Fréttablaðið - 09.09.2019, Side 6
Í flestum tilvikum
er það skortur á
sönnunargögnum eða
ósamræmi í vitnisburði sem
gerir starf mitt krefjandi
Sebastian Kunz, réttarmeinafræð
ingur á Landspítalanum
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr
einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp
að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Strefen-sprey-Apotekarinn-5x10.indd 1 03/10/2018 14:55
BANDARÍKIN Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, aflýsti leynilegum
fundi sínum með Ashraf Ghani,
forseta Afganistans, og æðstu
leiðtogum talibana sem fram
átti að fara í gær.
Trump greindi frá á Twit-
ter að fundurinn hefði verið
fyrirhugaður í Camp
David. Á fundinum
voru fyrirhugaðar
friðarviðræður á
milli Bandaríkj-
anna og talibana.
Þá segist hann
hafa hætt v ið
fundinn í kjölfar þess að talibanar
lýstu yfir ábyrgð á árás í Kabúl í
Afganistan á fimmtudag þar sem
bandarískur hermaður lést
ásamt ellefu óbreyttum borg-
urum. Fjórir bandarískir her-
menn hafa látist í Afganistan á
tveimur vikum.
Trump segir í Twitter-
færslunni að fundinum
hafi verið af lýst um
leið og talibanar lýstu
yfir ábyrgð á árásinni
og að hann stefni
ek k i á friðar við-
ræður við fólk sem
myrðir saklausa borgara til þess að
styrkja samningsstöðu sína.
Friðarviðræður á milli Bandaríkj-
anna og talibana hafa staðið yfir um
nokkurt skeið en Bandaríkin réðust
inn í Afganistan í kjölfar árásanna
á tvíburaturnanna árið 2001. Sam-
tökin Al-Kaída gengust við árás-
inni. Samtökin voru fjármögnuð
að miklu leyti af talibönum sem þá
voru við stjórn í Afganistan.
Utanríkismálaráðherra Banda-
ríkjanna sagði við fjölmiðla að
fundurinn hefði verið í bígerð í
dágóðan tíma. Hann sagði að talib-
anar hefðu ekki staðið við sinn
hluta bráðabirgðasamnings sem
gerður hefði verið á milli þeirra og
Bandaríkjamanna með árásinni,
en hluti samningsins sneri að því
að draga úr of beldi.
Talibanar sendu frá sér yfirlýs-
ingu fáeinum tímum eftir að Trump
aflýsti fundinum þar sem fram kom
að ákvörðun forsetans væri vond.
„Báðir aðilar hafa lagt mikið á sig í
undirbúningi friðarviðræðnanna.
Ákvörðun forsetans mun leiða af
sér tap fyrir Bandaríkin, þetta sýnir
allan viljann til friðarviðræðna.
Mannfall mun aukast, “ sagði tals-
maður talibana í yfirlýsingunni. - bdj
Donald Trump aflýsti friðarviðræðum eftir árás
LÖGGÆSLA Sebastian Kunz, réttar-
meinafræðingur á Landspítalanum,
fagnar því að lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafi tekið í notkun
svokallaðar búkmyndavélar. Hann
segir að um sé að ræða mikið fram-
faraskref enda geti þær bæði flýtt og
auðveldað rannsóknir mála.
„Hluti af mínu starfi sem réttar-
meinafræðingur er að meta áverka
sem verða til eftir átök tveggja eða
f leiri aðila. Í f lestum tilvikum er
það skortur á sönnunargögnum
eða ósamræmi í vitnisburði sem
gerir starf mitt krefjandi, því þó
að krufning eða rannsókn sýni
nokkurn veginn hvað gerðist, þá er
alltaf svigrúm til annarra túlkun-
aratriða. Í þeim tilvikum er mynd-
bandsupptaka besta leiðin til þess
að tryggja rannsóknina,” segir
Sebastian.
Sebastian nefnir nýlegt dæmi
um unga konu sem lést eftir að hafa
farið í svokallað æsingsóráð, sem er
ástand sem fólk getur farið í ef það
veitir viðnám eða mótspyrnu við
handtökur.
„Í því tilviki hefði upptaka með
sjónarhorni lögreglumannsins
hjálpað til við að greina ástæðu
andlátsins og hefði getað komið
í veg fyrir misræmi í framburði,”
segir hann.
„Þegar lögreglumenn standa
frammi fyrir erfiðum verkefnum
eins og þessum þá er það þjálfun,
fræðsla og reynsla sem mestu máli
skiptir, frekar en sú hugmynd um
að fólk sé meðvitað um að það sé
verið að taka upp,” bætir Sebastian
við, aðspurður hvort myndavél
hefði getað breytt einhverju í tilfelli
konunnar.
Þá bendir Sebastian á að öll gögn
sýni fram á mikilvægi myndavéla á
lögreglumönnum og því sé eðlilegt
að lögreglan hér á landi bregðist við
því.
„Það hafa fjölmargar rannsóknir
verið gerðar á þessu sviði. Það
skiptir engu máli til hvaða landa
er litið, útkoman er alltaf sú sama:
búkmyndavélar bæta samskipti
lögreglu og almennra borgara.”
Myndavélarnar fjörutíu, sem lög-
reglan keypti nýverið, voru teknar
í notkun um þar síðustu helgi. Tíu
myndavélar voru keyptar í tilrauna-
skyni árið 2016 og í framhaldinu
var ákveðið að kaupa f leiri vélar
með það að markmiði að afla betri
sönnunargagna. Fimmtíu lögreglu-
menn á höfuðborgarsvæðinu bera
nú myndavélar við skyldustörf.
sunnak@frettabladid.is
Búkmyndavélar lögreglu séu
til bóta við rannsókn mála
Sebastian Kunz er réttarmeinafræðingur. Hluti af starfi hans er að meta ákverka eftir átök. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Réttarmeinafræðingur
á Landspítalanum segir
búkmyndavélar geta
flýtt og auðveldað við
rannsóknir á saka-
málum. Lögreglan festi
nýlega kaup á fjörutíu
slíkum vélum.
Donald
Trump.
1 Bólginn og marinn eftir þung högg og spörk Björgunar
sveitarmaðurinn sem ráðist var á á
Ljósanótt er á batavegi.
2 Jón Gunnars son: „Al ger lega ó rök stutt þvaður“ Þingmenn
irnir Jón Gunnarsson og Helga Vala
Helgadóttir tókust hart á vegna
boðaðra friðlýsinga umhverfisráð
herra.
3 Völl i Snær flog inn til Bah am a-eyj a til að hjálp a fórn ar lömb-
um fell i byls ins Mat reiðslumaður
inn Völ und ur Snær Völ und ar son er
floginn út til Bahama eyjanna til að
hjálpa fórnarlömbum fellibylsins
Dorians.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
BREXIT Utanríkisráðherra Frakka
vill að Bretar taki ábyrgð á því
ástandi sem upp er komið í sam-
bandi við Brexit. Svar Frakka við
frestun Breta á útgöngu úr Evrópu-
sambandinu sé nei, að svo stöddu.
Ráðherrann segir jafnframt að
nýjar lausnir Breta í Brexit séu
allar í orði en ekki á borði. „Við
getum ekki gengið í gegnum þetta
á þriggja mánaða fresti,“ sagði ráð-
herrann við fjölmiðla í gær. Bretar
hafa tvisvar þurft að fresta útgöngu
úr sambandinu.
Hart er deilt í Bretlandi um næstu
skref í Brexit. Forsætisráðherrann,
Boris Johnson, segist ætla út úr sam-
bandinu þann 31. október, með eða
án samnings. Hann hefur, þrátt
fyrir stutta ráðherratíð, þegar misst
þingmeirihluta og rekið 21 þing-
mann úr Íhaldsflokki sínum fyrir
að greiða atkvæði með lögum
sem koma í veg fyrir samnings-
lausa útgöngu Breta.
Amber Rudd, ráðherra verkalýðs-
mála, hætti í ríkisstjórn Johnsons
um helgina. Hún sagði engar form-
legar viðræður í gangi við ESB. - ósk
Nei við frestun
Boris Johnson,
forsætisráðherra
Bretlands.
9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
A
-7
2
E
0
2
3
B
A
-7
1
A
4
2
3
B
A
-7
0
6
8
2
3
B
A
-6
F
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K