Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
oacssunu^il
Til minnis
Við minnum á Dag íslenskrar
tungu og af því tilefni verður t.d.
Hagyrðingakvöld í Safnaskálan-
um að Görðum á Akranesi þann
16. nóvember nk. Þar verða
kynnt úrslit í Ijóða- og smásagna-
keppni unga fólksins, sem hefur
staðið yfir í sumar. Þar munu hinu
ungu höfundar lesa úr verkum
sínum og vegleg verðlaun afhent.
Svo er ekki úr vegi að minna á
Jónas Hallgrímsson og hvetja fólk
til þess að lesa Ijóð eftir skáldið af
tilefni dagsins.
fVoj Veðarhorfivr
Það er búið að vera umhleypinga-
samt veður undanfarið og hver
lægðin á fætur annarri búin að
hringa sig utan um landið. Næstu
dagar munu einkennast af norð-
anátt og éljum en á fimmtudag-
inn verður allhvöss norðanátt og
víða léttskýjað. Frost víða 5 til 10
stig við sjávarsíðuna en ailt að 20
stig inn til landsins. Áföstudaginn
snýst hann í suðaustan 5-10 m/s
með snjómuggu og minnkandi
frosti SV-lands. Á laugardag og
sunnudag verður norðlæg eða
breytileg átt og víða él, einkum
við ströndina. Kalt í veðri, einkum
í innsveitum. Á mánudaginn er
spáð norðaustanátt og snjókomu
eða éljum og áfram köldu veðri.
Þannig að heilræði vikunnar er:
„Klæðum okkur vel!"
SpMrnin| viKMnnar
Við spurðum lesendur í síðustu
viku, hvort þeir væru búnir að sjá
kvikmyndina Mýrina og niður-
staðan var sú að 29,1% svöruðu
því játandi, 54,9% ætla síðar en
16% ætla sér ekki á hana.
Spurning næstu viku er:
„Er þetta upphafið
aferfiðum vetri?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendiníjtyr
viNnnar
Vestlendingar vikunnar eru lög-
regla og slysavarnafélagar um allt
Vesturland, sem staðið hafa í
ströngu við hjálp og björgun á
fólki sem og munum sl. veð-
urofsavikur. Þetta er stétt karla og
kvenna sem stöðugt eru á vakt-
inni; boðnir og búnir til þess að
aðstoða þegar nauðsyn krefur.
Toppa-
dagar
25%
afsláttur
af völdum
toppum
og bolum,
fimmtudag,
föstudag og
laugardag.
KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI
SÍMI431 1753 & 861 1599
Gmnnskóli Borgarfj arðarsveitar
fær nýtt nafii
Fræðslunefnd Borgarbyggðar hefur sam-
þykkt að leggja til við sveitarstjórn að nafhi
Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar verði
breitt í Grunnskóla Borgarfjarðar. Innan
hans starfa Kleppjárnsreykjaskóli og Anda-
kílsskóli. Það var Finnbogi Rögnvaldsson
sem lagði tillöguna ffam og var hún sam-
þykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur.
Borgarfjarðarsveit var sem kunnugt er eitt
þeirra sveitarfélaga sem í vor sameinuðust í
nýju sveitarfélagi sem síðar hlaut nafhið
Borgarbyggð.
Andakílsskóli á Hvanneyri. KH
Almenn þjónustugjöld hækka um
10% á Akranesi
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að fasteignagjöld á næsta ári
verði óbreytt frá því sem nú er en
almenn þjónustugjöld hækki um
10% á milli ára. Bæjarráð felldi til-
lögu bæjarfulltrúa Samfylkingar-
innar um að lækka dvalargjöld í
leikskólum og grunnskólum bæjar-
ins tun 25% um næstu áramót.
Jafhffamt áskilur ráðið sér rétt til
að endurskoða álagningarprósentu
fasteignagjalda þegar nýtt fast-
eignamat liggur fyrir.
Utsvar á árinu 2007 verður því
áfram 13,03%. Fasteignaskattur
verður áfram 0,352% af álagning-
arstofni íbúðarhúsa og 1,275% af
öðrum fasteignum. Holræsagjöld
verða 0,175% af fasteignamati
xbúðarhúsnæðis og 0,2% af fast-
eignamati atvinnuhúsnæðis. Vatns-
gjald hækkar um 3,85% og verður
2.907 krónur auk þess sem fasta-
gjald hækkar um 3,7% og verður
112 krónur á hvern fermetra.
Samkvæmt tillögu bæjarráðs
hækka önnur þjónustugjöld um
10% ffá áramótum nema annað sé
ákveðið sérstaklega. Sveinn Krist-
insson, bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar lagði til að dvalargjöld í leik-
skólum og grunnskólum verði
lækkuð um 25% frá núverandi
gjaldskrá um næstu áramót. „Akra-
neskaupstaður hefur hingað til lagt
metnað sinn í að bjóða íbúum sín-
um góða þjónustu á samkeppnis-
hæfu verði miðað við nágranna-
sveitarfélögin. Lækkun ofan-
greindra gjalda er mikilvægur liður
í því að auka lífsgæði barnafjöl-
skyldna í bænum.“ Meirihluti bæj-
arráðs felldi tillögu Sveins en bók-
aði að hann teldi fulla ástæðu til að
skoða tillöguna nánar. HJ
Vinstri grænir stilla upp
í Norðvesturkj ördæini
Jón Bjamason, alþingismaóur hefur lýst
sig reiðuhúinn til aS leiSa listann áfram.
Á fundi kjördæmisráðs Vinstri-
hreyfmgarinnar - græns framboðs í
Norðvesturkjördæmi sem haldinn
var í Búðardal á laugardagskvöld
var samþykkt einróma að viðhafa
uppstillingu við val á ffambjóðend-
um á listann við næstu alþingis-
kosningar. Jón Bjamason alþingis-
maður lýsti því yfir á fundinum að
hann væri reiðubúinn að leiða list-
ann í næstu kosningum.
Á fimdinum, sem haldinn var í
Búðardal, vora kosnir 7 fulltrúar í
uppstillingamefnd og koma þeir
víðsvegar að úr kjördæminu. Er
nefhdinni falið að skila svo fljótt
sem verða má tillögum að ffam-
boðslista. Verða tillögurnar lagðar
fyrir kjördæmisráðsfund, sem af-
greiðir ffamboðslistann og gengur
ffá framboðinu.
MM
Rætt við Þóri Hákonarson um
starf skrifstofiistjóra
Bæjarstjóm Grundarfjarðar sam-
þykkti samhljóða í síðustu viku til-
lögu bæjarráðs um að bæjarstjóra
verði falið að ræða við Þóri Hákon-
arson frá Siglufirði um mögulega
ráðningu hans í stöðu skrifstofu-
-----------------------------------
stjóra Gmndarfjarðarbæjar. Endan-
leg ákvörðun verður síðan tekin
þegar niðurstaða þeirra viðræðna
liggur fyrir. Umsækjendur um
stöðuna vora auk Þóris þau Bjöm
Kristjánsson Reykjavík, Gunnar
Pétur Garðarsson ísafirði, Helga
Hjálmrós Bjarnadóttir Grundar-
firði og Indriði Indriðason Stokks-
eyri.
HJ
Aædaður kostnaður við Tónfistar-
skóla kominn í 480 milljónir
Á fundi framkvæmdanefndar
mannvirkja Akraneskaupstaðar
sem haldinn var á dögunum kom
fram að kostnaður við innréttingu
húsnæðis fyrir tónlistarskóla væri
kominn í 240 milljónir króna. Var
þá miðað við kostnaðaráætlun
dagsetta 15. október. Eins og
kunnugt er ákvað bæjarstjórn
Akraness á síðasta kjörtímabili að
festa kaup á húsnæði fyrir bókasafn
í nýbyggingu sem nú rís við Dal-
braut 1. Húsnæðið er um 1.300
fermetrar að stærð og var kaup-
verð um 240 milljónir króna.
Eftir kosningar í vor ákvað nú-
verandi meirihluti bæjarstjórnar
að hverfa frá þeim að bókasafnið
flytti í áðurnefnt húsnæði. Þess í
stað var ákveðið að innrétta það
fyrir starfsemi Tónlistarskóla
Akraness. Skapa og Skerpa arki-
tektar voru ráðnir til verksins og
hefur hönnun staðið yfir undan-
farna mánuði en henni er ekki að
fullu lokið. Af fyrrgreindum tölum
má því ráða að heildarkostnaður
við kaup og innréttingu húsnæðis-
ins sé kominn í rúmar 480 milljón-
ir króna eða 370 þúsund krónur á
hvern fermetra, verði allir 1.300
fermetrarnir nýttir undir skólann.
HJ
Glæpasagnaliöfundur með boðskap
AKRANES: A föstudaginn var
kom út hjá Uppheimum ehfi, út-
gáfufyrirtæki Kristjáns Kristjáns-
sonar á Akranesi, glæpasaga eftir
Ævar Orn Jósepsson, Sá yðar sem
syndlaus er. Þetta er fyrsta verk
Ævars sem kemur út undir merkj-
um Uppheima, en áður hefur
hann sent frá sér skáldsögurnar
Skítadjobb, Svartir englar og
Blóðberg hjá bókaforlaginu Eddu.
Allar hafa bækurnar hlotið lof-
samlega dóma og Svartir englar
var tilnefiid til norrænu glæpa-
sagnaverðlaunanna, Glerlykilsins
af íslands hálfu árið 2003. Hún
hefur nú verið þýdd og gefin út í
Hollandi og er væntanleg í þýskar
bókaverslanir með vorinu.
-als
Telja á föstu-
daginn
FRAMSÓKN í NV: Á föstu-
daginn lýkur póstkosingu um
skipan framboðslista Framsókn-
arflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi. Um kvöldið hefst talning
atkvæða á Borðeyri við Hrúta-
fjörð og að sögn Sveinbjöms
Eyjólfssonar formanns kjör-
nefiidar er búist við að úrslit figgi
fyrir ekki síðar en um miðnætti.
Fréttir af talningu atkvæða verða
birtar um leið og þær berast á
skessuhom.is -hj
54 íbúða
byggð í bígerð
REYKHOLTSDALLR: Á
fundi sldpulags- og byggingar-
nefiidar Borgarbyggðar í gær var
samþykkt tillaga að breytingu
skipulags sem felur í sér að land-
notkun spildu í landi Breiðabóls-
staðar 2 í Reyldioltsdal verður
breytt úr landbúnaðamotkun í
íbúðabyggð. Fyrirtækið Bryggju-
vör 1 ehf. í Reykjavík hyggst
skipuleggja á landinu, sem er um
50 ha, lóðir fyrir 54 ný íbúðar-
hús. Lóðimar verða hver um sig
hálfur til einn hektari að stærð.
Ef framkvæmt verður eftir þess-
um hugmyndum er óhætt að
segja að þetta verði í fyrsta skipti
í langan tíma sem svo stór íbúða-
byggð rís í dreifbýli í Borgarfirði.
-mm
Skipulagsmál
og íbúaþróun
BORGARBYGGÐ: Samfylk-
ingarfélag Borgarbyggðar boðar
til opins félagsfundar um skipu-
lagsmál og íbúaþróun í Borgar-
byggð fimmtudagixm 23. nóvem-
ber kl. 20.30. Fundurinn verður í
Alþýðxxhxísinu í Borgamesi. Fxill-
trúar Borgarhstans í skipulags-
nefiid Borgarbyggðar, þau Sig-
ríður Björk Jónsdóttir, bæjarfull-
trúi og Jóhaxmes Stefánsson
mxrnu Ieiða umræðxir um skipu-
lagsmál og íbúaþróxm í sveitarfé-
iaginu. Mikið er að gerast í
skipulagsmálum í nýju sveitarfé-
lagi og hefur það áhrif á íbúaþró-
xinina. Það er því af nógu að taka
til að skapa miklar og fjöragar
xxmræður og skiptast á skoðun-
xxm. Fxmdarstjóri verður Hólm-
fnður Sveinsdóttir, formaður
Samfylldngarfélags Borgar-
byggðar. Að umræðum loknum
mxm stjómin bjóða upp á sam-
söng og kaffiveitingar. Allir vel-
komnir. -fréttatilkynning
Nýtt
stjómsýsluhús
H VAL FJARDAR S VEI I: Á
fundi sveitarstjómar Hvalfjarð-
arsveitar í síðustu viku vora lögð
ffiam frumdrög að hönnun nýs
stjómsýsluhúss sveitarfélagsins.
Það er arkitektastofan Höxmtm
sem unnið hefixr að málinu. Að
sögn Einars Arnar Thorlaciusar
sveitarstjóra mxm húsið rísa í
Melahverfi. Skrifstofur sveitar-
félagsins era nú til húsa í 60 fer-
metra sumarhúsi í Melahverfi
og byggingafulltrúi sveitarfé-
lagsins hefur aðsetur í félags-
heinúlinu Miðgarði. Einar segir
að til þess að fjármagna bygg-
ingu hins nýja húss verði meðal
annars núverandi skrifstofuhús
selt og einnig verður einbýlishús
í eigu sveitarfélagsins selt.
-hj