeirra muni sjá
um undirleik fyrir öll söngatriðin og
önnur tónlistaratriði sem þurfi und-
irspil. Meðal annars mun Andrea
taka lagið og aldrei að vita nema
einhverjir óvæntir gestir stingi inn
nefinu og hefji raust sína.
Eins og áður sagði verða tónleik-
amir 7. nóvember í Bíóhölhnni og
stefnt er að tvennum tónleikum.
„Fyrri tónleikamir verða klukkan 18
og em hugsaðir fyrir nemendur
skólanna en aðrir bæjarbúar era síð-
an boðnir velkomnir klukkan 21
sama dag,“ segir Flosi verkefhis-
stjóri og tónlistarmaður að lokum.
Þess má geta að verkefni þetta fékk
myndarlegan stuðning ffá Menn-
ingarsjóði Vesturlands við fyrstu út-
hlutun sjóðsins í vor. MM
Frumsýnt á laugardagmn
Leikhópur Umf. Islendings í Andakíl og Bœjarsveit mun frumsýna verkió „MaSur í mis-
litum sokkumf eftir Ammund Bachmann nú á laugardaginn kemur. Meðjýlgjandi
mynd var tekin á æfingujýir í vikunni af leikurunum Þórunni Harðardóttur ogjóni
Eiríkssyni í hlutverkum sínum. KH
OPIÐ HÚS - BAZAR
Opíð hús verður á Dvalarheímílínu Höfða
laugardaginn 4.nóvember kl. 14-17.
Þar verður boðíð upp á:
Sýningu á nýjum málverkum
Sveíns Guðbjarnasonar, íbúa á Höfða
Sýningu á Ijósmyndum úr bæjariífinu fyrír
40 árum eftir Helga Daníelsson
Sýníngu á skipslíkönum í eigu Sveíns Sturiaugssonar
Kynningu á heimasíðu Höfða
Höfðabazar — þar verða seldír munír
framleíddír af íbúum og dagvístarfólkí.
Heittákönnunní
- Öllum velkomið að skoða helmilið.
DvaíarfieimUið Höfði
Akramsi
Sími 431 2622
8932921 (Maggt)- 863 2622(Ótl)
Erum fluttir!
Að smiðjuvöllum 3
(Trésm. Akmness
- Vélsm. Guðlmigs Ketils.)
Við erum komnir með
söluna í fúllan gang efiár
flutningana.
Endilega kíkið við!
SYNINQ - BASAR - KAFFISALA
Hinn árlegi basar á Dvalarheimilinu verður
haldinn laugardaginn 4. nóvember 2006 kl 16:30.
Munirnir verða til sýnis kl. 15:00 -16:30.
Kaffisala verður á staðnum kl. 15:00 -17:30.
Sala á basar hefst kl. 16:30.
. Ágóði af kaffisölu rennur íferðasjóð heimilisfólks.
j Allir hjartanlega velkomnir.
I Dvalarheimili aldraðra - Borgarnesi
\________________________________________________________/
Borgarbyggö
SKIPULAGSAUGLÝSING
Tillaga að deiliskipulagi við Borgarbraut 65, Borgarnesi
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst
eftir athugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu.
Deiliskipulag þetta nær yfir lóð dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi vegna fyrirhugaðra
stækkunar þess. Á lóðinni er einnig Heilsugæsla og.íbúðarhús aldraðra.
Deiliskipulag verðurtil sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðarfrá 1.11.2006 til 29.11.2006,
frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 13.12.2006.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda,
telst samþykkur tillögunni.
Borgarnesi 25.10.2006
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
10% afsláttur
af gardínum í nóvember
LATTU OKKUR FA ÞAÐ
ÓÞYEGIÐ
Umboðsmenn:
Heimahornið Stykkishólmi
Dalakjör Búðardal
Verslunin Hrund Olafsvík
Helga Gunnarsdóttir Hólmavík
ÞvottahúsiÖ Perlari Hvammstanga