Skessuhorn - 06.12.2006, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
Fjölbýlishús í
byggingu
ÓLAFSVÍK; Vmna er hafin við
grunn 10 íbúða fjölbýlishúss við
nýja götu í Olafsvík sem hlotið
hefur nafitið Fossabrekka. Húsið
verður tveggja hæða og stærð
íbúðanna verður á bilinu 69 til
100,5 fermetrar. Það er Nes-
byggð ehf. sem byggir húsið og
gera byggingarstjórar fyrirtækis-
ins ráð fyrir að steypa sökkul fyr-
ir jól og hefja byggingu hússins
snemma á næsta ári. Afhending
íbúðanna verður svo líklega í
desember 2007. -kh
ESA
rannsakar áfram
SEMENTS VERKSMIÐJAN:
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) á-
kvað í síðustu viku að halda á-
ffam opinberri raimsókn á sölu
ríkisins á Sementsverksmiðjumti
á Akranesi til hóps fjárfesta, Is-
lensks sements. Lýtur rannsókn-
in að því hvemig staðið var að yf-
irtöku ríkisins á lífeyrisskuld-
bindingum starfsmanna sem og á
sölu á eigum Sementsverksmiðj-
unnar til ríkisins í kjölfar sölu
verksmiðjunnar. Hins vegar hef-
ur ESA hætt rannsókn á því
hvort söluverð verksmiðjtmnar
hafi verið í samræmi við mark-
aðsverð hennar. Þetta kemur
ffam á mbl.is. -hj
Týri kemur
að gagni
BORGARFJORÐUR: Þrjú
minniháttar fíkniefiiamál komu
upp hjá lögreglunni í Borgamesi
í sl. viku. Kom fíkniefnaleitar-
htmdurinn Týri að góðum not-
um í þessum máliun. Þávareinn
ökumaður teldnn fyrir að aka bif-
reið tmdir áhrifum lyfja. -kh
Fangelsi stækk-
að og breytt
GRUNDARFJÖRÐUR: Ósk-
að hefur verið eftir tilboðum í
stækkun og breytingar á fangels-
inu að Kvíabryggju í Grundar-
firði. Að sögn Sigurðar Norðdal
hjá Framkvæmdasýslu ríkisins er
þetta hluti af endurbótum fang-
elsa á landinu. Stækkunin er
óveruleg, eða aðeins um 37 fer-
metrar. I kjölfarið verður húsinu
breytt og það endursldpulagt. A
þann hátt næst ffam fjölgun her-
bergja og bætt nýting hússins.
-bgk
Smákökukeppni
BORGARNES: Landnámssetr-
ið í Borgamesi hefur ákveðið að
efna til smákökusamkeppni á
fyrstu jólum setursins. Skorað er
jafnt á smákökusnillinga sem og
byrjendur í greininni að taka þátt
en keppt verður í bama-, karla-,
kvenna- og fjölskylduflokki.
Þáttakendur eiga að koma með
kökumar í glerkrukkum og tmd-
ir dulneftti en fylgja skal lokað
umslag sem inniheldur rétt nafii
og símanúmer. Utanáskrift um-
slagisins verður þó að vera merkt
dulnefninu. I dómnefndinni
verða miklir matgæðingar og
kökumar dæmdar eftir því hverj-
ar em bragðbestar og framleg-
astar í hverjum flokki. Urslitin
verða síðan kynnt við hátíðlega
athöfii í Landnámssetrinu laug-
ardaginn 10. desember kl. 15:30.
-kh
Nýjar reglugerðir um riðurlög
rið umferðarlagabrotum
Þann 1. desember sl. tóku gildi
tvær nýjar reglugerðir þar sem
hert eru viðurlög við umferðar-
lagabrotum. Önnur tekur til sekta
og annarra viðurlaga vegna um-
ferðarlagabrota en brýnt þótti að
hækka sektir þar sem það hefur
ekki verið gert síðan árið 2001.
Hin reglugerðin fjallar um ökufer-
ilsskrá og punktakerfi vegna um-
ferðarlagabrota..
Smrla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra skrifaði undir reglugerð-
irnar 31. október sl. og öðluðust
þær báðar gildi 1. desember eins
og áður segir. Helstu breytingar
era þær að sektir vegna einstakra
umferðarlagabrota hækka. Vik-
mörk vegna hraðakstursbrota
verður minnkað úr 10 km/klst. í 5
km og sektir verða frá 5.000 krón-
um til 110.000 króna í stað 5.000
og 70.000 króna áður. Er það
nærri 60% hækkun. Sektir vegna
ölvunaraksturs hækka úr 50.000 til
100.000 krónum í 70.000 til
140.000 krónur. Þá eru reglur
orðnar ítarlegri vegna brota á
reglugerð um aksturs- og hvíldar-
tíma ökumanna nr. 662/2006 svo
og reglugerð um ökurita og sektir
era á bilinu 15.000 til 120.000
krónur en vora áður 20.000 til
70.000 krónur. Einnig era hækk-
aðar sektir vegna brota á reglugerð
um flutning á hættulegum farmi úr
20.000 til 60.000 króna í 30.000 til
90.000 króna. Eins og fram hefur
komið í fréttum Skessuhorns hafa
flutningabílstjórar ítrekað gerst
sekir um að aka með of háan farm
t.d. inn í Hvalfjarðargöngin. Hef-
ur það valdið mikilli sfysahættu og
einnig miklum skemmdum á bún-
aði ganganna. Fram til þessa hafa
sektir vegna slíks athæfis aðeins
verið 7.500 krónur.
Meðal breytinga á reglugerð um
ökuferilsskrá og punktakerfi vegna
umferðarlagabrota eru að brot á
reglum um aksturs- og hvíldartíma
ökumanna varða nú frá ptmkti í
ökuferilsskrá til fjögurra punkta.
MM
JöHakórinn minnist Bedehemsfarar
fyrir tveimur áratugum
Þessa dagana er þess minnst að
20 ár era liðin ffá því að kórar á
Snæfellsnesi tóku sig saman,
mynduðu Jöklakórinn og fóra til
hinnar helgu borgar Betlehem í
söngferð og sungu þar á Jólanótt
árið 1986. Að undanförnu hafa
staðið yfir stífar æfingar hjá kórn-
um sem enduðu með tónleikum á
þremur stöðum á Snæfellsnesi.
Þeir fyrstu voru í Ólafsvík sl.
mánudag. I Grundarfirði var stmg-
ið í gær, þriðjudag og í kvöld, mið-
vikudag verða tónleikar í Stykkis-
hólmskirkju. A þá var einnig boðið
mörgum gestum sem vora með í
för til Betlehem á sínum tíma.
MM Kórinn á œfingu í sfíhistu viku. Ljósm. Gimnlaugur Arnason.
Ostoftiað stangavinafélag fékk Gufuá
Stjóm veiðifélags Gufuár ákvað á
fundi síðasta sunnudag að taka til-
boði óstofnaðs stangavinafélags úr
Borgamesi um veiði í ánni. Tilboð-
ið sem tekið var hljóðaði upp á ríf-
lega áttahundrað þúsund og er til
þriggja ára. Eins og fram hefur kom-
ið í Skessuhomi bárast fjögur tilboð
í ána, þar af tvö ffá hinu óstofnaða
stangavinafélagi. I forsvari fyrir því
félagi er Guðmundur Finnsson í
Borgamesi, sem alinn era upp á
bænum Gufuá. I samtali við Skessu-
hom sagðist Guðmundur hafa viljað
spoma gegn því að netaveiði væri
stunduð í Gufuá og í Gufuárós, því
upptaka neta kæmi öllum til góða.
„Ég ákvað að hóa saman góðu liði af
heiðursmönnum, en með mér
standa að tilboðinu Stefán Logi
Haraldsson, Amar Sigurðsson, Haf-
steinn Þórisson og Ólafur Sigurðs-
son. Félagsskapurinn hefur ekki ver-
ið formlega stofnaður ennþá og því
er hópurinn kallaður óstofnað
stangavinafélag. Við komtun til með
að nota sumarið í sumar til að finna
út hvemig fyrirkomulagið á stanga-
veiðinni verður. Anni verður skipt á
milli okkar og líklega verða einhver
veiðileyfi seld, en hversu mikið eða á
hvað háu verði, leiðir tíminn í ljós.
Ég er rosalega ánægður með að
svona skyldi takast til og má eigin-
lega segja að ég sé kominn heim,“
sagði Guðmundur að lokum. BGK
Vilja stækka Garðasel og
byggja nýja sundlaug
Leikskólinn Garðasel.
Minnihluti bæjarstjórnar Akra-
ness hefur lagt til að leikskólinn
Garðasel verði stækkaður á næsta
ári og að ffamkvæmdir við bygg-
ingu nýrrar sundlaugar á Jaðars-
bökkum hefjist næsta haust. I til-
lögu minnihlutans um leikskólann
Garðasel er lagt til að ráðist verði í
endurbætur á honum og hann
stækkaður varanlega í fjögurra
deilda leikskóla og að við endur-
bæturnar verði starfsmannaðstöðu
og bílastæðamálum „komið í gou
horf,“ eins og segir orðrétt í tillög-
unni.
Kostaður við stækkunina er
áætlaður 50-60 milljónir króna og
til að mæta þeim kostnaði vill
minnihlutinn að hætt verði við inn-
réttingu á húsnæði fyrir Tónlistar-
skóla „í verslunarmiðstöð á Mið-
bæjarreit, en sá kostnaður er að
minnsta kosti 200 milljónir króna,“
segir í tillögunni.
Þá vill minnihluti bæjarstjórnar að
hönnun nýrrar yfirbyggðrar sund-
laugar á Jaðarsbökkum verði lokið á
næstu mánuðum og að ff amkvæmd-
ir við hana hefjist haustið 2007. Er
vísað til þess að á þúsundasta fundi
bæjarstjómar árið 2005 hafi verið
ákveðið að vinna að áffamhaldandi
uppbyggingu íþróttamannvirkja á
Jaðarsbökkum og þegar hafi verið
unnin ffumhönnun og þarfagrein-
ing mannvirkja á svæðinu. Til verks-
ins verði varið 100 milljónum króna
á næsta ári og þeim kostnaði verði
mætt með langtímaláni.
HJ
Vilja
uppbyggiiigii
AKRANESHÖFN: Meirihluti
bæjarstjórnar Akraness hefur
lagt til við bæjarstjórn að at-
vinnumálanefnd verði falið að
leggja áherslu á markaðssetn-
ingu Akraness með það að
markmiði að hlúa að núverandi
fyrirtækjum og laða að ný fyrir-
tæki til bæjarins. Hlúð verði
sérstaklega að fyrirtækjum í ný-
sköpun og sprotafyrirtækjum.
Jafnffamt leggur meirihlutinn
til að bæjarstjórn árétti við
stjórn Faxaflóahafna „að staðið
verði við fyrirheit um uppbygg-
ingu Akraneshafnar sem fiski-
höfn og hún efld frá því sem nú
er,“ eins og segir orðrétt í til-
lögunni. Henni var vísað til
seinni umræðu um fjárhagsá-
ætlun ársins 2007. -hj
Elín Blöndal
deildarforseti
BIFRÖST: Elín Blöndal dós-
ent hefur tekið tímabundið við
starfi forseta lagadeildar Há-
skólans á Bifföst. Hún leysir af
Bryndísi Hlöðversdóttur sem á
dögunum tók tímabundið við
starfi rektors skólans. Eins og
fram hefur komið í Skessuhorni
hefur staða rektors verið aug-
lýst laus til umsóknar og er gert
ráð fyrir að nýr rektor taki við
embætti á fyrri hluta næsta árs.
Þá hefur Sigrún Hjartardóttir
verið ráðin aðstoðarmaður
rektors. Hún var áður aðstoðar-
maður rektors en hefur að und-
anförnu stundað meistaranám í
Asíu-fræðum við háskólann í
Lundi í Svíþjóð. -hj
Með 5 gr.
af dópi
AKRANES: Um helgina hand-
tók lögreglan á Akranesi ungan
mann vegna grans um fíkni-
efnamisferli. Hann reyndist
vera með í fóram sínum um 5
grömm af amfetamíni. Sagðist
maðurinn við yfirheyrslu að
efnið hafi hann ætlað til eigin
nota. Hann var látinn laus að
yfirheyrslum loknum.
-kh
Trygginga-
stofrLun 70 ára
IANDIÐ: Af tileftii þess að
Tryggingastofnun ríkisins er 70
ára verður boðið upp á pipar-
kökur og heitt súkkulaði á
þjónustustöðum stofnunarinnar
um land allt föstudaginn 8. des.
kl. 9 - 15.30. í tilkynningu ffá
TR segir: „Afmælisgjöf Trygg-
ingastofnunar til þjóðarinnar,
nýr upplýsinga- og þjónustu-
vefur á slóðinni www.tr.is, verð-
ur opnaður sama dag. Lögð
hefur verið alúð við að gera
nýja vefinn lifandi, aðgengileg-
an og greinargóðan með tilliti
til mismunandi þarfa notenda.
Tryggingastofnun hefur í 70 ár
annast ffamkvæmd þeirra laga
sem öryggisnet íslensks velferð-
arsamfélags byggist á. 200
starfsmenn Tryggingastofnunar
veita almenningi fjölbreytta
þjónustu varðandi ellilífeyri,
örorkulífeyri, sjúkratryggingar
og slysatryggingar. Þar er m.a.
veitt aðstoð vegna hjálpartækja
og niðurgreiðslu lyfja-, þjálfun-
ar- og lækniskostnaðar.“
-mm