Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Page 1

Skessuhorn - 15.11.2006, Page 1
Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettð alltaf gott - alltaf ódýrt VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 46. tbl. 9. árg. 15. nóvember 2006 - Kr. 400 í lausasölu A föstudaginn kemur, þann 17. nóvember verða liðin 100 árfrá því að sautján ára drengur, Haraldur Böðvarsson bóf atvinnurekstur á Akranesi. Fyrirtœki hans dafnaði fljótt og var burðarás í atvinnulífi Skagamanna alla öldina. I tilejhi afþessum tímamótum opnar í Haraldarhúsi að Vesturgötu i2 sögusýning þar sem stiklað er á stóru í sögu fyrirteekisins. Það er sonarsonur Haraldar, Haraldur Stur- laugsson sem unnið hefur að uppsetningu sýningarinnar af myndarbrag. Sjá umfjöllun og myndir bls. 16. Ljósrn. HJ Framkvæmdir hafiiar við Menntaskólann í Borgamesi \ Meðal efnis: • Krókódíll á jóla- matseðlinum ...Bls. 10 • Markaðsfulltrúi fluttur á safn.Bls. 8 • Hjálmurinn bjargaði......Bls. 22 • Óbreytt skólahverfi í Borgarbyggð....Bls. 6 • Vegleysur á Skógarströnd...Bls. 19 • Mikið sigldar gulrætur......Bls. 19 • íþróttafélög í samstarf......Bls. 23 • Hrossum bjargað úr ógöngum........Bls. 6 • Sparisjóðir sameinast.....Bls. 10 • Heiðursbúið sótt heini.........Bls. 12 • Hálfs inilljarðs tónlistarskóli.Bls. 2 • Hálft prósent atvinnuleysi ....Bls. 13 • Flottrollin farin.........Bls. 24 • Skipulag Borgar- brautar 59....Bls. 24 • Aksturskennslu- svæðið...........Bls. 8 • Upplifðu allt veitir forskot........Bls. 9 v ATLANTSOLIA Dísel •Faxabraut 9. Miðvikadaginn 8. nóvember sl. má segja að framkvæmdir hafi form- lega byrjað við uppbyggingu Menntaskóla Borgarfjarðar á gamla íþróttavellinum í Borgarnesi. Það voru nemendur í 9. bekk Grunn- skóla Borgamess sem tóku til hend- inni við að raða torfi á bretti. Sam- komulag náðist milli Menntaskólans og Golfklúbbs Borgarness um að golfklúbburinn fengi þökumar sem af svæðinu kæmu gegn því að fjar- lægja þær af svæðinu. Golfklúbbur- inn samdi síðan við nemendur Grunnskólans um að vinna verkið en nemendur fá í staðinn styrk í ferðasjóð sinn, en þeir era að safna fyrir Danmerkurferð. „Það er vel við hæfi og táknrænt að nemendur skuli leggja hönd á plóg í þessu verk- efni og fylgja framkvæmdum úr hlaði með eigin dugnaði og útsjón- arsemi. Verkið er umfangsmikið en alls verða um 1.500 fermetrar af þökum fluttar af svæðinu og ljóst að 9. bekkingar hafa aldeihs tekið til hendinni,“ segir Ársæll Guðmunds- son, verkefhisstjóri MB í samtali við Skessuhorn. Aætlað er að ffamkvæmdir við jarðvinnu, sem verður í höndum Borgarverks, hefjist í þessari viku og þá er stefnt að því að byggingar- framkvæmdir hefjist í byrjun janúar. Torfi Jóhannesson, formaður stjómar MB segir að á síðasta fúndi stjómar hafi verið ákveðið að bjóða Arsæli Guðmundssyni starf skóla- meistara og var Torfa falið að vinna drög að samningi við hann. Stærsta einstaka bygg- ingaframkvæmdin Af undirbúningi ffamkvæmda er það annars að ffétta að deiliskipulag fyrir menntaskólalóðina var staðfest af sveitarstjórn Borgarbyggðar á fundi 9. nóvember sl. „Á auglýsinga- tímabilinu komu fram þrjár athuga- semdir sem snerast að mestu um fjölda bílastæða. Bragðist var við þessum athugasemdum með því að fjölga stæðum um 50% frá upphaf- legum áætlunum og með því að gera grein fyrir hvernig mætti fjölga stæðum enn meira ef þörf krefur," sagði Torfi Jóhannesson í samtali við Skessuhorn. Á fundi bygginga- og skipulagsnefhdar í gær kynntu þau Helga Halldórsdóttir, formaður bygginga- og framkvæmdanefndar AIB og Steinþór Kári Kárason aðal- arkitekt Kurt og pí - arkitektastofu, bygginguna og lögðu ffam umsókn um byggingarleyfi. Stefht er að því að ffamkvæmdum við skólabygginguna ljúki næsta sumar og skólahald hefjist þá um haustið. Framkvæmdin sem slík verður líklega ein stærsta einstaka byggingaffamkvæmd í héraðinu á næsta ári; 3300 fermetrar að flatar- máli. Samkvæmt heimildum Skessu- homs er gert ráð fyrir að byggingar- kostnaður verði um 650 milljónir króna. MM Haraldur Eirtksson með 12 punda hrygnu úr Norðurá sl. sumar. Ljósm. GB Opnun Norðurár seinkað Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur í samráði við stjórn Veiði- félags Norðurár ákveðið að seinka opnun í Norðurá í Borg- arfirði til 5. júní, árið 2007. Stangaveiðifélagið er leigutaki árinnar og hefur verið svo síð- ustu sextíu árin. I mörg ár hefur veiði hafist í Norðurá 1. júní og verið fyrsta stóra laxveiðiáin sem opnar fyrir veiði ár hvert. Að sögn Bjarna Júlíussonar, for- manns Stangaveiðifélags Reykja- víkur verður engin breyting á því og mun stjóm SVFR að venju opna ána. Ástæða breytingarinn- ar er að sögn Bjarna einkum sú að veiði þessa fyrstu daga hefur farið minnkandi undanfarin ár og með þessum aðgerðum er verið að draga úr álagi á stórlaxinn sem að jafhaði gengur fyrst í ána. Þá hefur einnig verið ákveðið að barma maðkveiði í ánni ffá og með næsta sumri og verður flug- an eina löglega veiðiagnið ffam- vegis. „Við erum að hvetja veiði- menn til að veiða og sleppa, eink- um stórlaxinum,“ sagði Bjami. ,„Með þessari aðgerð er mönnum gert auðveldara að sleppa laxin- um aftur, sérstaklega stórlaxin- um, sem er að veiðast fyrstu vik- umar, því maðkveiddur lax á sér minni lífevon en sá fluguveiddi. Á síðasta sumri veiddust aðeins um 100 stórlaxar í Norðurá og því er afar mikilvægt að þessum stofiú sé hjálpað eins og kostur er. Hér erum við að fara að tillögum fiski- ffæðinga og veiðimálastofnunar, sagði Bjami að lokum. BGK llllllllllllllllllllllllllllll •&SPM ( SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU - HORNSTEINN í HÉRAÐI Digranesgötu 2 « 310 Borganes • Síðumúla 27 * 108 Reykjavík « Sími 430 7500 * Fax 430 7501 • spm@spm.is • www.spm.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.