Fréttablaðið - 09.09.2019, Page 10

Fréttablaðið - 09.09.2019, Page 10
Þvottavél, iQ700 Fullt verð: 129.900 kr. Tækifærisverð: WM 14W4L7DN 99.900 kr. Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Sérkerfi eru meðal annars: Útifatnaður, skyrtur, mjög stutt kerfi (15 mín.), blandaður þvottur, dúnkerfi, viðkvæmt/silki, ull o.fl. Tekur mest 7 Orkuflokkur 10 ára ábyrgð á iQdrive mótornum. Þurrkari, iQ300 Fullt verð: 129.900 kr. Tækifærisverð: WT 45RVB8DN 99.900 kr. Gufuþétting, enginn barki. Sérkerfi: Ull, blandaður þvottur, útifatnaður, handklæði, tímastillt kerfi, undirföt, hraðkerfi 40 mín. og skyrtur. Krumpuvörn í lok kerfis. Tekur mest 8 Orkuflokkur Tæki færi FÓTBOLTI Leikur Íslands og Mol- dóvu í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu fór eins og best verður á kosið. Íslenska liðið vann þegar upp var staðið þægilegan sigur þar sem lykilleikmenn liðsins komu heilir frá verkefninu. Það sem gladdi stuðningsmenn íslenska liðsins ekki síst var það að Kolbeinn Sig- þórsson lék í byrjunarliði í mótsleik í fyrsta skipti síðan í lokakeppni Evrópumótsins sumarið 2016. Margir fussuðu og sveiuðu þegar Erik Hamrén og Freyr Alexanders- son völdu Kolbein hvað eftir annað í landsliðshópinn og gáfu honum mínútur í Þjóðadeildinni og vin- áttulandsleikjum á meðan Kol- beinn var úti í kuldanum hjá Nantes og svo að því er virtist í vandræðum með að finna sér nýtt félag. Leikurinn í gær sýndi og sann- aði að Hamrén og Freyr voru með langtímaplan sem er að ganga upp á þessum tímapunkti. Kolbeinn braut ísinn í leiknum gegn Moldóvu Hamrén átti kollgátuna með Kolbein Kolbeinn Sigþórsson lék klukkutíma þegar Ísland vann Moldóvu og ljóst er að hann er óðum að finna sitt fyrra form með landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbeinn Sigþórsson skoraði sitt fyrsta mark á Laugardalsvelli í rúm þrjú ár þegar hann kom íslenska karlalands- liðinu í knattspyrnu á bragðið í sannfærandi sigri gegn Moldóvu í undankeppni EM 2020 um helgina. Eftir erfiða og meiðslum hrjáða tíma hjá Kolbeini er út- lit fyrir bjartari tíma á næstu misserum. á laugardaginn með snotru marki sem var það 24. á landsliðsferlinum sem setur hann tveimur mörkum frá Eiði Smára Guðjohnsen sem er á toppnum á listanum yfir marka- hæstu leikmenn í sögu landsliðsins. Hamrén var spurður út í stöðuna á Kolbeini á blaðamannafundi eftir sigurleikinn gegn Moldóvu. Hamrén sagðist að sjálfsögðu vera ánægður með frammistöðu Kol- beins en hrósaði þar um leið spila- mennsku Jóns Daða en þeir félagar náðu vel saman í framlínunni. Sví- inn vildi ekki segja af eða á um það hvort Kolbeinn yrði klár í slaginn þegar íslenska liðið sækir Albaníu heim á morgun. Spurningamerki hversu mikið Kolbeinn getur spilað Kolbeinn hefur hægt og sígandi aukið spiltíma sinn hjá sænska lið- inu AIK síðan hann gekk til liðs við félagið og síðustu vikur hefur hann spilað um og yfir klukkutíma líkt og hann gerði í leiknum á móti Mol- dóvu. Hamrén sagði að staðan yrði tekin þegar komið væri til Albaníu hvort Kolbeinn væri klár í annan slag. Ljóst var á svörum Hamrén að það væri spurning hvort Kolbeinn gæti spilað í klukkutíma eða hálf- tími af varamannabekknum yrði raunin. Leikurinn við Albaníu ytra verð- ur annars eðlis en sigurleikurinn við Moldóvu. Albaníumenn eru mun sterkari en Moldóvar og svo er munur á því að leika á heimavelli og að leika eftir ferðalag á útivöll. Það er bót í máli fyrir íslenska liðið að leikmenn leystu verkefnið á móti Moldóvum fagmannlega, komust tveimur mörkum yfir f ljótlega í seinni hálf leik og gátu tekið Kol- bein út af snemma, kippt Birki af velli áður en hann fékk áminningu og færi þá í leikbann og Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson þurftu ekki að taka á honum stóra sínum undir lok leiksins. Þá reyndi lítið sem ekkert á Hannes Þór Halldórsson og varnar- línuna utan þess að þurfa að halda einbeitingu sem reynir vissulega á andlega þáttinn. Þá fékk Emil Hall- freðsson mikilvægar mínútur til þess að koma sér í leikform fyrir leikinn gegn Albaníu. Það kæmi lítið á óvart að Hamrén og Freyr myndu fara úr leikkerfinu 4-4-2 yfir í 4-3-3 í leiknum gegn Albönum á morgun. Þar koma Emil Hallfreðsson og Rúnar Már Sigur- jónsson til greina til þess að þétta raðirnar inni á miðsvæðinu. Þá fer það líklega eftir því hvort Kolbeinn er í líkamlegu formi til þess að spila í klukkutíma eða hálftíma hvort hann byrji eður ei. Það leikplan sem sett var upp í leiknum á móti Tyrk- landi með Jón Daða uppi á toppi með Gylfa Þór fyrir aftan sig og Birki Bjarnason á öðrum kantinum og Arnór Ingva Traustason hinum megin kemur þá sterklega til greina. hjorvaro@frettabladid.is Kolbeinn Sigþórsson lék sinn fyrsta leik í byrjunar- liði fyrir íslenska liðið síðan á EM 2016 og skoraði sitt fyrsta mark á Laugardals- velli fyrir liðið í rúm þrjú ár. 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 9 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B A -5 A 3 0 2 3 B A -5 8 F 4 2 3 B A -5 7 B 8 2 3 B A -5 6 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.