Fréttablaðið - 09.09.2019, Side 10
Þvottavél,
iQ700
Fullt verð: 129.900 kr.
Tækifærisverð: WM 14W4L7DN
99.900 kr.
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með
10 ára ábyrgð. Sérkerfi eru meðal
annars: Útifatnaður, skyrtur, mjög stutt
kerfi (15 mín.), blandaður þvottur,
dúnkerfi, viðkvæmt/silki, ull o.fl.
Tekur mest
7
Orkuflokkur
10 ára
ábyrgð á
iQdrive
mótornum.
Þurrkari,
iQ300
Fullt verð: 129.900 kr.
Tækifærisverð: WT 45RVB8DN
99.900 kr.
Gufuþétting, enginn barki. Sérkerfi:
Ull, blandaður þvottur, útifatnaður,
handklæði, tímastillt kerfi, undirföt,
hraðkerfi 40 mín. og skyrtur.
Krumpuvörn í lok kerfis.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
Tæki færi
FÓTBOLTI Leikur Íslands og Mol-
dóvu í undankeppni EM 2020 í
knattspyrnu fór eins og best verður
á kosið. Íslenska liðið vann þegar
upp var staðið þægilegan sigur þar
sem lykilleikmenn liðsins komu
heilir frá verkefninu. Það sem gladdi
stuðningsmenn íslenska liðsins
ekki síst var það að Kolbeinn Sig-
þórsson lék í byrjunarliði í mótsleik
í fyrsta skipti síðan í lokakeppni
Evrópumótsins sumarið 2016.
Margir fussuðu og sveiuðu þegar
Erik Hamrén og Freyr Alexanders-
son völdu Kolbein hvað eftir annað
í landsliðshópinn og gáfu honum
mínútur í Þjóðadeildinni og vin-
áttulandsleikjum á meðan Kol-
beinn var úti í kuldanum hjá Nantes
og svo að því er virtist í vandræðum
með að finna sér nýtt félag.
Leikurinn í gær sýndi og sann-
aði að Hamrén og Freyr voru með
langtímaplan sem er að ganga upp
á þessum tímapunkti. Kolbeinn
braut ísinn í leiknum gegn Moldóvu
Hamrén átti kollgátuna með Kolbein
Kolbeinn Sigþórsson lék klukkutíma þegar Ísland vann Moldóvu og ljóst er að hann er óðum að finna sitt fyrra form með landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbeinn Sigþórsson
skoraði sitt fyrsta mark
á Laugardalsvelli í rúm
þrjú ár þegar hann kom
íslenska karlalands-
liðinu í knattspyrnu á
bragðið í sannfærandi
sigri gegn Moldóvu í
undankeppni EM 2020
um helgina. Eftir erfiða
og meiðslum hrjáða
tíma hjá Kolbeini er út-
lit fyrir bjartari tíma á
næstu misserum.
á laugardaginn með snotru marki
sem var það 24. á landsliðsferlinum
sem setur hann tveimur mörkum
frá Eiði Smára Guðjohnsen sem er
á toppnum á listanum yfir marka-
hæstu leikmenn í sögu landsliðsins.
Hamrén var spurður út í stöðuna
á Kolbeini á blaðamannafundi
eftir sigurleikinn gegn Moldóvu.
Hamrén sagðist að sjálfsögðu vera
ánægður með frammistöðu Kol-
beins en hrósaði þar um leið spila-
mennsku Jóns Daða en þeir félagar
náðu vel saman í framlínunni. Sví-
inn vildi ekki segja af eða á um það
hvort Kolbeinn yrði klár í slaginn
þegar íslenska liðið sækir Albaníu
heim á morgun.
Spurningamerki hversu mikið
Kolbeinn getur spilað
Kolbeinn hefur hægt og sígandi
aukið spiltíma sinn hjá sænska lið-
inu AIK síðan hann gekk til liðs við
félagið og síðustu vikur hefur hann
spilað um og yfir klukkutíma líkt
og hann gerði í leiknum á móti Mol-
dóvu. Hamrén sagði að staðan yrði
tekin þegar komið væri til Albaníu
hvort Kolbeinn væri klár í annan
slag. Ljóst var á svörum Hamrén að
það væri spurning hvort Kolbeinn
gæti spilað í klukkutíma eða hálf-
tími af varamannabekknum yrði
raunin.
Leikurinn við Albaníu ytra verð-
ur annars eðlis en sigurleikurinn
við Moldóvu. Albaníumenn eru
mun sterkari en Moldóvar og svo er
munur á því að leika á heimavelli og
að leika eftir ferðalag á útivöll. Það
er bót í máli fyrir íslenska liðið að
leikmenn leystu verkefnið á móti
Moldóvum fagmannlega, komust
tveimur mörkum yfir f ljótlega í
seinni hálf leik og gátu tekið Kol-
bein út af snemma, kippt Birki af
velli áður en hann fékk áminningu
og færi þá í leikbann og Aron Einar
Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson
þurftu ekki að taka á honum stóra
sínum undir lok leiksins.
Þá reyndi lítið sem ekkert á
Hannes Þór Halldórsson og varnar-
línuna utan þess að þurfa að halda
einbeitingu sem reynir vissulega á
andlega þáttinn. Þá fékk Emil Hall-
freðsson mikilvægar mínútur til
þess að koma sér í leikform fyrir
leikinn gegn Albaníu.
Það kæmi lítið á óvart að Hamrén
og Freyr myndu fara úr leikkerfinu
4-4-2 yfir í 4-3-3 í leiknum gegn
Albönum á morgun. Þar koma Emil
Hallfreðsson og Rúnar Már Sigur-
jónsson til greina til þess að þétta
raðirnar inni á miðsvæðinu. Þá fer
það líklega eftir því hvort Kolbeinn
er í líkamlegu formi til þess að spila
í klukkutíma eða hálftíma hvort
hann byrji eður ei. Það leikplan sem
sett var upp í leiknum á móti Tyrk-
landi með Jón Daða uppi á toppi
með Gylfa Þór fyrir aftan sig og
Birki Bjarnason á öðrum kantinum
og Arnór Ingva Traustason hinum
megin kemur þá sterklega til greina.
hjorvaro@frettabladid.is
Kolbeinn Sigþórsson lék
sinn fyrsta leik í byrjunar-
liði fyrir íslenska liðið síðan
á EM 2016 og skoraði sitt
fyrsta mark á Laugardals-
velli fyrir liðið í rúm þrjú ár.
9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
9
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
A
-5
A
3
0
2
3
B
A
-5
8
F
4
2
3
B
A
-5
7
B
8
2
3
B
A
-5
6
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K