Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Í dag er ár liðið frá fyrsta fundi Don-
alds Trumps Bandaríkjaforseta með
Kim Jong-un, leiðtoga einræðis-
stjórnarinnar í Norður-Kóreu, þegar
þeir hétu því að vinna að kjarnorku-
afvopnun Kóreuskaga. Fátt bendir
til þess að fundurinn hafi verið jafn-
mikið afrek og Trump lét í veðri
vaka, að mati stjórnmálaskýrenda
sem telja að vonirnar sem forsetinn
og fleiri bundu við leiðtogafundinn
hafi verið óraunhæfar og einkennst
af óskhyggju.
„Strax eftir leiðtogafundinn í
Singapúr reið yfir okkur bylgja
óraunhæfra væntinga, næstum því
hjákátlegra,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Andrei Lankov, sérfræðingi í
málefnum Kóreuríkjanna og prófess-
or við Kookmin-háskóla í Seoul. „Svo
gerðu menn sér grein fyrir því sem
hefur alltaf verið augljóst – Norður-
Kóreumenn ætla ekki að afsala sér
kjarnavopnum.“
Undarleg ofurbjartsýni
Fundinum í Singapúr lauk með því
að leiðtogarnir undirrituðu yfir-
lýsingu með mjög óljósu loforði um
að löndin ynnu að „algerri kjarnorku-
afvopnun Kóreuskaga“. Trump lýsti
árangrinum af viðræðunum sem
miklu afreki og sagði jafnvel eftir
leiðtogafundinn að engin hætta staf-
aði lengur af kjarnavopnum Norður-
Kóreu.
Fyrir fundinn hafði Trump lýst sér
sem afburðasnjöllum samninga-
manni. Hann kvaðst telja að Kim
hefði verið „mjög hreinskilinn“,
„mjög heiðvirður“ og „mjög einlæg-
ur“ í viðræðunum um afvopnun.
Hann talaði um að samband sitt við
einræðisherrann í Norður-Kóreu
væri „dásamlegt“ og stuðningsmenn
hans sögðu að forsetinn hefði náð
meiri árangri gagnvart Norður-
Kóreu með tísti sínu og stóryrðum á
Twitter en forverar hans með hefð-
bundnari aðferðum síðustu áratugi.
Fylgismenn hans í Bandaríkjunum
voru farnir að tala í spjallþáttum
sjónvarps- og útvarpsstöðva um að
Trump verðskuldaði friðarverðlaun
Nóbels fyrir að knýja einræðisherr-
ann að samningaborðinu.
Þessi ofurbjartsýni í aðdraganda
leiðtogafundarins var furðuleg í ljósi
sögu einræðisstjórnar Norður-Kóreu
sem gerði tvo samninga um að hætta
kjarnorkutilraunum sínum og sveik
þá báða. Svo virðist sem Trump hafi
vanmetið viðsemjandann, ekki gert
sér grein fyrir hversu flóknar samn-
ingaviðræðurnar yrðu, og ofmetið
hæfileika sína sem samningamanns.
Leiðtogarnir héldu annan fund í
Víetnam í febrúar en viðræðunum
var slitið vegna ágreinings um hvað
stjórn Norður-Kóreu þyrfti að gera
til að refsiaðgerðum gegn henni yrði
aflétt. Síðan þá hefur hvorki gengið
né rekið í viðræðunum um kjarn-
orkuafvopnun Kóreuskagans.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa kraf-
ist þess að Bandaríkjastjórn slaki á
viðskiptaþvingunum þegar í stað en
Bandaríkjastjórn hefur neitað því og
sagt að ekki komi til greina að gera
það fyrr en Norður-Kóreumenn eyði
kjarnavopnum sínum. Talið er að ein-
ræðisstjórnin vilji öryggistryggingar
sem bandarísk stjórnvöld hafa aldrei
léð máls á. Þegar leiðtogar Norður-
Kóreu tala um kjarnorkuafvopnun
Kóreuskagans hafa þeir sett þau skil-
yrði að bandarísku hersveitirnar í
Suður-Kóreu verði fluttar þaðan og
stjórnin í Washington skuldbindi sig
til að beita ekki kjarnavopnum til að
vernda landið. Margir fréttaskýr-
endur eru efins um að einræðis-
stjórnin sé í raun tilbúin að afsala sér
kjarnavopnum nú þegar hún hefur
orðið sér úti um slík vopn og smíðað
langdrægar eldflaugar. Þeir telja að
hún sé staðráðin í að öðlast viður-
kenningu sem kjarnorkuveldi og not-
færa sér þessa stöðu sína út í ystu
æsar, m.a. til að binda enda á refsiað-
gerðirnar gegn landinu.
Taldar geta borið kjarnaodda
AFP hefur eftir embættismönnum
í Washington að fulltrúar Banda-
ríkjastjórnar hafi ekki átt neina fundi
með embættismönnum Norður-
Kóreu eftir leiðtogafundinn í Víet-
nam. Einræðisstjórnin í Pjongjang
hefur krafist þess að tveimur af
helstu samstarfsmönnum Trumps í
öryggismálum verði vikið frá störf-
um, þeim Mike Pompeo utanríkis-
ráðherra og John Bolton þjóðarör-
yggisráðgjafa. Norður-Kóreumenn
hafa einnig skotið á loft meðal-
drægum eldflaugum í tilraunaskyni
en Trump hefur gert lítið úr hætt-
unni sem stafar af þeim.
Talið er þó að eldflaugarnar geti
borið kjarnaodda og hægt væri að
skjóta þeim á bandarískar her-
stöðvar í Suður-Kóreu, að því er The
Wall Street Journal hefur eftir
suðurkóreskum sérfræðingum í ör-
yggismálum. Eldflaugarnar eru tald-
ar líkjast rússneskum Iskander-
flaugum. „Ég tel ekki að her Suður-
Kóreu eða bandarísku hersveitirnar
séu með nógu öflugar eldflaugavarn-
ir til að geta verndað landið gegn
norður-kóreskum Iskander-
flaugum,“ hefur blaðið eftir Cheon
Seong-whun, fyrrv. embættismanni
Þjóðaröryggisráðs Suður-Kóreu.
Vonirnar báru keim af óskhyggju
Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðum um kjarnorkuafvopnun Kóreuskaga Talið er að nýjar
flaugar Norður-Kóreu geti borið kjarnaodda og hægt væri að skjóta þeim á bandarískar herstöðvar
Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðunum um kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu eftir fundinn
Ár liðið frá fyrsta leiðtogafundi Trumps og Kims
Heimildir og ljósmyndir: AFP/KCNA/Saul Loeb/Kim Hong-Ji
Leiðtogarnir undirrituðu
mjög óljósa yfirlýsingu
um að löndin ynnu að
„algerri kjarnorkuafvopnun
Kóreuskaga“ og Trump
sagði að enginn hætta
stafaði lengur af kjarna-
vopnum Norður-Kóreu
Trump gerði hlé á árlegum
heræfingum Bandaríkjanna
og S-Kóreu. Kim hét því að
stöðva kjarnorkutilraunir
Donald Trump Bandaríkja-
forseti og Kim Jong-Un,
leiðtogi N-Kóreu, héldu
fyrsta leiðtogafund sinn
N-Kóreumenn afhentu líkams-
leifar rúmlega 50 bandarískra her-
manna sem féllu í Kóreustríðinu
Singapúr
12. júní 2018
Utanríkisráðherra Trumps,
Mike Pompeo (t.h.), fór í
nokkrar ferðir til Pjongjang
Helsti sendimaður Kims
Jong-uns, Kim Yong-chol,
fór tvisvar í heimsókn
í Hvíta húsið
Helstu samninga-
menn landanna
tveggja
27. júlí
Trump og Kim
héldu
annan
fund sinn
27. febrúar 2019
Hanoi
Sérfræðingar töldu að
N-Kóreumenn hefðu
hafið framkvæmdir á ný
við kjarnorkubyggingu
6. mars
N-Kóreumenn skutu á
loft skammdrægri eld-
flaug í tilraunaskyni
í fyrsta skipti frá
nóvember 2017
18. apríl
Kim og Vladimír Pútín
Rússlandsforseti héldu
fyrsta leiðtogafund sinn
og litið var á hann sem lið
í tilraunum N-Kóreustjórnar
til að auka stuðninginn við
afnám refsiaðgerðanna
25. apríl
N-Kóreustjórn sagði að hún myndi
aldrei hefja viðræður að nýju um
kjarnorkuafvopnun nema stjórn
Trumps breytti afstöðu sinni til
afnáms refsiaðgerða gegn N-Kóreu
24. maí
Fundinum var slitið þar sem
leiðtogunum tókst ekki að
ná samkomulagi um hvað
Norður-Kóreustjórn þyrfti
að gera til að refsiaðgerðum
gegn henni yrði aflétt
28. febrúar
Kim Jong-nam, hálfbróðir ein-
ræðisherra Norður-Kóreu, var í
tengslum við bandarísku leyniþjón-
ustuna CIA áður en hann var myrt-
ur í Malasíu árið 2017, að því er
bandaríska dagblaðið The Wall
Street Journal hefur eftir
heimildarmönnum sínum. Einn
þeirra sagði að Kim Jong-nam
hefði átt nokkra fundi með njósn-
urum bandarísku leyniþjónust-
unnar og veitt þeim upplýsingar.
„Það voru tengsl á milli hans og
CIA.“
Myrtur með eiturefni
Kim Jong-nam var elsti sonur
Kim Jong-ils, fyrrverandi einræðis-
herra Norður-Kóreu, og um tíma
talinn líklegur eftirmaður hans.
Jong-nam féll þó í ónáð árið 2001
eftir að hann var handtekinn á
flugvelli í Japan með falsað vega-
bréf þegar hann hugðist skemmta
sér í Disneylandi í Tókýó. Hann fór
í útlegð árið 2003, gagnrýndi ein-
ræðisstjórnina í Norður-Kóreu og
hvatti til umbóta í landinu að kín-
verskri fyrirmynd.
Jong-nam var myrtur með eitur-
efninu VX sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa skilgreint sem gereyð-
ingarvopn og er öflugasta tauga-
eitur sem vitað er með vissu að hafi
verið framleitt. Stjórnvöld í Mal-
asíu og Suður-Kóreu saka ein-
ræðisstjórnina í Norður-Kóreu um
að hafa fyrirskipað morðið en hún
neitar því.
Tvær ungar konur voru hand-
teknar og ákærðar fyrir að hafa
nuddað klút á andlit Jong-nams í
innritunarsal alþjóðaflugvallarins í
Kúala Lúmpúr 13. febrúar 2017
skömmu áður en hann dó. Kon-
urnar sögðu að óþekktir menn
hefðu ginnt þær til að gera árásina
og talið þeim trú um hún væri að-
eins hrekkur sem sýndur yrði í
sjónvarpsþætti. Yfirvöld í Malasíu
féllu frá ákærunum og konurnar
voru leystar úr haldi fyrr á árinu.
Hálfbróðir einræðisherra N-Kóreu
sagður hafa veitt CIA upplýsingar
AP
Hálfbróðirinn Kim Jong-nam á
flugvelli í Tókýó í maí 2001.
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Yfirvöld í Rúss-
landi tilkynntu í
gær að fallið
hefði verið frá
ákæru á hendur
rannsóknar-
blaðamanninum
Ívan Golúnov
sem var handtek-
inn í Moskvu í
vikunni sem leið
og ákærður fyrir
fíkniefnasölu. Lögfræðingar og
stuðningsmenn Golúnovs segja að
lögreglan hafi komið fyrir fíkniefn-
um í bakpoka og íbúð hans áður en
hann var handtekinn með það fyrir
augum að stöðva rannsókn hans á
spillingu embættismanna og fleiri
málum. Ákæran vakti óvenjuhörð
viðbrögð rússneskra dagblaða og
margir Rússar gagnrýndu hana á
samfélagsmiðlum.
RÚSSLAND
Ákæra gegn blaða-
manni felld niður
Ívan Golúnov fyrir
rétti í Moskvu.