Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Síða 13

Skessuhorn - 15.11.2006, Síða 13
^ftU»uni/bi MIÐVIKUDAGUR 15. NOVEMBER 2006 13 Óska eftir raunhæfti áædun í uppbyggingu hjúlo*unaiTýma Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt samhljóða ályktun þar sem skorað er á heilbrigðisráð- herra og ríkisstjórn að hið fyrsta verði unnin raunhæf áætlun í upp- byggingu hjúkrunarrýma og fjár- magn fáist til þeirrar uppbyggingar. Undanfarið hefur verið tmnið að tillögum um fjölgun hjúkrunar- rýma við Dvalarheimilið í Borgar- nesi en heimilið var ekki eitt þeirra sem nefht var þegar heilbrigðisráð- herra tilkynnti um fjölgun hjúkrtm- arrýma um 174 á næstu fjórum árum. I ályktuninni segir að sveitar- stjóm Borgarbyggðar fagni því að stjórnvöld hafi ákveðið að taka á þeim vanda sem brýnastur er en treysti því að hér sé aðeins um fyrsta skref af mörgum að ræða. „Undirliggjandi þörf á hjúkrunar- rýmum er mikil og skorar sveitar- stjórn á heilbrigðisráðherra og rík- isstjórnina að hið fyrsta verði unn- in raunhæf áætlun í málaflokknum og fjármagn fáist til að bæta úr. I Borgarbyggð er mikil uppbygging og fýrirsjáanleg fjölgun íbúa. Sveit- arstjórn Borgarbyggðar hefur kynnt heilbrigðisráðherra ígrund- aða áætlun um fjölgun hjúkrunar- rýma við Dvalarheimilið í Borgar- nesi og trúir ekki öðra en að með sameiginlegu átaki megi vinna það mál til enda.“ Páll S Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar segir að um langt skeið hafi staðið til að stækka dval- arheimilið í Borgarnesi og ýmsar leiðir verið skoðaðar í því sam- bandi. „Nú liggur fyrir vilji stjórn- ar heimilisins um að byggja við fyrst og fremst til að fjölga hjúkr- unarrýmum og með samþykktinni er sveitarstjóm í raun að styðja þá stefnu að byggja við heimilið og fá fleiri hjúkrunarrými“. HJ Sveitarstjóm viil íjölga lögreglumönnum Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi í síð- ustu viku ályktun þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af miklu álagi á lögreglumenn við embætti Sýslumannsins í Borgarnesi. Eins og ffam hefur komið í Skessuhorni ályktaði stjórn Lögreglufélags Vesturlands um málið á dögunum þar sem fram kom að fjöldi lög- reglumanna í Borgarnesi hafi ekki vaxið í samræmi við aukin verkefni og fólksfjölda í umdæminu. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar tekur heilshugar undir ályktun Lögreglufélags Vesturlands og hvetur dómsmálaráðherra til þess að bæta úr og auka fjárveitingu til Sýslumannsembættisins í Borgar- nesi þannig að lögreglumönnum er við embættið starfa verði skapað viðunandi starfsumhverfi og öryggi þeirra sem búa og era gestkomandi í Borgarbyggð verði viðunandi," segir orðrétt í ályktun sveitar- stjórnar. HJ Jörð og framleiðslurétt- ur tvöfaldaðist í verði I dómi Héraðsdóms Vesturlands á dögunum í skilnaðarmáli kemur glögglega fram hversu mjög jarðir á Vesturlandi hafa hækkað á skömm- um tíma og sömu sögu er að segja af framleiðslurétti í mjólk. Málsatvik era þau að hjón sunnan Skarðsheið- ar ákváðu að slíta samvistum árið 2003. Af ýmsum ástæðum seinkaði þó lögskilnaði meðal annars vegna ógerðra samninga um meðlags- greiðslur og annarra fjárskiptasamn- inga. Málið var síðan tekið fyrir á nýjan leik árið 2005 þar sem stuttu seinna lögskilnaðtu gekk í gegn og var skiptastjóri fenginn til þess að meta jörðina. Agreiningur hinsvegar skapaðist á milli hjónanna hvort ætti að miða matið við árið 2003, er skilnaður á borð og sæng var til- kynntur, eða 2005, er lögskilnaður- inn gekk í gegn. Fór það svo að skiptastjóri mat jörðina, ásamt öllu því sem fylgdi búrekstrinum, og miðaði hann það annars vegar við ágúst 2003 og hins vegar við verðlag í september 2005. Athyglisvert er að sjá hvað verðið hefur rokið upp á tveirnm áram og þá aðallega á jörðinni og fram- leiðsluréttinum í mjólk. Jörðin, sem var metin árið 2003 á 65 milljónir er talin á 130 milljónir árið 2005. Mjólkurkvótinn er rúmlega 25 milljónir árið 2003 en tveimur áram seinna í tæpum 50 milljónum. Þetta er ríflega helmingshækkun á jörð- inni og nánast það sama á við með framleiðsluréttinn. Bústofninn, ffamleiðsluréttur í sauðfé og sölu- andvirði véla og tækja hækkuðu hins vegar óveralega milli áranna. Urskurður Héraðsdóms Vestur- lands varð sá að jörðin skyldi metin út ffá verðlagi 2005. HJ Hálft prósent atvinnu- leysi á Vesturlandi I októbermánuði síðastliðnum vora atvinnuleysisdagar á landinu öllu skráðir 36.180, sem jafhgildir því að 1.645 manns hafi að meðal- tali verið á atvinnuleysisskrá í mán- uðinum. Þessar tölur jafngilda 1% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efna- hagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í október 2006 er 159.726. Atvinnu- leysi hefur ekki verið lægra síðan í október árið 2000. Atvinnuleysi á landinu er minnst á Norðurlandi vestra, eða 0,3%, á Austurlandi er það 0,4% og á Vesturlandi 0,5% sem skiptist þannig að 0,3% karla era án atvinnu í landshlutanum og 0,9% vinnufærra kvenna. MM Auglýsing um starfsleyfi Samkvœmt ákvæðum 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögur að starfsleyfi fyrirfiskvinnslufyrirtœki að Miðhrauni 3, Eyja- og Miklaholtshreppi. Um er að rœða heitloftsþurrkun og frystingu á fiski til útflutnings. Starfsleyfistillögur liggja frammi hjá oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps að Hofsstöðum, frá 16. nóvember til 14. desember 2006. Þá er hœgt að nálgast tillögurnar á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Athugasemdum við tillögurnar skal skila á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits I Vesturlands að Borgarbraut 14, 310 Borgarnes, í seinasta lagi 15. I desember 2006 og skulu þœr vera skrifiegar. Heilbrigðisnefnd Vesturlands ■ if ■ap' 1 HÉiMIUÐ I = H E I L D V Hafðu samband við söluaðila: Helgi Björn Hjaltested Sími6941039 J Sögusýning Allir hjartanlega velkomnir! Velkomin í Haraldarhús 100 ár eru liðin frá því að Haraldur Böðvarsson hóf atvinnurekstur á Akranesi. í tilefni af því verður opið hús í Haraldarhúsi að Vesturgötu 32. Húsið verður opið á laugardag og sunnudag kl. 14.00-18.00 og einnig á mánudag og þriðjudag kl. 16.00-18.00.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.