Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Qupperneq 10

Skessuhorn - 15.11.2006, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 Spuming vikunnar Hvað finnst þér skemmtilegast við veturinn? (spurt í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri) Asdts Lilja Amarsdóttir, 4 ára Að vera úti í snjónum að leika mér. Guttormur Jón Gíslason, 5 ára Mérfmnst skemmtilegast að renna mér á sleða og borða snjóinn. Birta Björk Birgisdóttir, að verða 4 ára Að vera heima og leika. Davíð Eldjám Guðmundsson, 5 ára Mér finnst skemmtilegast af óllu að leika mér í snjónum, renna á sleða ogfara í kúlukast (snjókast). Vignir Þór Kristjánsson, 4 ára Vera ífótbolta og renna mér á sleða. Bílgeymsla komin og lyfta á leiðinni I sumar var tekin í notkun ný bíl- geymsla við Heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Rúmar hún báða sjúkrabíla stöðvarinnar og er að- staðan bylting fyrir sjúkraflutinga- menn. I júní í sumar veitti Heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra fé til kaupa á lyftu í hús heilsu- gæslustöðvarinnar. Er á þessum vikum verið að ganga frá pöntun á lyftunni, að sögn Guðrúnar Krist- jánsdóttur, ffamkvæmdastjóra. Þess má geta að þegar húsið var byggt fyrir 30 árum síðan, var gert ráð fyrir lyftu í það en hún hefur aldrei komið þó lyftuhúsið hafi alltaf ver- Siv og Hermann Jóhannsson, sjúkrabílstjóri. Siv Friðleifsdóttir.; heilbrigðisráðherra og Guðrún Krisljánsdóttir, framkvœmdastjóri. ið fyrir hendi. A fyrsta vetrardag, þann 21. október sl. kom starfsfólk Heil- brigðisráðtmeytisins í heimsókn á heilsugæslustöðina ásamt Siv Frið- leifsdóttur, ráðherra. Voru gestimir í árlegri haustferð ráðtmeytisfólks. Starfsfólk Heilsugæslustöðvarinnar tók á móti hópnum og sýndi að- stöðuna. Guðrún framkvæmda- stjóri fór stuttlega yfir starfsemina og tölulegar staðreyndir. I máli hennar kom m.a. ffam að gríðarleg aukning er á aðsókn að þjónustu heilsugæslustöðvarinnar. MM KrókódíU og antilópa á jólamatseðlinum Gunnar Garðarsson matreiðslu- meistari á veitingastaðnum Kaffi Bifföst fer ekki troðnar slóðir á sér- stökum jólamatseðli sem hann býð- ur viðskiptavinum sínum á aðvent- unni. Meðal þess sem þar er að finna er krókódíll og antilópa. Einnig er þar strútur, skötuselur og krabbi sem ekki hafa verið taldir til hefð- bundinna jólarétta. Þegar að hangi- kjötinu kemur hefur því verið breytt í skífur og em þær bomar ffam með baunageli. Gunnar var um árabil yfirmat- reiðslumeistari á Hotel Legolandi í Danmörku. Hann segir krókódíl, strút og antdlópu hafa notið vin- sælda á veitingastað hótelsins. Hon- um hafi því þótt eðlilegt að bjóða gestum Kaffi Biffastar að njóta þess einnig. Gunnar segir hefðbundin jólahlaðborð landsmanna komin að ákveðnum endamörkum og því full ástæða til þess að brydda upp á nýj- ungum í því sambandi. A Kaffi Bif- röst hafi því verið ákveðið að setja saman metnaðarfullan matseðil í stað hefðbundins hlaðborðs. Krókódílaeldi er stundað víða er- lendis og þaðan kemur kjöt það sem notað verður á Bifföst. Gunnar seg- ir að kjötið þurfi að standast miklar kröfur áður en innflutningsleyfi fæst. Kjötið er ljóst, þétt og milt á bragðið og afar bragðgott. Anti- lópukjötið segir Gunnar að sé dökkt og með mildan og góðan villibráð- arkeim. „Eg hræðist ekki að bjóða gestum mínum rétti af þessu tagi því ég veit af eigin reynslu að þetta er gott hrá- eftii og víðsýnir gestir okkar kunna án efa vel að meta það,“ segir Gunn- ar að lokum. HJ Sorpgjöld hækld um 8-10% Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt að vísa til fyrri umræðu í bæj- arstjórn nýrri gjaldskrá fyrir sorp- hirðu og eyðingu sorps. Samkvæmt tillögunni hækka sorpgjöld um rúm 8-10%. Gjald fyrir sorptunnu við íbúðarhúsnæði verður samkvæmt tillögunni 13.500 krónur á ári en er í dag 12.500 krónur og verður hækkunin því 8%. Aðrir gjald- flokkar hækka á bilinu 8-10%. Áfram verður ákvæði til bráða- birgða um að ekki skuli innheimt sorpgjald samkvæmt vigt ffá heim- ilum sem koma með sorp til losun- ar hjá Gámu á meðan bæjaryfirvöld eru með til sérstakrar skoðunar flokkun sorps með tilliti til úr- vinnslugjalda. Gjaldskráin verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 28. nóvember. HJ Sparisjóðir Olafevíkur og Keflavíkur sameinast Stjómir Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Olafsvíkur hafa und- irritað áætlun um samrana spari- sjóðanna sem miðast reikningslega við 1. júlí 2006. Þetta kemur fi-am í tilkynningu sjóðanna til Kauphallar Islands. I tillögu sem lögð verður fyrir fund stofnfjáreigenda er gert ráð fyrir því að eigið fé hins sam- einaða sjóðs verði u.þ.b. 8 milljarð- ar króna. Við samrunann verður miðað við sama hlutfall á milli stofnfjár og annars eigin fjár í báð- um sjóðunum. Til að ná því mark- miði hefur verið ákveðin aukning stofnfjár í Sparisjóði Olafsvíkur. I hinum sameinaða sjóði munu stofnfjáreigendur f Sparisjóði O- lafsvíkur eiga u.þ.b. 3,2% en eig- endur stofhfjár í Sparisjóðnum í Keflavík 96,8%. í tilkynningunni segir að rekstur beggja sjóða hafi gengið vel og þeir hyggist halda á- ffam stöðu sinni sem máttarstólpar í heimabyggð. „Það er markmið stjóma sjóðanna með tillögu um sameiningu að efla starfsemi á starfssvæðum sínum og sækja fram á nýjum vettvangi. Stjórnirnar telja sameiningu sparisjóða nauðsynlega til að mæta kröfum tímans um al- hliða og hagkvæma fjármálaþjón- ustu við einstaklinga og fyrirtæki. Þau markmið fara saman við þá skyldu að efla hag stofnfjáreigenda og starfsfólks sjóðanna,“ segir orð- rétt í tilkynningunni. Sparisjóður Olafsvíkur er einn af elstu sparisjóðum landsins og var hann stofnaður árið 1892. HJ Gengur hægt með þjóð- veg eitt í Norðurárdal Nýbygging þjóðvegar nr. 1, frá Laxfossi í Stafholtstungum að Brekku í Norðurárdal er ekki inni í núgildandi vegaáætlun, 2005-2008. Búið er að undirbyggja veginn ffá Grafarkoti upp fyrir Laxfoss og þeim áfanga verður væntanlega lokið næsta sumar. Að sögn Magnúsar Jóhannsson- ar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Norð-Vestursvæði verður farið fljótlega í að endurskoða áætlunina og verður hún þá ffamlengd um tvö ár, þ.e. 2009-2010. Þar ættd þessi hlutd hringvegarins, þ.e. frá Laxfossi að Brekku að koma inn. Með mikilli bjartsýni gætu verklok orðið haustið 2009. Magnús á ekki von á því að fjármagn komi til verksins, fyrr en þá, þótt allir séu sammála um nauðsyn þess að flýta verkinu og sagði Magnús að Vega- gerðin muni án efa leggja tdl að þessum áfanga verði hraðað. Einnig sagði hann brýnt að laga veginn við Hreðavatnsskála, en fjármagn í þann áfanga hefur ekki heldur verið tryggt. BGK Laun sveitarstjómar í Hvalíj arðarsveit ákveðin Sveitarstjórn hins nýja sveitarfé- lags Hvalfjarðarsveitar hefur sam- þykkt laun sér til handa og urðu nokkrar umræður um málið á fundi sveitarstjórnar þar sem þrjár tdllögur voru lagðar ffam um mál- ið. Upphafleg tillaga sveitarstjóra var felld en samþykkt tillaga tveggja sveitarstjórnarmanna. Málið var rætt á fundi sveitar- stjórnar í október og var sveitar- stjóra þá falið að leggja tillögu fyr- ir sveitarstjórn í samræmi við um- ræður á fundinum. A fundi sveitar- stjórnar á þriðjudaginn lagði Einar Orn Thorlacius sveitarstjóri svo fram tillögu um launagreiðslur. í bókun með henni segir að hann vekji sérstaka athygli á að hann líti á tillögur sínar sem bráðabirgðatil- lögur þangað til staða sveitarsjóðs liggi fyrir úr bókhaldi og því leggi hann til að launagreiðslur verði endurskoðaðar á fyrri hluta næsta árs. Einar lagði til að sveitarstjórnar- menn fengju greidd 10% af þing- fararkaupi eða 48.557 krónur á mánuði og oddviti sveitarstjórnar fengi greidd 25% af þingfarar- kaupi eða 121.393 krónur á mán- uði. Að auki lagði Einar til að sveitarstjórnarmenn og oddviti fengju greidd 2% af þingfarar- kaupi eða 9.711 krónur fyrir hvern setinn fund. Þá lagði hann einnig til að nefndarmenn fengju 9.711 fyrir hvern fund og formenn nefnda 3% eða 14.566 krónur. Sigurður Sverrir Jónsson og Magnús I. Hannesson lögðu fram breytingartillögu þar sem lagt er til að sveitarstjórnarmenn fái greidd 8% af þingfararkaupi, odd- viti fái greidd 12% en nefndalaun séu þau sömu og sveitarstjóri lagði tdl. Arnheiður Hjörleifsdóttir og Stefán Ármannsson lögðu til að sveitarstjórnarmenn fengju greidd 8% og oddviti 25%. Eftir umræð- ur var gengið til atkvæða um til- lögu Sigurðar Sverris og Magnús- ar og var hún felld með tveimur at- kvæðum gegn fjórum. Tillaga Arn- heiðar og Stefáns var síðan sam- þykkt með fjórum atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Sigurðar Sverr- is og Magnúsar. Sveitarstjórnar- menn í Hvalfjarðarsveit munu því fá greiddar 38.846 krónur á mán- uði og oddviti 121.393 krónur á mánuði auk greiðslna fyrir fundar- setur. Ef miðað er við að sveitarstjóm komi saman tvisvar í mánuði verða því laun sveitarstjórnarmanns 58.268 krónur. Að auki fær sveitar- stjórnarmaður greiddar 10.000 krónur á mánuði vegna aksturs- og símakostnaðar. Einnig bætast við þessar greiðslur laun fyrir setu í nefndum. Að sögn Einars Arnar Thorlaci- usar sveitarstjóra reyndi hann í til- lögu sinni að taka mið af launum í sveitarfélögum af svipaðri stærð. Þar hafi hann einkum horft til launa sveitarstjórnar í fyrrum Borgarfjarðarsveit. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.