Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 06.12.2006, Blaðsíða 15
■yMMiH..: MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 15 A meðfylgandi mynd er teikning af fyrirhugnðu verslunarhúmœði Hagkaupa í Reykjaneshæ sambœrileg þeirri sem reisa á í Borgamesi Ný tegund Hagkaups- verslunar í Borgamesi Eins og fram kom í frétt Skessu- horns fyrir skömmu hefur Hag- kaup ákveðið að opna nýja tegund verslunar í Bogarnesi nú á vor- mánuðum. Framkvæmdir við grunn verslunarinnar í Borgarnesi eru hafnar en það verður byggt við nýlegt hús Bónuss við Digranes- götu. Sambærileg verslun mun einnig opna í Reykjanesbæ um svipað leyti. Verslanirnar munu bjóða uppá sérvörur Hagkaupa ásamt snyrtivörum. Þar verður á boðstólnum fatnaður, leikföng, heimilisvörur ásamt skemmti- og afþreyingarefni. I tilkynningu frá fyrirtækinu segir að með tilkomu Hagkaupa muni framboð sérvöru á þessum markaðssvæðum aukast til muna. „Ibúar á Vesturlandi og í Reykjanesbæ munu því geta notið þess vöruúrvals sem Hagkaup bjóða uppá á góðu verði til hags- bóta fyrir íbúa þessa landsvæða. Framkvæmdir eru hafnar og er stefnt á að verslanirnar muni opna í byrjun vors,“ segir í fféttatil- kynningu frá Hagkaupum. MM FRJLSI Grunnskólinn í Stykkishólmi í samvinnu við Tónlistarskóla Stykkishólms æfir um þessar mundir söngleikinn Frelsi. Frelsi er samið af Gunnari Sturlu Flervarssyni og Flosa Einarssyni, kennurum á Akranesi. Um 40 ungiingar taka þátt í uppfærslunni, 10 í hljómsveit og 30 sem koma að teiklistinni. Verkefnið er bæði stórt og metnaðarfultt af ekki stærra samfétagi, en þetta erí þriðja sinn á jafnmörgum árum sem grunnskótinn ræðst í Leikverkefni af futtri tengd. Flljómsveitarstjóri og útsetjari er Martin MarkvoLL tóntistarkennari en teik- og söngstjórar eru sem fyrr Auður Rafnsdóttir og Lárus Ástmar Hannesson grunnskólakennarar. Sýnt verður á Hótel Stykkishólmi Frumsýning 7/12, kl 18:00 - uppselt 2. sýning 8/12, kl 18:00 3. sýning 10/12, kl 20:00 4. sýning 12/12, kl 20:00 5. sýning 17/12, kl 18:00 6. sýning 19/12, kl 19:00 - uppselt Miðaverð: 1500 kr. fyrir fullorðna 1000 kr. fyrir börn í grunnskóla Miðapantanir i síma, 433-8177 og 866-2858 Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi Akraneskaupstaður Tillaga að deiliskipulagi Skógahverfis 2. áfanga á Akranesi Með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eítir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi Skógahverfis 2. áfanga á Akranesi. Skipulagssvæðið er um 21 hektara íbúðasvæði, þar sem gert er ráð fyrir 322 íbúðum, aðallega einnar- og tveggja hæða sérbýlishúsum og tveggja og þriggja hæða fjölbýlishúsum. Hámarks ökuhraði í hverfinu verður 30 km/klst. Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, Akranesi, frá 7. desember 2006 til og með 4. janúar 2007. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 18. janúar 2007 og skulu þær berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni. Akranesi 1. desember 2006 sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar Þorvaldur Vestmann VILJIR ÞÚ DREKKA, ÞÁ ER ÞAÐ ÞITT MÁL VILJIR ÞÚ HÆTTA, ER ÞAÐ 0KKAR HRINGDU í AA-SAMTÖKIN í SÍMA 615 1935 SUÐURGÖTU 108, AKRANESI www.kjolur.is Sími 525 8383 Sýslumaðurinn í Borgarnesi UPPOÐÁ HROSSUM Föstudaginn 15. desembernk. kl. 15.00, í girðingarhólfi í landi Miðhúsa í Hvalfjarðarsveit, verða boðin upp eftirtalin hross, að beiðni sveitarstj ómar Hvalfj arðarsveitar, hafi beiðnin ekki verið aflturkölluð fyrir þann tíma: 1. Steingrá hryssa, 8 vetra, örmerkt 968000001403678. 2. Rauð hryssa, með folaldi, u.þ.b. 10 vetra, eymamerkt: gagnbitað hægra og fjöður aftan vinstra. 3. Rauðjarpur hestur, u.þ.b. 7 vetra, eymamerktur: hægra alheilt gagnbitað vinstra Borgarnesi 4. desember 2006 Sýslumaðurinn í Borgarnesi J ólastemning Norska hússins í Norska húsinu í Stykkishólmi er jólastemningin alisráðandi og húsið hefur verið skreytt með jólaskrauti sem tengist liðnum jólum og er sannkallað ævintýri fyrir börn á öllum aldri. í Krambúð hússins er ævintýraleg jólakrambúðarstemning og boðið er upp á heitan epladrykk og piparkökur. Og væna flís af feitum sauð má hugsanlega nálgast í eldhúsinu. Hin sérstaka jólastemning hússins gerir ferð í Norska húsið í Stykkishólmi að ógleymanlegri upplifun á aðventunni. Norska húsið er opið alla aðventuna þriðjudaga til sunnudaga kl. 14.00-18.00 og auk þess á llnvmtudagskvölduni kl. 20.00-22.00

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.