Skessuhorn - 06.12.2006, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
I sumar tók nýr verslunarstjóri við Samkaupum
Urvali t Borgamesi. Til aðforvitnast nánar um
manninn er Gtsli Sigurðsson fenginn til að svara
nokkrum laufléttum spumingum Skráargatsins.
Fullt nafn: Gt'sli Sigurðsson.
Starf: Verslunarstjóri SamkaupsUrvals í Borgamesi.
Fæðingardagur og ár: 26. desember 1953.
Fjölskylduhagir: Kvæntur og áfjóra syni.
Hvemig bíl áttu: Við eigum tvo bíla, gamlan Toyota Rav og aðeinsyngri
Hyundai.
Uppáhalds matur: Hamborgarhryggur af því að það eru að komajóla.
Aldrei borðað rjúpu og hef ekki áhuga á þvt.
Uppáhalds drykkur: Það hlýtur að vera kajfi, ég drekk svo mikið afþví.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Iþróttir, fótbolti.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Omar Ragnarsson.
Uppáhalds innlendur leikari: Gísli Halldórsson.
Uppáhalds erlendur leikari: Robert DeNiro.
Besta híómyndin: Deer Hunter.
Uppáhalds íþróttamaður: David Beckham.
Uppáhalds íþróttafélag: Keflavík, búinn að segja Skallagrímsmönnum að ég
haldi meðþeim nema þegar þeir eru að keppa við Keflavtk.
Uppáhalds stjómmálamaður: Eg erpólitískt viðrini, en mérfinnst
skemmtilegasti stjómmálamaðurinn Steingrímur J. Sigfússon.
Uppáhalds innlendur tónlistarmaður: Gunnar Þórðarson
Uppáhalds erlendur tónlistarmaður: Bítlamir.
Uppáhalds rithöfundur: Erfitt að velja svo ég nefni engan.
Ertujylgjandi eða andvígur ríkisstjóminni? Eg hlýt að vera andvígur, er
alla vega á móti mörgu sem þeir eru að gera. Reyndar virðast allirflokkar lofa
öllu og svíkja svo allt, þegarþeir sejast að völdum.
Hvað meturþú mest tfari annarra? Heiðarleika
Hvaðfer mest í taugamar á þér tfari annarra? Oheiðarleiki
Hver erþinn helsti kostur? Aðrir verða að meta það.
Hver erþinn helsti ókostur? Sama hér, aðrir verða að meta það.
Hvemig er að búa í Borgamesi? Gott. Kann vel við mig hér og öll
fjölskyldan einnig.
Hvemig datt þér í hug að taka að þér þetta starf? Mér dattþað ekkert í
hug, var boðið starfið og sé ekki eftirþví að hafa þegið það.
Hvemig sérðuframtíð SamkaupsÚrvals t Borgamesi? Við emm bara
brattir. Ætlum að mæta Hagkaupum með fullum þunga.
Dýrfmna á ferð
um heiminn
Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður
á Akranesi gerir víðreist í sýningum
sínum. Eins og ffam kom í Skessu-
horni á sínum tíma tók hún þátt í
sýningu í Frakklandi ásamt öðrum
listamanni frá Akranesi, Philippe
Ricart og í október sýndi hún
ásamt fleiri listamönnum á Bifföst.
í nóvember hélt hún til Berlínar
þar sem hún tók þátt í sýningunni
Gold 2006 sem er árleg sýning um
50 þýskra skartgripahönnuða. Þetta
var í fyrsta sinn sem útlendingum
er boðin þáttaka í þessari sýningu.
Þann 17. nóvember hófst í Kent-
ucky í Bandaríkjunum norræn
skartgripasýning sem ber yfirskrift-
ina Fire and Ice-Contemporary
Nordic Jewelry. Sýningin er í gall-
eríi þar sem 40 verk eru til sýnis ffá
skartgripahönnuðum víða að úr
heiminum. Þess utan er eínt reglu-
lega til tímabundinna sýninga og
viðar stjórnandi safnsins að sér
sýnendum sem honum finnst
áhugaverðir. Hann setti sig í sam-
band við Dýrfinnu og óskaði effir
gripum ffá henni. Sýningin stendur
til 10. janúar.
Hj
Varahluturiiin barst og
Hólmarar syntu áfram
Borið hefur á bilunum í sund-
lauginni í Stykkishólmi og á dög-
unum leit út fyrir að loka þyrffi
lauginni í vikutíma vegna bilunar í
hraðabreyti í loftræstikerfi. Það
reyndist ekki þurfa þegar til tók
vegna þess að varahluturinn barst
það skjótt til landsins að hægt var
að gera við í snatri og opna laugina
á nýjan leik. I samtali við forstöðu-
mann sundlaugarinnar, Vigni
Sveinsson, kom fram að borið
hefði á bilunum í loftræstikerfinu
og meðal annars mætti finna skýr-
inguna í of fullkomnu kerfi, en
nemar þess væru næmir fyrir hvers
kyns breytingum, t.d. á hita og
kulda og því þyrfti lítið út af að
bera til þess að aðvörunarljós
kviknuðu. Hann vonaðist þó til að
með viðgerðinni myndi kerfið ekki
stríða þeim frekar.
KH
Magnús Þór
Hafsteinsson
skrifaði um
daginn pistil í
Skessuhorn
um opna
stjórnsýslu.
Það fer honum ekki vel. Þar stikar
hann um á sjömílnaskónum eins og
mentor hans, Sverrir Hermannson
lýsti svo ágætlega fyrir skemmstu.
Hver er reynslan af hálfs árs veru
Frjálslynda flokksins í meirihluta á
Akranesi þegar horff er til opinnar
stjómsýslu? Reynslan er sú að starf
meirihlutans hefur verið mjög lok-
að og hann hefur reynt að halda
sem flestum upplýsingum frá
minnihlutanum í bæjarstjórninni
og hafa hann alls ekki með í ráðtun.
Lok og læs
Þrjú mikilvæg dæmi nægja í
þessu efhi:
Fyrsta verk meirihlutans var að
meina fulltrúum minnihlutans
Opin stjómsýsla eða orðin tóm
áheym í bæjarráði. Var þar farið
áratugi aftur í tímann í því að loka
stjómsýslunni.
I öðra lagi hefur meirihlutinn
farið með Tónlistarskólamálið eins
og mannsmorð. Fulltrúar minni-
hlutans hafa ekki enn fengið neinar
áreiðanlegar upplýsingar um kosm-
að við þetta verk og meirihlutinn
hefur reynt að beita blekkingum í
því. I þriðja lagi hefur vinna við
fjárhagsáætlun öll farið frarn innan
meirihlutans og minnihlutanum
ekkert kynnt fyrr en fáum dögum
fyrir framlagninu frumvarps að
fjárhagsáætluninni. Undanfarin
kjörtímabil hefur verið venjan að
bjóða upp á samstarf um meginat-
riðin í þessu verki, sem smndum
hefur gengið en stundum ekki.
Þarna er horfið til gamalla og lok-
aðra vinnubragða. Meirihlutinn
hefur því kolfallið á prófinu um
opna stjórnsýslu, en lokað öllu sem
hægt er að loka. Hann beitir valdi
sínu purkunarlaust.
Tæknilegar
forsendur klárar
Það eina sem Magnús Þór nefnir
um opna stjómsýslu er það á nú sé
hægt að hlusta á bæjarstjómafundi á
netinu. Nú er þetta mál svo neyðar-
legt fyrir Magnús að hann kom
hvergi nálægt því að koma þessu í
kring. Þetta ferli var löngu ákveðið
og því hmndið í ffamkvæmd af
starfsmönnum bæjarins. Um það
var talað að með aukinni tækni
myndi þessum fundum ekki bara
útvarpað heldur yrðu þeir líka til
taks á netinu þegar tæknilegar for-
sendur væra klárar og síðar sendir
út um ljósleiðara þegar þar að
kæmi. Þetta mál er því ekkert sér-
staklega tengt nýjum eða gömlum
meirihluta, heldur var unnið að
þessu á vegum bæjarskrifstofunnar
á síðasta kjörtímabili en undirritað-
ur m.a. áhugamaður um framgang
málsins. Þessi aðgangur hefur afar
lítdð með opna stjómsýslu að gera
en hefur augljóst upplýsingagildi
fyrir almenning.
*
I anda upplýsingarinnar
Magnús Þór reynir að skreyta sig
með þessu máli af því að hann hef-
ur ekki af mörgu að státa fyrir hönd
síns flokks. En vegna þess að hann
tengir þetta mál þráfaldlega við
opna stjórnsýslu þá ættu kjósendur
að leggja sig sérstaklega eftir því að
hlusta á bæjarfulltrúa Frjálslynda
flokksins, formann bæjarráðs á bæj-
arstjórnarfundum. Það þarf ekki að
taka langan tíma. I ffamhaldi af
þeirri hlustun og í anda opinnar
umræðu gæti fólk svo spurt sig
hversu miklu nær það væri um
málatilbúnað, rökstuðning, afstöðu
og viðhorf Frjálslynda flokksins í
bæjarstjóminni.
Sveinn Kristinsson,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Gefðu gjöf sem gleðurl
Áskríft að Skessuhomi sími 433 5500
Iþróttir eru
hollar
Það kom nýr og ungur
prestur í sókn eina með unga
konu sína með sér. Eins og
lög gera ráð fyrir eignuðust
hjónin böm og í hvert sinn er
nýtt bam bættist í hópinn gaf
sóknamefhdin þeim hjónun-
um bikar. Bömin urðu nokk-
uð mörg og bikararnir
prýddu skáp í stofúnni. Eitt
sinn kemur biskup að vísitera
í sókninni og að sjálfsögðu er
honum boðið heim til prests.
Biskupi verður starsýnt á alla
bikarana sem prýða stofu-
skápinn og segir svo: „Og
hvaða íþrótt er það svo sem
presturinn er svona fær í?“
Varlega
piltar
Maður einn varð fyrir því
óláni að konan hans dó. Til
kirkjunnar var erfiður vegur.
Þetta var fyrir daga bílsins svo
bera þurfti kistuna til ldrkju.
A leiðinni, þegar farið var um
torleiði, reka líkmennirnir
kistuna í klettshorn, svo
sUnkur kemur á hana. Við
þetta hrekkur konan upp frá
dauðum svo ekkert varð af
jarðarförinni. Þau hjón fara
heim og lifir konan mörg ár
eftir þetta. Svo kemur að því
að hún deyr aftur. Þegar lík-
mennimir koma að umræddu
homi verður bónda að orði:
„Varlega piltar, varlega!"
Bekkjar-
afinælið
Oft er gaman að leika sér
að því hvernig mannanöfn
geta hljómað í samsetningu.
Hér er ein saga af slíku:
Osk Yr gekk rösklega með
Brand Ara í afmælið til Egils
Daða því hún var að verða of
sein að sækja Leif Amar og
Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils
Daða, tók á móti þeim. Þama
vom Lind Yr, Líf Vera, Sól
Hlíf og Hreinn BoHi.
Erlendur Hreimur kom
blaðskellandi innan úr stof-
unni og vinkonurnar Vísa
Skuld og Dís Ester fast á hæla
honum. Mýra Þoka lét lítið
fyrir sér fara úti í homi.
Innan úr herbergi Egils
Daða bámst ógurlegir
skraðningar -
„#% = &#$&/(= !z#$!/! = !
Línus Gautd, Barði Vagn og
Mist Eik voru greinilega
mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í
rauðum fólksvagni. Hægt og
sígandi nálgaðist Jökla Þoka
efdr stígnum. Hún var orðin
alltof sein í affnæhð.
Ekki meira úr sveitinni að
sinrú, satt eða logið. Lesumst
saman síðar.
Umsjón: Bima Konráðsdóttir