Skessuhorn


Skessuhorn - 15.11.2006, Side 23

Skessuhorn - 15.11.2006, Side 23
^tttssuiiuu MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 23 Iþróttafélög á Snæfellsnesi í samstarf Ákveðið hefur verið samstarf á milli knattspyrnufélaga á Snæfells- nesi í 2.-7. flokki karla og kvenna. Það eru félögin Víkingur/Reynir, Umf Grundarfjarðar og Snæfell sem standa að samstarfinu. Iðk- endur félaganna munu áfram æfa í sínu byggðarlagi, með sínum þjálf- ara, en yfirþjálfari verður Ejub Purisevic og mun hann fara á milli staða og samræma æfingar. Með yfirþjálfun er reynt að tryggja að iðkendur fái allir sömu grunnþjálfun en flokkunum verður skipt niður á ákveðna þjálfara. Ráðgert er að halda sameiginlegar æfingar um helgar þar sem spilar- ar og þjálfari ná að kynnast betur. í samtali við Jónas Gest Jónas- son, einn af forsvarsmönnum knattspyrnusamstarfsins, sagði hann að megin ástæðan fyrir því að iðkendur æfi ekki alltaf saman, sé fjarlægðin milli staða. Sem dæmi væru um 70 km á milli Ólafsvíkur og Stykkishólms og það gengi einfaldlega ekki upp að leggja slíkt ferðalag á yngstu þátt- takendurnar. Aðspurður hvort þetta væri vís- bending um sameiningu íþróttafé- laganna á Snæfellsnesi, sagði hann að vissulega væri verið að taka fyrsta skrefið í þá átt, en a.m.k. myndi þetta efla samstarfið til muna. Jónas segist búast við einhverjum hnökrum til þess að byrja með á meðan félögin væru að samhæfa störf en annars væru menn almennt mjög bjartsýnir með framhaldið. KH Nýr þjálfari Skallagríms Knattspyrnudeild Skallagríms hefur ráðið Jón Kristjánsson í starf þjálfara meistaraflokks fé- lagsins fyrir næsta keppnistíma- bil. Samningurinn var undirritað- ur í íþróttamiðstöðinni í Borgar- nesi sl. fimmtudag og að því loknu stjórnaði hinn nýi þjálfari sinni fyrstu æfingu hjá liðinu. Lið Skallagríms varð í fjórða sæti c- riðils 3. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu á seinustu leiktíð. Björn Sólmar, þjálfari yngri flokka fé- lagsins, var jafnframt ráðinn framkvæmda- stjóri deildarinnar MM Valgeir Ingólfsson og Jón Kristjánsson. Ljósm. Magnús Geir Eyjólfsson. Körfuboltaleikir vikunnar Lið Skallagríms í körfunni vann Hauka í Hafnarfirði á sunnudag- inn var og átti ekki í vandræðum með sigur gegn slöku liði gest- gjafanna. Borgnesingar skoruðu 98 stig gegn 79 stigum Hafnfirð- inga. Darrel Flake stóð sig skín- andi vel og skoraði 27 stig fyrir Skallagrím, tók 18 fráköst og varði 5 skot. I fyrsta sinn í ellefu tímabila sögu núverandi fyrirkomulags í úrvalsdeild karla eru fjögur lið efst og jöfn að stigum eftir fyrstu sex umferðirnar. KR, Snæfell, Njarð- vík og Grindavík, en þau eru öll með tíu stig af tólf mögulegum. Það þýðir að hvert lið hefur unnið fimm leiki og aðeins tapað einum. Snæfell spilaði gegn Ham- ar/Selfossi og átti leikurinn að fara fram í Hveragerði í gær- kvöldi, þriðjudagskvöld, eða eftir að vinnslu blaðsins lauk. Leikur- inn frestaðist um sólarhring en Snæfellingar urðu veðurtepptir vegna mjög slæms veðurs á Snæfellsnesinu á mánudaginn var. KH Vilja viðræður um rekstur á Jaðarsbökkum Nautilus ehf. hefur óskað eftir viðræðum við Akraneskaupstað um rekstur heilsuræktarstöðvar í íþróttamiðstöðinni að Jaðars- bökkum. Tómstunda- og for- varnanefnd baejarins hefur ákveð- ið að boða rekstrarstjóra fyrirtæk- isins til fundar við fulltrúa nefndar- innar. Heilsuræktarstöð er rekin Keilufélag Starfsemi Keilufélags Akraness er komin í fullan gang. Deildarliðin hafa byrjað sína keppni og er hægt að fylgjast með liðum KFA ÍA á kli.is og keila.is. Keila í Mjódd hætti starfsemi í vor svo að keppni í keilu þennan vetur fer eingöngu fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og í Keilusal Akraness í kjallara íþrótta- hússins við Vesturgötu. í þeim unglingamótum sem far- ið hafa fram það sem af er vetri hafa KFA krakkarnir staðið sig vel. Á íslandsmót unglingaliða sendi KFA ÍA tvö lið en aðeins 4 lið eru skráð í allt til keppni þennan vetur. í fyrstu umferð gerði lið eitt, þau að Jaðarsbökkum í dag og er það ÍA sem sér um reksturinn sam- kvæmt samningi við bæjarfélagið sem gildir til síðla árs 2008. Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri hjá Akraneskaupstað segir að samstarfið við ÍA um reksturinn hafi gengið vel og því sé ekki á stefnuskránni að breyta því sam- Skúli Freyr Sigurðsson, Bylgja ösp Pedersen og Steinunn Inga Guðmundsdóttir sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki og lentu í 1. sæti. Lið tvö, skipað þeim Kristó- fer Júlíussyni, Gunnari Ágústi Ómarssyni, Þorbergi Maron Hjálmarssyni og Hjördísi Árnadótt- ur, vann einn leik og lenti í 3. sæti. Laugardaginn 4. nóvember byrj- aði svo Meistarakeppni ungmenna sem er einstaklingskeppni og átti KFA (A einnig marga þátttakendur þar. Fyrsti til þriðji flokkur keppti í Öskjuhlíð: í 1 .flokki pilta Keppti Magnús Sigurjón Guðmundsson og lenti hann í 2. sæti með 1178 starfi. Hins vegar þyki tómstunda- og forvarnanefnd sjálfsagt að kynna sér þær hugmyndir sem starfsmenn Nautilusar ehf. hafa um rekstur heilsuræktarstöðvar. Nautilus ehf. rekur í dag Ijórar heilsuræktarstöðvar í Kópavogi, Hafnarfirði og á Álftanesi. HJ pinna eftir sex leiki, aðeins 24 pinnum á eftir Hafþóri Harðarsyni KFR. í 1. flokki stúlkna var Mar- grét Björg Jónsdóttir, KFA ÍA, eini keppandinn og náði hún 766 pinn- um. Þetta er í fyrsta skipti sem að Margrét keppir en hún er nýbyrjuð að æfa keilu. Enginn frá KFA [A var í 2.flokki en í 3. flokki pilta kepptu þeir Skúli Freyr Sigurðsson og Magnús Magnússon. Skúli lenti í 2. sæti með 1091 pinna eftir 6 leiki en Andri Már Ólafsson KFR varð í fyrsta sæti með 1224 pinna. Magnús lenti í 5. sæti með 923 pinna. ( 3. flokki stúlkna lenti Bylgja Ösp Pedersen í 2. sæti með 834 pinna en Ástrós Pétursdóttir ÍR lenti í l.sæti með 954 pinna. Fjórði flokkur keppti í Keilusal Akraness og var KFA ÍA allsráð- andi þar sem engin önnur félög voru skráð til leiks en krakkarnir voru hvattir til dáða af foreldrum og eldri krökkum félagsins: Hin árlega Fyrirtækja- og hópa- keppni í keilu er byrjuð. Að þessu sinni er keppt í 3 riðlum og eru 6 lið í riðli. Dagana 6. -15. fer fram fyrsta umferð. Aðeins eru tveir leikir í hverri viðureign en hafa ver- ið þrír undanfarin ár. Kveðja, Jónína Björg Magnúsdóttir Jakob bikarmeistari í kraftiyftingum Jakob Bjarnason frá Akranesi varð á laugardaginn bikarmeistari í kraftlyft- ingum annað árið í röð á móti sem haldið var í Gym80 í Reykjavík. Jakob lyfti 300 kg í hnébeygju, 255 kg í bekkpressu og 260 kg í réttstööulyftu. Samtals lyfti hann því 815 kg og hafði hann nokkra yfirburði í mótinu. Jakob æfir grimmt og næsta mót er íslands- mótið í bekkpressu og þar á hann titil að verja. Mótið verður haldið íjanúar. HJ Akraness er fimm ára SKESSUHORN Aðventublað Skessuhorns - kemur út 29. nóvember - Ákveðið hefur verið að miðvikudaginn 29. nóvember verði gefið út sérstakt aðventublað Skessuhorns. Þessu tölublaði verður dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi í ríflega 6500 eintökum. Þema blaðsins verður aðventan, jólaundirbúningur og fjölbreytt efni því tengt. Þetta er upplagt tækifæri fyrir t.d. verslanir sem hafa á boðstólnum jólatengda gjafavöru, föndurvörur, þjónustu eða hvaðeina sem tengist jólum og undirbúningi að koma sér á framfæri. Auglýsing í þetta sérblað er því besti mögulegi kostur verslana og þjónustuaðila til að kynna vörur og þjónustu í landshlutanum og hvetja íbúa til að versla í heimabyggð. Skessuhorn býður fyrirtækjum birtingu bæði auglýsinga og fréttatengt efnis í þetta aðventublað. Endilega hafið því samband með góðum fyrirvara t.d. ef þið viljið fá Ijósmyndara, blaðamann eða auglýsingasala frá okkur í heimsókn. Panta þarf auglýsingar í þetta blað tímanlega, eða í síðasta lagi fimmtudaginn 23. nóvember. Allar góðar hugmyndir um efni og efnistök í blaðið eru vel þegnar. Nánari upplýsingar veitir Magnús Magnússon, ritstjóri og Katrín Oskarsdóttir, auglýsingastjóri í síma 433-5500. Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á skessuhorn@skessuhorn.is Með góðri kveðju, Starfsfólk Skessuhorns SKESSUHORN

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.