Skessuhorn - 15.11.2006, Síða 9
jkUsunúbJ i
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
9
Um 200 manns á leiöinni á opnun stöövarinnar. Til mikils var aö vinna því Orkan hét á göngufólk að 500 krónur rynnu til félagsmið-
stöðvarinnar á staönum fyrir hvem göngugarp.
Orkan komin í Grundaríjörð
Sannkallaður „Orkudagur" var í
Grundarfirði sl. laugardag. Yfir 200
manns þrömmuðu í sunnanstrekk-
ingi og kafaldshríð frá Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga inn að sjálfsaf-
greiðslustöð Orkunnar, sem opnuð
var við austanverðan bæinn. Slík
ganga útheimti að sjálfsögðu tölu-
verða orku því gengið var mót sunn-
an vindinum.
Það var Ragnar Haraldsson bif-
reiðastjóri og einn eigandi vöru-
flutningastöðvarinnar Ragnar og
Ásgeir ehf sem dældi fyrstu dropun-
um á nýjasta Volvovörubílinn í flot-
anum. Orkan hafði heitið
á félagsmiðstöð unglinga,
Eden, að greiða 500 krón-
ur fyrir hvem þann sem
mætti í skrúðgönguna
íklæddur einhverju bleiku.
Því varð einhverjum að
orði að jafnvel í sumar-
veðri á 17. júní mættu ekki
jafnmargir í skrúðgöngu.
A eftir var öllum viðstödd- Ragnar Haraldsson dældi fyrstur manna úr nýju
um boðið í kakó og vöfflur Orkudælunum.
í samkomuhúsi Grundfirðinga þar síðan um kvöldið fyrir 18 ára og
sem ffarn fóru skemmtiatriði og eldri og var þar boðið upp á orku-
kraftakeppni. Orkudansleikur var drykki. GK
Upplifðu allt verkefiiið gefur forskot
Á aðalfundi ferðaþjónustuklasans
All Senses Group - Upplifðu allt á
Vesturlandi í síðustu viku, kom
ffam að samstarf ferðaþjónustuað-
ila á svæðinu væri að skila rikuleg-
um árangri, bæði innanlands og er-
lendis. Er almennt talið að slíkt
samstarf geti gefið gott forskot í
harðri samkeppni á heimsvísu.
Mikið starf sé hins vegar eftir
óunnið í ferðamálum en með ffek-
ari samvinnu, kynningarstarfi og
fagmennsku geti spennandi mögu-
leikar verið í boði.
Hansína B. Einarsdóttdr, hótel-
stýra á Hótel Glymi fór yfir stöðu
mála en verkefnið All Senses
Group - Upplifðu allt á Vestur-
landi, er að ljúka sínu öðru tímabili.
Það hófst í apríl 2005 og innan
samstarfsins eru nú 17 ferðaþjón-
ustufýrirtæki á Vesturlandi sem
ákváðu að vinna saman að markaðs-
og gæðaverkefiium. Það kom fram í
máli Hansínu að í tengslum við þær
kynningar sem hópurinn hefur
þegar staðið fyrir, hafi komið ffam
að Vesturland hafi verið lítt þekkt
fyrir. Einnig væri ljóst að svæðið
skorti alvarlega gott og
samræmt kynningarefhi
til þess að geta unnið
betur faglega og keppt
við aðra landsfjórðunga.
Hansína sagði að það
kynningarefni sem hóp-
urinn væri búinn að
gera og koma ffá sér
væri að vekja verðskuld-
aða athygli. T.d. bolir,
sem eru orðnir eins
konar einkennisflík
hópsins, kynningarbæk-
lingar, auglýsingaborð-
ar, heimasíða og fleira.
Einnig hefur hópurinn
staðið fyrir fjölmiðla-
fundum, bæði hér
heima og erlendis. Þeir
hafa þótt takast mjög vel
og vakið sérstaka at-
hygli. Almenn ánægja er
með samstarf ferðaþjónustuaðil- mennsku verði það svæðinu til
anna á svæðinu. heilla að vinna saman. Miklir og
Niðurstaða hópsins er sú að mik- spennandi tímar séu ffamundan og
ið starf sé effir óunnið í ferðamál- margir möguleikar séu fyrir grein-
um á Vesturlandi, en með frekari ma í landshlutanum að efla sig.
samvinnu, kynningarstarfi og fag- ÁH
Auglýsing um starfsleyfi
Samkvœmt ákvœðum 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi
fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, er hér með
lýst eftir athugasemdum við tillögur að starfsleyfi fyrir Bensínorkuna
ehf, sem hyggstsetja niður bensínstöð við Hreðavatnsskála, Borgarbyggð.
Um er að rœða sjálfsafgreiðslustöð, sem staðsett verður við þjóðveg 1.
Starfsleyfistillögur liggja frammi á skrifstofu Borgarbyggðar að
Borgarbraut 14 á skrifstofutíma, frá 16. nóvember til 14. desember
2006. Þá er hœgt að nálgast tillögurnar á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands.
. Athugasemdum við tillögurnar skal skila á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits
| Vesturlands að Borgarbraut 14, 310 Borgarnes, í seinasta lagi 15.
I desember 2006 og skulu þær vera skriflegar.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands
Snæþvottur - Besta
Grundargötu 61 • Grundarfirði
Hjá okkur getur þú komið með
jólafötin í hreinsun og
sængurnar, yfirdýnurnar,
rúmteppið, jólagardínurnar og
rúmfötin í þvott. Einnig getur þú
fengið allt til þrifa, jólaseriur,
jólapappír, jólaföndur og fleira.
Hjá okkurfærð þú
það ný þvegið.,.
Þvottahús &
fatahreinsun
Fagurhólstún 2
Grundaríirði
Sími: 438 6500
Gsm: 849 9552
Umboðsaðilar eru:
Sjávarborg Stykkishólmi
Verslunin kassinn Ótafsvík
Hraðbúð Esso Hetlissandi
tuglýsíng yrrt
ver fnastyrki
til menningarstarfs á Vesturland 2007
Menningarráð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum
um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Vesturlandi,
Menntamálaráðuneytisins og Samgönguráðuneytisins frá
28.október 2005, um menningarmál.
Veita á styrki til menningarstarfs á Vesturlandi. Einstaklingar,
félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á
Vesturlandi geta sótt um styrk til margvíslegra
menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni
fram á mótframlag.
Menningarráð Vesturlands hefur ákveðið að árið 2007
hafi þau verkefni sem uppfylla eitt eða fleiri
eftirtalinna atriða forgang á styrki:
• Aðkoma ungs fólks að listum og menningu, sérstaklega
þeirra sem hafa stundað listnám eða lokið því.
• Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða
listgreina.
• Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. Sérstakt vægi
fá verkefni sem miða að fjölgun starfa.
• Verkefni sem draga fram sérstöðu hvers svæðis.
• Verkefni sem gera sögustaði, listaverk og aðra
menningartengda staði sýnileg.
• Menningartengd ferðaþjónusta sem talin er laða að
ferðamenn.
Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2007.
Póststimpill gildir.
Umsóknir skal senda í tölvupósti menning@vesturland.is
eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Vesturlands,
Bjarnarbraut 8.310 Borgarnes.
Eyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu Menningarráðs
www.menningarviti.is . Þar er einnig hægt að nálgast
úthlutunarreglur og stefnu sveitarfélaga á Vesturlandi í
menningarmálum. Þá má nálgast umsóknareyðublöð á
skrifstofum sveitastjórna á Vesturlandi.
Umsækjendur athugið að vanti einhverjar þær upplýsingar
sem óskað er eftir á umsóknarblöðum eða að Menningarráðið
telur umsóknina ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru
áskilur það sér rétt til þess að taka ekki viðkomandi umsókn
til afgreiðslu og verður henni því hafnað. Ekki verður unnt
að gera breytingar eða viðbætur á umsókn eftir að
umsóknafrestur er liðinn.
Menningarfulltrúi verðurtil viðtals í Búðardal 21. nóvember,
Akranesi 22. nóvember og í Stykkishólmi 23. nóvember.
Sjá nánar auglýst á skrifstofum sveitarfélaganna.
Menningarfulltrúi, Elísabet Haraldsdóttir, er staðsett í
Borgarnesi Bjarnarbraut 8, sími 8925290
netfang menning@vesturland.is
Menningarfulltrúi
Vesturlands