Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 4
4 gKlSSUHOBKi MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 Ofsaakstur HVALFJ ÖRÐUR: Um þarliðna helgi voru mynduð brot 158 ökumanna sem óku yfir leyfilegum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngunum. Meðal- hraði hinna brotlegu var 89 km/klst. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða en við- urlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og öku- leyfissvipting tdl þriggja mánaða. -mm Sex grenndar- stöðvar AKRANES: Grermdarstöðvar fyrir gáma til söfnunar sorps til endurvinnslu verða settar upp á sex stöðum á Akranesi á næst- unni. Bæjarráð Akraness hefur samþykkt tillögu sem umhverf- isnefnd lagði ffam í samvinnu við skipulags- og byggingar- nefnd. Lagt er til að leitað verði eftir samkomulagi við eigendur matvöruverslana í bænum um að grenndarstöðvum verði val- inn staður á lóðum verslananna og lögð verði áhersla á sam- ræmt útlit og snyrtilegan frá- gang í alla staði. Staðsetning- arnar eru við Samkaup Strax, stæði á mótum Suðurgötu og Skagabrautar í nágrenni við Verslun Einars Ólafsonar, við Brekkubæjarskóla, við Skaga- ver, við Bíóhöllina og við versl- un Bónuss sem nú er að rísa við Þjóðbraut. -hj Bændur græða landið BORGARBYGGÐ: Byggða- ráð Borgarbyggðar hefur sam- þykkt að veita 100 þúsund króna styrk á árinu 2007 í sam- starfsverkefnið „Bændur græða landið“ sem Landgræðsla ríkis- ins stendur fyrir í samvinnu við bændur víðs vegar um landið og er markmið þess uppgræðsla heimalanda. A þessu ári hafa 57 bændur í Borgarbyggð tekið þátt í verkefninu og nýtt til þess ríflega 100 tonn af áburði. Verkefhið hefur staðið í 16 ár og í ár hafa þátttakendur verið á sjöunda hundrað á landinu öllu. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að Landgræðslan styrkir landeigendur til áburðarkaupa, leggur til fræ og veitir faglega ráðgjöf við uppgræðslu raskaðs lands en landeigendur sjá um verklegu hliðina. -hj Lítið tjón í rold AKRANES: Lögreglan og björgunarsveitin á Akranesi höfðu í nógu að snúast vegna veðurs í sl. viku. Víða þurfti að fergja niður lausa muni sem voru líklegir til að taka flugið í vindinum. Algengast var eins og oft áður að járnplötur og annað byggingarefhi sem hefur góða flugeiginleika væri til vandræða. Tjón varð þó lítið. Almennt virðist fólk hafa tekið viðvaranir um versnandi veður alvarlega og flestir höfðu geng- ið frá lausum munum í um- hverfi sínu. -hj Hönnun Þjóðbrautar að ljúka Undirbúningur og hönnun nýrr- ar Þjóðbrautar á Akranesi er á loka- stdgi. Þetta kemur ffam í bréfi sem Magnús V. Jóhannsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Norðvestur- svæði sendi bæjaryfirvöldum á Akranesi þann 24. október. Þar kemm ffam að reiknað sé með því að verkinu ljúki á næstu tveimur til þremur vikum og má því ætla að það verði um miðjan nóvember. „Þar með er mögulegt að bjóða verkið úr enda liggi þá fyrir heimild vegamálastjóra til að hefja ffam- kvæmd verksins,“ segir í bréfi Magnúsar. Þjóðbraut var áður helsta sam- gönguæðin inn í þéttbýlið á Akra- nesi áður en Hvalfjarðargöngin komu til sögunnar en þá var lagður nýr vegur til Akraness. Um nokkurt skeið hafa bæjaryfirvöld sótt það mjög fast að Þjóðbrautin tæki við fyrra hlutverki sínu. I bréfi Magnúsar kemur einnig ffam að Verkffæðistofan Hönnim hf. hafi unnið að hönnun brautar- innar undir stjóm Vegagerðarinnar og í samráði við starfsmenn Akra- neskaupstaðar. lij Búkolla slapp fyrir hom Betur fór en á horfðist þegar pallur búkollu, sem var að losa grjót við Litlu- bryggju í Grandarfirði, valt sl. föstudag. Liðamót tækis- ins bjargaði því að aðeins pallurinn valt. Hins vegar þurffi stórvirkar vinnuvélar til þess að rétta hann við. Búkollan slapp án teljandi skemmda. HJ /Ijósm. Sverrir Eineltisfyrirlestur gerði gagn Eineltisfyr- irlestur Stefáns Karls Stefáns- sonar, leikara sem hann hélt á netinu sl. þriðjudag og var samtímis fluttur í mörg- um grunnskól- um landsins hefur vakið mikla ánægju skólafólks sem segir boðskap hans vekja nem- endur til umhugsunar um að einelti sé alvarlegt mál. „Fyrirlesturinn var afar vel heppnaður og náði tilætluðum ár- angri í skólanum hjá okkur. Nem- endur voru virkilega vaktir til um- hugsunar um hvenær stríðni er orðin að einelti og þær alvarlegu af- leiðingar sem einelti getur haft á einstaklinga alla ævi. I kjölfar fyrir- lestrarins spunnust upp miklar um- ræður um líðan nemenda, hvort einhverjum væri að líða illa í skól- anum og hvort verið væri að leggja einhvem í einelti. Var þessi fyrir- lestur afar gott innlegg í skólastarf- ið og kunnum við Stefáni Karli hin- ar bestu þakkir fyrir hans ffamlag,“ segir Þórunn María Oðinsdóttir skólastjóri Varmalandsskóla í Borg- arfirði. MM Stefán Karl Stefáns- son, leikari. Flokkur 14 ára í skemmdarverkum Lögreglan á Akranesi hefur upp- lýst nokkur mál þar sem níu 14 ára börn komu við sögu. Þáttur hvers og eins er þó mismikill. I þessum málum var um að ræða eignaspjöll, innbrot, íkveikjur, nytjastuldi og líkamssárás, auk annarra brota. Upphafið má rekja til tilkynningar um skemmdarverk á leikskóla í bænum þar sem vitni sáu til og þekktu nokkur barnanna úr hópn- um. Við vinnslu þessa máls komu ffam upplýsingar sem leiddu til að 10 önnur mál upplýstust auk nokk- urra reiðhjólaþjófiiaða. Meðal mála sem voru til rann- sóknar var innbrot í hús við golf- völlinn á Akranesi sem fjórir dreng- ir brutust inní að kvöldi og stálu lyklum að golfbílum sem voru í geymslu á vellinum. Kvöldið eftir brutust þeir inn í bílageymsluna, stálu bflunum, óku um æfingasvæði golfvallarins og ollu miklu tjóni á vellinum og bílunum. Einnig voru upplýst mál þar sem brotist hafði verið inni í vinnuskúra í Flata- hverfi, kveikt í timburskúr á leik- velli og mál þar sem ffamin höfðu verið eignarspjöll í nýbyggingum. Að auki kom ffam við rannsókn málanna að hluti barnanna hafði verið að fikta við sniff á gasi úr gaskútum auk kveikjaragass. Málin teljast upplýst og hafa ver- ið send félagsmálayfirvöldum en lögreglan naut samvinnu þeirra og skólayfirvalda, auk stuðnings for- eldra viðkomandi bama. „Slík sam- vinna er ómetanleg þegar unnið er með mál þar sem böm koma við sögu,“ eins og segir í fféttatilkynn- ingu lögregltmnar. Allir brotaaðilar sem komu við sögu eru ósakhæfir vegna aldurs. HJ Kynna firæðastörf í Stykkishólmi Þriðjudagskvöldið 21. nóvember verður opin kynning á starfsemi og rannsóknum Náttúrustofu Vestur- lands og Háskólaseturs Snæfells- ness í Stykkishólmi. Kynningin hefst klukkan 20 og verður á Ráð- húsloftinu, Hafnargötu 3. For- stöðumennimir Róbert A. Stefáns- son og Tómas G. Gunnarsson flytja erindi um starfsemi þessara tveggja rannsóknastofnana og segja ffá rannsóknum þeirra og nokkmm niðurstöðum ffam til þessa. Að fyr- irlestrum loknum verður farið með gesti um húsnæði stofnananna og rannsóknastofur skoðaðar. „Þessi uppákoma er einstakt tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér hvaða fræðastörf fara fram í ráðhúsi bæjarins,“ segir í til- kynningu ffá aðstandendum kynn- ingarinnar. Alhr em velkomnir og er aðgangur ókeypis. MM Bílvelta í hálku ÓLAFSVÍK: Ungur ökumaður velti bíl sínum um tvö leytið aðfar- amótt sunnudags við Ólafevík. Tals- verð hálka var á veginum og er það talin vera orsök bflveltumar. Engin slys urðu á fólki en biffeiðin er mik- ið skemmd. -mm Margar tillögur að nýju byggðamerld BORGARBYGGÐ: Rúmlega 90 tillögur bárust í samkeppni Borgar- byggðar að byggðamerki hins nýja sveitarfélags sem varð til í vor. Um opna samkeppni var að ræða og vora íbúar sveitarfélagsins sérstaklega hvattir til þátttöku og vora engin takmörk á fjölda tillagna ffá hverjum þátttakenda. Að auki bárast nokkrir tugir teikninga að merkjum frá grunnskólanemendum í sveitarfé- laginu. Dómnefiid er nú að störfum og verða úrslit birt í næstu viku. -hj Eldur í tjaldstæðahúsi AKRANES: Síðastliðið fimmtu- dagskvöld kviknaði í salemisaðstöðu á tjaldstæðinu við Kalmansvík á Akranesi. Talsverður eldur logaði þegar að var komið en Slökkvilið Akraness kom fljótt á vettvang og réði niðurlögum eldsins fljótt og ör- ugglega. Lfldegt er að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum en ósagt skal látið hvort það hafi verið af ásetningi eða hreinlega gáleysi. Mál- ið er í rannsókn og óskar lögregla eftir upplýsingum um mannaferðir á tjaldsvæðinu sl fimmtudagskvöld. -kh Vilja samstarf um tónlistarkennara REYKHÓLAR: Á Reykhólum er ekki starfandi tórflistarkennari sem stendur. Sveitarfélagið er ekki nógu stórt til þess að hægt sé að manna heila stöðu í tónlistarskóla. Leitað hefur verið til Tónlistarskólans í Búðardal, en þar era menn ekld af- lögufærir með slíka aðstoð sem stendur. Fyrirspumir hafa borist er- lendis ffá, en ekkert er þar fast í hendi. Því var ákveðið að ræða við sóknamefndimar á Reykhólum og í Saurbæ um samstarf. Að sögn Ingv- ars Samúelssonar gæti það orðið beggja hagur ef hægt yrði að samnýta einn starfsmann, bæði til að kenna tónlist, vera organisti og stjóma kirkjukóranum í viðkomandi sóknum. -bgk Stækkun Höfða AKRANES: Undirbúningshópur að ffamkvæmdum við Dvalarheimil- ið Höfða á Akranesi hefur farið fram á heimild heilbrigðis- og tryggingar- málaráðuneytisins til þess að hanna og undirbúa viðbyggingar og breyt- ingar á heimilinu. Brýnustu verkefh- in era að mati hópsins m.a. að stækka stoðrými heimilisins, en þar er átt við eldhús, mat- og samkomu- sal en auk þess verði einbýlisíbúðir ekki lengur nýttar sem tveggja manna hjúkrunaríbúðir. Einnig verði hjúkrunardeild bætt við sem myndi skapa íbúðir fyrir allt að 28 - 32 íbúa auk betri og rýmri aðstöðu fyrir starfsfólk. Þetta er talið nauð- synlegt verkefhi til þess að mæta nú- verandi biðlistum, vaxandi íbúa- fjölda á svæðinu og auldnni hjúkrun- arþjónustu til ársins 2015. -kh Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500 Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Birna C Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is Umbrot: Cuðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.