Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Háskóli unga fólksins var settur í 16. sinn í gær-
morgun, en skólinn fagnar nú 15 ára afmæli.
Kristín Ása Einarsdóttir, skólastjóri Háskóla
unga fólksins, segir að einu sinni á ári í tæpa viku sé
Háskóli Íslands opnaður fyrir ungu kynslóðinni.
Kristín segir Háskóla unga fólksins vera í raun
samfélagsverkefni sem gefi krökkum skráargat inn
í fræðin. Krakkarnir fái að upplifa vísindin með
fræðimönnum Háskóla Íslands og kynnast í leiðinni
ólíkum fræðagreinum af öllum fræðasviðum háskól-
ans, kynnast háskólasvæðinu og upplifa alls konar
skemmtilega hluti.
370 krakkar á aldrinum 12 til 16 ára komast að í
Háskóla unga fólksins. Aðsókn í skólann er mikil og
öll pláss fyllast um leið og opnað er fyrir skráningu.
Líflegir nemendur í
Háskóla unga fólksins
Japönsk fræði, skurðlækningar og tækjaforritun
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Áhugasöm Nemendur í Háskóla unga fólksins á námskeiði í
blaða- og fréttamennsku í Veröld húsi Vigdísar í gær.
Óliver Bjarkason sem var
að klára 7. bekk var nýkom-
inn úr spænskutíma og á
leiðinni í áfanga sem heitir
furðuleg form og tengist
formum og stærðfræði.
Hann valdi fagið vegna þess
að hann langar til að verða
arkitekt í framtíðinni. Anya
Maria Mosty var að koma
úr í frönskutíma og á leið í
blaða- og fréttamennsku.
Anya María segir áhugavert
að sjá hvernig vinna við
blaða- og fréttamennsku
fari fram.
Á fimmtudag sem er þemadagur fara Óliver og Anya María saman í listir og
lífsleikni njótum lífsins. Þau hafa hvorugt komið áður í Háskóla unga fólks-
ins. Óliver segist vilja nota sumarfríið frá grunnskólanum til að læra meira
af því að hann hafi gaman af því og Anya María segir að vinkona hennar
sem búin var að prófa Háskóla unga fólksins hafi sagt að það væri skemmti-
legt að fara í hann og svo finnst Anyu Maríu einnig gaman að prófa eitthvað
nýtt.
Styrmir Ólafsson sem fer í 8. bekk í
haust ætlar að sitja tíma í skurð-
lækningum og forritun. Hann segir
móður sína hafa pantað fyrir hann í
Háskóla unga fólksins og valið fög-
in. Hann hefði alveg kosið að fara
ekki í nám strax að loknum skóla en
hann hlakki samt til að kynnast nýj-
um hlutum.
Bergur Fáfnir Bjarnason, sem
kláraði 7. bekk í vor, valdi sér
efnafræði og lyfjafræði í Há-
skóla unga fólksins.
,,Mér fannst þetta spennandi
og áhugaverð fög og er að
skoða það sem ég vil læra í
framtíðinni. Ég gæti kannski
hugsað mér verða sálfræð-
ingur síðar,“ segir Bergur
Fáfnir sem kemur í Háskóla
unga fólksins annað árið í röð. Bergur segir gott að koma beint í
Háskólann eftir grunnskólann því þá hafi hann eitthvað að gera.
Hildur Eva Einarsdóttir og Glódís María Gunn-
arsdóttir, voru búnar í kennslustund í íþrótta-
og heilsufræði. Þær voru á leið í skurðlækn-
ingar eftir frímínútur og síðar í efnafræði og
vindmyllur og vasaljós.
,,Við völdum þessi fög af því að okkur fannst
þau spennandi og langaði að vita meira. Við
stefnum ekki á að verða læknar eða hjúkr-
unarfræðingar,“ segja Glódís María og Hildur
Eva en Hildur hefur sótt Háskóla unga fólksins
áður. Vinkonurnar eru ekki búnar að fá nóg af
skóla. Þær eru spenntar fyrir framhaldinu og
segja gaman að læra eitthvað nýtt og leika sér.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reitir og Mosfellsbær undirrituðu
fyrir helgina viljayfirlýsingu um
skipulag og uppbyggingu atvinnu-
svæðis í landi Blikastaða í Mos-
fellsbæ. Um er að ræða 15 hekt-
ara svæði sem afmarkast af
Vesturlandsvegi, Korpúlfs-
staðavegi og sveitarfélagamörkum
Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.
Reitir fasteignafélag er stærsta
félagið í útleigu atvinnuhúsnæðis á
Íslandi.
Samkvæmt aðalskipulagi Mos-
fellsbæjar er landnotkun svæð-
isins skilgreind sem blönduð land-
notkun fyrir léttan iðnað, verslanir
og þjónustustarfsemi. Svæðið ligg-
ur að fyrirhugaðri íbúðabyggð í
Blikastaðalandi og gert er ráð fyr-
ir að borgarlínan liggi í gegnum
svæðið í framtíðinni.
Þegar svæðið verður að fullu
uppbyggt má gera ráð fyrir því að
húsnæði fyrir atvinnustarfsemi
hafi tvöfaldast í Mosfellsbæ en að-
alskipulag bæjarins gerir ráð fyrir
að þarna geti risið allt að 100 þús-
und fermetrar af húsnæði fyrir
þjónustu og verslun. „Þetta svæði
er afskaplega vel í sveit sett og
vel staðsett og verður án efa mikil
lyftstöng fyrir atvinnulíf í Mos-
fellsbæ sem og höfuðborgarsvæðið
allt,“ segir Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, í frétt á
heimasíðu Reita.
„Atvinnukjarninn mun njóta
góðs af nálægð við gróin íbúða-
hverfi en ekki síður vegna góðra
tenginga við gatnakerfið og öflug-
ar almenningssamgöngur seinna
meir. Atvinnukjarni á Blikastöðum
opnar nýjan möguleika í húsnæð-
ismálum fyrir framsýn fyrirtæki
og stofnanir. Viljayfirlýsingin í
dag rammar inn þá vegferð sem
nú er hafin og hlökkum við til
samstarfsins við Mosfellsbæ,“ seg-
ir Friðjón Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Reita,
í fréttinni.
Reitir eignuðust landið árið
2017. Seljendur voru Arion banki
og LT lóðir ehf. og kaupverðið var
850 milljónir króna.
Mynd/Reitir
Blikastaðir Hið nýja atvinnusvæði mun rísa við hliðina á Vesturlandsvegi,
allt að 100 þúsund fermetrar. Mikil skógrækt er í hlíðum Úlfarsfellsins.
Atvinnusvæði í
Blikastaðalandi
Reitir munu byggja upp nýtt hverfi
Allt að 100 þúsund fermetrar rísa
Kosningu í lýðræðisverkefninu
Okkar Mosó 2019 er lokið. Met-
þátttaka var í kosningunni sem
stóð frá 17. til 28. maí eða 19,1%
sem er mesta þátttaka sem hefur
verið í sambærilegum kosningum
á Íslandi. Jafnvel gæti hér verið
um heimsmet að ræða, sem ekki
er þó staðfest. Tæplega 1.800
manns tóku þátt í kosningunni.
Hægt er að sjá yfirlit yfir öll
verkefni og fylgjast með gangi
framkvæmda inni á www.mos.is/
okkarmoso. Þar er nokkur fjöldi
verkefna sem fóru ekki í kosningu
en munu samt sem áður fá verð-
skuldaða umfjöllun í stjórnkerfi
bæjarins, segir á heimasíðunni.
Ærslabelgur á Stekkjarflöt fékk
flest atkvæði eða 962. Skíða- og
brettaleiksvæði í Ullarnesbrekku
fékk 715, flokkunarruslafötur 646
og merkingar á toppum bæjarfella
og fjalla 614 atkvæði.
Nýtt Íslandsmet í þátttöku
LÝÐRÆÐISVERKEFNIÐ OKKAR MOSÓ 2019
Adiya Kumar sem er 12 ára
og var að klára 6. bekk segist
vera mættur í Háskóla unga
fólksins af því að hann hafi
fengið styrk til þess. Hann er
að læra forritun, efnafræði
og vindur og vasaljós og hef-
ur ekki farið áður í Háskóla
unga fólksins. Adiya valdi
fögin sem hann fer í vegna
þess að honum leist vel á þau
og heldur að það verði
skemmtilegt. Hann er ekki búinn að ákveða hvað hann tekur sér
fyrir hendur þegar hann verður eldri.