Skessuhorn - 15.11.2006, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
att£9SVhuU
Skólahverfi í Borgarbyggð
verði óbreytt
Vinnuhópur sem skipaður var til
að gera tillögur um framtíðarskipan
skólahverfa í Borgarbyggð leggur
til að skipan hverfanna verði ó-
breytt en tekur fram að ekki sé þar
með verið að girða fyrir uppbygg-
ingu grunnskóla í háskólahverfum
sveitarfélagsins. Hópurinn telur
hins vegar að bygging nýrra skóla-
húsa á Bifföst og á Hvanneyri sé
dýrasti kosturinn af þeim sem skoð-
aðir voru. Sveitarstjórn Borgar-
byggðar hefur falið ffæðslustjóra
sveitarfélagsins að kynna tillögum-
ar fyrir forstöðumönnum grunn-
skóla og háskóla í sveitarfélaginu.
Ólíkar útfærslur
skoðaðar
Starfshópurinn var skipaður í
sumar af byggðaráði og hélt hann
fimm bókaða fundi. Hópinn skip-
uðu Finnbogi Leifsson, Finnbogi
Rögnvaldsson og Karvel Karvels-
son. Að auki starfaði Asthildur
Magnúsdóttir fræðslustjóri með
hópnum. I dag rekur sveitarfélagið
grunnskóla á fjómm stöðum; á
Varmalandi, á Hvanneyri, á Klepp-
járnsreykjum og í Borgamesi. Að
auki kemur sveitarfélagið að
byggðasamlagi um rekstur Lauga-
gerðisskóla. Vinnuhópurinn gerir
ráð fyrir óbreyttum rekstri þess
skóla.
Hópurinn skoðaði sex kosti um
framtíðarskipan. I fyrsta lagi
óbreytt skólahverfi í sveitarfélagi. I
öðm lagi að skólahald verði lagt af
á Varmalandi og nýr skóli verði
byggður á Bifröst og skólahverfi
hans Norðurárdalur og Staf-
holtstungur. Borgarhreppur færist
undir Borgarnes og Hvítársíða og
Þverárhlíð verði hluti af skólahverfi
Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar
(sem nú heitir Grunnskóli Borgar-
fjarðar). I þriðja lagi að skólahald
legðist af á Hvanneyri og Varma-
landi og nýr skóli yrði reistur á Bif-
röst. Skólahverfi nýs skóla verði
Norðurárdalur og Stafholtstungur.
Skólahverfi skólans á Kleppjáms-
reykjum verði Borgarfjarðarsveit,
Hvítársíða og Þverárhlíð auk
Skorradalshrepps. Borgarhreppur
færist í Grunnskóla Borgarness. I
fjórða lagi að skólahald leggist af á
Hvanneyri og Bifröst og á Varma-
landi. Nýr skóli verði byggður á
Bifröst. Skólahverfi hans verði
Norðurárdalur og Stafholtstungur.
Skólahverfi skólans á Kleppjárns-
reykjum verði Borgarfjarðarsveit
utan Andakílshrepps, Hvítársíða,
Þverárhlíð og Skorradalshreppur.
Andakflshreppur og Borgarhreppur
færist í Borgarnes. I fimmta lagi að
byggður verði nýr skóli á Hvann-
eyri og skólahald aflagt á Klepp-
járnsreykjum. Skólahverfi þess
skóla yrði núverandi skólahverfi
gmnnskóla Borgarfjarðarsveitar
utan Hvítársíðu allrar, Hálsasveit
og Reykholtsdalur færðust á
Varmaland. I sjötta lagi yrði nýr
skóli á Hvanneyri og á Bifröst.
Skólahald á Varmalandi og á
Kleppjárnsreykjum yrði lagt af.
Skólahverfi skólans á Bifföst yrði
Norðurárdalur og Stafholtstungur
en skólahverfi skólans á Hvanneyri
yrði Borgarfjarðarsveit, Hvítársíða,
Þverárhlíð og Skorradalshreppur.
Aksturstími aldrei
yfir 3 korter
I skýrslu hópsins kemur ffam að
kosmaður við byggingu nýs skóla á
Bifföst sé áætlaður 3-400 milljónir
króna miðað við 200 barna skóla og
kostnaður við byggingu á Hvann-
eyri sé áætlaður 150-400 milljónir
króna og þar yrði fjöldi skólabarna
100-200 nemendur. Er þá reiknað
með að slík bygging yrði viðbygg-
ing við núverandi skóla. Að auki var
farið yfir þau viðhaldsverkefni og
þá stækkun sem þörf væri á ef
skólahald verður áfram á núverandi
stöðum. Þá kemur ffam að á síðasta
ári hafi kostnaður við aksmr skóla-
barna sveitarfélaginu verið rúmar
52 milljónir króna. Þar af hafi
kostnaður við aksmr að Varma-
landsskóla verið 15 milljónir króna
og af þeim vom 5 milljónir vegna
bama ffá Bifföst. Hópurinn telur
mikilvægt að tryggja í framtíðinni
að aksmr skólabarna verði aldrei
meiri en þrír stundarfjórðungar og
ef byggja ætti nýjan skóla á Bifröst
þyrfti því að leggja í nokkrar breyt-
ingar á skólamannvirkjum á Klepp-
jámsreykjum til þess að því marki
yrði náð.
Skoða viðhaldsþörf
eldra húsnæðis
Vinnhópurinn telur brýnt að
kannað verði á næstu mánuðum
hver sé viðhaldsþörf og hvaða
möguleikar á breytingum era fyrir
hendi á þeim skólamannvirkjum
sem til staðar era á Kleppjárns-
reykjum og Varmalandi. Þannig
verði auðveldara að meta hvort nú-
verandi húsnæði geti fullnægt hús-
næðisþörf skólanna á næsm áram
þannig að hagkvæmt þyki. Lagt er
til að þessar upplýsingar liggi fyrir á
árinu.
HJ
Fleiri vilja á lista
Sjálfstæðisflokksins
Tvö nöfh í viðbót hafa bæst í
þann hóp fólks sem gefur kost á
sér til sem á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Norðvesturkjördæmi
fyrir næsm þingkosningar. Þetta
eru Guðný Helga Björnsdóttir
Bessastöðum í Húnaþingi-vestra
og Sigurður Sigurðarson á Akra-
nesi. Aður höfðu sextán manns
gefið kost á sér til setu á listanum
en einn þeirra, Borgar Þór Ein-
arsson, hefur dregið framboð sitt
til baka. Uppstillingarnefnd kem-
ur saman til fundar í Staðarskála í
Hrútafirði á morgun og sam-
kvæmt heimildum Skessuhoms er
stefht að því að ljúka að mesm til-
lögu að skipan framboðslistans.
Það verður síðan kjördæmisráð
flokksins sem hefur síðasta orðið
en það hefur verið boðað til fund-
ar í Borgarnesi laugardaginn 17.
nóvember og þar er stefnt að því
að ganga frá skipan listans. HJ
Sameining björgunar-
sveita í Snæfellsbæ
Nýverið vora haldnir aðal-
fundir hjá bæði björgunar-
sveitinrú Björgu á Hellissandi
og Sæbjörgu í Olafsvík. A
fundunum var samþykkt að
sveitimar yrðu sameinaðar. I
ffamhaldi af því hafa stjómir
sveitanna unnið að því að
rekstur verði sameiginlegur
ffá 1. desember 2006. Form-
leg sameiningarathöfh mun
fara fram á sjómannadaginn
2007. „Tilgangurinn er sá fyrst og
ffemst með sameiningu að stofna
eina öfluga björgunarsveit í Snæ-
fellsbæ sem er betur í stakk búin en
eldri sveitirnar til að takast á við
þau verkefni sem tfl kunna að falla.
Markmið hinnar nýju sveitar verði
að vinna að alhliða björgunarstörf-
um, að standa að þjálfun félags-
manna til þeirra starfa, að stuðla að
auknum slysavörnum í Snæfellsbæ
og afla þess búnaðar sem nauðsyn-
legur er til starfsins,“ segir m.a. í
tilkynningu frá björgunarsveitun-
um.
Þá segir að sameiningin verði
ffamkvæmd í góðu samstarfi við
kvennadeildirnar Helgu Bárðar-
dóttur á Hellissandi og Sumargjöf í
Olafsvík. Kynnt er stefna nýrrar
Björgunarsveitar á heimasíðu
hennar: www.123.is/bjorgunar-
sveit.
MM
Hrossum bjargað úr flóði
Síðasta sunnudag var björgunar-
sveitin Brák í Borgarnesi beðin um
að aðstoða ábúendur í Ferjukoti
vegna sautján hesta er höfðu orðið
innlyksa í hólma fyrir ofan bæinn.
Var óttast að þeir gætu orðið í verri
klípu, næst þegar falla myndi að.
Björgunarbátur flutti hjálparmenn
út í hólmann, sem var í nokkurri
fjarlægð frá landi. Voru hestarnir
bæði styggir og hræddir svo erfið-
lega gekk að koma á þá böndum.
Eftir dálítinn eltingarleik tókst að
mýla eitt hrossið. Settist eigandinn
á bak og hélt rakleitt til lands með
allt stóðið í eftirdragi. Leiðin í land
gekk nokkuð greiðlega þótt sund-
ríða þyrfti á nokkrum stöðum.
Mönnum og skepnum var borgið.
BGK
PISTILL GISLA
Kmftm; reynsla og áhugi
Ég verð að játa að ég er
ekki sérlega uppnæmur fyrir
prófkjörum enda fæst þeirra
í mínu kjördæmi. Þótt ég
feginn vildi kemst ég hins-
vegar ekki undan því áreiti
sem prófkjörum fylgja enda
dynja auglýsingar frá ein-
stökum frambjóðendum á
mér eins og haglél á
helgidegi.
Ég ákvað því að reyna að
hafa gaman af þessu og
sökkti mér niður í prófkjörs-
auglýsingar til að komast að
því hvaða mann þessir fram-
bærilegu frambjóðendur
hafa að geyma.
Élestir auglýsa sig með
einum eða tveimur setning-
um sem gefa kannski ekki
ýtarlegt yfirlit yfir æviferil-
inn en lýsa væntanlega á
raunsæjan hátt eiginleikum
hvers og eins.
Helstu frambjóðendur í
prófkjörum síðustu helgar
voru þessir. „Ný rödd á
þing, Tilbúin (held að kjós-
endur hafi samt ekki verið
tilbúnir), Dugnaður, kraftur
og áhugi (Athyglisvert að
frambjóðandi þurfi að taka
ffam að hann hafi áhuga á
stjórnmálum). Hitt var þó
öllu verra að kjósendur
höfðu engan áhuga á ffarn-
bjóðandanum samkvæmt
niðurstöðum prófkjörsins.)
Kraftur og reynsla, Nýtt
blóð (kjósendur afþökkuðu
að vísu blóðgjöf). Traust for-
ysta, Jöfnuður, samhjálp og
réttlæti, Vöndum valið,
Jöfhum leikinn og Samhent
sigursveit.
Ég gerði mér það síðan til
dundurs og dægrastyttingar
að reyna að læra utanað slag-
orð hvers og eins. Það er
skemmst ffá því að segja að
það tókst ekki og þó það ætti
að drepa mig er ég ekki ör-
uggur um að mér tækist að
muna það þegar ég sæi næst
einn ffambjóðendanna úti á
götu hvort þetta væri sá sem
var traustsins verður, nýja
röddinn, reynslan, kraftur-
inn og heiðarleikinn, kraft-
urinn, heiðarleikinn og
reynslan eða einhver af hin-
um.
Til viðbótar við slagorðin
kom gjarnan listi með stuðn-
ingsmönnum og gjarnan
myndir af þeim einnig.
Sumir eru meiri stuðnings-
menn en aðrir eins og geng-
ur og ég hef ekki fengið bet-
ur séð en sumir styðji nánast
alla og eru þá væntanlega
stuðningsmenn í fullu starfi
þessa dagana.
Kosningabarátta er í eðli
sínu afskaplega leiðinlegt
fyrirbæri því að ofan á það
að allir fara ffam undir sömu
eða svipuðum slagorðunum
og með sömu eða svipuðu
stuðningsmennina þá eru
málefhin og málflutningur-
inn afskaplega keimlíkur.
Prófkjörsbarátta í öllu sínu
veldi er því ekki ávísun á
annað en tvöföld leiðindi.
Guði sé lof fyrir 12. maí.
Þá verður þetta allt afstaðið.
Gísli Einarsson, kjósandi