Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Qupperneq 7

Skessuhorn - 06.12.2006, Qupperneq 7
 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 7 Kærleikskúlan í Norska húsinu í Stykkishóhni I annað sinn styrkir Norska húsið í Stykkishólmi Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra með því að selja Kærleikskúluna. Rennur allt söluandvirðið til Styrktarfélagsins. Kærleikskúlan 2006 er nú komin út og verður fáanleg í Norska húsinu dagana 5. - 19. desember. Kærleikskúlan kemur nú út í fjórða sinn, en eins og áður hefur hvílt leynd yfir því hver sé listamaðurinn og hvernig verk hans lítur út. Að þessu sinni fór frumsýning Kærleikskúlunnar fram í Berlín, en kúlan verður seld þar fyrir jólin. Þetta er í fyrsta sinn sem Kærleikskúlan er seld utan lands- steinanna, en það er vel viðeigandi að það sé einmitt Þýskaland sem verð- ur fyrir valinu þar sem kúlurnar eru blásnar þar. Fremstu listamenn þjóðarinnar hafa frá upphafi lagt Styrktarfélaginu lið með list sinni. Fyrsta Kærleikskúlan kom út árið 2003 og reið Erró á vað- ið með verkinu 2 málarar. Ari síðar var það Olafur Elíasson með Augað, í fyrra var það Rúrí með verkið Án upphafs - án endis og í ár er það Gabrí- ela Friðriksdóttir með verkið Salt jarðar. Gabríela segir sjálf um verk sitt: „Oteljandi agnir mynda landslag sem breiöir úr sér og þekur jörSina Þar vaxa áferSarmiklir og kynlegir kvistir Landslag sem mótar og nœrir hin margvíslegu lífsform og andann sem innan og utan þess býr ÞaS er lífsvilji sálarinnar og vonin sem mynda samfélög heimsins AS viSurkenna, varöveita og virSa hiS skapandi afl margbreytileikans er krydd lífsins - SALTJARÐAR“ MM Hver er maður ársins á Vesturlandi? <* Hvaða Vestlendingur hefur að þínu mati skarað fram úr á árinu? •» ur j Vilt þú taka þátt í að tilnefna mann ársins 2006? 9 Líkt og undanfarin ár stendur Skessuhorn fyrir vali á þeim einstaklingi sem þykir hafa skarað framúr á einhverju sviði á árinu. Eina skilyrðið er að viðkomandi sé búsettur í landshlutanum. Minnumst þess sem vel er gert! Sendið tölvupóst á: skessuhorn@skessuhorn.is fyrir 23. desember nk. Gjarnan má rökstyðja valið með nokkrum línum. Einnig er hægt að hringja inn tilnefningar í síma 894-8998. Sérstök valnefnd á ritstjórn Skessuhorns vinnur úr tilnefningum og kynnir úrslit í fyrsta tölublaði nýs árs sem kemur út miðvikudaginn 3. janúar 2007. Skessuhorn ehf. Nýtt hús Skeljungs í Borgamesi Fram kom í fréttum Skessuhorns ekki alls fyrir löngu að reisa á nýtt hús undir starfsemi Skeljungs í Borgarnesi og reka sjoppu og elds- neytisafgreiðslu í bráðabirgðahús- næði á meðan. Nú hefur verið ákveðið að gamla húsið fái að standa þar til nýtt verður tilbúið, þá verði það rifið. Reiknað er með að starfsemi hefjist í nýja húsinu 15. maf og verður það um 550-600 fer- metrar að stærð. Að sögn Hans Gerald Hasler, rekstrarstjóra Select og Grillhúss- ins í Borgarnesi er búið að ákveða að staðsetja húsið þar sem þvotta- stöðin er núna, ekki þar sem gamla húsið stendur. Hönnun hefur tekið nokkurn tíma, því rýmið á lóðinni er ekki mikið og einnig þarf að taka tdllit til vindsveipa, sem eru tölu- verðir á þessum stað. I nýja húsinu verður m.a. veit- ingasala og sér afgreiðsla fyrir elds- neyti og olíuvörur. Einnig verður skýli yfir eldsneytistankana úti. Málið er að sögn Hans Gerald í eðlilegum farvegi, bygginganefiid er með umsókn til afgreiðslu og ef allt gengur eftir verður opnað 15. maí í vor. BGK Mánudaga til föstudaga kl Laugardaga 8:00 -16:00 Sunnudaga 9:00-16:00 Menntaskóli Borgarfjarðar Aðstoðarskólameistari Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólameistara við Menntaskóla Borgarfjarðar. Menntaskóli Borgarfjarðar er nýr framhaldsskóli sem mun taka til starfa haustið 2007 í nýju og glæsilegu skólahúsnæði í Borgarnesi. Skólinn er í eigu einkahlutafélags sem er að mestu í eigu heimamanna í Borgarfirði. Öll aðstaða til náms og kennslu verður til fyrirmyndar. Skólinn er í samstarfi við Menntamálaráðuneytið og Sveitarfélagið Borgarbyggð um breytta kennsluhætti og skipulag skólastarfs á framhaldsskólastigi. Áhersla verður m.a. lögð á notkun upplýsingatækni í staðbundnu námi og dreifnámi, heildræns námsmats og hópa- og verkefnavinnu. Aðstoðarskólameistari mun aðstoða skólameistara við undirbúning skóla- halds, sinna áfangastjórnun og öðrum stjórnunarstörfum samkvæmt nánara samkomulagi. Fram að skólabyrjun verður starfshlutfallið 100% við stjórnun. Eftir að kennsla hefst er gert ráð fyrir að starfshlutfall við stjórnun verði 75% og á móti sinni viðkomandi kennslu á sínu fagsviði. Við erum að leita að dugmiklum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í að móta nýjan framhaldsskóla frá grunni. Viðkomandi þarf að vera frjór í hugsun og lipur í samskiptum. Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi eru nauðsynleg og reynsla af stjórnun mjög æskileg. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa i borist Arsæli Guðmundssyni, skólameistara, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes, p eða á netfangið menntaborg@menntaborg.is fyrir kl. 16:00, mánudaginn 1.janúar 2007. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans http: / / www.menntaborg.is Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Skólameistari

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.