Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 15.11.2006, Blaðsíða 19
...fJWIIhK-. MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 19 7^etitútit\ Umræðan um erlent vinnnafl Að undanförnu hafa málefni er- lends vinnuafls mikið verið til um- ræðu í íslensku þjóðlífi. Að mati formanns Verkalýðsfélags Akra- ness hefur einstaka aðilum í þjóð- félaginu tekist að afbaka þá þörfu umræðu sem þarf að eiga sér stað um málefhi erlends vinnuafls. Um- ræðan um málefhi erlends vinnu- afls á ekki að snúast um trúarbrögð eða litarhátt fólks. Umræðan á að snúast um íslenskan vinnumarkað og hvaða áhrif og afleiðingar óheftur innflutningur á erlendu vinnuafli hefur á launakjör ís- lenskra launþega. Einnig á umræð- an að snúast um hvernig hægt er að koma í veg fyrir að óprúttnir at- vinnurekendur misbjóði erlendu verkafólki bæði hvað varðar að- búnað sem og önnur starfskjör. Er óeðlilegt að íslenskir laun- þegar hafi áhyggjur af sinni af- komu þegar tekið er tillit til þess að um 10 þúsund erlendir starfs- menn hafa komið inn á íslenskan vinnumarkað og það aðeins á einu ári? Það er vitað að stór hluti þeirra erlendu starfsmanna sem hingað koma til starfa eru settir á berstrípaða lágmarkstaxta, en ekki á þau markaðslaun sem gilda á við- komandi starfssvæði. Þessu til við- bótar er verið að þverbrjóta á rétt- indum erlends verkafólks bæði hvað varðar aðbúnað og önnur starfskjör og þau brot eiga sér stað um land allt, eins og margoft hefur komið fram hjá stéttarfélögunum og fjallað hefur verið um á Alþingi. Um málið hefur verið rætt á Al- þingi Islendinga. Hvað sagði ekki Atli Gíslason þingmaður VG í ræðu á Alþingi þar sem fjallað var um atvinnu- og búsetturétt laima- fólks frá EES? „Ég vil nefna dæmi um verkamannahóp sem var að vinna í Reykjavík með 400 kr. jafn- aðarkaup á tímann, vann 16 tíma á sólarhring, klæðalítill og aðbúnað- urinn allur í skötulíki. Ég hitti þessa útendinga næstum á hverjum degi, veit nákvæmlega hver staða þeirra er, tel fram fyrir þá og sinni þeim á alla kanta. Ég þoli ekki að sjá pólskan verkamann vinnandi á Seltjarnamesi í 15 stiga gaddi fyrir 400 kr. á tímann og búa svo í gámi. Það þarf ekkert að kanna eða rann- saka.“ Að sjálfsögðu hefur óheftur inn- flutningur á ódýru vinnuafli slæm áhrif á launakjör íslenskra verka- manna. Fram hefur komið í máli varaformanns Eflingar, stærsta stéttarfélags á Islandi að launkjör íslenskra byggingaverkamanna hafi lækkað um 20 % á einu ári. Hvað sagði Steingrímur J Sig- fússon þingmaður Vinstri-grænna í ræðu á Alþingi þar sem fjallað var um atvinnu- og búsetturétt launa- fólks frá EES? „Það vita t.d. allir að laun ófaglærða verkamanna em á hraðri niðurleið, líka Islendinga, vegna þess að þeir em pressaðir niður á sömu kjör og hægt er að flytja inn Pólverja eða Eystrasalts- búa á. Fróðir menn segja mér að tímakaupið hafi jafnvel lækkað um 250-300 kr. á einu ári.“ Ottinn er ekki ástæðulaus Undirritaður óttast að íslenskir verkamenn og iðnaðarmenn séu byrjaðir að missa störf sín vegna þess hve aðgengi atvinnurekenda að ódým erlendu vinnuafli er orð- ið auðvelt. Nánast öll verkalýðs- hreyfingin benti í sínum ályktun- um á að óheftur innflutningur á ódým vinnuafli myndi grafa undan því markaðslaunakerfi sem hér hefur verið við lýði og um leið gjaldfella launakjör hjá íslenskum launþegum. Hvað mtm gerast þegar sam- dráttur verður á íslenskum vinnu- markaði? Verða það íslenskir verkamenn sem starfa á hefð- b u n d n u m markaðs- launum sem munu fyrstir missa atvinn- una eða verða það erlendir starfsmenn sem sætta sig við að starfa á berstrípuð- um lágmarkstöxtum og jafnvel vel undir þeim? Formaður VLFA hræðist að það verði íslenskt verkafólk sem verði undir í þeirri baráttu. Ég spyr: Eru íslenskir launþegar að ala á kynþáttafordómum með því að hafa áhyggjur launakjörum sínum og jafnvel störfum sínum, í kjölfar þeirrar sprengingar sem orðið hefur á innstreymi erlends vinnuafls hingað til lands? Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akra- ness T^etttútitv-fá Afferðalagi nokkurra gulróta... Gulrætur eru góðar og eftir því hollar. Því kaupum við hjónin þær reglulega. Við síðustu kaup í Borg- amesverslun sá ég að þær hvíldu þar í pokum sínum hlið við hlið þroskamiklar, rauðgular og ferskar, komnar ofan úr Deildartungu í Reykholtsdal og hins vegar sigldari og ólíkt reynslumeiri gulrætur, komnar alla leið úr Jóakimsdal vestur í Kaliforníusveit. Þær fyrr- nefndu höfðu ferðast eina 35 km, sennilega í bifreið ræktanda síns, en þær síðarnefndu víst 6940 km (miðað við loftlínu) á vegum ým- issa í bókstaflegri merkingu. Ég fór að hugsa um auðlindir heimsins og hagræðingu nútímans. Ég fór að hugsa um alla þá sem hafa áhyggjur af þverrandi elds- neyti. Ég fór líka að hugsa um þá sem sitja á löngum samningafund- um þjóða um frjálsa verslun og einnig um þá sem vinna úr Kyoto- bókuninni frægu í von um að stemma megi stigu við öllu sótinu sem skip, bílar og flugvélar freta úr sér við að flytja gulrótapoka og fleira heimshlutanna á milli til þess að verslunin sé frjáls - örsmáar og lymskulegar sótagnir sem þykkja hægt og bítandi þann hjúp er um- lykur jarðarkúluna og talinn er valda hlýnun sem bræða á alla jökla á Islandi innan fárra áratuga. Ég hef að vísu aldrei komið í Jóakimsdal þar vestur í Kaliforníu en efa ekki að þar sé gott undir gulrótabú og að bóndi þar láti gjöfula náttúruna um að ala gul- ræturnar af sér (þær eru að vísu undarlega smáar og ótrúlega líkar að lögun). En í Deildartungu veit ég að gulræturnar vaxa líka við sól og sumaryl; sumar verða að vísu stórar og aðrar enn stærri. A meðan grundvöllur er fyrir gulrótarækt í Deildartungu veit ég að þar mun ljós í glugga; líka að ég mun næsta örugglega hitta bónda þar við samkomur í Reykholti eða þá á þorrablóti í Logalandi þó ég eigi sennilega aldrei eftir að hitta hinn atorkusama gulrótabónda úr Jóakimsdal í Kaliforníusveit og forvitnast um gulrótarækt hans. Mér leiðast líka löng ferðalög að nauðsynjalausu. Og þó ég hafi aldrei ferðast 6940 km tel ég víst að slík reisa myndi reyna meira á mig og um- heiminn en 35 km skreppitúr hér innan- sveitar. Sama á örugglega við um gulræturnar... Ég stakk gulrótapokanum úr Deildartungu ofan í innkaupakörf- una okkar og fannst ég hafa greitt atkvæði um heimsmálin og framtíð veraldar. Bjami Guðmundsson 7*etltÚttér-ú Hvers vegna hafa Skógarströnd og Laxárdalnr gleymst? Samgöngur eru mikilvæg- ar og sérstak- lega skipta þær lands- byggðina miklu máli á svo margan hátt. Kröfur eru upp í um góðar samgöngur og mikið er horft til þess að stytta vegalengdir sem er hagkvæmt bæði fyrir vegfarendur og þjóðarbúið. Flestir eru sammála því að fjár- magni Ríkissjóðs sé vel varið í þennan málaflokk. A undanförnum árum hefur náðst góður árangur í að laga vegakerfið með því að byggja upp vegi og leggja á þá bundið slitlag. Ibúar Vesturlands hafa notið þess á mörgum stöðum. Einn er sá kafli sem hefur algjör- lega gleymst í allri þessari upp- byggingu, það er vegurinn inn Skógarströnd og Laxárdal. Næstum því í hvert sinn sem ég keyri um Skógarströndina kemst ég í vont skap og alltaf þegar rign- ing er. Fyrir nokkrum dögum ók ég þessa leið. Vegurinn var með eindæmum slæmur. Holurnar á þeim vegi hafa bæst við í þann flokk sem er óteljandi á Islandi. Aðkoman að brúm var slík að ekki var óhætt að aka nema með ýtrustu varkárni til að skemma ekki bílinn. Engar varúðarmerkingar voru á veginum. Það er eins og þessi veg- arkafli hafi verið aflagður fýrir nokkrum árum því lítið sem ekkert hefur verið gert þar af varanlegum endurbótum á síðustu árum. En skiptir þessi vegur þá ein- hverju máli? Jú, vegurinn um Skógarströnd skiptir miklu máli í vegakerfi landsins. Hann er teng- ing á milli Snæfellsness og lands- hlutanna fyrir vestan og norðan. Vegurinn er nauðsynleg sam- gönguleið við Dalina, því milli þessara svæða þarf að hafa góðar samgöngur. Vegfarandur á norð- anverðu Snæfellsnesi fara þessa leið þegar farið er á Vestfirði, Strandir og norður í land og sama á við þegar gestir af þessum svæð- um vilja heimsækja okkur. Vöru- flutningar fara um Skógarströnd eins og mjólkurflutningar og fisk- flutningar. Ég ferðast mikið norður í land. Það skiptir mig máli að geta farið Skógarströndina og Laxárdals- heiði. Vegalengdin þá leiðina í Brú er 136 km en að fara suður í Borg- arnes og Holtavörðuheiði er leiðin 185 km löng. Það munar hvorki meira né minna en 50 kílómetrum og er síðari leiðin 35% lengri. Með nýjum vegarkafla í Hrútafirði styttist leiðin norður við að aka Skógarströndina og verður mun- urinn enn meiri. Það munar um minna, ekki satt? Þá hef ég reynslu af því að vetri til að Laxárdalsheið- in er öruggari en Holtavörðuheið- in þegar hvasst er og snjókoma. Með vegabótum á þessari leið og um leið auknu öryggi mun umferð aukast til muna. Ég veit að vega- kaflinn verður ekki endurbættur í einum áfanga. Því er nauðsyn að fara að gera eitthvað, þó ekki nema í skrefum. Hver smákafli malbik- aður skiptir máli. En hvenær eig- um við von á úrbótum? Ég skora á frambjóðendur til al- þingiskosninga í okkar kjördæmi að leggja leið sína um Skógar- strönd og Laxárdalsheiði í kosn- ingabaráttunni. Ég er viss um að þeir sjái að brýn þörf er á úrbótum og taki undir með mér að hver kafli endurbættur skiptir máli. Þá verður vonandi hafist handa. Gunnlaugur Auðunn Amason, Stykkishólmi www.skessuhorn.is TIL LEIGU LANDMÆLINGAR Verslunar-eða þjónustuhúsnæði að Stillholti 16-18 Akranesi. Húsnæðið er á jarðhæð og er 110 fm. Upplýsingar veitir Jóhanna Hallsdóttir hjá Landmælingum íslands sími: 430 9004 / 861 5890, netfang: johanna@lmi.is INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali FASTEIGN í B0RGARNESI HRAFNAKLETTUR 8 íbúð á 3. hæð (efstu) í fjölbýlishúsi, 96 ferm. Hol flísa- og parketlagt. Stofa parketlögð. Þijú herbergi dúklögð. Eldhús parketlagt, eldri viðarinnrétting. Baðherbergi með flísum á gólfi en veggir málaðir. Sér geymsla • og sameignleg geymsla og þvottahús í kjallara. | Verð: 15.500.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.